Morgunblaðið - 05.02.1986, Page 24

Morgunblaðið - 05.02.1986, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 Stuðningsmenn Cory Aquinos segjast sannfærðir um sigur Manilia, 4. febrúar. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. STUÐNINGSMENN Cory Aquino, forsetaframbjóð- anda stjórnarandstöðunnar á Filippseyjum, eru sannfærðir um sigur í kosningunum á föstudag ef þær verða heiðarlegar og Ferdinand Marcos, forseti, og KBL-flokkur hans falsa ekki úrslitin. Skoðana- könnun, sem KBL-flokkurinn gerði fyrir sig og hefur ekki verið birt en Paul Aquino, mágur forsetafram- bjóðandans og yfirmaður einnar kosningaskrifstofu hennar, komst yfir, sýnir að Aquino hafði 61 prósent stuðning þjóðarinnar 24. janúar sl. en 59 prósent 31. janúar. Marcos hafði 39 prósent stuðning fyrir viku en hafði aukið fylgi sitt í 41 prósent viku seinna. Paul Aquino sagði að það væri ekki nóg fyrir Cory Aquino að fá 59 prósent atkvæða. „Við þurfum að minnsta kosti 62 prósent at- kvæða til að sigra," sagði hann. „Við þurfum sex milljón atkvæða fram yfir Marcos, hann getur ekki falsað eða haft skipti á svo mörgum atkvæðum." Marcos ákvað í nóvember, öll- um að óvörum, að haida kosningar eftir áramótin. Andstæðingar hans hafa haft skamman tíma til að skipuleggja baráttu sína. Cory Aquino, ekkja hins vinsæla stjóm- arandstæðings Benigno Aquino, sem var skotinn til bana á Man- illa-flugvelli 1983, samþykkti að bjóða sig fram til forseta eftir að 1,3 milljónir manns undirrituðu áskorun á hana. Hún er frambjóð- andi fólksins. Það hjálpar henni að hafa ekki haft afskipti af stjómmálum áður. Fjöldi fólks er orðinn full saddur af pólitíkusum og vill nýja byijun sem það telur að Cory geti haJfið. Það flykkist á kosningafundi hennar, bíður í margar klukkustundir — stundum í grenjandi rigningu — eftir að sjá hana og kaupir gula borða, boli og merkimiða til að sýna stuðning sinn við hana. Það trúir að hún sé eina von þjóðarinnar í erfiðleikunum sem hún er í. Marcos hefur að sjálfsögðu einnig stóran hóp stuðnings- manna. Kosningabarátta hans er mjög vel skipulögð, kosningavélin er ótrúlega vel smurð. Stuðnings- menn KBL-flokksins eru í æðstu embættum út um allt land og talið er að hann hafí stuðning meiri- hluta íbúa í dreifbýli en 70 prósent þjóðarinnar býr í sveit. Sveitar- stjórar og sveitastjómarmenn styðja hann. Þeir hafa mikil áhrif á skoðanir fólksins, sumir hafa í hótunum við það ef það styður ekki Marcos. Ungleg kona, sem var við störf úti á hrísgijónaakri í Zamboanga á Mindanaoeyju í syðsta hluta Filippseyja með 14 ára syni sínum á föstudaginn var, sagðist ætla að kjósa Marcos þegar blm. Mbl. spurði hana. Hún svaraði alvarleg í bragði og treysti ekki strax ókunnugum. En eftir stutt spjall var hún rólegri, hló við og sagðist ætla að kjósa Cory. „Sveitastjóm- in styður Marcos og við segjumst ætla að kjósa hann. En hann veit ekki hvað ég geri í kjörklefanum. Ég segist ætla að kjósa Marcos en svo skrifa ég Cory á atkvæða- seðilinn. KBL-flokkurinn borgar sveitastjómum fyrir að afla Marc- os atkvæða, sumir borga fólkinu fyrir að kjósa Marcos en sveita- stjóminn hér heldur peningunum fyrir sig. Ef hann myndi bjóða mér borgun myndi ég taka pen- ingana en samt kjósa Cory,“ sagði hún og var auðsýnilega ánægð með að geta leikið á sveitastjór- ann. Formaður