Morgunblaðið - 27.02.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
49
Minning:
* >
Oskar Arnason
skipstjóri
Fæddur 12. október 1894
Dáinn 19. febrúar 1986
í dag, fimmtudaginn 27. febrúar
1986, fer fram útför Óskars Áma-
sonar, fr. skipstjóra. Hann lést há-
aldraður, kominn á tíræðisaldur, 19.
febrúar sl. á Dvalarheimili Aldraðra
Sjómanna, þar sem hann hefir
dvalist í góðu atlæti síðustu 14 árin,
frá því hann missti eiginkonu og
stoð og styttu sína í hálfa öld,
Sesselju Þórðardóttur, er lést 16.
desember 1972.
Óskar Ámason fæddist í Hafnar-
fírði, 12. október 1894, elstur fímm
alsystkina, Júlíu Steinunnar, Þóra
Ágústu, Ragnars og Hjálmars.
Foreldrar hans vora hjónin Ámi
Ámason, skipasmiður, (f. 11.10.
1865 d. 22.1. 1933) Guðnasonar
bónda í Grafarholti og Jóhanna
Ragnhildur Jóhannesdóttir (f. 22.7.
1861 d. 14.4. 1936) Bergsteins
sonar bónda í Litlagerði, Hvolhr.
En Jóhanna hafði eignast tvær
dætur fyrir hjónaband þeirra Áma,
er hétu Ragnheiður og Sigríður
Sigurðardætur. Systkinahópurinn
óx upp við ástríki foreldra og hélst
ætíð með þeim góður vinskapur til
æviloka.
Óskar Ámason lagði snemma
stund á sjómennsku, er varð hans
ævistarf í nálega hálfa öld, meðan
þrek og heilsa entist. Hann lauk
farmannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum 1916 (21 árs). Fór því mest
í Spánarsiglingar með saltfísk fyrri
heimsstyijaldarárin 1916—19, á
ms. Haraldi og ms. Harry. Hann
var síðar á ýmsum skipum og síðast
á bv. Gylli, bv. Venusi og bv. Röðli,
er hann sigldi öll síðari heimsstyij-
aldarárin sem stýrimaður og skip-
stjóri. Þótt oft hafí verið torsótt að
sækja björg í bú, hafíð óblítt og
veður válynd og ófriðarhættan mikil
á styrjaldaráranum famaðist
Óskari ætíð vel, er hann þakkaði
skapara sínum og góðum fyrir-
bænum konu sinnar.
I lok fyrri heimsstyijaldar kjmnt-
ist Óskar ungri og laglegri stúlku
vestanaf Dýrafírði, Sesselju Þórð-
ardóttur, er þá var nýkomin í bæinn
til starfa við verslunarstörf m.a. í
Laugavegs Apóteki. Felldu þau
hugi saman og gengu að eigast 16.
mars 1922 og var það vafalaust
mesta gæfuspor Óskars á langri
ævi.
Sesselja Þórðardóttir fæddist að
Gerðhömram í Dýrafirði 11. desem-
ber 1982, hún var alsystir Óskars
læknis og Sigurðar tónskálds, og
þeirra systra Katrínar og Vilborgar.
Foreldrar hennar vora sæmdar-
hjónin séra Þórður Ólafsson, próf-
astur á Söndum, Dýrafírði (f. 24.4.
1863 d. 28.4. 1948) og María ísaks-
dóttir (f. 13.10.1867 d. 24.4.1943).
Hjónaband Óskars og Sesselju
var mjög farsælt, þótt oft væra
efnin lítil og hýbýlakostur af skom-
um skammti, en ætíð virtist þó vera
rúm fyrir gesti til skemmri eða
lengri dvalar og ævinlega leystist
vel úr öllum málum þótt oftast
væri þar þröng á þingi, því til þeirra
komu mai-gir og nutu þar vinsemd-
ar, gestrisni og glaðra stunda. Það
þótti til dæmis ekkert áhorfsmál
að taka þann, er þetta ritar, í fóstur
einn vetur, er á þurfti að halda, þótt
þegar væra fjórir fullorðnir og þijú
böm fyrir á heimilinu, lítil 3ja her-
bergja íbúð að Framnesvegi 10
ásamt smá kompu á háalofti. En
ekki minnist ég þess að hafa í annan
tíma liðið betur, en hjá þessu elsku-
lega fólki, þar sem þijár kjmslóðir
bjuggu í smáu sambýli undir sama
þaki, foreldrar Óskars á neðri og
hæð og þau hjónin, bömin og
tengdaforeldrar Oskars á efri hæð-
inni. Hér var það, að sjálfsögðu
húsmóðirin er átti stærstan hlut að
velferð allra og átti alla forsjá og
ábyrgð sjómannskonunnar, er átti
mann sinn á sjónum í nálega hálfa
öld.
