Morgunblaðið - 20.02.1986, Page 16

Morgunblaðið - 20.02.1986, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 í erfiðisvinnu? Þaö gceti munaö um eöa MagnaMm Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777 KJARADAGARNIRI VÖRUMARKAÐINUM ídagbióðurnfís' skápa meo 25«(o WSL. ÞETTA TILBOÐ GILDIR AÐEINS I DAG FIMMTUD. 20. FEBR. © Vörumarkaöurinn hf. I Ármúla 1a, sími 686117 Hvers vegiia eru ekki allir reknir? Svar við grein Gísla Jónatanssonar kaupf élagsstj óra eftir Eirík Stefánsson í upphafi greinar sinnar segist kaupfélagsstjórinn vera að svara mjög góðum leiðaraskrifum Morg- unblaðsins 11. febrúar, en fer að mati undirritaðs langt frá þeim sannleik, sem fallað er um í leiðara- skrifum þessum, þar sem lýst er vinnubrögðum samvinnuhreyfing- arinnar og ýmissa kaupfélaga í landinu. Kaupfélagsstjórinn hefur skrif sín með því að þylja upp hin fáranlegu lög KFFB um það fyrir hvaða sakir félagsmaður getur sætt brottrekstri úr félaginu. Ef á að fara algerlega óhlutdrægt eftir þessum lögum þá leyfi ég mér að fullyrða að kaupfélagsstjórinn hefur sjálfur brotið mjög illilega fyrstu málgrein 7. gr. laga kaupfélagsins, en þar stendur. „félagsmaður getur sætt brottrekstri ef hann verður ber að því að spilla áliti félagsins, eða vekja tortryggni hjá félagsmönn- um“. Þetta hefur kaupfélagsstjór- inn gert svo hressilega, að eftir hefur verið tekið um allt ísland, og vil ég benda háttvirtum stjórnar- mönnum KFFB á þetta og spyija um leið hvort þeir hafi ekki tekið eftir þessu undanfarin ár. Einnig vil ég benda á, að hafi ég gerst brotlegur við þessi dæmalausu lög, hvort ekki hafi stór hópur félags- manna einnig gert það og meðal annars nokkrir af hinum hrein- ræktuðu kaupfélagsmönnum. Ég vil benda á að fyrir nokkrum árum stofnuðu nokkrar fjölskyldur hér á Fáskrúðsfirði pöntunarfélag og pöntuðu ýmsar nauðsynjavörur beint frá heildsölum og dreifðu sín á milli. Ekki er ég að deila á þetta frumkvæði, heldur að benda á að innan þessara Qölskyldna var fólk sem verið hafði í KFFB í áraraðir og meðal annars núverandi endur- skoðandi, sem er að miklu leyti höfundur þessara ólaga KFFB sem eru jafn ólík boðorðunum 10 og skáldsögur eftir Sven Hasel. Ekki kom nokkrum manni til hugar, að hreyfa því að visa þessu fólki úr KFFB þannig að ekki er sama hvort um er að ræða Jón eða séra Jón hjá þeim í stjóm KFFB. Ég vil benda stjóm KFFB á að kanna hvort pöntunarfélag þetta er ekki Fyrirliggjandi í birgðastöð PIPUR einangraðar með plasthúð. Þær eru sérlega með- færilegar og henta vel til notkunar við margs konar aðstæður, t.d. á sjúkrahúsum. Pípurnar fást í rúll- um, 10-22 mm sverar. Auk þess höfum við óein- angraðar, afglóðaðar eirpípur, 8-12 mm í rúllum og óeinangraðar eirpípur 10-54 mm í stöngum. - Aukin hagkvæmni - minni kostnaður - auðveid vinnsla. SINDRA *S**&&*'' STALHF Borgartúni 31 sími 27222 Eiríkur Stefánsson „Ef hægt er að ýta þeim sem eru í forystu fyrir verkalýðshreyfinguna frá öllum áhrifum í samvinnuhreyfingunni og kaupfélögunum, þá mun verkalýðsstéttin setja niður.“ starfrækt ennþá annað slagið og til á firmaskrá, og sé með sitt eigið söluskattsnúmer, og leyfið félögum í KFFB að fylgjast með. Kaupfélagsstjórinn minnist í grein sinni á afa minn og lætur sem hann hafi þekkt hann, lýsir hvaða skoðanir hann hafði fyrir 50 árum og einnig fullyrðir kaupfélagsstjór- inn að afi minn hefði stutt stjóm KFFB í brottrekstri mínum. Ekki get ég fullyrt hér, hvaða skoðun hann hefði haft á þessum aðgerðum stjómar KFFB en eitt get ég sagt, eftir að hafa alist upp hjá honum á mínum yngri árum, að hann og aðrir frumkvöðlar að stofnun KFFB, sem allir voru miklir sam- vinnumenn og hugsjónamenn hefðu aldrei lagt blessun sína á þann farveg sem samvinnuhreyfíngin og kaupfélögin eru komin í um þessar mundir, svo mikið þekkti ég afa minn. I þessum hreyfingum eru í raun tvær stéttir, önnur stéttin hefur það mjög gott og lifir kónga- lífí á margföldum verkamannalaun- um og stendur jafnvel í því að semja um kaup og kjör hinnar stéttarinn- ar, sem varla getur dregið fram