Morgunblaðið - 27.02.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR1986
*
Utvarp MH gat ekki hafið útsendingar;
Einasti frjálsi
útvarpssendirinn
fastur í tolli
Útvarpsréttarnefnd hefur nú úthlutað 4 framhaldskólum tíma-
bundnum leyfum til útvarpsrekstrar. Skólarnir hyggjast starfrækja
útvarpstöðvar í tengslum við starfsdaga sem haldnir eru vor hvert.
Þegar „starfsfólk" útvarpstöðvar Menntaskólans við Hamrahlíð
byijaði að undirbúa útsendingu fyrir Lagningardaga skólans kom
hinsvegar babb í bátinn. Enginn útvarpsendir, sem uppfyllir tækni-
legar kröfur Pósts og síma, er til reiðu í landinu.
Að sögn Þórunnar Þórsdóttur
forseta nemendafélags MH byggð-
ist umsókn skólans um leyfí til út-
varpsrekstrar á þeirri forsendu að
Póstur og sími ætlaði að lána sendi-
búnaðinn. Þegar til átti að taka gat
stofnunin hinsvegar ekki staðið við
það. Um leið og afsvarið barst
athuguðu nemendumir aðrar leiðir
og höfðu m.a. samband við aðila
sem hefur pantað til landsins full-
kominn útvarpsendi, sem þessa
stundina bíður þess í Tollvöru-
geymslunni að verða leystur út. Þar
eð innflytjandinn hefur ekki leyfi
til útvarpsrekstrar, en ætlar að
leigja búnaðinn leyfishöfum, leggur
ríkið á hann 100% toll. „A þessu
strandaði málið,“ sagði Þórunn,
Alþýðubandalagið:
Formaður
verkalýðs-
málaráðs
boðar úrsögn
Bjarnfrlður Leósdóttir,
formaður verkalýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins, hefur
boðað úrsögn sína úr flokkn-
um. Margrét Pála Ólafsdóttir,
fóstra, sem sæti á í sljóm
verkalýðsmálaráðsins, stað-
festi þetta í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær.
Bjamfríður Leósdóttir sagði í
samtali við blaðið í gær, að hún
gæfí engar yfírlýsingar um
þetta. Kvaðst hún hvorki vilja
játa því né neita að hún hefði
sagt sig úr Alþýðubandalaginu.
Hún var spurð hvort hún mundi
láta eitthvað uppskátt um málið
innan tíðar og svaraði þá: „Það
getur vel verið."
Verkalýðsmálaráð Alþýðu-
bandalagsins hefur verið boðað
til fundar annan sunnudag og
er búist við því að Bjamfríður
sæki þann fund. Margrét Pála
sagði, að Bjamfríður væri enn
formlega séð formaður verka-
lýðsmálaráðsins og gegndi þeirri
stöðu þar til hún hefði skilað
málum sínum við ráðið.
„innflytjandinn vildi ekki greiða
lúxustoll af atvinnutæki. Sem leyf-
ishafar getum við keypt sendi til
landsins og væri hann þá tollfijáls.
Reyndar hefur skólinn aðeins tíma-
bundið leyfi, en í reglugerðinni em
ekki skýr ákvæði um þessi atriði.
Þetta hefur vafíst fyrir mönnum í
íjármálaráðuneytinu og sendirinn
sat því blýfastur í kerfínu."
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við menntskælinga í gærdag
vom þeir vongóðir um að „Utvarp
MH“ kæmist í loftið. „Við höfum
þegar talað við ráðherra samgöngu-
mála og fjármálaráðherra sem báðir
hafa gefíð okkur grænt ljós. Sendir-
inn fæst laus með því skilyrði að
leyfíshafí kaupi hann af innflytjand-
anum. I fyrramálið fæst úr því
skorið hvort hann losnar úr tollinum
eftir allt saman,“ sagði Þómnn
Þórsdóttir.
Morgunblaðið/Emilía
Nýja Hagkaupshúsið á miðri mynd. Til vinstri er sá hluti hússins þar sem Hagkaup mun reka
starfsemi sína.
Verðlaunasamkeppni um
nafn á nýja Hagkaupshúsið
AUGLÝST hefur verið eftir nafni á verslunar-
miðstöð Hagkaups sem nú er að risa í nýja
miðbænum í Reykjavík. Skilafrestur er til 14.
mars næstkomandi. í boði eru 125.000 króna
verðlaun fyrir nafnið sem valið verður.
Jón Ásbergsson, forstjóri Hagkaups, sagði að
fyöldi tillagna hefði borist nú þegar. Hann sagði að
það færi eftir fjölda tillagna hvenær hægt yrði að
gera úrslit kunn, en líklega verður það gert fyrir
marslok. Guðni Kolbeinsson íslenskufræðingur hefur
gengið til liðs við Hagkaupsmenn og er, að sögn
Jóns, fagurfræðilegur ráðunautur.
Sá hluti hússins, þar sem Hagkaup mun reka
starfsemi sína, hefur verið gerður fokheldur og nú
er verið er að vinna við syðri hluta hússins og
göngugötu. í húsinu verða um 70 verslanir og í
þeim starfa væntanlega yfír eitt þúsund manns.
Jón Ásbergsson sagði að nú væri verkið um þrem-
ur vikum á undan áætlun. Ifyrirhugað var að opna
verslunarmiðstöðina um miðjan júlí 1987 en ef heldur
fram sem horfír gæti það orðið eitthvað fyrr.
