Morgunblaðið - 20.02.1986, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Landsliðið vel tryggt
Almennar tryggingar sem tryggt hafa íslenska landsliðið í hand-
knattleik á undanförnum árum í keppnisferðum sínum erlendis
hefur gefið HSI nauðsynlegar tryggingar vegna ferðarinnar til
Sviss í heimsmeistarakeppnina.
Á meðfylgjandi mynd sést þegar Jón Hjaltalin Magnússon, for-
maður HSÍ, tekur við gjöfinni úr hendi Olafs B. Thors forstjóra
Almennra trygginga.
Jón og Örnólfur
þjálfa ísfirðinga
JÓN og Örnólfur Oddssynir hafa
verið ráðnir þjálfarar 2. deildar-
liðs ísfirðinga í knattspyrnu fyrir
næsta keppnistímabil.
Jón og Örnólfur eru báðir frá
ísafirði og koma til með að leika
með liðinu jafnframt því að þjálfa
það. ísfirðingar verða svo til með
sama lið og í fyrra, hafa misst fáa
leikmenn. Þeir Jón og Örnólfur
hafa lengi verið í eldlínunni á knatt-
spyrnuvellinum og leikið með
nokkrum liðum. Jón lék með
Breiðablik og KR, og Örnólfur með
KR og Víkingum. Þeir léku báðir
með ÍBÍ ífyrra.
Magnús Jónsson
þjálfar Þrótt N.
MAGNÚS Jónsson sem lék með
Víkingum á síðasta keppnistíma-
bili hefur verið ráðinn sem þjálf-
ari 3. deildarliðs Þróttar frá Nes-
kaupstað.
Magnús mun einnig leika með
liðinu. Hann tekur við Þrótti af
Bjarna Jóhannssyni sem nú dvelur
í Noregi og hyggst leika þar í
sumar.
Gissurvann Carl
í spennandikeppni
Kristinsmótið í göngu á Ólafsfirði:
Sömu sigurvegar-
ar báða
KRISTINSMÓTIÐ f skíðagöngu, sem er punktamót, var haldið í Ólafsfirði um siðustu helgi. Úrslit urðu þessi: Stúlkur 13—15 ára (2 km) Ester Ingólfsdóttir S 5,55 Magnea Guðbjörnsdóttir Ó 6,05 Lena Rós Matthíasdóttir Ó 6,29
Stúlkur 16—18 ára (3 km) Stella Hjaltadóttir í Málfríður Hjaltadóttir í Eyrún Ingólfsdóttir í * 8,59 11,02 11,35
Piltar 13—14 ára (3 km) Sölvi Sölvason S Grétar Björnsson ó Guömundur Óskarsson Ó 8,06 8,28 8,58
Konur 19 ára og eldri (3 km) Auður Yngvadóttir í 12,16
Karlar 20 ára og eldri (10 km) Haukur Eiriksson A Þorvaldur Jónsson Ó 3.—4. Þröstur Jóhannesson í 3.-4. Haukur Sigurösson Ó 25,49 26,55 28,38 28,38
Piltar 17-19 ára (7,5 km) Bjarni Gunnarsson í Sigurgeir Svavarsson Ó Rögnvaldur Ingþórsson í 20,00 22,00 22,03
dagana
Piltar 15—16 ára (5 km)
Óskar Einarsson S 15,04
Karlar 20 ára og eldri (15 km)
HaukurEiríkssonA 41,05
Þorvaldur Jónsson Ó 42,22
HaukurSigurðssonÓ 44,55
Piltar 17-19 ára (10 km)
Bjarni Gunnarsson í - 26,33
Sigurgeir Svavarsson Ó 29,27
Rögnvaldur Ingþórsson I 29,55
Plltar 13—14 ára (5 km)
Sölvi Sölvason S 14,55
Grétar Björnsson Ó 15,55
Bjarni Brynjóifsson I 16,46
Stúlkur 13-16 ára (82,5 km)
Ester Ingólfsdóttir S 8,31
Magnea Guðbjörnsdóttir Ó 9,30
Lena Rós Matthíasdóttir Ó 9,48
Stúlkur 16—18 ára (3,5 km)
Stella Hjaltadóttir í 11,51
Málfríöur Hjaltadóttir I 14,34
Eyrún Ingólfsdóttir I 16,06
Piltar 16—16 ára (7,5 km)
Óskar Einarsson S 24,55
Konur 19 ára og eldri (5 km)
AuöurYngvadóttiri 22,29
•Gissur
skyttum.