lífið á þeim smánarkjörum sem höfðingj- amir í hreyfingunni geta látið af hendi rakna við þá. Þessa framtíð sáu stofnendur samvinnuhreyfing- arinnar og kaupfélaganna aldrei fyrir sér. Kaupfélagsstjórinn fullyrðir í grein sinni að allir hér eystra viti að undirritaður hafi staðið fyrir verslun Verkalýðs- og sjómannafé- lags FáskrúðsQarðar. Ef svo er þá erum við meira í sviðsljósinu en ég hélt. Einnig skrifar hann að undirrit- aður hafi notað til þess peninga úr sjóðum félagsins og segir það önugt fyrir KFFB að horfa uppá hvemig farið sé með þá peninga sem þeir gefa okkur, eins og næstum liggur í orðum hans. Ég skal fræða kaupfélagsstjór- ann um hvað standi m.a. í samningi milli Alþýðusambands Austurlands og atvinnurekenda um sjúkrasjóði verkalýðsfélaga, en þar stendun „Heimilt er að veija fé sjóðsins til kaupa eða byggingar félagshúss enda sé sjóðurinn þá eigandi hússins að því leyti." Einnig skal ég fræða hann á því að við byggingu á húsi VSF var unnin sjálfboðavinna af fleiri tugum manna sem lögðu dag við nótt meðan á byggingunni stóð, og er þessi_ vinna metin á um 1 milljón kr. Ég vil því benda kaup- félagsstjóranum á að sá hluti hús- eignar félagsins, sem rekinn er sem verslun var byggð í sjálfboðavinnu af félagsmönnum, en ekki notaðir til þess sjóðir félagsins. I sambandi við þá sneið sem okkur er send í sambandi við að hafa gilda fulltrúatölu á þing ASÍ þá sótti okkar félag þing í nóv.’85 og það hefði ekki gerst ef við hefð- um ekki verið skuldlausir við ASÍ. En eitt skal viðurkennt, að ’84 þegar við stóðum í byggingu félags- hússins, þá var í spamaðarskyni ákveðið að sækja ekki þing sem þá var haldið, því mjög dýrt er að sækja svona þing. En ég get huggað kaupfélagsstjórann með því að við munum framvegis sækja öll þau þing sem við eigum rétt á og með fulla fulltrúatölu. Kaupfélagsstjórinn segir að mér sé vikið úr KFFB sem forystumanni að stofnun verslunar VSF. Nú hefur stjóm KFFB fengið bréf frá stjóm og trúnaðarráði VSF þar sem við öll ásamt öðrum félagsmönnum teljum okkur hafa haft forgöngu um stofnun verslunar VSF. Nú spyr ég stjóm KFFB þessara spuminga: 1. Af hveiju er ráðist að undirrituð- um, sem er formaður VSF, og hann rekinn úr KFFB þrátt fyrir að hann hafi eingöngu verið að framfylgja samþykkt félagsfundar? 2. Af hveiju gengur stjóm KFFB ekki hreint til verks og rekur alla þá sem á einhvem hátt hafa brotið lög þau sem formanni VSF er borið á brýn að hafa brotið? 3. Er það mögulegt að brottrekstr- arástæða formanns VSF sé fyrir- sláttur, og um sé að ræða einhveija aðra ástæðu, og hver er hún þá? Ekki skil ég ádeilur kaupfélags- stjórans á Þjóðviljann, því hann hefur að mati undirritaðs skmmar- lega lítið fjallað um málið, sem er að mínu mati stórhættulegt fyrir verkalýðshreyfinguna. Ef hægt er að ýta þeim sem em í forýstu fyrir verkalýðshreyfinguna frá öilum áhrifum í samvinnuhreyfingunni og kaupfélögunum, þá mun verkalýðs- stéttin setja niður. Ég þakka kaupfélagsstjóranum ábendingar hans úr lögum verka- lýðsfélagsins Dagsbrúnar, en bendi honum á að ef hann vill þá standi honum til boða námskeið á vegum VSF um okkar eigin lög og samn- inga, því ég tel að honum muni ekki af veita. Aðdróttanir kaupfélagsstjórans í garð Morgunblaðsins um að blaðið virði ekki réttar leikreglur og kynni sér báðar hliðar málsins eru hlægi- legar, vegna þess að Morgunblaðið sendi fréttamenn sína á staðinn og leitaði svara ýmissa forystumanna KFFB um brottrekstur formanns VSF en þeir fengu engin svör, for- ystumenn KFFB neituðu að svara. Að lokum vill undirritaður láta það koma fram að VSF mun ekki beygja sig undur það að atvinnurek- endur á staðnum hafi afskipti af því hvemig félagið hagar sínu starfi og félagið mun beita þeim aðferðum sem duga til þess, að þeir sem vinna fyrir félagið verði ekki á nokkum hátt látnir gjalda fyrir störf sín í þágu félagsins, því ef það gerist mun enginn fást til að vinna fyrir stéttarfélögin. Höfundur er formaður VerkaJýða- og ajómannafélags Fáskrúðafjarð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.