Morgunblaðið - 05.02.1986, Side 29

Morgunblaðið - 05.02.1986, Side 29
/arðbergs: óti 1USU idum í járntjaldið hersins. Það leiðir aftur til meiri umræðna í sovéska stjómkerfínu og þar með aðhalds að herforingj- um. Athyglisvert sé, að sovéskir embættismenn styðjist nú orðið við upplýsingar frá Alþjóðaherffæði- stofnuninni í London (IISS) og SIPRI, friðarrannsóknastofnunina i Stokkhólmi og vitni til talna frá þeim í opinberum umræðum. Þetta hefði verið óhugsandi fyrir fáeinum árum. Hlutverk Norðurlanda Mary Dau segir, að Norðurlönd skipi sérstakan sess í augum Sovét- manna. Þeir líti á löndin sem eina heild, þrátt fyrir ólíka stefnu þeirra í öryggismálum. Danmörk sé til dæmis oftar nefnd í sovéskum íjöl- miðlum sem eitt Norðurlanda en sem aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins eða Evrópubandalagsins. Sovétmenn telji, að Norðurlöndin séu til fyrirmyndar, sem svæði, þar Tryggvi Agnarsson „ .. .Er hér aðeins um hugmyndir að ræða, sem ekki hafa hlotið neina endanlega af- greiðslu hvorki ráðu- neytisins né annarra sem um málið eiga að fjalla áður og ef frum- varp til nýrra laga verður lagt fram.“ séð að nefndar ráðstafanir skerði hið mikilvæga hlutverk sem ég og margir aðrir telja að sé lánasjóðsins: Að leitast við að fyrirbyggja að námsmenn þurfi að hverfa frá námi sakir efnaleysis, að efnahagslegt jafnrétti til náms sé tryggt, eins og kostur er. Að langskólamenntun sé ekki forréttindi hinna efnameiri. Að allir þeir sem viija og getu hafí fáið notið menntunar. Námslánin skuiu þó þrátt fyrir vexti og endur- greiðslureglur vera í hópi hagstæð- ustu lána, sem völ er á í þjóðfélag- inu vegna hins mikilvæga tilgangs þeirra og vegna þess að þau eru góð íjárfesting fyrir þjóðfélagið. ___________________________29 ríkjanna að öryggis- og vamarmál- um. NATO beri að styrkja, án þess væri slökunarstefna óhugsandi. Heimsveldi í vanda Hún segir, að Sovétríkin séu heimsveldi í vanda. Þau hafi aðeins hemaðarmáttinn tii að styðjast við til að fullnægja dýpstu þrá allra Sovétmanna, að standa jafnfætis Bandaríkjunum. Hvorki eftiahagur né hugmyndafræði dugi þeim til að auka veg sinn og virðingu. Þvert á móti megi halda því fram, að hug- myndafræðin sé þeim fjötur um fót í samskiptum við önnur ríki. Sov- éskir ráðamenn séu enn þeirrar skoðunar, að kommúnisminn muni bera sigurorð af kapítalismánum, en það muni ekki gerast með því að beitt verði valdi, heldur verði breytingin vegna þrýstings frá óbreytanlegum kröftum, er sé að fínna í eðli mannsins og sambandi þjóða. Sovétríkin eru vanþróað land. Vilji ráðamenn þar takast á við gíf- urleg innanlands vandamál þurfí þeir að hafa fríð fyrir áreitni ann- arra. Þess vegna kjósi Kremlveijar óbreytt ástand alþjóðamála — þeir vilji ekki breytingar á NATO, þeir séu á móti kjamorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum og svo fram- vegis. En nauðsynlegt sé að meta allt, sem þeir segja, með hliðsjón af þeirri áróðursstöðu, sem þeir vilja skapa sér. Það sé eitthvert vanda- samasta verk allra þeirra, er fást við sovésk málefni að greina kjam- ann frá hisminu I þvi orðaflóði, ekki síst um frið og afvopnun, sem frá Sovétríkjunum kemur. Þrátt fyrir slökunarstefnu verði að svara áróðri Sovétmanna með viðeigandi hætti og standa fast gegn allri undirróðursstarfsemi þeirra á Vesturlöndum. