Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1986
51.
rrvc?
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
lcgiaKiiigraaqptaoBsl
Sjáið „Villihunang“ Tsékofs
Ég skora á alla þá sem hafa
gaman af leikhúsi en hafa látið
sýningu Þjóðleihússins á „Villihun-
angi“ Antons Tsékof fram hjá sér
fara til þessa að drífa sig á sýningu
áður en hún leggur upp laupana
sökum áhorfendaskorts. Það er nú
ekki venjan að tekið sé of mikið
mark á gagnrýnendum fjölmiðlanna
en nú virðast þeir hafa kveðið upp
endanlegan dauðadóm sem er með
öllu ómaklegur. Þjóðleikhúsinu
hefur ekki tekist betur upp undan-
farin misseri. Hér fara saman
margslungið og mjög skemmtilegt
verk, frábær þýðing og góður leik-
ur. Fallegri búningar og sniðugri
tæknibrellur hafa tæplega sést á
sviði hérlendis. Það er okkur áhorf-
endum til háborinnar skammar að
láta gabbast til að sitja heima og
missa af slíku gamni.
Aslaug
Þessir hringdu ..
Ómar alltaf
með hárkollu
Hulda Guðmundsdóttir hringdi og
þakkaði kærlega fyrir þáttinn „A
líðandi stundu".
„Sérstaklega hafði ég gaman
af síðasta þætti þegar Ómar setti
upp hárkolluna. Maðurinn yngdist
um tuttugu ár og ég hvet hann
til að koma alltaf fram með hár-
kollu héðan í frá.“
Eigendur „L“
og „Z“ bíla læsi
þeim á Selfossi
Rangæingur hringdi og varaði
sveitunga sína og Skaftfellinga
við að skilja við bflana sína ólæsta
á Selfossi.
„Þannig var að um daginn fór-
um við hjónin í innkaupaferð til
Selfoss. Við fórum í ríkið og
keyptum þijár flöskur og héldum
síðan í Kaupfélag Ámesinga til
frekari innkaupa. Við læstum
bflnum en því miður hefur ein
hurðin verið kviklæst þvf að þegar
við komum aftur var búið að taka
flöskumar. Við kærðum þetta til
lögreglunnar og þá sagði hún
okkur að stuldir úr kyrrstæðum
bifreiðum væru daglegt brauð.
Þeir gátu þess einnig að svo virt-
ist sem þjófamir sætu um bfla
með „L“ og „Z“ númemm. Þess
vegna vil ég vara fólk úr Rangár-
valla- og Skaftafellssýslum við að
skilja við bflana ólæsta á Selfossi.
Tapað veski
18. janúar sl. tapaði kona
samkvæmisveski í Súlnasal Hótels
Sögu. Reyndar fundust krítarkort
og önnur skilríki sem f veskinu
vom, stuttu seinna en hvorki
hefur sést tangur né tetur af
veskinu sjálfu. Það er gyllt að lit
og ofið og var eiganda þess mikils
virði. Biður hann þá sem verða
varir við veskið að koma því vin-
samlegast á næstu lögreglustöð.
íþróttataska töpuð
Svo illa vildi til að nokkrir
munir urðu viðskila við eiganda
sinn í Bláijöllum 19. janúar sl.
Hann var á skíðum og á vísum
stað skildi hann eftir fþróttatösku
sem í vom íþróttaskór, hitabrúsi
og húfa. Þegar pilturinn ætlaði
að taka til töskunnar á nýjan leik
um sex-leytið var hún horfin og
önnur eins taska en eldri komin
í staðinn. Skíðamaðurinn tók tösk-
una með sér f rútuna og kom hún
við á nokkmm stöðum áður en
hún kom á leiðarenda, þannig að
hugsanlega gæti taksan hafa
slæðst út á einhveijum þeim stöð-
um.
Þeir sem hafa orðið varir við
íþróttatöskuna geta leitað upplýs-
inga í síma 35757 eða hjá Guð-
mundi Jónassyni þar sem gamla
taskan er geymd.
Til sölu
Þessi vandaði vinnuskúr, fullbúinn að utan sem innan,
er til sölu. Hentar einnig vel sem veiðihús eða fyrir
aðra sambærilega aðstöðu. Húsið er byggt á stálgrind
þannig að það má hífa á vörubíl til að flytja milli staða.
Verð ca. 350.000 eða hæsta tilboð. Staðgreiðsluafslátt-
ur. Stærð 27—28 fm. Allar upplýsingar í síma 687787.
PAX sófarnir renna út eins og „heitar
lummur"
PAX er fallegur og þægilegur sófi á
daginn meö tveim sætapullum og á
nóttunni er hann 160 cm breitt rúm
og 200 cm langt.
PAX-sófinn er bólstraöur í sérstak-
lega meöhöndluö efni sem hrinda
frá sér óhreinindum og hægt er aö
spretta af honum öllu verinu og
setja þaö í hreinsun þegar þörf kref-
ur.
Pax kostar 23.790. Útborgun 7.000,
afgangur á 6 mán.
Þú getur að sjálfsögðu greitt útborgunina
með greiðslukorti eða staðgreitt með því og
fengið hæsta staðgreiðsluafslátt.
■ ■
HUSGAGNABOLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 — 110 REYKJAVÍK « 681199 og 681410 '