Morgunblaðið - 20.02.1986, Side 39

Morgunblaðið - 20.02.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986 39 Minning: Jóhannes Hannes- son, vörubílstjóri í dag fer fram útför móðurbróður míns, Jóhannesar Hannessonar, sem lést þann 4. febrúar sl. Jóhannes Hannesson fæddist að Áshól í Holtum 18. september 1910. Barn að aldri missti Jói, eins og hann var kallaður, foður sinn. Móðir hans, Sigríður, stóð þá uppi með fjögur böm, drengina Jóhannes og Guðmann og dætumar Sigríði Guðmundu og Viktoríu. Völin var ekki önnur en að bregða búi og leysa upp heimilið. Þetta var þungur afarkostur en ekki óalgengur á þeim tíma þegar fyrirvinnan féll frá. Guðmann er sá eini sem eftir lifir og fylgir bróður sínum til grafar í dag. Jói dvaldist lengst af á Skarði í Landsveit og leit jafnan á þann stað sem æskustöðvar sínar. Leið Jóa lá síðan til Reykjavíkur þar sem lífs- starf hans átti eftir að verða. Ungur maður með tvær hendur tómar sótti á brattann. Með ótrúlegum dugnaði og elju tókst Jóa að koma sér vel áfram í lífinu. Hann var einn af stofnendum fyrirtækisins Sandur og möl. Síðar stofnaði hann og rak sitt eigið fyrirtækið, Sandsölu Jó- hannesar Hannessonar. í upphafi voru þetta erfíð ár hjá frænda. Unnið var nótt sem dag. Við stjóm- völ fyrirtækisins starfaði Jói til hinstu stundar. í Reykjavík var Jói svo lánsamur að hitta fyrir traustan lífsfömnaut, Elínu Kristjánsdóttur. Þau hjónin eignuðust þrjú böm, Guðlaugu, Hannes og Svavar. Heimili þeirra hjóna í Blönduhlíð 22 var orðlagt fyrir rausnarskap og hfyjan hug. Jói var ekki marg- máll, lét frekar verkin tala. Mann- greinarálit var óþekkt á heimili þeirra hjóna og margan manninn studdu þau á rausnarstundum. Báð- ar tengdamæðumar, þreyttar og saddar lífdaga, nutu elsku og umönnunar þeirra hjóna seinustu æviárin. , Þegar litið er til baka er margs að minnast. Ég hef verið svo lán- samur að vera samferða Jóa alla mína tíð. Pyrir lítinn dreng var frændi minn sá stóri og sterki sem litlir drengir þráðu að lfkjast. Full- vissa drengsins um styrk frænda míns jókst með árunum. Þöguil styrkur, traust og vinátta átti eftir að fylgja mér gegnum árin. Bflar voru ekki algengir í Reykja- vík fyrir flömtíu ámm. Að fara með Jóa í vömbflnum að sækja sand austur í Selvog eða með flutn- inga suður í Keflavík vom ævin- týraferðir fyrir ungan dreng. Jói kunni góð skil á ömefnum og fólki tengt þessum slóðum. Ferðalögin urðu þvf auk þess að vera skemmti- leg mjög fræðandi. Ég leit alltaf á Blönduhlíðina sem mitt annað heim- ili, þar var gott að koma og vera. Ella var traust og sterk húsmóðir af gamla skólanum sem kunni þvf betur að gestir fengju góðan viður- gjöming. Á erfíðum stundum f lífí mínu reis heimili þeirra hjóna hvað hæst. Þar var skjólið sem leitað var í. Konu minni og bömum tóku Blönduhlfðarhjónin af sömu velvild og hlýhug sem mér fyrrum. Bömin mín syrgja afa og ömmu í dag. Síðastliðin ár hafa hafa verið Jóa og fjölskyldu hans erfíð. Þau hjónin urðu fyrir því áfalli að missa einka- dóttur sína, Guðlaugu, í blóma lífs- ins frá eiginmanni og þremur böm- um. Heilsu Jóa