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1986 Mary Dau flytur erindi sitt á fundi SUS og Varðbergs sl. laugardag. sem lítil spenna ríki, svokallað „lág- spennusvæði". Af þessu leiði, að Sovétmenn fysi að eiga samvinnu við Norðurlöndin. Hún telur, að Norðurlandaþjóð- imar eigi að færa sér þessa sérstöku aðstöðu í nyt. Hún gefí þeim tæki- færi til að vera einskonar tengiliður milli austurs og vesturs. Fulltrúar þeirra geti til dæmis komið fram sem „skynsamir sendiboðar", þegar spenna skapast vegna einhverra atvika á alþjóðavettvangi. Þá geti þeir unnið að því að eyða misskiln- ingi milli risaveldanna og stuðlað að því, að þráðurinn verði tekinn upp að nýju í anda slökunar. Hvetur Mary Dau til þess, að Norðurlöndin geri sameiginlegt átak til að treysta stöðu sína í vit- und sem flestra íbúa Austur-Evrópu og verði það best gert með því, að þjóðimar standi að menningarsýn- ingu, sem færi um löndin öll. íbúar Sovétríkjanna þekki ekkert til Norð- urlanda, en þeir þrái samband vest- ur á bóginn. Ekkert Norðurland- anna geti eitt staðið nægilega vel að því að kynna norræna menningu í Austur-Evrópu, þess vegna eigi ríkin að gera það saman. Ótti við breytingar Hún segir, að Sovétmenn óttist ekkert eins mikið og breytingar. Þeir séu þess vegna andvígir því, að Norðurlönd verði kjamorku- vopnalaust svæði. Þeir sjái sér að vísu hag af því að halda uppi áróðri um þessa hugmynd, hins vegar vilji þeir ekki eiga neitt frumkvæði í málinu. Þeir vilji að Norðurlönd snúi sér til sín og óski eftir formleg- um viðræðum um þetta mál, þar sem þá fái þeir vettvang til að ræða um öryggismál við Norðurlanda- menn og þeim sé ljóst, að krafíst verði niðurstöðu í viðræðunum vestan jámtjaldsins en ekki austan. Það skapi norrænum stjómmála- mönnum erfíðleika, sem sé Sovét- mönnum að skapi. Varar Mary Dau við því, að sest verði að slíkum viðræðum við Sovétmenn. í umræð- um um kjamorkuvopnalaus svæði eigi að ganga á eftir því við Sovét- menn, án þess að setjast til við- ræðna við þá, hvaða stefnu þeir hafí í málinu og hvað þeir vilji á sig leggja til að hún nái fram. Hún segir, að hugmyndir sínar um aukið vægi slökunarstefnunnar byggist á þeirri grundvallarfor- sendu, að hvergi verði hvikað í samstarfi Atlantshafsbandalags- Gamla fólkið í umferðinni Greint er milli lána og styrkja Lán verði lán og styrkir styrkir. Tekið verði upp víðtækt náms- styrkjakerfí. Eins og að framan greinir em miklir námsstyrkir vel þekktir í núverandi kerfí, þ.e. af- skrifuð lán hljóta að teijast styrkir. Breytingin er sú að nú yrði það ákveðið strax við úthlutun hveijir fá þá en ekki sem nú, þegar það kemur í raun ekki í ljós fyrr en námsmenn hafa borgað í 40 ár af lánum sínum, hveijir eru hinir heppnu, ef svo má að orði komast. Það á að styrkja markvisst. Ferða- styrkir til námsmanna verða með líku sniði og nú er. Nýlundan verður styrkur til framhaldsnáms á há- skólastigi og námsárangursstyrkir. Framhaldsnámsstyrkinn fengju all- ir, sem fullnægðu almennum skil- yrðum sjóðsins og eru í framhalds- námi að loknu háskólaprófi, náms- árangursstyrkinn fengju nemar á framhaldsskólastigi sem sköruðu vel fram úr í námi. Þessir styrkir eru til þess að auðvelda fólki að fara í framhaldsnám á háskólastigi og veita námsmönnum hvatningu í námi sínu. Fjárhæðir lána og styrkja Fjárhæðir námslána og náms- styrkja hljóta helst að ráðast af tvennu: fjölda þeirra, sem sækja um og hversu mikið fé er til ráðstöf- unar. Lánasjóðurinn verður því að gera Alþingi glögga grein fyrir því hversu mikið fé hann þarf til þess að hann geti lánað námsmönnum fyrir náms- og framfærslukostnaði þeirra. Lagt er til að tekjur náms- manna hafí ekki áhríf á fjárhæð námslánanna svo sem nú er. Er það m.a. vegna þess að talið er rétt að menn fái að njóta sem mest afrakst- ur aukins erfíðis síns. Þetta ein- faldar og alla starfsemi lánsjóðsins, svo sem alit eftirlit með tekjum námsmanna. Þannig lækkar rekst- urskostnaður sjóðsins. Þá er og minnt á mikilvæg tengsl skólafólks við atvinnulífið, sem gjarnan mynd- ast við vinnu