Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÍJAR1986
SEGULRQFAR
YFIRALAGSVARNIR
STJORNUÞRI-
HYRNINGSROFAR
TIMALIÐAR
ROFAHUS
gæöi
Hagstættverð
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSrTA
Bjóðum nánast allar
stærðir rafmótora frá
EOF í Danmörku.
EOF rafmótorar eru í
háum gæðaflokki og á
hagkvæmu verði.
Ræðið við okkur um
rafmótora.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SÍMI 24260
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
flnrgimMítfoitfo
Mjólkurkvóti Skagfirðinga:
Vandiim smámunir miðað
við það sem á eftir kemur
— segir Eg-ill Bjarnason rádunautur
Varmahlíð, 19. febrúar.
BÆNDUR hér í Skagafirði hafa ekki farið varhluta af þeim niður-
skurði, sem boðaður hefur verið á þessu verðlagsári og verðsamning-
ar bænda og hins opinbera frá því í haust fólu í sér, en eins og
fram hefur komið i fjölmiðlum eru kúabændur víða um land mjög
óánægðir með reglugerð landbúnaðarráðherra um skiptingu á
svæðabúmarki í mjólkurframleiðslunni. Fréttaritari ræddi við Egil
Bjarnason ráðunaut hjá Búnaðarsambandi Skagafjarðar og búnaðar-
þingsfulltrúa af þessu tilefni. Hann sagði í upphafi að fréttir þess
efnis að eitt búmarkssvæði fari eitthvað verr út úr þessari skerðingu
en annað eigi ekki við rök að styðjast þar sem skiptagrunnur sé sá
sami á öllum búmarkssvæðum.
6,8% samdráttur
fráfyrraári
Eftirfarandi kom einnig fram
hjá Agli: í Skagafirði eru um 140
bændur sem stunda mjólkurfram-
leiðslu og fullvirðismark þeirra
verður á yfirstandandi verðlagsári
um 8.460 lítrar af mjólk, sem er
um 6,8% minna en framleiðsla síð-
asta verðlagsárs. Þessu heildar-
magni mjólkur sem fullt verð fæst
fyrir, að frádregnum 5%, er skipt
á milli einstaklinganna eftir ákvæð-
um í reglugerð sem gefín var út
fyrir skömmu og títtnefnd hefur
verið að undanfömu. Þessi 5% sem
standa eftir eru ætluð til þeirra sem
staðið hafa í miklum fjárfestingum
nú sfðustu árin, til að auðvelda
ættliðaskipti á bújörðum og einnig
til leiðréttingar handa þeim sem
einhverra hluta vegna voru með
óeðlilega litla framleiðslu síðasta
verðlagsár. Þessi 5% eru hér hjá
Skagfirðingum rúmlega 420 þús-
und lítrar.
Svokallað fullvirðismark, það er
það magn sem full verðábyrgð
stendur fyrir, er um 71,7% af heild-
arbúmarki í héraðinu. Þeir sem
framleitt hafa síðastliðið ár þetta
hlutfall eða lægra af búmarki sínu
fá enga skerðingu en þeir sem
framleitt hafa yfir þessu hlutfalli
fá skerðingu og hana hlutfallslega
meiri eftir því sem hærra hlutfall
er nýtt af búmarkinu. Þeir sem
framleitt hafa umfram búmark
missa það allt til viðbótar.
Sú skerðing sem hér um ræðir
getur vissulega komið svolítið
misjafnt út fyrir einstök svæði og
byggist það fyrst og fremst á því
hve framleiðsluaukning fyrstu fimm
mánuði þessa verðlagsárs hefur
verið mikil miðað við fyrstu fimm
mánuði verðlagsársins 1984—85.
Það vekur nokkra furðu að mjólkur-
framleiðendur skuli nú í haust og
vetur auka framleiðslu sína vísvit-
andi þrátt fyrir fyrirsjáanlegan
samdrátt miðað við síðasta verð-
lagsár og miðað við það magn sem
samið var um við hið opinbera í lok
ágúst.
Enn meiri
samdráttur framundan
Þegar rætt er um það tekjutap
sem bændur verða fyrir vegna
þessara aðgerða nú verður að hafa
í huga að endanlegt uppgjör fyrir
framleiðslu verðlagsársins
1984—85 er ekki lokið enn og fyrir
liggur að verðskerðing samkvæmt
búmarki verður veruleg. Um eða
yfir 70 milljónir kr. vantar enn fyrir
síðasta verðlagsár fyrir þá fram-
leiðslu sem þá var. Þessu til viðbótar
má svo reikna kostnað við að fram-
leiða þá mjólk sem ekki skilar sér
í verði. Þetta þarf að taka inn í
dæmið þegar verið er að blása út
tekjutap framleiðenda vegna þeirra
ráðstafana sem gripið hefur verið
til með reglugerðinni nú.