Óánægja með launakjör í háskólanum:
Háskólakennarar farnír að
leita í betur launuð störf
„Mikið áhyggjuefni“ segir háskólarektor
MIKIL óánægja er farin að grafa um sig meðal kennara við Háskóla
íslands vegna launakjara og hafa þegar borist uppsagnir frá háskóla-
kennurum af þessum sökum. Dr. Sigmundur Guðbjarnason, háskóla-
rektor, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær, og sagði
að hér væri um vaxandi vandamál að ræða innan stofnunarinnar.
„Þetta vandamál er þegar komið samanburðurinn nær til eru ísland,
á það stig að menn eru að fara úr
störfum héðan og i betur launuð
störf annars staðar," sagði háskóla-
rektor. „Ástæðan er fyrst og fremst
sú, að Háskólinn getur ekki boðið
laun á borð við það, sem í boði er
hjá fyrirtækjum úti í bæ, og þetta
er okkur mikið áhyggjuefni."
í nýjasta Fréttabréfí Háskóla ís-
lands er birt skýrsla þar sem gerður
er samanburður á launum háskóla-
kennara í nokkrum löndum árið
1985. Þar kemur meðal annars
fram, að meðallaun háskólaprófess-
ora á íslandi eru um 45 þúsund
krónur á mánuði. Löndin sem
Ástralía, Kanada, Danmörk, Finn-
land, Frakkland, írland, Noregur,
Svíþjóð, Bretland og Bandaríkin,
og segir í skýrslunni að laun há-
skólakennara á íslandi fyrir venju-
lega vinnuskyldu séu mun lægri en
í hinum Iöndunum.
Mestur er munurinn fyrir pró-
fessora og dósenta, en heldur minni
fyrir lektora. Launin eru hæst í
Bandaríkjunum og Kanada, eða
rúmlega þreföld þau Iaun, sem há-
skólakennarar á Islandi fá að jafn-
aði. I flestum tilvikum eru laun
háskólakennara í hinum löndunum
meira en helmingi hærri en á ís-
landi.
Fyrir prófessora er munurinn frá
110% og upp í 245%, fyrir dósenta
er hann 99% og upp í 182%, en
fyrir lektora er munurinn frá 80%
og upp í 161%, að því er segir í
skýrslunni. Þar segir ennfremur,
að þessi mismunur á launum geti
ekki nema að mjög litlu leyti stafað
af því að íslendingar séu fátækari
þjóð en nágrannaþjóðimar. Við sé-
um til dæmis mun ríkari en Bretar,
írar og Finnar, og sérstaklega sé
það athyglisvert, að þjóðartekjur á
mann á Islandi séu hærri en meðal-
tal allra landanna.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra:
„Tökum þetta til já-
kvæðrar athiigunar
„Við munum fara yfir þessar
tillögur í kvöld. Það er Ijóst að
þarna er farið fram á að ríkis-
sjóður teygi sig eins langt og
kostur er. Við munum taka
þetta til jákvæðrar athugunar
og gefa svar á morgun,“ sagði
Þorsteinn Pálsson, fjármála-
ráðherra, í samtali við Morgun-
blaðið eftir fund hans og Stein-
gríms Hermannssonar, forsæt-
isráðherra, með aðilum vinnu-
markaðarins í gærkvöldi.
„Ég teldi það verulegan ávinn-
ing ef það tækist að semja á
þessum grundvelli, en til þess
verður ríkissjóður að taka á sig
verulegar skuldbindingar. Við
buðum það fram haustið 1984 að
taka á samningum með þessum
hætti og það má nokkuð á sig
leggja til þess að ná öðrum mikil-
vægum efnahagslegum markmið-
um. Við sögðum aðilum vinnu-
markaðarins að við myndum
skoða þetta með jákvæðu hugar-
fari, en það hafa engar ákvarðanir
verið teknar í einstökum atriðum
um það hvemig tekna verður aflað
til þess að mæta þessum auknu
útgjöldum, sem gert er ráð fyrir
í tillögunum. Málið verður lagt
fyrir ríkisstjómina í fyrramálið,"
sagði Þorsteinn Pálsson ennfrem-
ur.
Akureyri:
Snæfellið með bilaða vél
Akureyri, 25. febrúar.
TOGARI útgerðarf élags KEA, Snæfell EA,. hefur nú ekkert veitt
um tveggja mánaða skeið. í ljós skömmu fynr jól að aðalvél skipsins
var biluð. Mjölnir, nýi hafnarbáturinn á Akureyri, dró Snæfellið
frá Hrísey til Akureyrar á laugardaginn og liggur skipið nú við
Torfunesbrygjuna.
„Það kom í ljós að hlífar og
stimplar í aðalvéhnni eru bilaðir,"
sagði Kristján Ólafsson, fulltrúi
sjávarútvegssviðs KEA, í samtali
við Morgunblaðið f dag. Kristján
sagði ekki ákveðið hvemig færi með
skipið — ekki væri Ijóst hvort hægt
væri að gera við vélina eða hvort
kaupa þyrfti nýja vél.
Snæfellið landaði afla sínum í
Hrísey og sagði Kristján bilunina
því mjög bagalega fyrir eyjar-
skeggja. „Það er reyndar næg at-
vinna þar eins og er. Bátar hafa
lagt þar upp með bolfísk undanfarið
en þetta gengur náttúmlega ekki
svona lengi áfram. Málið verður
skoðað mjög fljótlega og ákveðið
hvert framhaldið verður," sagði
Kristján.
íiiíiiti rd
sHutti , k
Snæfellið við bryggju
Morgunblaöið/Skapti