Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
49
• Daniel Hilmarsson skíðamaður frá Dalvík
Daníel keppti
heima eftir
langt hlé
Dalvík. 18. febrúar.
HELGINA 15. og 16. febrúar síð-
astliðinn var haldið bikarmót í
alpagreinum á skíðum á Dalvfk.
Mótið fór fram í blfðskaparveðri
og var skíðafæri mjög gott. All-
margt manna lagði leið sína í
Böggvisstaðafjall til að fylgjast
með keppninni, enda margur
Dalvíkingurinn forvitinn að fylgj-
ast með Danfel Hilmarssyni, sem
nú keppti heima f fyrsta skipti í
langan tíma. Hann hefur að und-
anförnu dvalið við æfingar er-
lendis og náð góðum árangri þar.
Til leiks voru einnig mættir marg-
ir beztu skíðamenn f alpagreinum
hérlendis.
Reyndar hófst keppnin á föstu-
dag, en þá var haldið svonefnt
Hi-Ci-mót, en það átti að halda í
Bláfjöllum, en hluti þess var fluttur
norður til Dalvíkur, þar sem ekki
var hægt að Ijúka mótinu syðra.
Keppt var í svigi karla og stórsvigi
kvenna. Allar aðstæður voru eins
og bezt verður á kosið, nægur
snjór og góðar skíðabrekkur enda
luku þátttakendur upp lofsorði á
aðstöðuna. Keppnin var skemmti-
leg, en fyrsta daginn hafði Daníel
Hilmarsson yfirburði yfir aðra
keppendur í svigi. Á laugardag
hlekkist honum hins vegar á í
seinni ferð svigsins og féll við það
úr keppni, en bætti það upp á
sunnudag er hann undirstrikaði
leikni sína með öruggum sigri í
stórsvigi. í kvennagreinum var
keppni jafnari og skildu yfirleitt
aðeins sekúndubrot fyrsta og
annan mann en þær stöllur Anna
María Malmqiust og Bryndís Ýr
Viggósdóttir skiptust á sigrum.
Helstu úrslit urðu sem hór segir:
Hi-Ci-mót: Svig karla: 1. Daníel
Hilmarsson, Dalvík, 88,10, 2.
Haukur Bjarnason, KR, 94,37, 3.
Guðjón Ólafsson, ísafirði, 97,30.
Stórsvig kvenna: 1. Annar María
Malmquist, Akureyri, 114,04, 2.
Ingigerður Júlíusdóttir, Dalvík,
114,82, 3. Bryndís Ýr Viggósdóttir,
Akureyri 118,80.
Bikarmót: Svig karla: Haukur
Bjarnason KR, 95,82, 2. Guðmund-
ur Jóhannsson, ísafirði, 96,50, 3.
Tryggvi Þorsteinsson, Ármanni,
98,08.
Stórsvig kvenna: 1. Anna María
Malmquist, Akureyri, 114,77, 2.
Snædís Úlriksdóttir, Ármanni,
115,17, 3. Guðrún H. Kristjáns-
dóttir, Akureyri 115,97.
Stórsvig karla: 1. Daníel Hilmars-
son, Dalvík, 111,29, 2. Guðmunds-
ur Sigurjónsson, Akureyri, 113,65,
3. Guðmundur Jóhannsson,
ísafirði, 113,79.
Svig kvenna: 1, Bryndís Ýr Viggós-
dóttir, Akureyri, 102,32, 2. Guðrún
H. Kristjánsdóttir, Akureyri,
103,19, 3. Sigrún Sigurðardóttir,
ísafirði, 110,87.
Fréttaritarar.
Sigurvegarar
úr 4 héruðum
BIKARMÓT íflokki 15-16 ára var
haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri
um helgina. Á laugardag kepptu
strákarnir í svigi og stúlkurnar f
stórsvigi og síðan snerist það við
daginn eftir skv. venju.
Valdimar Valdmarsson, Akur-
eyri, sigaraði í sviginu á laugardag
á tímanum 84.84. Jón Ingvi Árna-
son, Akureyri, varð annar á 85,53
og þriðji Jón M. Ragnarsson Akur-
eyri á 88,26.
Þórdís Hjörleifsdóttir Reykjavík
sigraði í stórsvigi stúlkna á saman-
lagðatímanum 106,82, önnurvarð
Kristín Jóhannsdóttir Akureyri á
108,51 og þriðja Gerður Guð-
mundsdóttir ÚÍA á 109.84.
Ólafur Sigurðsson ísafirði sigr-
aði í stórsvigi pilta á sunnudegin-
um á 146,91. Egill Ingi Jónsson
Reykjavík varð annar á 147,38 og
þriðju Gunnar Grímsson Reykjavík
á 148,08.
Gerður Guðmundsdóttir ÚÍA
sigraði í svigi stúlkna á 90,78,
önnur varð Kristín Jóhannsdóttir
Akureyri á 93,73 og þriðja Ágústa
Jónsdóttir ísafirði á 95,02.
Myndband
með æfing-
um Daníels
Akureyri. 10. febrúar.
HAFSTEINN Sigurðsson, lands-
liðsþjálfari á skíðum, hefur búið
til myndband með æfingapró-
grammi Daníels Hilmarssonar
landsliðsmanns frá Dalvík sfð-
ustu þrjú árin.
Myndina sýndi hann á brauta-
lagningarnámskeiði í Hlíðarfjalli
fyrir stuttu. Daníel mætti á staðinn
og ræddi málin við þjálfarana
ásamt Hafsteini. Myndirnar hefur
Hafsteinn sjálfur tekið upp á þess-
um tíma bæði hér heima og erlend-
is.
*
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjáifstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins veröa til viðtals í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið á
móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 22. febrúar, verða til viðtals Katrín Fjeldsted,-
formaður Heilbrigðisráðs og í stjórn Umferðarnefndar Reykja-
víkur, og Júlíus Hafstein, formaður [þróttaráðs Reykjavíkur,
^ samstarfsnefndar um ferðamál og í stjórn SVR.
VMokkur dæmi: Aður Nú
Don Cano úlpur 4.990 2.990
Don Cano barnaúlpur 3.308 1.990
Henson glansgallar 3.470 1.990
Hummel gallar 2.958 1.790
Bómullargallar 1.795 990
Adidas gallar 2.295 1.490
Don Cano glans, stórar stærðir 4.320 2.990
Skíðasamfestingar 8.488 5.900
Æfingaskór 1.397 990
Moon Boots 890 500
Moon Boots 1.550 700
Húfur 850 390
Dúnlúffur 850 490
Sundbolir 700 350
Úlpurst. 10—12 ára: 250
Don Cano anorakkar 4.990 2.990
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um
verðlækkun á útsölunni. Útsalan
hjá okkur er orðin landsfræg. Við
opnum kl. 9 á morgun, (gengið inn
um sundið við hliðina á versluninni).
Póstsendum
0RTVAL
Laugavegi 116 viö Hlemm,
símar 26690 -14390.
Otsalan í Sportval
Nú höfum við heldur betur bætt við vörum á útsöl-
una hjá okkur, úrvalið er ekki minna en á fyrsta degi
útsölunnar.