CARL J. Eiríksson tapaði fyrir
Gissuri Skarphéðinssyni í febrú-
armóti Skotfélags Reykjavikur
sem fram fór í Baldurshaga I fyrri
viku. Carl hefur verið ósigrandi í
skotfimi í mörg ár. Keppt var í
riffilkeppni.
Gissur Skarphéðinsson, sem
nýlega var kjörinn Skotmaður árs-
ins, sigraði á mótinu og hlaut 196
stig. Carl J. Eiríksson varð í öðru
sæti með 194 stig. Þriðji var Lárus
Fjeldsted með 187 stig, fjórði
Hafsteinn Júlíusson með 185 stig
og í fimmta sæti var Hans Christ-
ensen með 184stig.
Við tókum Gissur tali og spurð-
um hann fyrst hvort hann væri
búinn að æfa skotfimi lengi.
„Ætli ég hafi ekki byrjað um tví-
tugt en nú er ég 24 ára. Ástæðan
fyrir því að ég fór í þetta er trúlega
sú að bræður mínir stunduðu veið-
ar mikið og þeir tóku mig með
þegar ég var ungur. Síðan þegar
ég flutti frá ísafirði fór ég að prófa
jp skotfimi."
— Áttir þú von á þvi að vera
kjörinn skotmaður síðasta árs?
„Ekki beint en það voru að vísu
ekki margir sem komu til greina
þannig að þetta kom mér ekkert
verulega á óvart."
íslandsgangan
í skfðagöngu
ÍSLANDSGANGAN, önnur í röð-
inni, hefst á Egilsstöðum 22.
febrúar 1986.
Íslandsgangan samanstendur
af alls 5 trimmgöngum sem eru
a.m.k. 20 km langar. Öllum heimil
þátttaka sbr. aldursskiptingu.
Göngurnar verða á eftirtöldum
stöðum 1986:
22. febrúará Egilsstöðum, Skógar-
gangan 25 km. 8. mars á Akureyri,
Lambagangan 25 km 12. apríl í
Reykjavík, Bláfjallagangan 20 km.
19. apríl í Ólafsfirði, Fjarðargangan
20 km 3. maí á ísafirði, Fossa-
vatnsgangan 24 km.
Þátttaka í Islandsgöngunni gef-
ur stig og eru þau reiknuð út eftir
röð keppenda í hverju göngumóti
fyrir sig skv. reglugerð SKl’ um
stigaútreikning í göngu.
Sigurvegari hlýtur Islandsbikar-
inn sem er farandgripur en auk
þess skulu verðlaun veitt fyrir þrjú
efstu sæti í eftirtöldum flokkum.
Konur 17—34ára
Konur 35 ára og eldri
Karlar 17—34ára
Karlar 35 ára og eldri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skarphéðinsson í fullum herklæðum á æfingu í Baldurshaga. Hann er nú einn af okkar bestu
Febrúarmót Skotfélagsins:
— Hvers vegna er skotfimi
ekki vinsælli hér á landi en raun
ber vitni?
„Ég held að það séu margar
ástæður fyrir því. Fyrir það fyrsta
er þessi íþróttagrein lítið kynnt hér
á landi. Ég get nefnt sem dæmi
að þegar ég ætlaði á fyrstu æfing-
una hér þá fór ég langt upp í sveit
til að komast í Baldurshaga, ég
vissi ekki af þessu hérna undir
stúkunni á Laugardalsvelli.
Önnur ástæða er að þetta er
dálítið dýr íþrótt. Riffill og skam-
byssa kosta um 100 þúsund og
að auki eru öll skotin sem maöur
þarf að nota. Síðast, en ekki síst,
er fólki illa við að leyfa unglingum
að fara á æfingar en það er alveg
óhætt því slys eru fátíð í þessari
grein. Það ríkir fáfræði um skotfimi
hérá landi."
— Að lokum ferðu enn á skytt-
erí?
„Já, já. Ég fer á gæs, rjúpu og
sel og ég held að ég hitti betur
núna en áður. Maður hefur meira
sjálfstraust," sagði þessi unga og
stórefnilega skytta að lokum.
Skotsambandið hefur valið
Gissur til þess að taka þátt í al-
þjóðlegu skotmóti í Osló núna um
mánaðamótin en þar verður keppt
I í riffilkeppní. Akveðið var að senda
Gissur í framhaldi af góðum
| árangri hans að undanförnu.