Morgunblaðið - 20.02.1986, Qupperneq 46
áster...
... smávegis tak
fyrir hjartanu
TM Rm. U.S. Pat tm.-all rlohts resarved
•1982 Los Angeiss Times Syndtcate
Sendið mér korktrekkj-
ara. Eyjan er undan
ströndum S-Afríku!
HÖGNI HREKKVÍSI
Nýstárlegar hugmyndir um
hús Landsbókasafnsins
Nýlega barst Velvakanda bréf
frá Jóhanni S. Hlíðar. Hann hefur
fest kaup á lítilli íbúð í miðborg
Malaga og unir sér vel. En línumar
voru ekki til að rekja þá sögu heldur
til að viðra nýstárlegar hugmyndir
um Landsbókasafnshúsið við Hverf-
isgötu.
„Ein er sú hugsun, sem búið
hefír hjá mér allt frá þeirri tíð að
skriður kom á nýja bókhlöðu og von
um að bráðlega yrði Landsbóka-
safnið við Hverfisgötu, ein virðuleg-
ust bygging höfuðstaðarins rýmd.
Hvað verður um hana? Ég sá í
Morgunblaðinu, að Dómarafélag
íslands leggur til að kannað yrði,
hvort Hæstiréttur íslands fengi
Landsbókasafnið þegar safnið flyt-
ur í nýju þjóðarbókhlöðuna. Þá
fæddist sú hugmynd sem hér verður
reifuð í fáum orðum. Hún er sú að
Landsbókasafnið yrði forsetahús
íslands. Bessastaðir yrðu sem hing-
að til forsetabústaður. Mér hefír oft
verið hugsað til forsætisráðherra-
bústaðarins við Tjamargötu, býsna
virðulegt hús á sína vísu. Þar hafa
gist þjóðhöfðingjar Norðurlanda,
svo eitthvað sé nefnt. En ég hef
leitt hugann að eldhættu svo gam-
als húss þó vandað sé og vistlegt
en það er timburhús og þótt bmna-
eftirlit hljóti að vera með ágætum,
þarf lítið út af að bera til að illa færi.
Ég geri mér ljóst að Landsbóka-
safnið þyrfti breytinga við. En það
gæti orðið sériega virðulegt og
boðlegt hverjum þjóðhöfðingja. Ég
hefí látið mér til hugar koma að
Um Karvel
Pálmason
Þeir em að teikna, og em að spá
um að verkinn lini,
Vestfjarðakort á kviðinn á
Karvel Pálmasyni.
X9
við húsið yrði byggð álma, sem
veit út að styttu Ingólfs Amarsonar.
I þeirri álmu yrði íbúð húsvarðar á
jarðhæð, vandað eldhús o.s.frv. A
efri hæð yrði virðulegur matsalur
með stómm gluggum. Þaðan nyti
útsýnar sem er ein fegurst sem völ
er á. Fyrir enda matsalar væri
aðstaða fyrir þjónalið er veislur em
haldnar og lyfta væri í sambandi
við eldhúsið. Þá kæmi að þeirri hlið
matsalarins, sem vissi í suður. Þar
væm súlur. Bílastæðið hyrfi og þar
kæmi fagurlega gerður garður með
boghvelfdu glerþaki, því að allra
veðra er von á okkar kæra landi.
Sú hlið sem snéri að Amarhvoli
yrði að mestu gluggalaus en við
vegginn yrði komið fyrir nokkurri
upphækkun eða sviði, þar sem
gestir forseta gætu notið einleiks
okkar fremstu listamanna, einsöngs
o.s.frv. Sú hlið sem snéri að Þjóð-
leikhúsinu yrði prýdd með gluggum.
Þá dettur mér í hug að njóta Leifs
Breiðfjörð um steinda glugga, sem
væm lýstir þannig upp að þeir nytu
sín bæði að innan sem utan, þó svo
að svarts veggjar Þjóðleikhússins
gætti ekki. I húsagarðinum væri
komið fyrir aðstöðu fyrir borð og
stóla og það sem þurfa þykir við
hátíðleg tækifæri.
í sjálfu Landsbókasafninu er
þegar fyrir hendi lessalurinn, sem
hægt væri að nota með ágætum,
áður en áðurgreind breyting kæmi
til greina eða framkvæmda. I því
húsi væri aðstaða fyrir forsetaritara
og svo að sjálfsögðu vistarvemr
þjóðhöfðingja og fylgdarliðs.
Myndin er ljós í huga mér og
þama er staðurinn sem gæti orðið
okkur til sóma um ókomin ár. Það
kemur að því að slíks forsetahúss
íslands gerist þörf. Hæstiréttur er
alls góðs maklegur en ég fer ekki
ofan af því að við íslendingar sem
þjóð þurfum hveiju sinni að slá
hring um forsetann, embætti hans
og samskipti við önnur ríki og þjóð-
höfðingja þeirra. Slík viðskipti em
mikilvæg á menningar-, viðskipta-
og verslunarsviði.
