Morgunblaðið - 25.02.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.02.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR1986 t Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEiNDÓR SIGURSTEINSSON, Sólbakka, Selfossl, erlátinn. Útförin hefurfarið fram. Þökkum sýnda samúð. Guðbjörg Pálsdóttir, Páil Árnason, Benedikta Guðnadóttir, Sigursteinn Steindórsson, Valgerður Kristinsdóttir, Sverrir Steindórsson, Bára Steindórsdóttir, Ingibjörg J. Steindórsdóttir, Sveinbjörn Einarsson, Gísli Steindórsson, Perla Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaöir og afi, HARALDUR JÓNSSON bifvólavirki, Nesbala 21, andaöist þann 22. febrúar. Guðberg Haraldsson, Sigurlaug Júlíusdóttir, Gyöa Haraldsdóttir, Jón Torfason og barnabörn. Eiginkona mín, INGA ÞÓRS INGVADÓTTIR, sjúkraliði, Glæsibæ 6, Reykjavfk, andaöist í Landspítalanum að kvöldi þess 23. febrúar. Fyrir hönd aöstandenda. Magnús Andrésson. t Eiginmaöur minn og faöir, MAGNÚS B. MAGNÚSSON skósmiðameistari frá ísafirði, lést aö kvöldi hins 23. febrúar síöastliöins. Sigríður Guðný Hólmfreðsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Sigrföur Hreiðarsdóttir. Systirokkar ÞÓRA TÓMASDÓTTIR frá Barkarstöðum, andaöist 23. febrúar í Landspítalanum. Árni Tómasson, Guðrún Tómasdóttir, Marta Tómasdóttir. t Eiginmaður rninn, GUNNAR KRISTJÁNSSON, tækniteiknari, Langagerði 44, lést á heimili sfnu föstudaginn 21. febrúar. Guðlaug Klemensdóttir. t Sonur minn, EMIL KRISTINN EGILSSON, erlátinn. Fyrir hönd ættingja og vina. Ásta Jónsdóttir. Maðurinn minn. t GUÐJÓN GUÐJÓNSSON, Strandgötu 5, lést í Sjúkrahúsinu Patreksfirði laugardaginn 22. febrúar. María Jóakimsdóttir. t Einkasonur minn elskulegur, BJARNÞÓR JÓNSSON VALFELLS, lést af slysförum á gjörgæsludeild Landspítalans 24. febrúar. Svava Valfells. Þorbjörg Ingimund- ardóttir - Minning Fædd 15. maí 1899 Dáin 17. febrúar 1986 Þ6 missi ég heym og mál og róm og máttinn ég þverra finni. Þá sofna ég hinst við dauðadóm, ó Drottinn gef sálu minni, að vakna við söngsins helga hljóm í himneskri kirkju þinni. (Ólína Andrésdóttir.) Þorbjörg Ingimundardóttir verð- ur í dag kvödd hinstu kveðju frá Fossvogskirkju. Samferðaspor okk- ar frá æskudögum eru orðin mörg og hugstæð og langar mig þess- vegna að senda henni við leiðarlokin kærleiks- og þakkarkveðju. Þor- björg fæddist í Reykjavík 15. maí 1899. Á bemskualdri fluttist hún með foreldmm sínum, þeim Ragn- hildi Ásmundsdóttur og Ingimundi Ingimundarsyni, til Seyðisflarðar, þar sem hún ólst upp til fullorðins- ára og naut þar ljúfrar æsku í hópi glaðværra og góðra vina. Seyðis- fjörður var á æskudögum okkar Þorbjargar menningar- og fram- farabær sem í ýmsu tilliti stóð í fremstu röð íslenskra kaupstaða. Þar var blómlegt hljómlistar- og félagslíf og atvinnuhættir og fjár- hagur almennt munu hafa verið eins og best gerðist hér á landi á þeim ámm. Hefur því sérstök birta hvilt yfir minningum okkar frá þessum ljúfu æskuámm. En mitt í gleði og áhyggjuleysi æskunnar dró skyndilega ský fyrir sólu í lífí Þorbjargar, þar eð hún 14 ára að aldri missti móður sína. Mun hún því snemma hafa orðið að taka á ungar herðar ýmis skyldustörf á heimili föður síns. Árið 1927 giftist hún Sigurði Guðmundsyni, prentara, hinum mætasta manni. Dvöldu þau á Seyðisfírði til ársins 1934 er þau fluttu til Reykjavíkur, þar sem Sigurði bauðst álitlegt starf í Fé- lagsprentsmiðjunni. Þeim hjónum varð tveggja bama auðið; em þau: Ragnhildur bankaritari og Þórður sem er prentari, eins og faðir hans. Sigurð mann sinn missti Þorbjörg árið 1958 og bar hún hið þunga áfall með dugnaði, reisn og æðm- leysi. Skapaði hún sér, með aðstoð Ragnhildar dóttur sinnar, einkar fagurt og vistlegt heimili, nú síðast á Háaleitisbraut 18. Þorbjörg var einkar trygg kona, hjálpfús og hjartahlý. Munu margir minnast með þakklæti gestrisni hennar, góðvilja og greiðasemi, ekki síst Austfírðingar er oft lögðu þangað leið sína. Þá var hún mikil skírleikskona, minnug, glaðvær og léttlynd. Hún var mikil starfskona og vel verki farin, enda hraust og tápmikil, þar til síðustu árin, er þrek hennar tók að bila. Hún var alla ævi mikill Austfírðingur og starfaði hér syðra í Austfírðingafé- laginu og reyndist þar sem ávallt traustur og hollur liðsmaður. Við, nokkrar æskuvinkonur frá Seyðis- fírði, komum á liðnum ámm saman til skiptist hver hjá annarri og endurvöktum vináttu æskuáranna og rifjuðum upp hugljúfar