Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRDDJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 13 Lög Gylfa Tónlíst Egill Friöleifsson Norræna húsið 2.2.86. Verkefni: Lög eftir Gylfa Þ. Gislason. Flytjendur: Garðar Cortes, ten- ór, Ólafur Vignir Albertsson, píanó. Almenna bókafélagið efndi til kynningartónleika í Norræna hús- inu sl. sunnudagskvöld í tilefni af útgáfu félagsins á bókinni „20 sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason". Jón Þórarinsson útsetti lögin, en þeir Garðar Cortes og Ólafur Vignir Albertsson fluttu þau á tónleikun- um. Tæpast gerir Gylfí Þ. Gíslason tilkall til þess að vera titlaður tón- skáld, en lagasmiður er hann í góðu meðallagi. Þar sem honum tekst best upp birtist tær og hreinn tónn af ósviknum listrænum blæ og falla yfirleitt ágæta vel að ljóðunum. Frumleg geta þau ekki talist né framsækin, en þræða dyggilega vegi hefðarinnar. Það má velta því fyrir sér hvað orðið hefði, ef Gylfí hefði einbeitt sér að sönglagagerð um dagana, í stað þess að eyða dijúgum hluta starfsævinnar í annars konar lagasmíð við Austur- völl. Lögin urðu til í stopulum frí- stundum í önn dagsins, og spanna yfír hálfrar aldar tímabil. Útsetn- ingar Jóns Þórarinssonar eru fag- mannlega unnar svo sem vænta mátti, lyfta lögunum og hækka ris þeirra. Gylfí leitar víða fanga er hann velur sér ljóð við lög sín, en aðdáun hans á Tómasi Guðmundssyni dylst engum. í bókinni, sem er hin vand- aðasta, er að fínna 20 lög, svo sem titillinn ber með sér. Sum þeirra eru alkunn eins og t.d. „Ég leitaði blárra blóma" og „Hanna litla", en önnur hafa ekki heyrst fyrr. í bók- inni má m.a. líta lög tvö, er hann semur við kvæði föður síns, Þor- steins Gíslasonar, en eitt besta lagið er að mínu mati „Amma kvað“ við kvæði Amar Amarsonar, lítið snot- urt lag, sem nær anda ljóðsins einkar vel. Sem fyrr segir söng Garðar Cortes lögin við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. Garðar túlkaði lögin á mjög persónulegan hátt, lagði áherslu á hinar mildu hliðar, beitti sér lítt og nánast raulaði sum lögin. En það ásamt rabbi hans milli laga, gerði stemmninguna lík- ari samkomu hjá vísnavinum, en konsert hjá ópemsöngvara. Ólafur Vignir stóð vel fyrir sínu V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! og spilaði nett f samræmi við túlkun söngvarans. Vinsældir Gylfa Þ. Gíslasonar leyna sér ekki. Norræna húsið var troðfullt og undirtektir ágætar. Til leigu Verslunar- og skrifstofuhúsnæði í hjarta borgarinnar, við Kirkju- hvol. Ýmsir möguleikar, einnig bakhús 100 fm, þarfnast stand- setningar. Lysthafendur vinsamlega sendi uppl. í pósthólf 1100,121 Reykjavfk merktar: „Kirkjuhvollu. HUTSCHENREUTHER © DE PARIS MAXIM'S sameinar snilld listamannsins PIERRE CARDIN og handbragð HUTSCHENREUTHER, sem er eitt af virtustu framleiðendum postulíns í veröldinni. MAXIM’S hefur hlotið alþjóða lof fyrir frábæra hönnun og einstaka framleiðslu. Þess vegna hefur SILFURBÚÐIN valið MAXIM'S frá HUTSCHENREUTHER sem postulín fyrir þá vandlátu. SILFURBÚÐIN LAUGAVEG 55 SÍMI 11066 vtÉB*s& t ■*«**»* i?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.