Morgunblaðið - 14.02.1986, Page 1

Morgunblaðið - 14.02.1986, Page 1
64SÍÐUR B STOFNAÐ1913 37. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Stend ekki í þakkar- skuld við GJorbachev — sagði Shcharansky á fyrsta blaðamannafundinum Jcrúsalcm, 13. febrúar. AP. ANATOLY Shcharansky sagði i dag, að bœtt sambúð Bandaríkja- manna og Sovétmanna gæti falið i sér möguleika á þvi að auka verulega á mannréttindi í Sovétríkjunum. Þá sagði Shcharansky ennfremur, að bezta leiðin til þess að hjálpa gyðingum i Sovétríkj- unum væri að sýna sovézkum stjórnvöldum fram á, að það væri þeim sjálfum fyrir beztu að draga úr spennunni í heiminum. Það gætu þau m.a. gert með þvi að leyfa gyðingum i Sovétríkjunum að fara þaðan fijálsir ferða sinna. Shcharansky hélt í dag fyrsta fund sinn með fréttamönnum, síðan hann fékk að fara frá Sovétríkjun- um til ísrael. Þar var hann m.a. Spenna eykst milli Jemenríkjanna: Her N-Jemen í viðbragðsstöðu HER Norður-Jemen hefur verið settur í viðbragðsstöðu við landamærin að Suður-Jemen og á nokkrum stöðum hefur komið tO átaka milli hermanna Jemen- ríkjanna. Leynilegar viðræður hafa verið hafnar í skyndi milli fulltrúa nýju stjórnarinnar i Aden og ríkisstjórnar Abdullah Salih, forseta N-Jemens, til að reyna að draga úr þeirri spennu, sem hefur blossað upp milli Jemen-rikjanna í kjölfar upp- reisnarinnar í Suður-Jemen í sl. mánuði. Það mun ráðast á næstu tveimur vikum, hvort samkomu- lag næst ellegar herinn í N-Jem- en gerir innrás í þeim tilgangi að steypa stjórn Al-Attas og Olíuverð- ið lækkar stöðugt New York, 13. febrúar. AP. HEIMSMARKAÐSVERÐ á olíu hélt enn áfram að lækka i dag þriðja daginn í röð. Þannig lækkaði verð á bandarískri olíu um 82 sent, niður i 15,73 dollara hver tunna og verð á brezkri oliu frá Brent-svæðinu lækkaði enn um 10 sent eða niður i 16,40 dollara tunnan. Olíusamlag Venesúela, sem er nkisrekið, hefur fengið heimild til þess að breyta verði sínu til lækkunar eftir þörfum og Statoil, olíufélag norska rík- isins, heáir sent frá sér til- kynningu þess efnis, að unnt sé með hagnaði að vinna olíu úr sumum olfulindum þess á aðeins 3,50 dollara tunnuna. Þetta þykir benda til þess, að Norðmenn séu að undirbúa sig undir nær takmarkalaust verðstríð með olíuna. koma Ali Mohammed Nasser á ný til valda. Ráðamenn eru sagðir óttast að ekki muni takast að hafa hemil á hermönnunum öllu lengur og mikil ólga sé i N-Jemen i garð nýju valdhaf- anna i Aden. Fréttir þessar fékk Morgun- blaðið í kvöld, fimmtudagskvöld, eftir heimildum sem eru óstað- festar, en telja má áreiðanlegar. Fréttabann hefur verið sett á í N-Jemen og útlendingum er ekki hleypt inn í landið að sinni. Ali Nasser Mohammed, fyrrv. forseti Suður-Jemens, er um þess- ar mundir í Addis Ababa, en fjöl- skylda hans er komjn til borgarinn- ar Taiz í Norður-Jemen, sem er ekki langt frá landamærum Jem- en-rílq'anna. Allmargir stuðnings- menn Ali Mohammeds hafa komizt til Taiz, en talið er að núverandi stjórnarher Suður-Jemens hafí fellt nokkra á flótta. Annars staðar í N-Jemen en í þeim héruðum sem liggja skammt frá S-Jemen er sagt rólegt en mikil spenna sé t.d. í Taiz og viðbúnað hers megi sjá í höfuðborginni Sanaa. spurður að því, hvort honum fyndist hann standa f þakkarskuld við Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovét- ríkjanna, fyrir að hafa látið hann lausan eftir 9 ára dvöl í fangelsi, og svaraði hann þá: „Hreinskilnis- lega sagt, nei.