minning- ar frá bemsku- og æskudögum. Áttum við þar ógleymanlegar sam- vemstundir. Ég held okkur öllum hafí komið saman um það, að Seyðisfjörður hafí á þeim ámm átt engan sinn líka. Fólkið var svo gott og glatt, himinninn svo heiður og bjartur, pollurinn ávallt spegilslétt- ur og ilmur úr grasi angaði þar sætar en annars staðar. Á hitt var síður minnst, að stundum lék veðragnýr um Strandatind. Þessar minningar ljómuðu eins og sólstafír í hugum okkar allra. A hljóðlátri kveðjustund færi ég þessari kæm vinkonu minni hjart- ans þakkir fyrir vináttu hennar og tryggð og hugljúfar samvemstundir fyrr og síðar. Megi hönd Drottins leiða hana og styðja á ljóssins vegum, þar sem óma í eyrum helgir hljómar frá himneskri kirkju Ijóss og lífs. Laufey Tryggvadóttir Þeim fækkar nú óðum, sem fæddust um síðustu aldamót. Þetta fólk lifði tímamót í sögu þjóðarinn- ar, sem við sem yngri emm þekkj- um aðeins af afspum eða af bókum. Þessi kynslóð mótaðist af óblíðum t Eiginkona mín, móðirokkar, fósturmóðir, tengdamóöirog amma, SIGRÚN STEINÞÓRSDÓTTIR fró Ytri-Grimslæk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. þessa mánaðarkl. 15.00. Guðjón Eyjólfsson, Sigrún Reynisdóttir, Guðbjörn Jakobsson, Jörundur Jónsson, Anna Jónsdóttir, Lúcía Jörundsdóttir, Guðjón Guðbjörnsson, Hallgrímur Kristinsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Vallarbraut 15, Akranesi, er lést á Sjúkranúsi Akraness 22. febrúar verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 14.15. Hallgrfmur Jónsson, Brynja Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Hjálmur Geir Hjálmsson og barnabörn. t Móöirokkar, ANNA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, andaðist í Borgarspítalanum 24. þ.m. Guðrún Karlsdóttir, Kristinn Karlsson. Lokað idag vegnajarðarfararJÓNS KJERÚLF. Ingvar Björnsson hdl., Pétur Kjerúlf hdl. kjömm í uppvexti og lærði bæði nýtni og nægjusemi, sem virðist vera á undanhaldi nú á dögum. Þorbjörg Ingimundardóttir fædd- ist 15. maí 1899. Árin vom því orðin mörg, en hún hélt fullri and- legri reisn til hins síðasta þótt lík- aminn væri farinn að gefa sig. Ég kynntist Tobbu, eins og hún var kölluð af vinum sínum, fljótiega eftir 1950, en hún var æskuvinkona tengdamóður minnar, Önnu Jo- hannessen. Þær ólust upp á Seyðis- fírði og Ingimundarhús, þar sem Þorbjörg átti heima, steinsnar frá sýslumannshúsinu, æskuheimili Önnu. Það var mjög skemmtilegt að hlusta á frásagnir Tobbu frá Seyðisfírði af uppátækjum þeirra Önnu á æskuámnum. Þá talaði hún oft um sýsiumannshjónin og systkin Önnu, Lárus og Elínu. Hún mundi sérstaklega vel allt frá gömlum dögum, þegar Seyðis^örður var eins konar höfuðstaður landsins og mikið um að vera, bæði í menning- ar- og atvinnulífí. Þorbjörg naut venjulegrar skóla- göngu þeirra tíma. Hún var fljótt afar myndarleg í höndunum og hafði mikinn áhuga á allri handa- vinnu. Hafði ég stundum á orði, að hún ætti að halda sýningu á handa- vinnu sinni, sem var bæði mikil að vöxtum og sniildarvel unnin. Hefur Ragnhildur dóttir hennar erft þessa hæfileika móður sinnar. Eiginmaður Þorbjargar hét Sig- urður Þorsteinn Guðmundsson, ættaður frá Glaumbæ á Snæfells- nesi. Fjölskylda hans fluttist til Seyðisfjarðar er hann var bam að aldri. Þau gengu í hjónaband 25. apríl 1929. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau á Seyðisfírði, en Sigurð- ur var útlærður prentari og stóð fyrir prentsmiðju í bænum. Böm þeirra, Ragnhildur og Þórður, fæddust bæði á Seyðisfírði. Fjöl- skyldan fluttist árið 1934 til Reykjavíkur, en átti eftir að flytjast aftur til Seyðisfjarðar og búa þar í nokkur ár. Sigurður gerðist þá prentsmiðjustjóri hjá Lámsi Jó- hannessyni, þingmanni Seyðfírð- inga, sem átti og rak Prentsmiðju Austurlands. Fáum ámm síðar fluttust þau á ný til Reykjavíkur. Þar andaðist Sigurður haustið 1958. Ragnhildur, dóttir Þorbjargar, starfar í Landsbanka íslands, en hún hélt alla tíð heimili með móður sinni. Hjá þeim ólst upp Sigurður Þór sonur hennar og bróðurdóttir, Bima Elín. Þórður, sonur Þorbjarg- ar, er prentari að iðn og býr hér í borg. Bamabömin eru átta. Að leiðarlokum kveð ég Þor- björgu vinkonu mína og þakka henni allar ánægjulegu samvem- stundimar. Ástvinum hennar votta ég samúð mína og flölskyldu minnar. Hanna Johannessen Skreytum við öll tækifæri bte Reykjavikurvegi 60, simi 53848. Álfheimum 6, simi 33978.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.