Morgunblaðið - 20.02.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Evrópuf lug Flugleiða:
Algengiistu fargjöld
hækka um 2,9%
FLUGFARGJÖLD Flugleiða í Evrópuflugi hækka á bilinu 2,9 til 10%
þann 1. mars næstkomandi. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar frétta-
fulltrúa Flugleiða eru þessar hækkanir vegna géngisleiðréttingar,
en flugfargjöldin hafa ekki hækkað síðan 15. júní í fyrra. Von er á
frekari hækkunum i aprílmánuði, þegar fargjöldin verða tekin til
endurskoðunar.
en hæstu fargjöldin hækkuðu
meira, eða allt upp í 10%. Fargjöld
sem nefnd eru rauður apex (báðar
leiðir) til Lundúna hækka um 370
kr., úr 12.800 krónum í 13.170.
Hæsta fargjald til Lundúna hækkar
úr 17.560 krónuin í 18.610 kr.,
miðað við aðra leið. Rauður apex
til Kaupmannahafnar hækkar um
420 krónur, úr 14.230 í 14.650
krónur og pex fargjald (báðar leiðir)
til Salzburg hækkar úr 16.400 í
16.880 krónur. Við þessar upphæðir
bætist 750 króna flugvallarskattur,
en hann hækkar úr 250 í 750 krónur
þann 1. mars, eins og fram hefur
komið.
Sæmundur sagði að þrátt fyrir
þessa hækkun væru flugfargjöld
Flugleiða lág. Meðalfargjöld félags-
ins væru 30% lægri en ódýrustu
meðalfargjöld flugfélaga í Evrópu.
Sæmundur sagði að flest algeng-
ustu fargjöldin hækkuðu um 2,9%,
Fjarkennsla í
undirbúningi
SVERRIR Hermannsson
mennntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til að kanna mögu-
leika á fjarkennslu og opnum
háskóla.
Þetta kom fram í ræðu ráðherra á
ráðstefnu er Bandalag háskóla-
manna stóð fyrir um síðustu helgi.
í nefndinni eiga sæti Gunnar G.
Schram formaður BHM, Markús
Öm Antonsson útvarpsstjóri og
Sigmundur Guðbjamason háskóla-
rektor.
Morgunblaðið/Kristján Þorbergur Jónsson.
TF-SIF í Vattarnesi
TF—SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, fór vestur í Vattames á þriðju-
daginn. Tilgangur ferðarinnar var sá að flytja þangað lögreglumenn.
Þeir fóm í Vattames til þess ganga frá sumarbústaðnum sem
mennirair tveir, sem lentu i hrakningum á þessum slóðum fyrr í
þessum mánuði, gistu í.
Lögreglumennimir frá Patreks-
firði komust ekki lengra en í Kjálka-
fjörð vegna ófærðar. Þangað sótti
þyrlan þá og flutti þá í Vattames.
Þeir gerðu vettvangskönnun á
staðnum. Mennimir tveir höfðu
brotið rúðu til þess að komast inn
í bústaðinn. Lögreglumennimir
gengu frá glugganum og lokuðu
síðan bústaðnum.
A myndinni eru þeir Guðjón
Gíslason lögreglumaður á Patreks-
firði og Páll Hannesson flugstjóri
þyrlunnar við sumarbústaðinn í
Vattamesi.
Hagkaup:
Verðlaunasamkeppni um nafn
á nýju verslunarmiðstöðina
HAGKAUP HF. hefur ákveðið að efna til verðlaunasamkeppni
um nafn á nýju verslunarmiðstöðinni, sem nú er í byggingu í
Kringlumýri. Fyrstu verðlaun verða 125 þúsund krónur.
í fréttatilkynningu frá Hagkaup segir að öllum sé heimil þátttaka
í verðlaunasamkeppninni og verði reglur um hana auglýstar á næst-
unni. Dómnefnd skipa Jón Asbergsson forstjóri, Valdimar Kristinsson
viðskiptafræðingur og Sigurður Pálmason stjómarformaður. Sérstak-
ur ráðgjafi dómnefndar er Guðni Kolbeinsson, íslenskufræðingur.
Morgunblaðið/RAX
Halldór Blöndal, Þorsteinn Þorsteinsson og Lev Alburt fyrir utan utanríkisráðuneytið í gærmorgun.
Landflótta stórmeistari á fund utanríkisráðherra:
Beðið um aðstoð fyrir
skákmeistarann Gulko
STÓRMEISTARINN Lev Alburt, sem er meðal þátttakenda á
Reykjavíkurskákmótinu, gekk í gærmorgun á fund Matthíasar Á.
Mathiesen, utanríkisráðherra, og gerði honum grein fyrir árang-
urslausum tilraunum sovéska stórmeistarans Boris Gulko, fyrir
því að fá að flytjast frá Sovétríkjunum með fjölskyldu sína. Sjálf-
ur er AJburt landflótta Sovétmaður, búsettur í Bandaríkjunum.
Halldór Blöndal, alþingismað-
ur, sem fylgdi Alburt á fund
utanríkisráðherra ásamt Þorsteini
Þorsteinssyni, forseta Skáksam-
bands Islands, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að Alburt hefði
gert utanríkisráðherra grein fyrir
máli Gulko-hjónanna og beðið
hann að kanna hugsanlegar leiðir
til að hafa áhrif á sovésk yfírvöld
í þeim efnum.