hrakaði mjög á þessum ámm en þeir sem best þekktu til vissu að heilsa húsbónd- ans var ekki alltaf upp á það besta. Fyrir tæpum tveimur árum gekkst Jói undir stóran uppskurð, sem hann fékk aldrei tækifæri til að ná sér eftir. Skömmu eftir heimkom- una af sjúkrahúsinu veiktist eigin- konan Ella mjög skyndilega og lést skömmu síðar. Eftir lát Ellu var sem styrkur Jóa risi ekki framar. Öllum aðstandendum, bömum, tengdabömum, bamabömum og bróður færum við fjölskyldan inni- legustu samúðarkveðjur með ósk um að minningin um sterkan mann styrki þau á sorgarstundu. Ólafur Sigurðsson t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, GÚSTAF LÍNBERG KRISTJÁNSSON múrarameistari, Kópavogsbraut 73, verður jarösunginn fró Kópavogskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 15.00. Ófaffa Jensdóttir, Ólöf Gústafsdóttir, Kristján Ellert Benedlktsson, Jens Gústafsson, Ásta Magnúsdóttir, Ingvaldur Gústafsson, Arna Kristmannsdóttir, Guöbjörg Gústafsdóttir. t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, ÖNNU EGGERTSDÓTTUR. Aöstandendur. Lokað verður í dag frá kl. 12.00 vegna útfarar JÓHANNESAR HANNESSONAR. Sandsala Jóhannesar Hannessonar, Smiðshöfða 19. Fyrirliggjandi í birgðastöð STANGAÁL (ALMgSi 0,5) Seltuþolið. Fjölbreyttar stærðir og þykktir. ÁLPRÓFÍLAR FLATÁL □ □[ZZO VINKILÁL SÍVALT ÁL LlLLL A SINDRAy^ |j\STÁLHF Ðorgartúni 31 sími 27222 SKODA 150RAP1D .Vð eigum afmæu \J FÆRD GIÖFINA! Árið 1986 markar tímamót í sögu SKODA á íslandi, því nú eru liðín 00 ár f rá því fyrsti SKODA bíliinn kom til landsins. Af því ánægjulega tilefni færa SKODA verksmiðjurnar okkur islendingum vegiega afmælisgjöf: 2 ÁRA ÁBYRGÐ á öllum SKODA bílum af 1986 afmælisárgerðinni. Þaö var ariö 1946 sem fyrstu SKODA bilarnir komu til landsins. Síðan hafa þeir n'otið sívaxandi vinsælda, sem sést best á því aö i fjölda ára hef ur markaös- hlutfall SkODA hvergi veriö hærra i V-Evropu en einmitt a Islandl. Þetta atriöi, ásamt þvi aö Jöfur hf. er elsti umhoðsaöili SkODA á Vestur- löndum, hefur leitt til þess aö viö höfum getað boðiö SkODA bilana á besta veröinu sem þekkist i V-Evropu. Þaö er því ekki alveg að ástæðu- lausu aö okkur íslendingum er færö þessi veglega afmælisgjöf. En það er margt fleira en gott verö og 2 ÁRA ábyrgð sem gera SKODA aö bestu bilakaupunum. Líttu aðeins á kostina: SKODA er sterkur Hann er vel smíöaöur, úr þykku stáli og meö firnasterku lakki. Aliir SkODA bilar eru' seldir meö 6 ára rvövarnar- ábvrgö. SKODA er spameytinn Aö jafnaði er evöslan aðeins rúm- lega 7 litrarnoo km og alveg niöur í 4,88 litra/100 km í sparakstri. skoda er rúmgoöur sætin eru vönduö og svo er billinn hár til lofts. Þaö fer þvi vel um þig i SKODA. NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600 SÍUNGT FYRIRTÆKI Á STÖÐUGRI UPPLEIÐ! SKODA er þægiiegur i akstri Hann er meö sjálfstæöa fjöörun á öllum hjólum, aflhemla og tannstang- arstýri — svolítiö sem þú færö venju- lega bara i mun dýrari bilum. Aldreí betri bill — aldrei betra verð og nú 2 ARA Abyrgð i kaup- bætil JÖFUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.