Morgunblaðið - 05.02.1986, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 05.02.1986, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1986 55 Aston Villa í undanúrslit kemst Henson á Wembley? Frá Sigtryggi Sigtryggssyni, blaAamanni Morgunblaðsins f Englandl. ASTON Villa tryggði sér róttinn til að leika í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu er liðið sigraði Arsenal á Highbury í gœrkvöldi með tveimur mörkum gegn einu. Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Aston Villa. í undanúr- slitum leika því Aston Villa og Oxford og Liverpool og QPR. Tvöfalt hjá Tékkum Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fróttaritara Morgunblaðsins f Vastur-Þýskalandi. TÉKKAR sigruðu Vestur-Þjóð- verja tvfvegis í þremur landsleikj- um í handknattleik um síðustu helgi. Tékkar eru sem kunnugt er í riðii með íslendingum f heims- meistarakeppninni. Tékkar sýndu það að þeir verða erfiðir viðureignar í heimsmeist- arakeppninni, því þeir unnu Vest- ur-Þjóðverja 19-17 og 26-21, en töpuðu einum, 15-17. Þessir leikir fóru fram í Vestur-Þýskalandi um síðustu helgi. Þessar þjóðir eru að undirbúa sig fyrir heimsmeistara- keppnina og var þetta liður í þeim undirbúningi. Paul Birch skoraði í fyrri hálfleik fyrir Aston Villa og þannig var staðan í hálfleik. Aston Villa bætti síðan öðru markinu við í upphafi seinni hálfleiks og var þar að verki Andy Gray með skalla eftir horn- spyrnu. Paul Mariner skoraði síðan fyrir Arsenal 13 mínútum fyrir leikslok. Eftir það sóttu leikmenn Arsenal á afláts án þess að ná að skora. Dog Ellis framkvæmdastjóri Aston Villa var að vonum ánægður eftir leikinn og sagði að þessi úr- slit kæmu sér mjög vel fyrir liðið þar sem gengi þess hefur ekki verið upp á marga fiska að undan- förnu. Þess má geta að leikmenn As- ton Villa leika í búningum frá Henson og væri það mikil auglýs- ing fyrir fyrirtækið ef liðiö næði að komast á Wembley og leika til úr- slita. Þann leik sjá um 300 milljónir manna í beinni útsendingu auk þess sem um 100 þúsund komast á Wembley-leikvanginn. Eins og áður segir eru það Oxford, Liverpool, QPR og Aston Villa sem leika í undanúrslitum. Leikið verður heima og heiman, fyrri leikirnir fara fram á þriðju- dagskvöld í næstu viku. Morgunblaðið/RAX • Mér Óskarsson tekur ó öllu sem hann á og það dugöi til því hann varð f öðru sæti. • Einar Ólafsson skíðagöngukappi frá ísafirði stóð sig mjög vel á sænska meistaramótinu f norrænum greinum er hann varð f áttunda sæti af 120 keppendum. Þetta er besti árangur sem fslenskur skfðagöngu- maður hefur náð á erlendum vettvangi. Einar áttundi af 120 keppendum *— „átti ekki von á þessu núna,“ sagði Einar Ólafsson EINAR Ólafsson skíðagöngu- kappi frá ísafirði náð mjög góðum árangri í 15 kílómetra skíðagöngu á sænska meistaramótinu er hann varð í áttunda sæti af 120 keppendum, f Örebro f gær. Þessi árangur Einars er sá besti sem íslenskur skfðagöngumaður hef- ur nokkru sinni náð á erlendri grund. Svfar eiga bestu skfða- göngumenn heims f dag og voru þeir flestir með f þessu móti og skaust Einar upp fyrir marga þeirra. Hann var jafnframt út- nefndur sá keppandi sem mest kom á óvart. Sigurvegari í 15 km göngunni í gær var landsliðsmaðurinn Torgen Mogren, sem