Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1986
35
Ólafur Magnússon
Akureyri - Kveðja
Fæddur 7. september 1906
Dáinn 17. desember 1985
Með Ólafi Magnússyni var geng-
inn mikill öðlingur og drengskapar-
maður. Hann var austfírskrar ætt-
ar, fæddur á Ketilsstöðum á Völl-
um, yngstur 6 barna hjónanna
Magnúsar Ólafssonar frá Mjóanesi
og Guðrúnar Gunnarsdóttur frá
Bessastöðum. Af bömum þeirra
hjóna lifir Gunnar, búsettur í
Hveragerði. 17 ára að aldri fór Ólaf-
ur til náms í Gagnfræðaskólanum
á Akureyri og lauk gagnfræðaprófi
1926. Hugur hans mun hafa staðið
til frekara náms, en ytri aðstæður
leyfðu ekki slíkt. Árið 1929 fór
hann austur á æskustöðvar sínar,
og réðst sem kaupamaður til sr.
Þórarins Þórarinssonar á Valþjófs-
stað, og þar dvaldi hann næstu 5
árin. Þessara ára minntist hann oft
með mikilli ánægju. 1934 yfírgaf
hann Fljótsdalshérað fyrir fullt og
allt og fluttist til Akureyrar, þar
sem hann átti heimili tii dauðadags.
Konuefni sínu, Droplaugu Páls-
dóttur frá Borgarfírði eystra,
kynntist hann fyrir austan og gengu
þau í hjónaband 30. nóv. 1937. Þar
steig Olafur eitt af sínum mörgu
gæfusporum. 1939 fá þau leigða
íbúð í húsinu númer 25 við Brekku-
götu, sem þau svo eignuðust
skömmu síðar. Þar hefur því heim-
ili þeirra staðið í hart-nær 50 ár.
Þar var hvorki hátt til lofts né vítt
til veggja, en hjartahlýja og gest-
risni þeirra hjóna var rómuð. Margir
lögðu leið sína í Brekkugötu 25 til
lengri eða skemmri dvalar, enda
vina og frændgarður stór. Framan
af var efnahagur fjölskyldunnar,
sem óðum stækkaði, stundum
þröngur, en fyrir samheldni og
einstaka ráðdeild og nýtni húsfreyj-
unnar, var ætíð nóg að bíta og
brenna. Fimm rósir prýddu rann;
Ásta, Guðrún, Auður, Gerður og
Áslaug, auk þess ólu þau upp dótt-
ursoninn Ólaf, frá blautu bams-
beini. Um 1940 öðlaðist Ólafur
meistararéttindi í pípulögnum.
Hann hóf störf hjá miðstöðvardeild
KEA og vann þar sleitulaust í rösk
20 ár. Síðar hóf hann að vinna á
eigin vegum, uns hann dró saman
seglin um 1980. Starfsdagurinn var
þvíorðinn ærið langur.
Á yngri árum var Ólafur áhuga-
samur um íþróttir, einkum knatt-
spymu. Hann lék nokkur ár í kapp-
liði KA í fótbolta og gaman var að
hlýða á frásagnir hans af ferðalög-
um hópsins í „boddýbíf" á leið til
keppni, t.d. Reykjavíkur. Eitt sinn
fór hópurinn til kappleiks austur
að Breiðumýri i Reykjadal, fót-
gangandi báðar leiðir. Til fjölda ára
söng hann með karlakómum Geysi,
en þeir bræður, Gunnar og hann,
höfðu góðar tenórraddir. Eldri
Geysis-félagar kvöddu látinn félaga
með hrifnæmum söng við útför
hans. Við störf sín varð Ólafur
einatt að vera fjárri heimili sínu
langtímum saman, og það veit ég
að honum var ekki að skapi, því
hann var afar heimakær maður.
Svo óvílinn sem hann var, hefur
hann trúlega haft í huga þessar
ljóðlínur H. Hafstein:
Ef kaldur stormur um karlmann ber
og kinnar bítur og reynir fót,
þá finnur ’ann hitann í sjálfum sér
og sjálfs sín kraft til að standa mót.
Margir iðnaðarmenn hafa sagt
mér frá óvenjulegri verklagni og
verkhyggni hans. Múrari, sem
mikið vann með Ólafi, sagði, að það
hefði verið hrein unun að sjá hann
að störfum. Hann leysti alla hluti
svo fagmannlega og áreynslulaust
af hendi, bar sig svo fallega að.