KBL í Zamboanga, Clara Maria Labrogat, er vel •efnuð ekkja. Hún er forseti sam- taka kókoshnetubænda á Filipps- •eyjum en Filippseyjar eru stærstu útflytjendur kókosafurða í heimi. Meiri hluti fólks í Zamboanga styður Cory Aquino en barátta Labrogats er hörð og hún veit hvað hún er að gera. Hún ferðast um svæðið og hittir starfsmenn KBL daglega. Síðastliðinn laugardag ók hún um 30 km vegalengd út úr borg- inni niður að einföldu en ríkmann- legu húsi sínu við ströndina og talaði við starfsmenn í kosninga- baráttunni. Um 100 manns voru saman komnir, þar voru kókos- hnetubændur, sjómenn, sveita- stjórar og kosningastjórar. Labro- gat hefur skipt kjördæminu upp þannig að það er örugglega einn maður í hópi allra þijátíu sem styður Marcos og hvetur hina til að kjósa hann. Hún lagði á ráðin við fólkið um hvemig væri best að vinna forsetanum fylgi. „Minnið kjðsendur á allt hið góða sem Marcos hefur gert fyrir það,“ sagði hún. „Talið ekki illa um andstæðinginn heldur nefnið nýju höfnina, steypta veginn og renn- andi vatnið sem við eigum Marcos að þakka.“ Hún taídi út 5 splunku- nýja 20 pesaseðla, um 200 ísl. kr., og gaf einum sveitastjóranum áður en hún ók aftur heim. „Þetta fólk leggur mikið á sig í barátt- unni og á skilið að fá eitthvað borgað til að geta greitt ferða- kostnað og keypt kók handa starfsmönnum," sagði hún. „Það er ekkert rangt við að hjálpa þeim örlítið fjárhagslega." Skammt frá húsi hennar við ströndina stendur lítið, fátæklegt fískiþorp þar sem múhameðstrú- armenn búa. Um 2 milljónir íbúa Mindanao eru múhameðstrúar en alls búa 9,5 milljónir á eyjunni. Múhameðstrúarmenn tóku upp vopn á síðasta áratug og börðust fyrir meiri réttindum. Marcos leysti vandann að hluta til með að veita fjórum svæðum heima- stjóm og skipaði uppgjafa upp- reisnarleiðtoga ríkisstjóra þeirra. Þeir eru valdalausir en ánægðir með sitt og ákveðnir stuðnings- menn Marcos. Sali Wali, ríkisstjóri í Zamboanga, sagði að allir múha- meðstrúarmenn styddu Marcos, hann væri frábær forseti og það væri gegn kóraninum að kjósa konu leiðtoga landsins. Það kom á daginn að íbúar í fískiþorpinu styðja Marcos. „Sveitastjórinn styður hann,“ sagði gamall sjó- maður og það var næg ástæða fyrir hann til að styðja forsetann. En inni í Zamboangaxorg og á lítilli eyju þar fyrir utan sögðust múhameðstrúarmenn styðja Coiy Aquino. Böm á markaðnum hlupu um og hrópuðu „Cory, Cory,“ og réttu upp vísifíngur og þumalfíng- ur, L-merki Labanbaráttunnar. „Við eram orðin langþreytt á Marcos," sögðu ungir menn, sem seldu ókunnugum falskar perlur. „Tuttugu ár í embætti er allt of langurtími." Svo virðist sem hvert manns- bam í þessu þjóðfélagi sé altekið kosningaákafa. Allir hafa gert upp hug sinn og bíða nú eftir að kosningadagur renni upp. Enginn veit við hveiju má búast, fólk segist óttast uppreisn ef Marcos sigrar og hlutlausir áhorfendur segja að fyrri kosningar hafí verið óheiðarlegar. Gamall og yfirveg- aður þjónn á hóteli í Zamboanga sagðist styðja Aquino. „Við viljum losna við dýrið í Malacanang- höll,“ sagði hann og komst að kjama kosningabaráttunnar með þessum fáu orðum. Föðurins minnzt Ronald Reagan Bandaríkjaforseti ræðir hér við Erin Smith, 8 ára gamla, við minningarathöfn um Challenger-geimfarana, sem fram fór í Houston í síðustu viku. Faðir