gekk á 38,34 mínút- um. Einar var eins og áður segir ( áttunda sæti á 39,55 mín. eða rétt um mínútu á eftir fyrsta kepp- anda. Mogren vann í síöustu viku 15 km göngu í heimsbikarkeppn- inni, sem sýnir að hann er einn fremsti skíðagöngumaður heims í dag. „Ég hef aldrei upplifað annað eins. Þetta er besti árangur sem ég hef náð hingað til og átti satt að segja ekki von á þessu núna. Ég bjóst frekar við því að komast svona nálægt þeim á næsta ári,“ sagði Einar Ólafsson í samtali viö blaðamann Morgunblaðsins í gærkvöldi. Þá hafði hann verið á blaðamannafundi og mikið í sviðs- Ijósinu, enda kom þetta mikið á óvart að þessi 23 ára íslendingur kæmist svo framarlega. Einar hefur æft mjög skipulega í 6 ár og eru þessar miklu æfingar að skila sér nú í góðum árangri. „Ég hef fundið þetta síðasta hálfan mánuðinn að þetta er allt að koma hjá mér. Ég æfði mjög mikið síð- asta ár og finn það að ég er mun sterkari en ég hef verið og hef Hörku keppni í öllum flokkum — Seyðfirðingar sterkir í léttari flokkunum Islandsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum 1986 fór fram é laugardaginn. Mótið var haldið f Garðaskóla f Garðabæ og voru keppendur alls 20 víðs vegar af landinu. Keppni f einstökum flokkum var geysi spennandi og skemmtileg og é mótinu voru alls sett 20 unglingamet og 9 kvenna- met. Hjalti Ólafsson hreppti öll verðlaun fyrir besta árangur f einstökum greinum og einnig fyrir besta stigaárangur saman- lagt f þyngsta flokknum. Baldur Borgþórsson hlaut samsvarandi verðlaun. í 67,5 kg fiokki var allan tímann mjög jöfn keppni milli þeirra þriggja keppenda, sem í honum voru. Eftir hnébeygjuna voru þeir Svanur og Már jafnir með 180 kg, en Gunnlaugur með 170 kg. f bekkpressunni tók Gunnlaugur síðan forustu með 107,5 kg á móti 90 kg hjá Má og 92,5 kg hjá Svan. Réttstöðulyftan hlaut því að skera úr um sigur. ( henni enduðu þeir Svanur og Gunnlaugur á 200 kg og hafði þá Gunnlaugur forustu, en Svanur var í þriðja sæti. Már Óskarsson sætti sig ekki við annað sætið og bað því um 207,5 kg, sem hefði gefiö honum möguleika á sigri, en það var því miöur of þungt. f 75 kg flokki var jöfn keppni milli Bárðar Olsen og Birgis Þor- steinssonar. Eftir tvær greinar var Birgir með forustu með 350 kg á móti 335 kg hjá Bárði, sem var léttari. Bárður þurfti því að lyfta 15 kg meira í réttstöðulyftu til að sigra. f henni byrjaði Birgir á 220 kg og Bárður á 225 kg. í annarri umferð misheppnaöist Birgi svo við 230 kg, en Bárður lyfti 236 kg og var þá kominn með forustu. 1 þriðju umferð reyndi Birgir svo aftur við 230 kg, sem mistókst svo sigurinn var Bárðar, sem mistókst svo naumlega að lyfta 245 kg. Bárður setti þarna unglingamet i réttstööulyftunni og tvíbætti sam- anlagða metið. Efnilegur nýliði Gestur Helgason var ekki langt frá þeim félögum í þriöja sæti. f 90 kg flokki var ójöfn keppni milli þeirra æfingafélaganna Bald- urs Borgþórssonar og Bjarna Jóns- sonar og skildu þá 110 kg. Stutl er í 700 kg hjá Baldri og þar sem þeim var ekki náð á þessu móti má fullvíst telja, að það gangi upp á því næsta. í 100 kg flokki bætti Magnús Ver frá Seyðisfirði öll unglingamet- in og komst í fyrsta skipti yfir 700 kg markið. f 125 kg flokki bætti Matthías Eggertsson sinn persónulega