Síðustu stórverkefni hans vom
pípulagnir í vistheimilinu Sólborg á
Akureyri, heimavistarskólana að
Laugalandi á Þelamörk og Stóm-
Tjömum í Ljósavatnsskarði. Eins
og áður er getið var Ólafur kominn
á áttræðisaldur þegar hann fór að
hægja á. Þó leysti hann af hendi
mörg smærri verkefni með góðri
aðstoð vinar síns og starfsbróður,
Magnúsar Lámssonar. Þar unnu
hlið við hlið fulltrúar gamla og nýja
tímans, traustir fagmenn. Eg
tengdist Ólafí fyrir 27 ámm, þá gaf
hann mér eina rósina sína. Okkar
kynni em bæði löng og góð. Hann
var að eðlisfari kurteis og ljúfmenni
í framgöngu, en gat verið fastur
fyrir. Fremur fámáll og hugsaði
ekki upphátt.
Bóngóður var hann með afbrigð-
um, og vildi leysa allra vanda, sem
til hans leituðu. Víst er, að margir
standa í þakkarskuld við hann
vegna hjálpsemi hans og lipurðar.
Seinustu árin vom honum ham-
ingjuár. Aldurinn færðist yfír, en
ellin fór mildum höndum um hann.
Hann naut hvíldar og næðis í
ríkum mæli á heimili sínu með sinni
góðu konu. Síðasta hálfa árið urðu
æskudraumar hans ef til vill að
vemleika, á vissan hátt. Hann, sem
ætíð hafði verið einlægur dýravinur,
gerðist aðstoðarmaður hjá Elfu
dótturdóttur sinni, á dýralæknis-
stofu, sem hún hafði komið á fót í
næsta nágrenni við heimili hans.
Þangað átti hann mörg sporin, og
það samstarf hefði gjaman mátt
vara lengur. Dauða hans bar brátt
að, en honum hlotnaðist sú auðna
að kveðja þetta jarðlíf með reisn
og virðingu.
Minningin um hann er okkur
kær, og hans er sárt saknað.
Ágúst Þorleifsson
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Dyrasímar - Raflagnir
Gestur rafvirkjam., s. 19637.
Námsflokkar Kópavogs
- TáknmálAfélritun
- Myndlist
- Skrautskrift
- Ljósmyndun/Skrúðgaröyrkja
- Trésmiði fyrir konur
Innritun i síma 44391.
I.O.O.F. Rb. 4 13524868 8'A-
N.K.-S.P.K.
EDDA 5986247 - 1 frl.
□Helgafell 5986247IV/V - 2
ÚTIVISTARFERÐIR
Útivistarferðir
Fimmtudagur 6. febrúar.
Myndakvöld Útivistar verður í
Fóstbræöraheimilinu Langholts-
vegi 109, kl. 20.30. Myndefni:
1. Sýndar verða myndir úr dags-
feröum Útivistar i nágrenni
Reykjavikur og þær kynntar. 2.
Myndir úr áramótaferö Útivistar
i Þórsmörk. 3. Myndir úr Útivist-
arferðum í Núpsstaðarskóga og
nágrenni á liönu sumri.
Kaffiveitingar kvennanefndar í
hléi. Allir velkomnir, jafnt félagar
sem aðrir.
Þorraferð f Brekkuskóg um
helgina (7.-9. febr.). Frábær
gistiaðstaða í sumarhúsum. Ótal
göngumöguleikar m.a. fyrir
gönguskíði. Uppl. og farm. á
skrifst. Lækjargötu 6a, símar:
14606 og 23732.
GulKoss í klakaböndum á
sunnudaginn.
Sjáumst I
Útivist, ferðafélag.
Árshátíð
félaganna verður á Amtmanns-
stíg 2b laugardagskvöldið 8.
febrúar, kl. 20. Fjölbreytt dag-
skrá með happdrætti og hinu
fræga veislukaffi. Aöeins 300
miðar til sölu. Miðaverð kr. 350,-
Miðasala á skrifstofunni kl.
11 -17 til fimmtudagskvölds.
K.F.U.M. K.F.U.K.
Ffladelfía Hátúni 2
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30, ræðumaður Einar J.
Gíslason.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓUNN
Laufásveai 7
Námskeið — Námskeið
sem hefjast i febrúar.
Þjóðbúningasaumur 7.febr.
Leðursmíði 8. febr.
Jurtalitun 10. febr.
Knipl lö.febr.
Prjón: hyrnur, sjöl 17. febr.
Innritun og upplýsingar í Heimil-
isiönaðarskólanum, Laufásvegi
2, sími 17800.