hennar, Michael Smith, var flugmaður geimferjunnar. Skyndiverkföll í V estur-Þýzkalandi Miklar truflanir á samgöngnm í mörgnm borgnm Frankfurt, 4. febrúar. AP. UM 80.000 starfsmenn hjá opin- berum aðilum í Vestur-Þýzka- landi fóru i dag í skyndiverkfall, sem hafði það i för með sér, að ferðir strætisvagna og járn- brauta lögðust nær algerlega niður um tima í mörgum stór- borgum. Þetta var annan daginn í röð, sem þessir starfshópar fara í verkfall til að fylgja eftir kröfum sínum um 6% kauphækkun. Þeir, sem tóku þátt í verkfallinu nú, vora götu- hreinsarar, sorphreinsunarmenn auk starfsmanna strætisvagna, sporvagna og jámbrauta, sem hið opinbera rekur, en einnig hjúk- ranarfólk á sjúkrahúsum, sem rekin era af ríki og bæjarfélögum. Bandaríkin: Þurfa innflytjendur að fara 1 alnæmispróf ? Loa Angeles, 4. febrúar. AP. BANDARÍSK heilbrigðismála- yfirvöld sendu frá sér reglugerð, Kærir Kohl fyrir lygar í teng’slum við Flick-málið Helmut Kohl kanslari. Bonn, 4. febrúar. AP. OTTO Schily, einn leiðtoga Græningja á þingi í Þýskalandi, varði í gær kæru sína á hendur Helmut Kohl, kanslara, og neit- aði þvi alfarið að til hennar væri stofnað til þess að draga að athygli fjölmiðla. Schily hefur kært Kohl kanslara opinberlega fyrir að hafa logið að tveimur opinberum rannsóknarnefndum, sem hafa með höndum rannsókn á mútuhneykslinu í tengslum við Flick fyrirtækjasamsteypuna. Talsmaður ríkisstjómarinnar, Friedrich Ost, hefur vísað ásökun- um Schily á bug og sagt þær vera siðasta liðinn í rógsherferð hans á hendur kanslaranum. Schily sagði fréttamönnum að kæra hans byggð- ist á vitnisburði sem Kohl hefði gefíð fyrir tveimur stjómskipuðum nefndum, þar sem hann var inntur eftir framlögum Flicks í sjóði Kristi- lega demókrataflokksins. Vegna mútuhneykslisins neydd- ist fyrram efnahagsmálaráðherra sambandsstjómarinnar, Ottó Lambsdorff, til að segja af sér embætti. Hann er nú fyrir rétti í Bonn vegna þessa máls, ásamt fyrirrennara sínum í embætti efna- hagsmálaráðherra, Hans Friedrichs og Eberhard von Brauchitsch, fyrr- um framkvæmdastjóra Flick. Fri- edrichs og Lambsdorff era ásakaðir fyrir að hafa tekið við nær 10 millj- ónum íslenskra króna í mútur frá Brauchitsch. Saksóknaraembættið segir að Flick hafí með mútunum viljað hafa áhrif á ákvarðanir efna- hagsmálaráðuneytisins hvað varð- aði beiðnir frá fyrirtækinu um skattaívilnanir. sem heimilar að innflytjendur til Bandaríkjanna verði gert að gangast undir próf til að ganga úr skugga um hvort þeir hafi smitast af alnæmi (AIDS). Samkvæmt reglugerðinni getur heilbrigðismálaráðherra Bandaríkj- anna skipað svo fyrir um að allir, sem flytjast vilja til Bandarílqanna, þurfí að gangast undir alnæmis- próf. Útkoma getur síðan ráðið úr- slitum um hvort viðkomandi fái leyfi til að flytjast til landsins. Jákvæð útkoma úr prófi útilokaði viðkom- andi sjálfkrafa. Reglugerðin öðlast ekki fullnað- argildi fyrr en tveimur mánuðum eftir að hún hefur verið birt. Arlega sækja á sjötta hundrað manns um að fá að flytjast til Bandaríkjanna. Að minnsta kosti 60% þeirra sem koma jákvæðir út úr alnæmisprófí bera alnæmisveira, en þurfa ekki endilega að veikjast. Nær 17 þús- und Bandaríkjamenn hafa sýkst af alnæmi frá 1981 og um helmingur þeirra beðið bana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.