í leyfum og með námi. Höfundur er lögmaður og rekur lögfræðiskrifstofu i Rcykjavík. Hann hefur unnið að endurskoðun laga um námslán og námsstyrki. eftir Óskar Ólason SÉRSTÖK ástæða er til þess að vekja athygli á hárri slysatíðni meðal aldraðs fólks í umferðinni í Reykjavík. Ekki síst þar sem fjöldi þeirra í umferðinni í Reykjavík eykst ár frá ári, enda íslendingar með hæsta meðalald- ur Norðurlandabúa og einn hinn hæsta í heimi. Á Norðurlöndum er rík áhersla lögð á að gamalt fólk geti sem lengst búið í eigin húsnæði. Hins vegar hefur þetta skapað vandamál, því stór hluti aldraðra á Norður- löndum býr í eða við miðborgir stór- borganna. Þar er umferðin mest og erfitt að gera breytingar á um- ferðinni til aukins öryggis fyrir gamla fólkið. Reynt hefur verið að gera göng undir fjölfamar umferð- argötur eða brýr, en þeim fylgja tröppur sem aldraðir forðast. Gönguljós leysa nokkum vanda, en þó kvartar gamalt fólk sérstak- lega og réttilega yfir því að timi á ljósunum sé stuttur þannig að því vinnist vart tími að komast yfir á meðan grænt ljós iogar. Gamalt fólk þekkir takmarkanir sínar og veit að það gengur ekki jafnhratt og fólk á besta aldri. Gamait fólk er hrætt við um- ferðina. Það sér ilia og heymin farin að dofna og hikar við að nota umferðarljósin, sem em án nokkurs vafa ömggustu hjálpartækin í umferðinni. Ekki er talið að hægt sé að lengja tímann á gönguljósum, sem miðast við gönguhraða 1.2 metra á sekúndu. Ef göngutími á ljósum yrði lengdur, þá þýddi það lengri biðraðir bfla við þau og eins lengri biðtíma fyrir gangandi veg- farendur eftir ljósum. Menn em sammála um að göngu- ferðir séu gömlu fólki nauðsynleg heilsubót — mikilvægar til að halda heilsu. Við verðum því að leysa vandamál aldraðra í umferðinni og við skulum minnast þess, að flest eigum við eftir að standa í þeirra spomm. í dag em ökutæki almennings- eign, en svo var ekki þegar eldri borgarar vom á besta aldri. Kann- anir á Norðurlöndum sýna að um Óskar Ólason 60% fullorðinna karla hafa eða hafa haft ökuréttindi, en ekki nema um 30% kvenna. Því er spáð að fljótlega eftir aldamótin verði um 80% aldr- aðra kvenna og karla með ökurétt- indi. Á þessu er vakin athygli vegna þess að auðveldara er talið fyrir gangandi vegfarendur, sem hafa haft ökuréttindi, að komast leiðar sinnar í umferðinni. Erfíðleikum hefur reynst bundið að koma fræðslu um umferðarmál á framfæri við gamalt fólk. Þær hugmyndir hafa komið fram að veita umferðarfræðslu í gegn um ellilífeyriskerfíð. Þannig að um- ferðarfræðsla verði á vegum þeirra, sem veita aðstoð í heimahúsum. Ástæða þessa greinarkoms er flölgun slysa meðal eldri borgara og erfiðleika þeirra við að ná fullri heilsu aftur, þrátt fyrir dygga að- stoð lækna og hjúkrunarfólks. Við athugun á skráningu umferðarslysa síðastliðin fjögur ár koma í ljós óhugnanlegar staðreyndir. Þá slas- aðist 191 karl og kona 15 ára og eldri. Af þeim slösuðust 126 mikið; 57 konur og 69 karlar. Ef litið er á aldur hinna slösuðu, þá voru 49 af konunum 57 fæddar árið 1920 eða fyrr og 20 fyrir 1910. Af 69 körlum var 41 fæddur 1920 eða fyrr og 21 var fæddur árið 1910 eða fyrra. Þetta eru óhugnanlegar tölur og lýsa vandkvæðum gamla fólksins í umferðinni. Á þessum íjórum árum urðu 24 dauðaslys í umferðinni i Reykjavík og af þeim voru 18 gangandi vegfarendur. Slys á öldruðum íbúum Reykjavíkur eru allt of mörg — óhugnanlega mörg og aðeins með sameiginlegu átaki getum við fækkað þeim. Höfundur eryfirlögregluþjónn í Reykjavik. Aldraðir íbúar Reykjavíkur eiga i miklum erfiðleikum með að komast leiðar sinnar í umferðinni og slysatíðni meðal þeirra er óhugnanlega há.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.