Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
51
Mikil eldskírn að
leika á íslandi
— segir Erhard Wunderlich í samtali við Morgunblaðið
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, Frótta-
manni Morgunbladsins í Þýskalandi.
ERHARD Wunderlich er án efa
þekktasti handknattleiksmaður
Vestur-Þýskalands og einn allra
frægasti handknattleiksmaður
heims. Hann er nú 29 ára,
sannkallaður risi, 2,04 m á hæð
og á annað hundrað kíló að
þyngd.
Wunderlich hefur unnið til
nánast allra verðlauna sem
handknattleiksmenn geta unnið
— hann er margfaldur Þýska-
landsmeistari með Gummers-
bach og Evrópumeistari meist-
araliða og bikarhafa með sama
liði, auk fleiri verðlauna sem hann
hefur hlotið með félagsliðum sín-
um. Með vestur-þýska landslið-
inu varð hann heimsmeistari
1978 og hlaut með félögum sín-
um silfurverðlaun á síðustu
Ólympíuleikum. Hann er eini
handknattleiksmaðurinn sem
gert hefur atvinnumannasamn-
ing sem hægt er að líkja við
samninga knattspyrnustór-
stjörnu. Það var þegar hann
gerði 3ja ára samning við lið
Barcelona á Spáni sem gaf hon-
um 300 þúsund mörk eða ríflega
5 milljónir króna í árstekjur.
Atvinnumennska
„Ég hafði gott af því að fara
til Spánar," sagði Wunderlich í
samtali við Morgunblaðið fyrir
skömmu. „Spánverjar eru ólíkir
Þjóðverjum í hugsunarhætti, og
ég hafði gott af að kynnast ein-
hverju nýju. Það var líka lær-
dómsríkt að kynnast handknatt-
leik þeirra, en þeir æfa síst minna
en bestu þýsku liðin gera. Þrjú
til fjögur bestu spænsku liðin eru
hrein og klár atvinnumannalið."
Wunderlich kom reyndar heim
til Þýskalands eftir eitt ár á Spáni
og tók þá aftur upp þráðinn með
landsliðinu. Hann var aðeins 23
ára þegar hann varð heimsmeist-
ari, en var þá þegar ein skærasta
stjarna liðsins. Vlado Stenzel var
þjálfari þess.
„Enginn þjálfari hefur mótað
mig eins mikið sem handbolta-
mann eins og Vlado Stenzel,"
sagði Wunderlich. „Hann hafði
ótrúlegt lag á því að byggja upp
unga leikmenn, og ná því besta
út úr þeim öllum. En hann
gleymdi sér því miður í viðskipt-
um eftir sigurinn 1978, hætti að
mæta á æfingar og það er því
ekki undarlegt að fall hans hafi
orðið hátt.“
Wunderlich telur vestur-þýska
liðið eiga strembna heimsmeist-
arakeppni fyrir höndum. „Við
lentum í erfiðum riðli og enn
erfiðari milliriðli. En kosturinn við
það er sá að við munum ekki
vanmeta neinn andstæðing fyrir-
fram. Allir verða að leggja sig
fram í öllum leikjunum, og það
skilar oft betri árangri en þegar
leikið er gegn liðum sem „á“ að
vinna."
íslendingar heppnir
— En hvað um möguleika ís-
lenska liðsins?
„Ef íslenska liðinu tækist að
ná stöðugleika í leik sínum þá
gæti það náð langt. Þennan
stöðugleika hefur vantað í ein
10 ár. Margir íslensku hand-
knattleiksmannanna eru ótrú-
lega snjallir og ef þeir gætu leikið
sem ein heild á HM eiga þeir
góða möguleika á því að lenda í
einu af efstu sex sætunum,"
sagði Wunderlich. Hann bætti
síðan við að íslendingar hefðu
verið heppnir með riðil, og milli-
riðil. „í þessari keppni er ekkert
lið sigurstranglegast. Veana fjar-
veru Austurliðanna á Olympíu-
leikunum og þátttöku þeirra í
B-keppninni hefur þetta alltsam-
an stokkast upp, þannig að al-
gjört heimsklassa lið gæti lent í
því t.d. að spila um 9. sætið á
meðan íslendingar væru að spila
um bronsið! Það verður e.t.v.
ekki besta landsliðið sem verður
heimsmeistari, heldur það
heppnasta," sagði Wunderlich.
Hann sagði það sömuleiðis
vera einstaklega góða reynslu
fyrir leikmenn að spila á íslandi.
„Það er hægt að líkja áhorfend-
um í Laugardalshöllinni við 12
þúsund áhorfendur á úrslitaleik
í höllinni hjá Gummersbach.
Stemmningin er jafnan gríðarleg
og mikil hvatning „gegn“ okkur
útlendingunum. Það er þess-
vegna mikil eldskírn að leika á
l'slandi, og eftirsótt af leikmönn-
um.“
• fslenskir áhorfendur og fslenskir leikmenn eru ótrúlegir að
mati Wunderlich, sem hér er við öllu búinn.
Knattspyrna
Hrubesch hættir
Knattspyrnuferli Horst
Hrubesch, hins gamalkunna
miðherja Hamburger SV og
vestur-þýska landsliðsins, er
nú lokið. Eftir glæsilegan feril
með félagsliði sínu og landsliði
fór Hrubech, sem nú er 34 ára,
til Standard Liege í Belgíu, og
þaðan í haust til Borussia
Dortmund. Hann hefur átt við
nær stöðug meiðsli að stríöa
í vetur og aðeins skorað tvö
mörk, annað þeirra sjálfsmark.
