Morgunblaðið - 27.02.1986, Qupperneq 15
9861 ÍJAÚSÍB31 .VSÍIUOAQUTMMT'? ,«IGA J8MTJ0H0M
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR1986
¥5
Frá sjöunda
áratugnum
Myndlist
Valtýr Pétursson
Hringur Jóhannesson sýnir
riokkur verk sín um þessar mundir
í Gallerí Borg við Austurvöll. Það
eru eldri myndir, sem hann hefur
valið til sýningar að sinni, og
nefnir hann sýningu sína Frá
sjöunda áratugnum. Þama er um
að ræða fjögur olíumálverk og
tuttugu olíukrítarmyndir ásamt
nokkrum teikningum, sem gerðar
eru með svartkrít, blýanti, tússi
og merkibleki. Þeir, sem þekkja
feril Hrings, munu kannast við
þessar myndir, og margir þeirra
eru einmitt frá því tímabili í þróun
Hrings, sem einna bezt hefur
kynnt hann sem teiknara og sem
krítarmálara.
Það er langt síðan Hringur
sannaði tilveru sína sem myndlist-
armaður og einkum og sér í lagi
sem teiknari. Hann var á þeim
árum sem hér eru til umræðu,
nokkuð undir áhrifum frá lista-
mönnum eins og Sverri heitnum
Haraldssyni, en hélt samt ætíð
sínum eigin svip, ef svo mætti að
orði kveða. Hann hefur svo á
seinni árum þróazt nokkuð frá
þessu tímabili, sem ég hér vitna
í og er uppistaða þessarar núver-
andi sýningar. Myndbygging hef-
ur orðið einfaldari og styrkzt þar
með bæði hvað form og lit snertir.
Persónulega hefur hann ætíð
höfðað nokkuð til mín í verkum
sínum, en nokkuð hefur borið á,
að verk Hrings hafi farið misvel
í fínu taugamar á sumum mynd-
listarmÖnnum, en það er önnur
saga og sýnir aðeins, að hann er
ekki einn af þeim, sem sigla slétt-
an sjó og eru áhrifalausir.
Þessi sýning í Gallerí Borg er
ekki stórbrotin, en hún er
skemmtileg, og mér finnst mál-
verkin á þessari sýningu bera af,
einkum er það no. 4, Birta við
bakkann, sem mér fínnst í sér-
flokki. Þetta er fjölbreytt sýning,
og ættu flestir að geta fundið
þama sitthvað við sitt hæfi. Sýn-
ingin í heild fór vel í mig, og em
viðbrögð mín í samræmi við það.
Þama er visst tímabil í sögu
Hrings sem myndlistarmanns, og
fer vel á því að sýna það í húsa-
kynnum Gallerís Borgar.
Nýja áfangakerfið sem við
tókum upp um áramótin auð-
veldar nemendum að meta
framfarir við tungumálanámið.
Áfangamir em fjórir: bvriendur.
lærlingar. sveinar og meistarar.
Námskeiðin sem nú fara í hönd
em í bj og d) flokkum allra
áfanganna.
Góð málakunnátta er íslend-
ingum alger nauðsyn - en hvern-
ig náum við bestum árangri? Fyrst er
að hugsa málið, síðan hringja til Múnis.
Múnir hefúr um langt árabil sérhæft sig í
vönduðu tungumálanámi og kappkostað
að tryggja nemandanum bestu fáanlegu
kunnáttu á sem skemmstum túna.
Áratuga reynsla og ánægðir nem-
endur eru besta auglýsingin.
Kennt er tvisvar í viku, tvær
klukkustundir í senn. Öll
námsgögn em innifalin í nám-
skeiðsgjaldi og við bjóðum
uppá veitingar í frímínútum.
Öllum d) námskeiðunum lýkur
með prófi 30. apríl og þá
útskrifum við fýrstu lærlingana,
sveinana og meistarana!
r
r
Ef þú veist lítið um raunvem-
lega kunnáttu þína í tungu-
málinu leysa stöðuprófin úr
þeim vanda. Strax í fýrsta tíma
bjóðum við uppá stöðupróf
fýrir þá sem vilja.
Tíma ættu flestir
að geta fúndið
við sitt hæfi,
Við kennum
á kvöldin,
um miðjan
dag og á
morgnana.
ENSKA
ÞÝSKA
FRANSKA
SPÆNSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
mars-
Viltu læra önnur tungumál en
þau sem hér eru nefnd? Láttu
það ekki aftra þér frá því að
grípa til símans - hringdu til
okkar og berðu fram óskir
þtnar. Við reynum að koma til
móts við alla.
Allar frekari upplýsingar og
innritun í síma
10004/21655
MÁLASKÓU
RITAKASKÓLI
20% afsláttur gildir fýrir hjón,
systkini, öryrkja, ellilífeyrisþega
og félagsmenn Stjómunar-
félagsins. Munið: starfs-
menntunarsjóðir ríkisins og
Reykjavíkurborgar taka þátt í
að greiða námskeiðsgjöld sinna
félagsmanna á námskeiðum
Mímis.
m mr v •
Mimir
ÁNANAUSTUM 15