Morgunblaðið - 13.02.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.02.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. FEBRÚAR 1986 39 verka vant, jafnvel ekki á þeim tím- um sem atvinnuleysis gætti hjá stéttinni. Hann var glaðvær og gleðimaður mikill og vinmargur. Á tímabili blót- aði hann Bakkus að nokkru ráði enda var nóg af okkur vinum hans sem tilkippilegir vorum til þátttöku í slíkum gleðilátum enda var maður- inn mikill „húmoristi" og bráð- skemmtilegur, þegar hann vildi það við hafa. Aldrei varð ég þess þó var að þetta lífemi gengi út í þær öfgar að það bitnaði á starfí hans. Hann var og mikill fagurkeri, eins og kona hans, enda bar hið fagra heimili þeirra þess ríkulegan vott. Þar var að finna fjölda mál- yerka og annarra fagurra listmuna af ýmsu tagi. Hann sótti mikið ýmiskonar listsýningar og mér er til efs að hann hafi t.d. látið nokkra leiksýningu Þjóðleikhússins fara fram hjá sér, nema hann væri er- lendis eða sjúkur. Ferðalög voru eitt af hugðarefn- um Ólafs, enda hafði hann ferðast vítt og breitt um ísland, bæði í einkaerindum sem og á vegum Kiwanis-hreyfmgarinnar og Odd- fellow-reglunnar, en ekki hvað síst vegna verkefna fyrir hið opinbera og húsameistara ríkisins, sem voru bæði mörg og margvísleg í gegn um tíðina. Þá ferðuðust þau hjónin mikið til útlanda mörg síðustu árin og höfðu mikla ánægju af. Fjárhagur- inn var orðinn þannig, að þau gátu ieyft sér flest það sem hugurinn gimtist, þótt smátt hafl verið byij- að. Fjölskyldu Ólafs hefí ég nú þekkt og umgengist f um 40 ár og betri og tryggari vini er ekki hægt að eignast. Mér fínnst því eins og ég hafí misst stóran hluta af sjálfum mér þegar þau hjónin em bæði horfin af sjónarsviðinu. Eftir stend- ur tómarúm, sem ekkert fær fyllt nema minningin um fágætlega elskulega vini. Bömum þeirra, bamabömum, . bamabamabömum og öðmm ætt- ingjum votta ég mína dýpstu sam- úð. Júl. M. Magnús Með fráfalli Ólafs Þ. Pálssonar múrarameistara er horfinn einn virkasti og athafnamesti félagi okkar. Ólafur fæddist í Reykjavík 12. nóvember 1907 og var því kominn hátt á áttræðisaldur er hann lést. Ólafur var ákaflega hraustbyggður maður, þéttur á velli og léttur í lund. Það gustaði af honum hvort heldur um var að ræða á vinnustað, eða á góðri stund meðal vina og kunningja, þar var hann hrókur alls fagnaðar. Hin síðari ár átti Ólafur þó við vaxandi vanheilsu að stríða er leiddu til endurtekinna sjúkrahús- ferða. Þeim átökum lauk svo 7. febrúar sl. Ólafur Þ. Pálsson gekk í Múrara- meistarafélag Reykjavíkur árið 1949. Árið 1961 var hann kjörinn gjaldkeri félagsins og gegndi því starfi samfleytt í 20 ár. Fram- kvæmdastjóri félagsins var Ólafur á ámnum 1971—1982. Fleiri trún- aðarstörfum gegndi Ólafur fyrir félag okkar, hann var m.a. fulltrúi þess í stjóm Meistarasambands Byggingamanna og sat ennfremur nokkur Iðnþing, sem fulltrúi félags- ins._ Á 50 ára afmæli Múrarameist- arafélagsins var Ólafur gerður að heiðursfélaga í þakklætis- og virð- ingarskyni fyrir vel unnin störf. Af því sem nú hefur verið sagt, má ljóst vera, að Ólafur undi því illa, að vera hlutlaust nafn á félaga- skrá. Þrátt fyrir mikil umsvif á vinnustað, var hann ávallt reiðubú- inn til tímafrekra félagsstarfa, hvenær sem eftir var leitað. Meira verður ekki með rétti krafíst af neinum félagsmanni. Nú þegar Ólafur Þ. Pálsson kveður þetta tilvemstig, þakkar Múrarameistarafélag Reykjavíkur honum af alhug öll unnin störf í þágu þess á liðnum ámm, um leið og eftirlifandi ættingjum hans er vottuð dýpsta samúð. F.h. Múrarameistarafélag Reylqavíkur, Þórður Þórðarson, formaður. VEGNA ÞARFIU LYKILKORT ÞU ÞEKKIR DÆMIN: • Tíminnrunninnfráþér-bankarnirlokaðir • Fríúrvinnunni,tiIþessaðkomastíbanka • Biðraðir • Kvöld eða helgi og þú manst ekki hvað er inni áreikningnum • Vilt ekki fara með ávísanaheftið á skemmtistað -vantar reiðufé • Gíróreikningamirhlaðastupp - nærð ekki að greiða þá á vinnutíma Allt þetta hefur Iðnaðarbankinn leyst fyrir þig með einu litlu lykilkorti sem þú getur notað á 9 stöðum hvenær sólarhringsins sem er. Líttu við á einhverjum afgreiðslustaða okkar og náðu þér í lykilkort, það er ókeypis. - og njóttu þægindanna! © iðnaðarbankinn -nútima banki ŒB AUGiySINGAÞJÓNUSTAN / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.