Morgunblaðið - 20.02.1986, Side 24

Morgunblaðið - 20.02.1986, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Rannsóknin á vitnisburði kanslarans í Vestur-Þýskalandi: Kohl á rétt á skjótri o g nákvæmri málsrannsókn — segir talsmaður hans Bonn, 19. febrúar. AP. „Ásakanirnar eru ógrundaðar og til þess gerðar að varpa skugga á stjómmálaferil Helm- uts Kohl, ellefu mánuðum fyrir kosningar," sagði yfirmaður starfsliðs kanslaraembættisins í Savimbi veitt leynileg aðstoð Washington, 19. febrúar. AP. CHESTER A. Crocker, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkj- anna , skýrði utanríkisnefnd öldungadeildarinnar frá því að stjórn Ronalds Reagan, Banda- ríkjaforseta, hefði ákveðið að aðstoða skæruliða Jonas Sav- imbi, UNITA, leynilega aðstoð í baráttu þeirra við her marxista- stjóraarinnar í Angóla. Crocker kvað ákvörðun um að- stoð hafa verið tekna en verið væri að vinna að því hvemig aðstoðin yrði útfærð og henni komið til skila. Hann kvaðst ekki getað tjáð sig um einstök atriði aðstoðarinnar, en aðspurður sagði hann stjómina m.a. hafa áhuga á að senda UNITA loftvamarvopn og vopn, sem ætlað er að granda skriðdrekum. Embættismenn segja að aðstoðin muni nema allt að 15 milljónum Bandaríkjadollara, eða röskra 600 milljónir íslenzkra króna. Savimbi tjáði fréttamönnum í höfuðstöðvum sínum í Jamba í Angóla á sunnudag að hann hefði fengið „tryggingu" fyrir hemaðaraðstoð. íhaldsmenn Bandaríkjaþingi hafa barizt fyrir því að Savimbi, sem þeir líta á sem frelsisbaráttumann, verði veitt hemaðaraðstoð. í þinginu eru jafn- framt menn, sem andsnúnir eru aðstoðinni og telja þeir að hún verði einungis til að herða Sovétmenn og Kúbumenn í þess að viðhalda áhrif- um sínum í Angóla. Sovézkir og kúbanskir hermenn hafa veitt her Heræf ingarnar undan ströndum Líbýu: Tvær æfingar fyr- irhugaðar í mars Washington, 19. febrúar. AP. BANDARÍKJAMENN íhuga frekari heræfingar yfir Sidra flóa undan ströndum Líbýu tvisv- ar í næsta mánuði að sögn heim- ilda í bandaríska hermálaráðu- neytinu. Æfingaraar verða í byrjun mánaðarins og svo aftur síðar í mánuðinum. í síðari æfíngunni taka þátt að öllum líkindum þrjú flugmóðurskip. marxistastjómarinnar lið í barátt- unni við UNITA. Vestur-Þýskalandi, Wolfgang Schable, er hann ræddi við fréttamenn um rannsókn ríkis- saksóknara i Koblenz á stað- hæfingum þess efnis að Kohl hafi borið ljúgvitni fyrir tveimur nefndum sem rannsökuðu Flick mútuhneykslið. Scháble sagði að Kohl ætti kröfu á skjótri og nákvæmri málsrann- sókn. Ásakanimar á hendur Kohl, koma frá Otto Schily, eins forystu- manns græningja í Þýskalandi. Hann segir að Kohl hafí logið að rannsóknamefndunum um það að hann hefði ekki haft vitneskju um greiðslur Flick í kosningasjóði Kristilega demókrataflokksins (CDU). Ef rannsókn ríkissaksókn- Helmut Kohl, kanslari. ara leiðir til opinberrar ákæm, er gert ráð fyrir að hann neyðist til þess að segja af sér og ef hann verður sakfelldur, á hann yfír höfði sér frá þriggja mánaða og upp í fímm ára fangelsi. 