Tilkynning frá félaginu
Anglia
Næstkomandi fimmtudag 6.
febrúar verður haldið spila- og
kaffikvöld kl. 20.30 að Borgar-
túni 34, 3. hæö (hús Guðmundar
Jónassonar hf.). Stjórn félagsins
er að reyna að fá eldri og yngri
Angliu-félaga til að hittast þetta
kvöld.
Stjórn Angliu.
7&T
siminn er 2 24 80
:< - ■> \ *
raðauglýsingar
raðauglýsingar —
•.
Húsaviðgerðir
Tökum að okkur breytingar og viðgerðir,
trésmíðar, flísalagnir, pípu- og skolplagnir,
sprunguviðgerðir.
Tilboð eða tímavinna.
Símar 72273 eða 81068.
Auglýsing um prófkjör
Ákveðið hefur verið prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokks-
ins á Patreksfiröi við næstu sveitarstjórnarkosningar. Prófkjörið fer
fram f mars nk. og verður auglýst nánar síöar. Kjörnefnd tekur við
framboðum og veitir upplýsingar um prófkjörsreglur. Framboð skal
skila fyrir kl. 20.00 sunnudaginn 16. febrúar 1986, til Ernu Aradótt-
ur, Urðag. 18 eða Ingibjargar Ingimarsdóttur, Aðalstræti 69.
Kjömefnd.
Þorrablót Selfoss
Sjálfstæðisfélögin á Selfossi halda árlegt þorrablót föstudaginn 14.
febrúar nk. í Inghóli, Selfossi. Skemmtiatriöi og dans. Miöapantanir
hjá formönnum félaganna fyrir miðvlkudaginn 12. febrúar: Haukur,
sími 1766, Sigurður Þór, sími 2277 eða 1678, Alda, sími 4212 og
■Þóra, simi 1608.
Sjálfstæðisfálögin.
HEIMDALLUR
F U • S
Vetrarferð Heimdallar
Dagana 8.-9. febrúar mun Heimdallur halda til fjalla í skiöa- og
skemmtiferð. Farið veröur i skíöaskála Vals i Hamragili. Áhugasamir
eru beðnir að hafa það hugfast, aö skiði eru ekki nauðsynlegur búnað-
ur, en þeir geta strax farið að pakka niður ullarsokkunum og góða
skapinu. Verð ferðarinnar er kr. 550 og er þá rútugjald og kókópöffs-
morgunveröur innifalið.
Nánari upplýsingar og skráning er i síma 82900.
Skóianefnd Heimdallar.
Kópavogur — Spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæöisfélaganna í Kópavogi verður i sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, þriðjudaginn 4. febrúar kl. 21.00 stundvislega.
Mætum öll.
Stjómin.
Landsmálafélagið Vörður
Straumhvörf í íslenskum
stjórnmálum ?
Dr. Hannes H. Gissurarson flytur erindi á
Varðarfundi þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl.
20.30 i Sjálfstæöishúsinu Valhöll sem hann
nefnir „Straumhvörf í íslenskum stjórn-
málum?“. Að loknu framsöguerindi verða
umræður. Sjálfstæðismenn og aðrir áhuga-
menn um stjórnmál eru hvattir til að fjöl-
menna.
Stjóm Varðar.
Týr Kópavogi
Kynnisferð á Keflavíkurflugvöll.
Farin. verður kynnisferö á Keflavikurflugvöll laugardaginn 8. febrúar
nk. Mæting verður að Hamraborg 1 þann dag kl. 11.30 og lagt af
stíjð fyrir kl. 12.00. Flugvöllurinn skoöaður til kl. 17.00, þá boröaö
a Glóðinni, Keflavik, og ioks notið gestrisni ungra sjálfstæöismanna
í Keflavík og Njarðvík. Komiö verður aö Hamraborg aftur um kl.
23.30. Rútugjald er kr. 400.00. Pantanir i simum 41589 og 42196
i hádeginu milli kl. 12.00-13.00. Ath. að panta timanlega þvi sæta-
fjöldi er takmarkaður.
Stjórn Týs.
Akureyringar - Eyfirðingar
Sjálfstæöisfélögin á Akureyri boða til almenns fundar um fjármál
rikisins og skattamál fimmtudaginn 6. febrúar nk. kl. 20.30 í Kaup-
vangi. Frummælandi verður Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra.
Hann mun einng svara fyrirspurnum ásamt alþingismönnunum
Halldóri Blöndal og Birni Dagbjartssyni.
Fulltrúarráð Sjálfstæðisfélaganna.