Þetta með forsetahús Islands
kann að virðast dýrt tildur. En það
kostar ávallt eitthvað að vera sjálf-
stæð þjóð og hún þarf að eiga
„andlit" út á við. Það eflir sjálfsvirð-
ingu hvers íslendings og allt sem
stuðlar að því að við getum borið
höfuðið hátt, er af hinu góða.
Vegir íslands myndu vaxa.
Skrifað á vígsludegi mínum.
Jóhann S. Hlíðar
Víkverji skrifar
Sveitarstjórnarkosningar verða í
vor eins og mönnum er kunn-
ugt. í bæjarstjóm Akureyrar hefur
ekki verið mikið um deilumál upp
á síðkastið. Fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs var samþykkt í bæjarstjóm á
dögunum og þar var helst rifíst um
eitt atriði; hvort byggja ætti í sumar
vatnsveitugeymi á Miðhúsaklöpp-
um ofan bæjarins eða ekki. Tillaga
Sjálfstæðismanna um að fresta
byggingunni og nýta peningana í
annað — að geta a.m.k. gripið til
þeirra til annarra framkvæmda —
var samþykkt. Við það brást for-
maður Vatnsveitustjómar og bæj-
arfulltrúi Alþýðuflokksins, Freyr
Ófeigsson, hinn versti við og sagði
af sér formennskunni. Þykjast
menn nú merkja að Freyr sé farinn
að undirbúa sig fyrir kosningamar.
Hann átti hvort sem er ekki nema
þijá mánuði eftir í Vatnsveitustjórn
og seta í þann tíma hefði varla
breytt miklu til eða frá. Þetta er
tilvalið tækifæri til að komast í
fréttirnar — og segja gárungamir
að það veiti varla af fyrir Alþýðu-
flokkinn á Akureyri að reyna að
minna rækilega á sig fyrir kosning-
amar í vor . . .
XXX
Kunningi Víkveija, einn for-
ráðamanna Dags á Akureyri,
sagði honum undarlega sögu fyrir
skömmu. Sem kunnugt er varð
Dagur að dagblaði á haustdögum
og á því skv. lögum rétt á ákveðnum
styrkjum frá ríkinu eins og önnur
dagblöð. Haft var samband við
viðkomandi ráðuneyti — en stúlka
sú sem varð fyrir svömm var ekki
ýkja hrifin af því að ríkið þyrfti að
fara að styrkja dagblað norður á
Akureyri. „Þá endar þetta bara með
því að það verður komið dagblað á
hvert krummaskuð á landinu,"
sagði Reykjavíkurstúlkan í ráðu-
neytinu. Víkvetji vonar að hugur
ráðamanna sé ekki á sömu lund og.
þessarar skrifstofustúlku sem
greinilega fylgir kenningunni
Reykjavík = ísland.
xxx
Nú em í boði hjá Flugleiðum
svokallaðir Helgarpakkar til
Akureyrar. í þessum pakka kaupir
fólk flug fram og til baka, gistingu
í höfuðstað Norðurlands, miða í
leikhús og ef til vill sitthvað fleira.
Víkveiji vill hvetja þá sem koma til
,Akureyrar í slíkum pakkaferðum,
og að sjálfsögðu alla aðra sem
heimsækja staðinn, að gefa Leik-
félagi Akureyrar góðan gaum. Það
hefur á undanfömum ámm sett upp
mörg merkileg „stykki" sem fengið
hafa góða dóma gagnrýnenda og
ekki að ósekju. í vetur hófst leikárið
hjá LA á Jólaævintýri eftir Charles
Dickens, sem sýnt var fram í febrú-
ar við góðar undirtektir, og nú er
það Silfurtúngl Halldórs Laxness
sem er á boðstólum í gamla Sam-
komuhúsinu undir brekkunni. Nú
standa yfír æfingar á verkinu Blóð-
bræður eftir Willy Russell í þýðingu
„meistara" Megasar. Það verður
fmmsýnt fyrir páska. Leikfélag
Akureyrar hefur sýnt að það er
metnaðargjarnt félag sem vill bjóða
upp á fjölbreytt verk. Það hefur
margsannað tilvemrétt sinn sem
þriðja atvinnuleikhús landsins. Það
ætti enginn að vera svikinn sem
eyðir kvöldstund í Samkomuhúsinu
undir brekkunni í vetur .. .
XXX
Fyrst farið er að minnast á leik-
listina norðan heiða er vert að
minna á að Leikfélag Öngulsstaða-
hrepps fmmsýndi fyrir skömmu í
Freyvangi leikritið „Kviksand" eftir
Michael Vincent Casso. Þetta er
átakanlegt verk um eiturlyíjanotk-
un og afleiðingar hennar og gerist
K New York um 1950. Það flytur
boðskap sem á erindi við alla í dag.