Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986 Skilfstofur Gluggar á glugga ofan IFurugeröi 5 verður vart sagt að starfsemin fari fram fyrir luktum dyrum, ekki þó þannig að unnið sé í opnu húsnæöi, en gluggar með tvöföldu gleri koma víða í stað veggja, þó þá sé að finna inn á milli, auk þess sem gluggi er í lofti eftir endilöngum gangi á efri hæðinni og mikið er um litla glugga á húsinu. Húsið er rekið af hlutafé- laginu Furugerði, en hluthafar eru 6, 5 einstaklingar, þar af 4 með endurskoðendaskrifstofur, eða þeir Lárus Halldórsson, Gunnar Örn Kristjánsson, Ragnar Krist- jánsson og Þorsteinn Guðlaugs- son og 1, Guðni Hannesson, með innflutningsrekstur auk tölvufyrir- tækisins TOK og eru þessir aðilar allir með sína starfsemi í aðskiid- um skrifstofum í húsinu, en sam- nýta móttöku, fundarherbergi, kaffistofu, auk opins vinnusvæðis sem er stúkað niður með skilrúm- um á efri hæðinni. „Það sem við vildum í upphafi var hús sem ekki minnti á eldspýtnastokk og væri þannig að það félli vel inn í um- hverfið, sem er íbúðarhverfi," segir Þorsteinn Guðlaugsson, endur- skoðandi, en húsið teiknuðu þeir Pálmar Ólason og Ivar Eysteins- son, sem einnig hafði eftirlit með innréttingum. Starfsemin hófst um áramót 1983-84. „Hér er fyrst og fremst lagt upp frá þörfum hvers eiganda, auk þess að hafa hús- næðiö notalegt og bjart," segir Þorsteinn og bætir við að menn hafi í upphafi verið spenntir að sjá hvernig til myndi takast með ^“~-Tminijin í anddyrinu er lítil laug og gosbrunnur, „sem kom nú einfaldlega tii þegar viA vorum að velta þvf fyrir okkur hvað mætti gera við plássið þarna niðri og einhver sagði, við skulum bara setja gosbrunn. Meinti það allt eins f gamni, en arkitektarnir ákváðu að nota hugmyndina.“ Það eru gluggar inn f fundarherbergið eins og önnur herbergi f Furugerðinu, en húsgögnin eru frá Hýbýla- prýði. Séð út á ganginn frá skrifstofu Þorsteins, en ákveðið var að hver og einn innréttaði skrifstofuna eftir sfnu höfði. Séð eftir ganginum á efri hæðinni, hægra megin eru skrifstofur í lokuðu rými, en vinstra megin sést f opið húsnæði, auk stigans og fundarherbergisins. Fundarherbergið, en húsgögnin þar eru skandinavfsk, framleidd af Q-furniture. Forma- leikur Það er eitt formið á annað ofan sem ein- kennir innviði auglýs- ingastofunnar Svona gerum við, í Hafnar- stræti, en starfsemin hófst þar á liðnu hausti og var nýlega lokið við inréttingar sem Tryggvi Tryggva- son, arkitekt hannaði. Eins og sést á teikningunni er lögun húsnæðis- ins nokkuð óregluleg og var ákveð- ið að hafa innréttingar í samræmi við það, auk þess sem þær byggja mikið á litum, bláum, gulum, bleik- um, grænum, gráum og hvítum. Á stofunni starfa 8 manns og er húsnæðið opið, nema hvað inn- réttingarnar stúkast nokkuð af sjálfu sér, sbr. skrifborð með sambyggðum skilrúmum, kaffi- stofa sem er í hringlaga afdrepi eða “tunnunni", auk þess sem fundarherberginu má loka af. Það er staðsett í einu horni rýmisins, með glerveggi á tvo vegu, sem báðir vísa að gluggum. Dagsbirta á greiðan aðgang inn, gluggar eru á húsnæðinu samfellt á þrjá vegu og engin gluggatjöld, en reyklitað gler til að varna óþægindum af mikilli birtu. Upphaflega var hug- myndin að hafa þrjú herbergi á borð við fundarherbergið, „en við höföum á tilfinninguni að það mynda virka of þungt og hurfum frá þeirri hugmynd og erum mjög sáttir við útkomuna. Við vildum hafa stofuna öðruvísi en gengur og gerist og kannski ekki síst í anda starfseminnar og við höldum að það hafi skilað sér,“ segir Ólafur Ingi Ólafsson, hjá Svona gerum við hf. Telkningaf stofunni Formaleikurinn hefst strax f móttökunni. Borð og skilrúm eru teiknuð af Tryggva Tryggvasyni arkitekt, en stólarnir tveir fremst eru frá Memphis, hannaðir af Michele de Luchi. Skrifstofustólar eru frá Pennanum og Stálhúsgögnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.