Morgunblaðið - 05.02.1986, Page 19

Morgunblaðið - 05.02.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1986 Nancy Weems hjá Tónlistarf élaginu leiðari blaðsins 12. janúar sl. not- hæft framlag til slíkra bollalegg- inga. Ohætt er að fullyrða að sjálfstæð gengisstefna íslenskra stjómvalda hefur fært þjóðina fjær þeim sam- félögum, sem við kjósum þó helst að hafa samvinnu við á flestum sviðum og reiðum okkur á til að standa vörð um frelsi okkar. Ragnar Halldórsson veltir því fyrir sér hvort við getum leitað annarra leiða en þess vítahrings, sem „sjálfstæð íslensk gengis- stefna" hefur leitt okkur í. Hann bendir á að engin þjóð jafnfámenn og íslendingar búi við sjálfstæða mynt, þar sem frjáls viðskipti ráði gengi. Hann hugleiðir þann mögu- leika að íslendingar tengi gengi ís- lensku krónunnar öðrum gjaldmiðli eða að þjóðin noti gjaldmiðil annarr- ar þjóðar. Bera slíkar hugleiðingar í raun vott um þjóðlega uppgjöf og efnahagslegt þýlyndi? í eina tíð var til svokallaður verslunararmur Sjálfstæðisflokks- ins, og setti jafnan fram kröfur um hátt skráða krónu og lagðist því gegn gengisfellingum. Sú stefna var augljóslega byggð á þröngum stéttarhagsmunum, og hefur jafnan verið staðið gegn henni af forystu- mönnum Sjálfstæðisflokksins. Þótt flokkurinn hafi ætíð verið nátengd- ur innflytjendum og stórkaup- mönnum hefur hann yfírleitt borið gæfu til að standa gegn hagsmun- um þessara aðila, þegar þeir hafa rekist á þjóðarhagsmuni. Mestur hvalreki innflytjenda og umboðsað- ila hefur raunar í seinni tíð verið fyrir tilstilli vinstri stjóma, þó ekki fyrir þá sök að þær ríkisstjómir bæm hag innflytjenda sérstaklega fyrir bijósti, heldur vegna þess að þeim ríkisstjómum, sem með völdin fóru um 1973 og 1982 var ekki sjálfrátt í efnahagsmálum. Eflaust era þeir til í stétt inn- flytjenda og umboðsaðila, sem kjósa helst það sérkennilega ástand, sem fylgir of hátt skráðri krónu, með tilheyrandi kaupæði og skyndifjár- festingu einstaklinga og fyrirtækja. Þó era þeir mun fleiri og fer fjölg- andi, sem taka jafnvægi í efnahags- lífi fram yfir berserksganginn, og sem tækju fegins hendi gjaldmiðli, Telja þeir það andlega, sálarlega eða félagslega þroskandi að skrópa heilt skólaár í íþróttunum, af því að viðkomandi vill ekki vera í „klappliði" uppáhalds nemenda íþróttakennarans sem fá alltaf að spila? Þess eru dæmi. Duga tveir tímar í viku til að þjálfa tækni allra knattleikja og keppnisíþrótta, ef þeir duga ekki til að viðhalda liðleika sömu nem- enda? Að lokum vil ég leiðrétta þann misskilning Torfa Rúnars að ég sé með einkarekinn „bakskóla". „Bak- skólinn" er lítill hluti af starfsemi Endurhæfingarstöðvar Sjálfsbjarg- ar, þar sem ég starfa. Einnig vil ég benda honum og öðram á að ég er langt í frá að gera lítið úr starfi íþróttakennarans og tel að Reynir Karlsson íþróttafulltrúi hafí skilið orð mín eins og þau era meint, en honum varð a orði á námskeiði íþrttakennaranna er ég hafði lokið máli mínu: „Sá er vinur sem varar.“ Höfundur er sjúkraþjálfari. Berlín: Nýnazistar vilja Hess lausan Berlín, 3. febrúar. AP. BRESKIR herlögreglumenn handtóku 27 meðlimi í nýnazista- samtökum eftir að þeir efndu til mótmælaaðgerða fyrir framan Spandau-fangelsið i Vestur- Berlín á sunnudag. Hópurinn barði á fangelsishliðið og krafð- ist þess að Rudolf Hess, fyrrum aðstoðarmaður Adoifs Hitler, yrði látinn laus. Rudolf Hess, sem nú er orðin 91 árs, afplánar lífstíðardóm fyrir stríðsglæpi. Hann er eini fanginn sem eftir er í Spandau-fangelsinu og hefur verið þar einn í haldi síðan 1966. sem nyti trausts og væri nothæfur í heiðarlegum viðskiptum. Grein formanns Verslunarráðs er rödd þessara manna. Gegn henni er sárt að sjá Morgunblaðið reiða vöndinn. Þar heggur sá, sem hlífa skyldi. íslendingar era og verða efna- hagslega háðir öðram þjóðum. Efnahagslegt sjálfstæði þeirra verður því öðram háð. Það skiptir megin máli hveija þeir velja til samstarfs og samskipta og hvað þeir læra af þeim. Til þess að við getum tekið þátt í menningar- og efnahagslífi lýðfijálsra þjóða þarf áræði, sveigjanleika og sjálfstraust. Sjálfstæð íslensk gengisstefna hef- ur flækt okkur í net einangranar, ósveigjanleika og sjálfsblekkingar. Ekkert er sjálfsagðara né hollara en að sú stefna verði endurskoðuð. Þeir, sem vilja sjálfstæða íslenska gengisstefnu hvað sem hún kostar, era sennilega þéttir