„Alburt er gamall vinur Gulko-
hjónanna, en þau eru bæði slyngir
skákmenn í Sovétríkjunum, gyð-
ingar, og hafa án árangurs sótt
um brottfararleyfi svo árum skipt-
ir,“ sagði Halldór Blöndal. „Gulko
hefur tekið út miklar þjáningar
og sætt ofsóknum þar eystra.
Alburt hefur lengi barist fyrir
því að hjón fái að fara úr landi
og þetta bar á góma okkar á
milli síðast þegar hann tefldi hér.
Þetta mál kom aftur upp núna
þegar við hittumst og við fórum
ásamt Þorsteini Þorsteinssyni,
forseta Skáksambandsins á flind
utanríkisráðherra þeirra erinda
að biðja hann um að hafa sam-
band við sovésk yfirvöid og reyna
að greiða fyrir Gulko-fjölskyld-
unni,“ sagði Halldór.
Hann kvaðst ennfremur vilja
minna á í þessu sambandi að
Geir Hallgrímsson hefði á sínum
tíma tekið upp málefni eiginkonu
og sonar Kortsnojs við sovésk
yfirvöld. „Og einnig er rétt að
minna á, að ef til vill hefur einörð
framganga Friðriks Ólafssonar í
því máli, sem forseti FIDE, kostað
hann forsetastólinn þar, og best
að hafa sem fæst orð um þann
mann sem við tók af Friðrik í
því embætti,“ sagði Halldór. „Sov-
éskir skákmenn hafa oft tekið þátt
í skákmótum hér á landi og við
unnendur skáklistarinnar viljum
gjama halda þessum góðu sam-
skiptum við sovéska skákmenn
áfram. En við hikum þó ekki við
að minna á að örlög Gulko-hjón-
anna varpa skugga á þessi sam-
skipti. Kortsnoj-málið er nú úr
sögunni og vonandi verður þess
ekki langt að bíða að mál Gulko-
fjölskyldunnar leysist með farsæl-
um hætti."
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkaði um 2,4% milli mánaða
VÍSITALA byggingarkostnaðar í febrúar 1986 reyndist vera 258,24
stig, eða 2,4% hærri en í fyrri hluta janúar (desember 1982=100
stig) samkvæmt útreikningum Hagstofu íslands. Visitalan var reikn-
uð eftir verðlagi í fyrri hluta febrúar. Samsvarandi vísitala miðað
við eldri gmnn (1975=100) er 3.827 stig.
Þetta kemur í fréttatilkynningu
frá Hagstofu íslands. Jafnframt
kemur fram að síðustu 12 mánuði
hefur vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 32,6%. Hækkun vísi-
tölunnar um 2,4% á einum mánuði
frá janúar til febrúar 1986 svarar
til 32,9% árshækkunar. Af þessari
hækkun stáfa 1,4% af 15% verð-
hækkun á sementi og steypu 20.
janúar sl. en um 1% af verðhækkun
ýmiss byggingarefnis, bæði inn-
flutts og innlends. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað um
4,4% sem samsavarar 18,9% verð-
bólgu á einu ári.
Lögformlegar vísitölur sem
reiknaðar eru ijórum sinnum á ári
eftir verðlagi í mars, júní, septem-
ber og desember og taka gildi fyrsta
dag næsta mánaðar gilda við upp-
gjör verðbóta á fjárskuldbindingar
samkvæmt samningum þar sem
kveðið er á um að þær skuli fylgja
vísitölu byggingarkostnaðar. Vísi-
tölur fyrir aðra mánuði gilda hins
vegar ekki nema sérstakelga sé
kveðið á um það í samningum.
Vinnsla loðnuhrogna
hafin í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum, 19. febrúar.
SÍÐDEGIS í gær hófst vinnsla
loðnuhrogna í Vestmannaeyjuin
þegar farmi Hugins VE var dælt
í gegnum hrognaskiljumar hjá
Fiskimjölsverksmiðjunni í Vest-
mannaeyjum. Huginn var með
fullfermi, um 600 tonn af ágætis
loðnu. Er mikill hugur kominn í
loðnusjómenn enda margfaldast
verðmæti farmsins þegar
hrognataka hefst.
Loðnuhrognin eru seld fyrir gott
verð tii Japans. Hrognatakan nú
er í fyrra fallinu og raunar á mörk-
unum að loðnan sé komin í hæfilegt
ástand, en hrognavinnslan mun
fara af krafti í gang allra næstu
daga. Hjá frystihúsunum í Eyjum
er nú verið að taka í notkun nýjan
og mjög fullkominn búnað til að
hreinsa og vinna loðnuhrogn. Fiski-
mjölsverksmiðja Einars Sigurðsson-
ar mun einnig stunda loðnuhrogna-
töku á þessari vertíð, en þar bíða
menn enn átekta með allt klárt.
— hkj.
Vinnsla loðnuhrogna hófst í gær
er farmi Hugins VE var dælt í
gegnum þessar hrognaskiljur hjá
Fiskimjölsverksnúðjunni.
V 5.Y.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson