Morgunblaðið - 12.02.1986, Side 1

Morgunblaðið - 12.02.1986, Side 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 35. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR12. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgfunblaðsins „Líkamann má hlekkja en ekkí mannsandann“ Berlín,TelAviv, U.febrúar. AP. SOVÉSKI andófsmaðurinn og gyðingurinn Anatoly Shcharan- sky gekk yfir Glienicke-brúnna milli Vestur-Berlínar og Pots- dam í Austur-Þýskalandi í dag og hvert spor sem hann skildi eftir á snævi þakinni jörðinni markaði áfanga í freisisátt. Þar með var endi bundinn á níu ára fangelsisvist, sem varð eitt um- talaðasta mannréttindamál í heimi. „Hann var frá sér numinn af fögnuði yfir frelsinu. Hann hló og gerði að gamni sínu," sagði sendi- herra Bandaríkjanna í Vestur- Þýskalandi, Richard Burt, eftir að skiptin höfðu farið fram. Átta klukkustundum eftir að hann var látinn laus kom Shcharan- sky til Israels. Við komuna þangað sagði hann: „Ég á erfitt um mál núna. Ekki aðeins vegna fákunn- áttu minnar í hebresku heldur vegna tilfinninga, sem engin orð fá lýst.“ Þegar hann var spurður um framtíðaráætlanir sínar svaraði hann: „Mig langar til að lifa kyrr- látu lífi með konu minni.“ Um Sovétmenn sagði Shcharan- sky: „Ég veit ekki hvað hefur gerst undanfama daga, en ég veit hvað þeir hata okkur (andófsmenn af gyðingaættum). Og ég veit að þeir óska að þessi dagur hefði aldrei risið.“ Shcharansky og Shimon Peres, forsætisráðherra Israels, töluðu við Reagan, Bandaríkjaforseta, í beinni sjónvarpsútsendingu og óskaði Reagan Shcharansky til hamingju. Það er hægt að setja líkamann í hlekki, en það er ekki hægt að fangelsa mannsandann, sagði Peres og kvað Shcharansky bera því órækt vitni. Skipt var á Shcharansky og þremur njósnurum Austantjalds- landanna annars vegar og fimm njósnurum Vesturveldanna hins vegar. Að ósk Bandaríkjamanna gekk Shcharansky einn yfir brúna Sovéski andóf smaðurinn Shcharansky kominn til ísraels AP/Símamynd Sovézki andófsmaðurinn Anatoly Shcharansky og Avital kona hans sjást hér brosandi og hamingjusöm skömmu eftir komu þeirra til Ben Gurion-flugvallar í ísrael í gær. líkur á því að Andrei Sakharov yrði látinn laus ef viðbrögð Vesturveld- anna við því að Shcharansky var sleppt yrðu j ákvæð. Eftir stutta töf á Tempelhof- flugvelli í Vestur-Berlín flaug Shcharansky til Frankfurt þar sem fagnaðarfundir urðu með honum og konu hans, Avital. Frú Shchar- ansky kom til Frankfurt tæpum tveimur klukkustundum á undan manni sínum. Að sögn Wolfgangs Schwalm, talsmanns flugvallarstjóra, báðu bæði bandarísk og ísraelsk yfírvöld um að ekki yrði greint frá fundum þeirra hjóna og sagði Schwalm aðeins að þau hefðu heilsast. Á flugvellinum í Frankfurt var Shcharansky afhent ísraelskt vega- bréf. Hann sótti um israelskan ríkis- borgararétt 1974 og fékk hann um hæi. Frá Frankfurt héldu Shcharan- sky-hjónin til Tel Aviv þar sem höfðinglega var tekið á móti þeim. Fangaskiptin tóku þrjá stundar- fjórðunga. Hinir fangamir, sem sleppt var til Vestur-Berlínar, flugu til Munchen til yfirheyrslna hjá vestur-þýsku leyniþjónustunni. Sjá einnig „Fangaskiptin á Glienicke-brú“ á siðum 24 og 25. til að leggja áherslu á sérstöðu hans í þessum skiptum. Shcharansky hafði engan far- angur meðferðis við komuna til Vestur-Berlínar og hann fékk ekki að vita fyrr en við komuna til Austur-Berlínar að hann yrði látinn laus. Andófsmaðurinn lét vel af sér og kvartaði ekki undan heilsubresti. Fregnir höfðu borist af því að heilsu Shcharanskys hefði hrakað í fanga- vistinni. Þetta er fyrsta sinn, sem fjölmiðl- ar hafa fengið að fylgjast með fangaskiptum milli austurs og vest- urs á Glienicke-brúnni. Austur-þýski lögfræðingurinn Wolfgang Vogel, sem skipulagði brottför Shcharanskys, sagði góðar Kosningarnar á Filippseyjum: Talning tefst á þingi enn ókyrrt í landinu Manila, 11. febrúar. AP. ÞJÓÐÞING Filippseyja gerði sig i dag líklegt til að hefja talningu atkvæða í forsetakosningunum á föstudag. Hætt var við talning- una áður en eitt einasta atkvæði Shcharansky við komuna til Tel Aviv: Gleymum ekki öllum hinum sem eftir urðu ÞETTA var mjög hátíðleg stund og þrungin sterkum til- finningum. Shcharansky var klökkur við komuna, svo að hann átti erfitt um mál í fyrstu. En síðan brutust út mikil fagn- aðarlæti og mannfjöldinn tók að syngja hástöfum. Þannig lýsti Björgólfur Gunn- arsson í Tel Aviv komu Anatolys Shcharanskys til Ben Gurion- flugvallar þar, en hann kom þang- að síðdegis i gær. Um 5.000 manns voru á flugvellinum til þess að fagna Shcharansky, þeirra á meðal Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, og Yitz- hak Shamir, utanríkisráðherra. „Ég er innilega glaður yfír að vera kominn," sagði Shcharansky, en bætti síðan við með áherzlu alvarlegur í bragði: „En gleymum ekki öllum hinum, sem eftir urðu.“ Shcharansky lét ekki frá sér fara neina yfirlýsingu á flugvellin- um, en lét í ljósi þakklæti til þeirra mörgu, sem barizt höfðu fyrir frelsi hans, sagði Björgólfur Gunnarsson að lokum. hafði verið talið vegna þess að meirihluti þingmanna var fjar- verandi. Bandariska sendinefnd- in, sem i gær sneri heim frá Filippseyjum, greindi Reagan, Bandarikjaforseta, frá ofbeldi og kosningasvikum og sagði að Marcos, forseti, væri greinilega fær um að ráða úrslitum kosn- inganna. Corazon Aquino, mótframbjóð- andi Marcosar, bað í dag „vini sína erlendis" um að hjálpa sér að halda sigri sínum og sagði að það yrðu mistök að styðja „fallvaltan ein- ræðisherra". Marcos sakaði Coraz- on um að sýna „bamalegt bráð- lyndi". Kosningastjóri Corazon í Anti- que-héraði, Evelio Javier, var í dag skotinn til bana fyrir utan ráðhúsið í héraðinu. 98 þingmenn þarf til að ákvörð- unarbær meirihluti sé á þinginu í Manila. Er leið á daginn hurfu þingmenn stjómarandstöðunnar úr þingsölum á fund Corazon og varð að fresta talningu atkvæða þangað til á morgun, miðvikudag. Kosninganefnd ríkisstjómarinn- ar, Comelec, segir nú að Marcos hafí 52 prósent fylgi og Corazon 48 prósent eftir að talin hafí verið atkvæði í 53 prósentum kjördæma. Namfrel, samtök óháðra borgara, sem beijast fyrir heiðarlegum kosn- ingum, segja aftur á móti að Coraz- on hafí hlotið 52 prósent atkvæða og Marcos 48 prósent eftir að talin hafí verið atkvæði í 64 prósentum kjördæma. Formenn bandarísku sendinefnd- arinnar, sem fór til að fylgjast með kosningunum á Filippseyjum, vildu ekki ganga svo langt. að segja kosningamar ómarktækar vegna misferlis er þeir greindu Reagan frá eftirlitsför sinni. „Við ætlum ekki að segja neitt, sem Marcos gæti fært sér í nyt til að lýsa kosningamar ógildar," sagði Richard Lugar, öldungadeildarþing- maður og annar formanna sendi- nefndarinnar. Sjá einnig „Cory hefur vakið okkur. . . “ á síðu 15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.