Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 5 Prófkjör Alþýðuflokksins í Hafnarfirði; Guðmundur Árni Stefánsson í 1. sæti ússon í samtali við Morgunblaðið. „Þátttakan í þessu prófkjöri var mjög glæsileg," sagði Bjami. „Nú var kosið um þrisvar sinnum færri sæti en í síðasta prófkjöri, 2 á móti 6. Þar af leiðandi var fjöldi fram- bjóðenda mun minni nú, eða 7 á móti 12. Aðeins þessar forsendur hefðu átt að valda mun minni þátt- töku en hún var mjög_ mikil, hátt í það sama og síðast. í annan stað eru úrslitin afgerandi. Það er mjög afgerandi munur milli mín og Sig- urðar og Bryndís kemur frábærlega sterk út úr þessu í annað sætið. Lög Alþýðuflokksins kveða þannig á, að 20% af kjörfylgi frá síðustu kosningum þurfi til að úrslitin séu bindandi og svo er nú. Þeir, sem vilja, geta skoðað öll úrslit próf- kjörsins, en við hin, sem nú höfum sigrað, ætlum bara að vinda okkur að baráttunni framundan, borgar- stjómarkosningunum. Ég vísa öllu tali um það, að úrslitin séu ekki bindandi og niðurstaðan ekki afger- andi á bug,“ sagði Bjami. Sigurður E. Guðmundsson: Eg barðist einn gegn ofurefliliðs „ÉG TEL mig hafa náð mjög góðum árangri í þessu prófkjöri, miðað við allar aðstæður. Mig langar þvi tíl að færa öllu Al- þýðuflokksfólki í borginni, vin- sem kemur fram í íjölgun félags- manna um rúmlega fjögurhundr- 'uð,“ sagði Svavar Gestsson. „Niður- stöðumar sýna að þama er um sigurstranglegann hóp fyrir flokk- inn að bjóða fram og ég tel mikil- vægt að þessum áfanga sé náð og hægt sé að fara að snúa sér að kosningabaráttunni. Forvalið raðar í sæti og markar stefnuna og ég hef ekki orðið var við sérstaka uppreisn hjá okkur, allir em sam- heijar. Það vekur náttúrlega athygli að Guðmundur Þ. Jónsson færist mikið til en það leiðir af sjálfu sér þegar margir stefna á sama sætið. Tryggvi Þór Aðaisteinsson sem er einn af forystumönnum verkalýðs- hreyfingarinnar hreppir sætið en hinn ekki. Hins vegar má benda á að Siguijón Pétursson er kominn til starfa sem félagi í hefðbundnum verkalýðssamtökum og Guðrún Agústsdóttir hefur tekið þátt í verkalýðsmálum á vegum opinberra starfsmanna.“ Hefur orðið útundan í skotgrafahernaði „Það vom mér mikil vonbrigði að Guðmundur Þ. Jónsson skyldi ekki fá fleiri atkvæði en hann fékk,“ sagði Ásmundur Stefánsson. „Það er alveg ljóst að í þessu forvali var mjög hart barist og margir sem sóttust hart eftir að komast mjög ofarlega á listann, ekki síst í 3. sætið. Það er greinilegt að í þessum skotgrafahemaði hefur hann orðið útundan. Ég hefði gjaman viljað hafa list- ann öðmvísi - en hann varð svona og svo er bara að vona að listinn standi sig betur í næstu baráttu - baráttunni við íhaldið.“ Verkafólk er í minni- hluta innan flokksins „Ég held að orsakanna sé ekki langt að leita,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson. „Guðmundur Þ. Jónsson er ekki mikill auglýsinga- maður - ekki snjall í að auglýsa eigið ágæti eins og virðist vera aðalatriðið í forvalinu. Þá sýnist mér að all skuggalegir hlutir séu að gerast sem flokkurinn mætti fara að athuga en það er samsetn- ingin. Hún er orðin þannig að almennt verkafólk er orðið í miklum minnihluta meðal flokksmanna. Vænlegra að vera í skóla en for- svarsmaður láglaunafólks til að komast áfram innan flokksins." um mínurn og velunnurum hjart- anlegar þakkir fyrir stuðning- inn. Ég er þeirra skoðunar að Alþýðuflokksfólk hafi aldrei veitt mér jafn ríkan og mikinn stuðning eins og einmitt nú að þessu sinni. Ég barðist einn gegn ofurefli iiðs, sem saman stóð af mörgum aðilum og öflum,“ sagði Sigurður E. Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið. „í fyrsta lagi er þess að geta,“ sagði Sigurður ennfremur, „að flokksforystan stóð meira og minna sem einn veggur gegn mér og hefur reyndar grafið undan mér leynt og ljóst allt síðastliðið ár. í öðru lagi lít ég svo á, að tveir meðframbjóð- endur mínir, Bjami P. Magnússon og Bryndís Schram, hafi þverbrotið próflqorsreglumar, sem kváðu á um einstaklingsbundin framboð með stofnun sérstaks hræðslubandalags gegn mér einum. Auk þessa veittu þau ótrúlega miklu fjármagni í auglýsingaskyni, hvemig sem það er fengið. í þriðja lagi tel ég að fáranlegar niðurstöður skoðana- könnunar DV í liðinni viku hafi komið eins og eftir pöntun og spillt verulega fyrir mér. En þrátt fyrir allt þetta er ég þeirra skoðunar, að ég hafi haft mjög góða möguleika á því að ná sigri, ef ekki hefði komið eitthvað fleira til. Ég hef sterkan gmn um það, að það hafi verið ein af einkakosningavélunum innan Sjálfstæðisflokksins, sem hafi hlaupið undir bagga með hræðslu- bandalaginu og lagt nægilega mikið að mörkum til þess að það vann sigur. Slíka aðför stóðst ég ekki til viðbótar öllu hinu,“ sagði Sigurður E. Guðmundsson. PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins í Hafnarfirði fór fram uin helg- ina. Finun efstu frambjóðend- urnir hlutu bindandi kosningu, en til þess þurfti a.m.k 267 atkvæði. Hörður Zóphaníasson bæjarfulltrúi gaf ekki kost á sér. Úrslit prókjörsms urðu þannig að Guðmundur Ámi Stefánsson bæjarfulltrúi hlaut 389 í fyrsta sætið. í öðm sæti er Jóna Ósk Guðjónsdóttir með 271 atkvæði í fyrstu tvö sætin. í þriðja sæti er Ingvar Viktorsson með 324 at- kvæði í 1. - 3. sæti. í fjórða sæti er Tryggvi Harðarson með 271 atkvæði í 1. - 4. sæti og í fímmta sæti er Valgerður Guðmundsdóttir með 330 atkvæði í 1. - 5. sæti. Alls kusu 579 manns í prófkjör- inu. PHILCO A HÖRKUGOÐU VERÐI. ÞVOTTAVÉL FYRIR KR. 27.760.- OG ÞURRKARINN FYRIR KR. 20.780.- Philco 421 þurrkarinn. Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrþvotti sama magn og þvottavélin. Hann er einfaldur í notkun; þú velur á milli 3 sjálfvirkra þurrkkerfa sem henta öllum tegundum þvottar. Þurrktími getur varaö allt aö tveimur klst. auk átta mínútna kælingar í lok þurrkunar. Philco w 393 þvottavélin. Ytri belgurinn sem er úr ryðfríu stáli gerir Philco aö enn betri og öruggari þvottavél en áöur. Vélin vindur meö allt aö 1000 snúninga hraöa á mínútu. Hún hefur stóran þvottabelg og. tekur inn á sig bæöi heitt og kalt vatn. Þannig sparast umtalsverö orka. Hægt er aö láta þurrkarann standa ofan á þvottavélinni - það sparar þér dýrmætt rými og eykur vinnuhagræði. Á vélunum er öryggisbúriaður sem tryggir þér betri endingu og lægri viðhaldskostnað. Að síðustu má ekki gleyma að vélarnar heita Philco og eru frá Heimilistækjum. Það talar sínu máli: Traust nöfn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta. Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur. Við erum sveigjanlegir í samningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.