77 þúsund Golf-bílar innkallaðir Detroit, 19. febrúar. AP. VOLKSWAGEN-fyrirtækið í Bandarikjunum afturkallaði í dag 77 þúsund Golf-bifreiðar vegna galla í eldsneytiskerfi bifreiðanna. Bifreiðamar em af árgerðunum 1985 og 1986 og var ákveðið að afturkalla þær allar þar sem fundist hefur galli í eldsneytiskerfí nokk- urra bifreiða af þessum árgerðum. Talsmaður Volgswagen segir gall- ann geta leitt til eldsneytisleka og íkveikjuhættu. Bifreiðamar vom settar saman í verksmiðjum fyrirtækisins í West- moreland í Pennsylvaníu. Eigendum þeirra hefur verið boðin ókeypis viðgerð, sem felur í sér að skipt verður um eldsneytiskerfí biðfreið- anna. Shcharansky í viðtali við AP: Rifjar upp erfið augna- blik úr fang’avistinni Jerúsalem, 19. febrúar. AP. SOVESKI andófsmaðurinn Anatoli Shcharansky segist ætla að fara í felur í dag og taka sér eins mánaðar leyfi með eiginkonu sinni - „og sárum minningum frá níu ára fanga- vist í Sovétríkjunum“. Shcharansky, sem leystur var úr haldi í fangaskiptum austurs og vesturs fyrir viku, ræddi við fréttamann AP-fréttastofunnar í Jerúsalem og rifjaði upp erfíðustu augnablik prísundarinnar og margendurtekinna hungurverk- falla. „Það er litið á það sem mjög alvarlegt agabrot í sovéskum fangelsum að neita að matast," sagði hann. „Þess vegna er slíkum föngum umsvifalaust varpað í kaldan einangrunarklefa, þar sem ljós logar í aðeins átta klukku- stundir dag hvem og fjalagólfið ereina hvílan. Shcharansky lýsti áhrifunum af því að vera neyddur til að nærast. Fangaverðimir tóku hann til bæna eftir 25 daga hungur- verkfall; í það sinn stóðu mótmæli hans í 110 daga. í fyrstu mötuðu þeir hann annan hvem dag, síðan þriðja hvem. „En þá er sljóleikinn líka orðinn algjör," sagði hann. „Verðimir halda manni heljartökum, opna á manni munninn með þar til gerð- um tólum og stinga slöngu alla Shcharansky-hjónin i ísrael ásamt Peres forsætisráðherra og Shamir utanríkisráðherra. leið niður í maga. Gegnum hana hella þeir svo vökvafæði," sagði Shcharansky. „Þetta er gífurlegt álag fyrir magann. Hjartslátturinn er svo veikur fyrir, að maður skynjar hann naumast," sagði hann, „en nauðungarmötunin ærir hjartað bókstaflega, og hjartslátturinn rýkur upp í 250 til 300 slög á mínútu. A þessu gengur í nokkrar klukkustundir. Svo fer maður að fínna til léttis og skynjunin skýrist um stundarsakir - þangað til fer að draga af manni á nýjan leik. í annað og þriðja skiptið er maður svo til rænulaus," sagði Shcharan- sky. Hann kvaðst hafa hætt langa hungurverkfallinu, þegar yfírvöld féllust á, að hann mætti aftur skrifa fjölskyldu sinni bréf og taka við bréfum. Þó sagðist hann hafa farið í hungurverkfall nokkmm sinnum, allt upp í 10 daga í senn. Hann segist eiga vestrænum fjölmiðlum mikið að þakka fyrir að halda málstað hans á loft allan þennan tíma. Hann slær á léttari strengi, þegar hann segir kankvís- lega: „Og síðan ég kom til Israels, hef ég verið sjálfviljugur fangi fjölmiðlanna. En þeim kafla lýkur í dag. A morgun hverf ég sjónum manna og fer í mánaðar leyfi.“ Shcharansky drcymir um að byggja upp fjölskyldulíf með eig- inkonu sinni, sem hann varð að sjá af fyrir 12 árum, er Avital fluttist til ísraels daginn eftir brúðkaup þeirra. Hann sagði, að þau ætluðu að sameina reynslu sína í áframhaldandi baráttu fyrir réttindum sovéskra gyðinga til að flytjast úr landi. En hann taldi, að það yrði samt ekki aðalstarf. „Líklega reyni ég að snúa mér að mínu sviði, stærðfræði og tölvufræði, ef mér býðst það,“ sagði hann. Ekki kvaðst hann hafa löngun til að blanda sér í „martröð" íSra- elskra stjómmála. Fréttir í ísrael hafa hermt, að nokkra ísraelsku stjómmálaflokkanna fýsi mjög að fá Shcharansky í sínar raðir. „Það em svo margir flokkar héma, og svo margir hópar, og þeir koma og fara eins og hendi sér veifað, svo að maður verður áreiðanlega að leggja hart að sér, ef maður ætlar að botna eitthvað í þessu,“ sagði Shcharansky að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.