Varðandi næsta verðlagsár
reikna menn með lítilli breytingu
frá þeim fullvirðiskvóta sem þeir
fá á þessu verðlagsári þar sem fyrir
liggja samningar um 106 milljónir
lítra sem verðábyrgð er tekin á fyrir
verðlagsárið 1986-87. Bent skal á
að á þremur næstu verðlagsárum
getur þurft að draga saman fram-
leiðslu niður í að minnsta kosti 100
Egill Bjarnason ráðunautur á
Sauðárkróki.
eða jafnvel 95 milljónir lítra. Miðað
við þann samdrátt sem getur verið
framundan þá er vandinn í dag
smámunir miðað við það sem á eftir
kann að koma. Það er áríðandi að
bændur fái að vita sem allra fyrst
hvaða framleiðslumagni þeir geta
reiknað með á árunum fram til
1990. A því byggist hvort þeir geta
stundað sinn búrekstur áfram.
I tilefni af þessu hefur Ræktun-
arfélag Norðurlands ákveðið að
gangast fyrir heildarúttekt á stöðu
búvöruframleiðslunnar og búrekstr-
araðstöðu einstakra bænda og leit-
ast við í beinu framhaldi að varpa
ljósi á þá möguleika sem eru tiltæk-
ir til að mæta þessum samdrætti
og byggja upp nýjar atvinnugreinar
á félagssvæðinu.
Dráttur á ákvörðun
óréttlát skipting-
Viðhorf bænda í Skagafirði er
almennt það að með setningu bú-
vörulaganna á síðastliðnu vori hafi
þessi staða legið ljós fyrir. Bændur
almennt telja að fullvirðisrétturinn
hefði þurft að liggja fyrir í byijun
verðlagsársins. Ahersla er lögð á
að ekki dragist lengi enn að sett
verði fullvirðisbúmark varðandi
kindakjötsframleiðsluna og þróun
fram til ársins 1990. Þeir gagnrýna
verulega að framleiðslumagn skuli
vera lagt til grundvallar við skipt-
ingu á fullvirðisrétti til einstakra
bænda og telja eðlilegra að reiknað
hefði verið út frá búmarki hvers
svæðis þannig að þeir sem dregið
hafa saman framleiðslu sjálfviljugir
að undanfömu hefðu komi út með
eðlilegri kvóta í stað þess að gjalda
framleiðslu hinna sem lítið eða
ekkert drógu saman í framleiðslu
og valda í raun þeim vanda sem
við er að fást. Nauðsynlegt er að
bændastéttin standi saman nú um
lausn vandans í stað þess að svið-
setja rangar upplýsingar og mis-
túlka þær aðgerðir sem gerðar hafa
verið og óumflýjanlegar eru í fram-
haldi af setningu búvörulaganna
undir forystu þeirra stjómmála-
manna sem bændastéttin almennt
styður og treystir, sagði Egill.
-P.D.
Dagnrinn í
Kolaporti kost-
ar 110 krónur
SIGURÐUR Jónsson starfsmað-
ur í Kolaporti við Arnarhól hafði
samband við Morgunblaðið og
vildi koma leiðréttingu á fram-
færi. Hann sagði að það væri
ekki rétt, sem fram kom i frétt
i blaðinu, um aukið eftirlit með
bílum sem lagt er ólöglega, að
það kostaði 40 krónur að geyma
bíla í portinu yfir daginn.
Sigurður sagði að nú kostaði 110
krónur að leggja bíl í portinu frá
því að það er opnað kl. 7.30 á
morgnana þar til því er lokað kl.
18.30 á kvöidin. Hver klukkustund
kostar 10 krónur og hver hálftími
5 krónur.
BRUNAVARNIR
- Átak til öryggis -
í næstu viku halda breska fyrirtækið Thom Emi Protech, einn stærsti framleiðandi
öryggiskerfa í Evrópu, og Öryggisþjónustan Vari, kynningarfund um brunavarnirað Hótel
Loftleiðum, Reykjavíkurflugvelli.
Mr. Roger King, sérfræðingur ó sviði öryggis og brunavarnamóla mun kynna bruna-
varnakerfi, slökkvikerfi og annan búnað ó tveimur kynningarfundum:
1. Fyrlr ébyrgðarmenn brunavarna,forróðamenn sveitarfélaga,stjórnendur fyrirtækja og stofnana,umsjón-
armenn fasteigna og tryggingafulltrúa. Fjallað verður um brunavarnir á breiðum grundvelli, aðvörunarkerfi,
slökkvikerfi og fyrirbyggjandi ráðstafanir.
2. Fyrir hönnuðl ss. verkfræðinga, tæknifræðinga, arkitekta o.fl.Fjallað verður um brunavarnir,almennt tæknilega
uppbyggingu aðvörunarkerfa og slökkvikerfa, alþjóðlega staðla og íslenskar reglugerðir um brunavarnir.
Sérstakir gestirá fundunum verða Guðmundur Gunnarsson verkfr. hjá Brunamálastofnun ríkisins og Hilmar Páls-
son aðstoðarforstj. Brunafélags íslands ogHrólfur Jónsson varaslökkvistj. í Reykjavík.
Þeir sem hafa áhuga á
að sækja þessa fundi eru
beðnir að tilkynna þátttöku
sína til VARA í síma 29399.
SÉRHÆFÐ
ÖRYGGISÞJÓNUSTA
STOFNSETT 1969
REYNSLA OKKAR
- ÖRYGGI t»ITT
Þóroddsstööum v/Skógarhlíö
Rósthólf 1101 121 Reykjavík.
Símaþjónusta allan sólarhringinn.
o 91-29399
THORN EMI PROTECH
Fire Protection & Security...in depth
-4