“ Síðan bætti hann við: „Ég tel það hins vegar nauðsyn- legt að láta Gorbachev vita, að ef þetta skref er það fyrsta í um- fangsmikilli viðleitni til þess að efla mannréttindi og leyfa fleirum að fara úr landi, þá yrði slfkt til þess að skapa Sovétríkjunum ný tæki- færi.“ Læknirinn, sem rannsakaði heilsufar og líkamsástand Shchar- anskys eftir komu hans til ísraels, hefur skýrt svo frá, að sovéski andófsmaðurinn og mannréttinda- frömuðurinn hafi þjáðst af vægum hjartasjúkdómi og verið með tauga- einkenni. Hvoru tveggja ætti rót sína að rekja til alvarlegs næringar- skorts þau 9 ár, sem Shcharansky hefði dvalizt f sovézkum fangelsum og nauðungarvinnubúðum. Valery Suhkin, talsmaður sovézka utanríkisráðuneytisins, fordæmdi í dag Shcharansky og lýsti honum manni, er „tilheyrði dreggjum samfélagsins eins og glæpamenn og svikarar." Anatoly Shcharansky (tíl vinstri á myndinni) sést hér á læknastofu í Jerúsalem í gær, þar sem hann gekkst undir nákvæma læknisrann- sókn. Niðurstaða hennar var á þann veg, að 9 ára dvöl f sovézkum fangelsum og nauðungarvinnubúðum hefðu reynt mjög á heilsu hans, en hann hefði þó sloppið þaðan aðeins með vægan hjartasjúk- dóm og taugaeinkenni. Gagnsókn íraka gegn her Irana Níkósíu, 13. febrúar. AP. ÍRANIR fullyrtu í dag, að her þeirra héldi áfram sókn sinni inn í suðurhluta íraks og hefði enn lagt ný landsvæði undir sig. Jafnframt ásökuðu íranir íraka um að beita eiturgasi og öðrum efnavopnum í strfðinu milli þjóðanna. Samkvæmt tilkynningu írana þá sögðust þeir hafa fellt 10.000 höfðu þeir náð á sitt vald 700 fer- kílómetra landsvasði, síðan stórsókn þeirra inn í írak hófst á sunnudag. manns úr liði fraka og tekið 1.400 manns til fanga. írakar staðhæfðu hins vegar í % Wm* Mynd þessi á að sýna hluta þeirra mannskæðu bardögum undanfarna ígær. vopna, sem frakar segjast hafa tekið herfangi af írönum f hinum daga. Var mynd þessari dreift af hinni opinberu fréttastofu íraks dag, að sókn írana hefði verið hrundið og tekizt hefði að ná aftur því landi, sem íranar höfðu náð á sitt vald. Jafnframt héldu þeir því fram, að það væru íranir, sem gripið hefðu til efnavopna. Sögðust Irakar hafa umkringt og einangrað það herlið frana, sem tekizt hefði að komast vestur yfir fljótið Shatt Al-Arab. Ætti þetta lið nú enga undankomuleið og útilokað væri að koma til þess vopnum og vistum. íranar aftur á móti buðu erlend- um fréttamönnum að skoða hafnar- borgina Faa í írak til staðfestingar því, að þeir hefðu náð borginni á sitt vald. Jafnframt tilkynnti her- stjóm írana, að þeir hefðu skotið niður tvær herþotur og eina þyrlu íraka í dag. Seint í kvöld var það haft eftir erlendum sendimönnum í Bagdad, að stríðsgæfan virtist hafa snúizt írökum í vil. Hefði harðskeyttum víkingasveitum íraka tekizt með aðstoð skriðdreka að bijótast í gegnum víglínu írana meðfram Shatt Al-Arab og kljúfa hana í tvennt. Liði írana vestan fljótsins bærust nú engar vistir né hergögn, en markviss sókn íraka þar héldi áfram hægt en bítandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.