í lund, jafnvel hetjur. Hversu þrautgóðir á rauna- stund þeir verða í fallvaltleika nú- tíma viðskipta og lífsbaráttu er hins vegar annað mál. Siðferðilega er það mun flóknara viðfangsefni að viðhalda sjálfstæði en að beijast fyrir því. Til þess þarf aðra manngerð og mun sveigj- anlegri í öllum hugsunarhætti. Á hálu svelli alþjóðlegs viðskiptalífs dugir ekki hetjulund í fomum stíl. Þorgeir Hávarsson hopaði aldrei, fór kelduna fremur en krókinn, óð skafla beint af augum. Hann hékk af hugsjónaástæðum lengi dags I graðhvannamjóla og æmti hvorki né skræmti uns fóstbróðir hans barg honum. í sjálfstæðri íslenskri gengjsstefnu hefur þjóðinni reynst minna haldreipi en Þorgeiri í grað- hvannamjólanum. { slíka njóla geta menn haldið að vild sinni, en slíkt athæfi er alls óskylt þjóðlegri ís- lenskri menningu og hættulegt sjálfstæði þjóðarinnar. Þessi fámenna þjóð hefur náð ótrúlegum árangri á fjölmörgum sviðum. Það á hins vegar ekki við um efnahagsmál. Það er með öllu ástæðulaust að standa vörð um það sem misfarist hefur. Slík hollusta eróholl. Höfundur er menntaskólakennari á Akureyri. Bandarískir hægrimenn: Vilja Bush sem for- setaefni Washington, 3. febrúar. AP. VIRKIR hægri menn innan repúblikanaflokksins vilja helzt að George Bush, vara- forseti, verði frambjóðandi flokksins við næstu forseta- kosningar, sem haldnar verða 1988. Gerð var könnun meðal full- trúa á ráðstefnu virkra hægri manna innan repúblikanaflokks- ins. Fulltrúamir vora 402 talsins og vildu 36,6% þeirra að Bush yrði forsetaefni flokksins. í öðra sæti í könnuninni varð Jack Kemp, fulltrúadeildarmaður frá New York, með 16,9% atkvæða. Þriðji varð leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, Bob Dole, með 7,5%. Fjórði varð Howard Baker jr., fyrram öldungadeild- armaður, með 5,5%. Næstir komu öldungadeildarmaðurinn Jesse Helms með 5,2%, Jeane Kirkpatrick, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, með 4,2% og klerkur- inn Pat Robertson hlaut 3,5% atkvæða. BANDARÍSKI píanóleikarinn Nancy Weems er stödd hér á landi um þessar mundir. Hún hefur haldið námskeið fyrir píanónemendur Tónlistarskól- ans í Reykjavík, leikið með Sinfóníuhljómsveit íslands og laugardaginn 8. febrúar spilar hún í Austurbæjarbíói á vegum Tónlistarf élagsins. Þetta er í annað skipti sem Nancy Weems kemur til íslands og um tónleika hennar í Norræna húsinu 1984 skrifaði Jón Ásgeirs- son: „Hér er á ferðinni frábær listamaður sem á sannarlega er- indi til hlustenda." Á efnisskránni er Sónata op. 2 nr. 3 eftir Beethoven, þijú Int- ermezzi og Rhapsodia í Es-dúr eftir Brahms, Noctume eftir Chopin og Sónata op. 82 eftir Prokofíef. Tónleikamir hefast kl. 14.30 og miðasala er í Bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar og Láms- ar Blöndal ogj ístóni. (Fréttatilkynning.) 19 Bandaríski pianóleikarinn Nancy Weems. 2. mars 1986. íslandsmeistarakeppni áhugamanna í gömludönsunum verður haldin á Hótel Sögu sunnudaginn 2. mars 1986 á vegum: Nýja Dansskólans og Þjóðdansaf élags Reykjaví kur. Keppnin verður með svipuðu sniði og síðastliðnar keppnir. Keppninni mun lokið á einum degi. Dómarar verða f jórir Dómarar sýna strax dóma sína mcð gjöf frá 1 -6, þannig safnast stig á kcppendur. Þátttakcndur tilkynni sig í síma 68-74-64 og S-19-96 virka daga frá kl. 10-12, fyrir 26. febrúar 1986. Tilhögun barna og unglinga: 8 ára og yngri dansa Polka, Vals og Svcnsk Maskeradc. 9—10 ára dansa Polka, Vals, Skottís og Vínarkruss. 11 — 13 ára dansa Polka, Vals, Skottís, Vínarkruss, Marzuka og Skoskadansinn. 14—15 ára dansa sömu 5 dansana. 16—34 ára dansa sömu 5 dansana. 35 ára og cldri dansa sömu 5 dansana. Dagskrá keppnisdaginn: ' . .. . 8 ára og yngri og 9-10 ára kcppa frá kl. 13-15. Mæting kl. 12.30. Verðlaunaafhending þegar þeirra kcppni cr lokið. 11— 15ára kcppakl. 15.30. Mætingkl. 15. Vcrðlaunaafhcndingaðlokinnikcppni. Fullorðnir: Húsið opnar kl. 20.00. Kcppni hcfst kl. 21.00. Kl. 24.00 úrslit kynnt. Dansað til kl. 01.00. Góðan daginn! Þátttökugjöld: Bömogunglingarkr. 150.- Fullorðnirkr. 250.- Aðgangscyrir áhorfcnda:% Börn og unglingar kr. 200,- Ik "* Fullorðnir kr. 300.- Fullorðnir, aðgöngumiði á báðar kcppnirnar, kr. 400.- Forsala aðgöngumiða verður í Nýja Dansskólanum og hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. m MNSSKÓUNN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.