árangur verulega og náði tveimur merkum áföngum, yfir 700 kg í samanlögðu og 300 kg í réttstööu- lyftu. í +125 kg flokki voru tveir kepp- endur, sem báðir hugðu á sigur, en það voru Hjalti Árnason, sem venjulega keppir flokki neðar og síöan heimsmeistari unglinga Torfi Ólafsson. í hnóbeygjunni tók Torfi forustu með 330 kg á móti 315 kg hjá Hjalta. í bekkpressunni snérist svo dæmið við og vann Hjalti þar með 25 kg mun og leiddi því eftir tvær greinar með 10 kg og var léttari. Torfi varð því að lyfta 12.5 kg meira í síðustu grein, en Hjalti. f róttstöðulyftunni byrjaði Hjalti á 305 kg og Torfi á 310 kg. í næstu tiiraun fóru svo báðir í 325 kg og lyftu því. Var þá ein umferð eftir og Hjalti með forustu. Hann valdi 335 kg í síðustu lyftu, sem hann lyfti alla leið upp, en fyrir smá mistök fékk hann ógilt. Torfi átti þá eina lyftu eftir sem var 340 kg og átti að tryggja honum sigur- inn. Þyngdinni lyfti hann svo við mikinn fögnuð áhorfenda og tryggði sér titilinn enn eitt árið. I 60 kflógrammaflokki sigraði Aðalsteinn Kjartansson frá Akur- eyri. Hann lyfti 135 kg í hnébeygju, 62.5 ( bekkpressu og 172,5 í rétt- stöðulyftu. Samanlagt lyfti hann því 370 kílóum. í kvennaflokki setti Marta Unn- arsdóttir úr Reykjavík nokkur ís- landsmet en hún keppti í 82,5 kílóa flokki. Marta lyfti 125 kílóum í hné- beygju, 77,5 í bekkpressu og 142,5 í róttstöðulyftu. meira úthald. Ég æfði um 500 tíma árið 1984 og bætti síðan 100 tím- um við á síðasta ári og nú ætla ég að æfa í um 650 tíma á þessu ári. Ég á eftir að gera enn betur og ég veit að ég get þetta,“ sagði Einar Ólafsson. „Það hjálpaöi mér í þessari göngu að Tomas Eriksson startaði næstur á eftir mér. Ég hugsaði með mér að ef hann færi fram úr mér eftir 3 km væri þetta þokkaleg ganga hjá mér, nú hann köm ekki þá. Ég hugsaöi þá, nú, ef ég næ að halda honum fyrir aftan mig í 5 kílómetra er það mjög gott — enn kom hann ekki. Hann fór ekki fram úr mér fyrr en eftir 9 kílómetra og hélt ég í hann þar til einn kílómetri var eftir, þá dró aðeins í sundur. Þessi svokallaða draghjálp kom sérvel fyrirmig." Einar hefur verið í nokkrum sér- flokki í skíðagöngu karla hér á landi um nokkurt skeið. Hann varð þre- faldur Islandsmeistari á síðasta landsmóti sem fram fór á Siglu- firði. Hann stundar nú nám í skíða- menntaskóla í Járpen í Svíþjóð og lýkur þaðan stúdentsprófi í vor. Með honum ytra er unnusta hans, Auður Ebenezerdóttir, sem einnig er góð skíðagöngukona. Hvað er framundan hjá þér? „Ég keppi í 50 kílómetra göngu hér á sama stað á fimmtudag og í boðgöngu á laugardag. Síðan tek ég þátt í nokkum mótum hér ytra, þar á meðal Vasagöngunni sem verður í byrjun mars. Kem heim um páskana og tek þátt í islands- mótinu sem fram fer í Reykjavík, reyni að verja titlana frá síðasta vetri.“ Einar keppti einnig í 30 km göngu á sunnudaginn og varð i 20 sæti. Hann var óheppinn í þeirri göngu, datt úr skíðinu tvisvar í göngunni. Úrslit í 15 km göngunni voru þessi: Torgon Mogren, 38,34 mín. Tomat Eríktton, 38,46 Lart Holand, Erík Öttlund, 38,69 39,23 Sven Erík Danieltton, 39,26 Jan Ottoson, 39,36 Benni Kolberg, 39,39 Einar Ólafsson, 39,66 Mikael Edman, 39,67 Ingemar Somtkar, 39,68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.