Er aldurinn færðist jrfir og for-
eldrar þeirra hjóna höfðu safnast
til feðra sinna og bömin stofnað
eigið heimili fluttust þau að Bára-
götu 4 og dvöldust þar ævikvöldið
uns Sesselja lést 11. des. 1972 eins
og fýrr er getið.
Óskar og Sesselja eignuðust fjög-
ur böm, Oskar Þór var elstur (f.
16.6. 1922) dó bamlaus og ókvænt-
ur 8.4. 1981, hann var lengst af
afgr.maður hjá Eimskip, María
Vilhelmína dó komung 19.1. 1926,
Gunnar (f. 17.9. 1927, kvæntist
fýrst Guðríði Pétursdóttur frá
Keflavík og eignuðust þau tvo syni,
Gunnar Öm, listmálara og Þórð,
lögfræðing, þau skildu. Síðari kona
Gunnars var Elísabet Finnboga-
dóttir, og eignuðust þau þijú böm,
Sigríði hjúkranarfræðing, Finn-
boga, búfræðing og Sigurð, nema.
Gunnar lést sama árið og Óskar
Þór, 1.11.1981. Yngstaf bömunum
er María Þórhildur, f. 18.6. 1931,
er ein systkina lifir aldraðan föður
sinn ásamt 9 bamabömum og 16
bamabamabömum. Hún er gift
Níels Maríusi Blomsterberg, kjöt-
iðnaðarmanni og hafa þau_ eignast
sex böm, Emmu, Óskar Áma, er
þau misstu með sviplegum hætti í
blóma lífsins 1.1. 1983 (28 ára),
Hans, Birgir, Sesselju og dreng sem
dó skömmu eftir fæðingu.
Óskar Ámason hefír nú lokið
löngum ævidögum, og þótt hann
hafí um ævina verið með hraustustu
mönnum og lengst af við hesta-
heilsu, var Elli kerling farin að
mæða hann mjög síðustu áratugina,
ekki síst eftir að hann missti Sess-
elju sína, þótt María dóttir hans
hafí reynt af fremsta megni að fylla
það skarð með þrotlausri aðhljmn-
ingu og umhyggju. Hann hefir því,
að líkindum, verið hvildinni feginn,
að loknu löngu og oft erfíðu ævi-
starfí, er nú er minnst með virðingu
og þökk allra er kynntust þessum
sóma karli.
Ég votta dóttur hans og öllum
aðstandendum samúð, en bjartar
minningar munu lengi lifa.
B.S.T.
vmo
ALMANAK
FEBRÚARMYNDIRNAR FRÁ
1
\AARNER HOME VIDEO
ERU KOMNARÁ LEIGURNAR
T)>c ne*f: thm
Kjörið tækifæri til að rifja Nemarnir eru útskrifaðir Goldie Hawrvfer á kostum Georg gamli Bums
upp og kynnast og komnir í fyrsta í þessari gamanmynd. fer á kostum og leikur
brjálæðingunum aftur. verkefnið. Þeir skjóta allt Eín best sótta mynd bæði guð og skrattann í
Myndin sem sló í gegn. semhreyfist kvikmyndahúsanna þessaridrepfyndnumynd.
ogannaðlíka. / ásíðastaári.
Madeline Kahn,
Gilda Radner og Bob
Newhart sýna
fjölskyldulífið í
Hvíta Húsinu
í nýju ljósi.
AlanArkinhefurverið Brjálaðasta gamanmynd Joel var afskaplega
rænt af 2 glæpakvendum! sögunnar. Mel Brooks venjulegur hreinn sveinn
Sally Kellerman sýnir og Gene Wilder gera útaf með tvo afskaplega
stjömuleikámótiArkin. viðvestranaog venjulegahluti
hláturstaugamar. á heilanum:
ALLAR MEÐ (SLENSKUM TEXTA KynUf °g penmga'
Leikið rétta leikinn - takið mynd frá TEFLI
Tefli hf. Einkadreifing á íslandi fyrir
Warner Brothers Company
f TEFLl Í
B
Sídumúla 23,108 Reykjavík
S: 91-68 8080/68 62 50