Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. AÓstoÓum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. = HEÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA Það er auðvelt að láta hita- stillt Danfoss baðblöndun- artæki leysagamla tækið af hólmi. Spurðu pípulagn- ingarmanninn, hann þekkirDanfoss. = HÉÐINN = SEUAVEGI 2.SIMI 24260_ Vökvamótorar L_____ _____A HITASTILLT BAÐBLÖNDUNARTÆKI VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Landsmálafélagið Vörður Straum- hvörf í ís- lenskum stjórn- málum? Dr. Hannes H. Gissurarson flytur erindi á Varðar- fundi þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl. 20.30 í Sjálf- stæðishúsinu Valhöll sem hann nefnir „Straum- hvörf í íslenskum stjórnmálum?" Að loknu fram- söguerindi verða umræður. Sjálfstæðismenn og aðrir áhugamenn um stjórnmál eru hvattir til að fjölmenna. Stjórn Varðar NYTT SÍMANÚMER Frá 1. febrúar verður símanúmer okkar 681266 BYGGINGAVÖRUR FATNAÐUR HEIMILISVÖRUR MATVARA HOLTAGÖRÐUM SiMI 681266 Alls skráðu um þrjátíu nemendur sig tíl eðlisfræðikeppninnar i Menntaskóla Reykjavíkur, en á myndinni eru 14 af þeim sem taka þátt i keppninni þar. I aftari röð f.v.: Bjarni Ragnarsson, Krist- ján S. Guðmundsson, Einar M. Júlíusson, Magni Þ. Pálsson, Hákon Guðbjartsson, Erlendur Kristjáns- son, Gylfí Magnússon, Sigurður P. Snorrason og Jóhann Hjaltason. Fremri röð f.v.: Ágúst S. Egils- son, Garðar Sigurðsson, Kristján Halldórsson, Hallbjörn Karlsson, Gunnar Kristjánsson og Sigurður Júliusson. Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema: Um 60 taka þátt í landskeppni Landskeppni framhaldsskóla- nema í eðlisfræði fór fram sl. laugardag. Alls höfðu rúmlega 60 nemendur í 9 framhaldsskólum skráð sig til keppninnar. Að keppninni standa Eðlisfræðifélag íslands og Raungreinakennarafé- lag íslands með tilstyrk Morgun- blaðsins. Er þetta þriðja árið í röð sem eðlisfraeðikeppnin fer fram og hefur þátttaka aldrei verið meiri. Síðari hluti eðlisfræði- keppninnar mun fara fram í mars — þá munu fímm efstu menn úr forkeppninni keppa til úrslita, og munu þeir allir hljóta peninga- verðlaun ásamt bókaverðlaunum. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við þrjá nemendur í Menntaskóla Reykjavíkur, sem ætluðu að taka þátt í keppninni, og eðlisfræðikennara þeirra, Þór- arinn Guðmundsson. Voru þeir spurðir hvað þeim fyndist um eðlisfræðikeppnina. „Maður lærir áreiðanlega tölu- vert á því að taka þátt í þessari keppni auk þess sem það verður áreiðanlega skemmtilegt," sagði Hákon Guðbjartsson. „Mér finnst að það megi eins keppa í náms- greinum og íþróttum, auk þess sem maður veit betur hvar maður stendur með því að taka þátt í svona keppni." „Keppni sem þessi reynir kannski meira á hugsun en prófín — þau eru frekar til að kanna þekkingu. Það sem gerir eðlis- fræðina skemmtilega er að hún reynir á hugsunina — þetta er ekki eins mikið staðreyndastagl og í öðrum fögum," sagði Kristján Halldórsson. „Ég hef verið alveg sáttur við þau verkefni sem lögð hafa verið fyrir í eðlisfræðikeppninni undan- farin ár. Það má að vísu segja að þau hafi verið þung, en samt ekki þyngri en svo að við ættum vel að geta fengist við þau útfrá því námsefni _ sem hér er farið yfír,“ sagði Ágúst S. Egilsson. „Það mætti líka minna á það,“ sagði Þórarinn, „að áratugum saman hefur útvarp og sjónvarp verið með spumingaþætti þar sem nær allar spumingar reyna á þekkingu í sögu og bókmenntum. Þar hafa nánast aldrei verið spumingar sem reyna á þekkingu í raungreinum. Ég tel að eðlis- fræðikeppnin eigi fullan rétt á sér og nemendur læra áreiðanlega á því að taka þátt í henni." Það var líka greinilegt að þama sveif andi raungreinanna yfír vötnunum. Þeir Hákon og Krist- ján voru báðir ákveðnir að fara í verkfræði við Háskóla Islands og höfðu mestan áhuga á rafmagns- verkfraéði. Ágúst var líka ákveð- inn í að stunda háskólanám í raungreinum, en hafði þó ekki endanlega ráðið við sig hvaða grein yrði fyrir valinu. Þrír keppenda f Menntaskóla Reykjavíkur ásamt kennara sínum í eðlisfræði, Þórarni Guðmunds- syni. F.v.: Hákon Guðbjartsson, Ágúst S. Egilsson, Þórarinn og Kristján Halldórsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.