Á sunnudaginn var svo tilkynnt
að meiðsli í nára hefðu enn
tekið sig upp og að Hrubesch
hefði ákveðið að hætta knatt-
spyrnuleik.
Rush til Milanó?
Sjónvarpsauðjöfurinn Silvio
Berlusconi, sem nýlega keypti
lið AC Milanó, hefur lýst því
yfir að hann hafi byrjaö samn-
ingaumleitanir til þess að fá
lan Rush til félagsins frá Liver-
pool. Talið er líklegt að ítalir
opni aftur leið fyrir erlenda
leikmenn til ítaliu eftir HM í
Mexíkó í sumar.
ítalir leika við Kína
ítalir hafa ákveðið að leika
æfingaleik við liö Kína þann
11. maí. Leikurinn verður liður
í undirbúningi heimsmeistar-
anna fyrir HM í Mexíkó, sem
hefst með leik þeirra og Búlg-
ara 31. maí.
Úrvalsdeildin íkörfu:
Fyrsti leikur síðustu
umferðarinnar íkvöld
— spennan sjaldan verið meiri í keppninni
• Guðni Guðnason
EINN leikur verður í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í kvöld. Þá
mætast Haukar og KR í iþrótta-
húsinu í Hafnarfirði og hefst leik-
urinn kiukkan 20. Þetta er fyrsti
leikurinn í síðustu umferð úrvals-
deildarinnar en spennan þar er
nú í hámarki og allt getur í raun-
inni gerst. Þrjú lið eru örugg um
sæti f lokakeppninni um íslands-
meistaratitilinn en ÍBK og KR
berjast um fjórða sætið. Spennan
er einnig á fleiri vígstöðum því
bæði UMFN og Haukar geta enn
orðið úrvalsdeildarmeistarar.
Það er því Ijóst að spennandi
leikir eru nú framundan í síðustu
umferðinni.
Ef Haukar vinna KR í kvöld og
ÍBK vinnur Njarðvík annað kvöld
þá verða Haukar og UMFN jöfn
að stigum. Haukar verða þá úr-
valsdeildarmeistarar þar sem þeir
hafa unnið þrjá leiki gegn UMFN
í vetur. Njarðvík verður því að
vinna ÍBK annað kvöld ef Haukar
vinna íkvöld.
Dæmið um fjórða sætið í úrslita-
keppninni er nokkuð flókið og
margir möguleikar er þar á. Ef KR
vinnur Hauka og UMFN vinnur ÍBK
þá eru ÍBK og KR jöfn að stigum.
Ef þessir tveir leikir enda eins og
Sanngjarn Haukasigur
HAUKAR unnu f gærkvöldi lið HK
með 22 mörkum gegn 17 í keppn-
inni um aukasætin f 1. deildinni
f handknattleik á næsta ári. Með
þessum sigri eru Haukarnir
Spánn vann
SPÁNVERJAR unnu Belga með
þremur mörkum gegn engu f
vináttulandsleik á Spáni í gær-
kvöldi. Butragueno, Salinas og
Maceda skoruðu mörkin.
komnir ansi nærri 1. deildinni en
HK á þó enn möguleika.
Leikurinn bar þess merki í fyrstu
að um mikilvægan leik væri að
ræða. Mikill asi var á leikmönnum
og mikið um mistök. Haukarnir
voru fyrri til að jafna sig á þessu
og þó svo HK næði tveggja marka
forystu, 3:5, þá voru Haukarnir
ekki lengi að komast yfir, 7:5.
Staðan í leikhléi var 9:6 og í sið-
ari hálfleik juku Haukarnir foryst-
una og sigur þeirra var aldrei í
hættu.
Lið Hauka var jafnt í leiknum
en Ingimar var sterkur á línunni
og Gunnar í markinu. Þeir Snorri,
Árni og Pétur áttu einnig góðan
leik.
Hjá HK átti Magnús ágætan dag
í markinu og þeir Rúnar og Ólafur
léku einnig ágætlega.
Mörk Hauka: Ingimar Haraldsson 5, Pétur
Guönason 3, Snorri Leifsson 3/1, Sigurjón
Sigurðsson 3. Sindri Karlsson 3, Árni Sverrís-
son 3, Sigurgeir Marteinsson 2.
Mörk HK: Ragnar Ólafsson 5/4, Rúnar
Einarsson 4, Bjöm Bjömsson 2, Ólafur Póturs-
son 2, Siguröur Sveinsson 2, Bergsveinn Þór-
arinsson 1, Elvar Óskarsson 1. -ágás.
hér er gert ráð fyrir þá getur tvennt
gerst.
í fyrsta lagi getur ÍR sett strik á
reikninginn með því að vinna Val.
Ef þannig fer þá eru Valur, ÍBK og
KR öll jöfn að stigum en Valsmenn
hafa þrívegis unnið KR, tvívegis
ÍBK og hafa því fimm sigra alls í
þeim átta leikjum sem um ræðir.
ÍBK hefur unnið Val tvisvar og
KR tvisvar og eru með fjóra sigra
en KR-ingar hafa þrjá sigra, tvo
gegn ÍBK og einn gegn Val.
Þetta þýðir að ÍBK kemst í úr-
slitakeppnina en KR situr eftir með
sárt enni. En það er annar mögu-
leiki í þessu öllu og hann er sá að
Valur vinni ÍR, UMFN vinni ÍBK og
KR vinni Hauka. Ef þetta gerist þá
eru KR-ingar í úrslitakeppninni en
ÍBK situr eftir. Dálítið flókið allt
saman en engu aö síður spennandi
að fylgjast meö síðustu umferðinni
í úrvalsdeildinni.