Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ 1986 B 11 1315 á biðlista eftir 372 íbúðum fyrir aldraða Tæpur helmingur íbúa landsins sem er 67 ára og eldri býr í Reykjavík. Þetta eru um 10.400 manns. Árí A 1970 voru íbúar Reykjavíkur 67 ára og eldri um 5.000. Samkvæmt upplýsingum Trygginga- stofnunar ríkisins hafa tæplega 40% af þessum hóp, 4.000 manns, óskerta tekjutryggingu og því litlar eAa engar tekjur utan almannatrygginga, sem eru nú rúmlega 17.000 krónur á mánuAi fyrir hvern einstakling. ÁlitiA er a A um 25% lífeyrisþega þurfi á einhvers konar stofnanaþjónustu aA halda, en um 75% búi viA sæmilega heilsu og vellfAan á efri árum. Samkvæmt þessu þurfa um 2.500 manns aAstoA- ar viA. Samkvæmt upplýsingum frá Fólagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar fá um 1.600 heimili aldraAra heimllisþjónustu aA meira eAa minna leyti. 158 elnstaklingar njóta einhverrar fjár- hagsa AstoAar f rá stof nuninni vegna ónógra tekna og 1.315 einstaklingar eru á biAlista eftir þjón- ustuíbúAum, vernduAum þjónustuíbúAum eAa dvalar- og hjúkrunarheimilum. Á vegum Reykja- víkurborgar bjóAast öldruAum 372 slíkar IbúAir, þar af 52 fyrir hjón. Margvislegar breytingar verða á högum fólks þegar eftirlauna- aldri er náð. Nefna má fjögur atriði: 1. Minnkandi tekjur þegar launa- vinnu er hætt. 2. Náin og dagleg samvinna og samfélag við vinnufélaga endar. 3. Að minnsta kosti 8 stundir á dag eða 40 stundir á viku bætast við ráðstöfunartíma til tómstunda- og félags- starfa. 4. íbúðin verður e.t.v. óhentug. í síðustu viku gekkst Félags- málastofnun Reykjavíkurborgar fyrir þriggja kvölda námskeiði fyrir Reykvíkinga 60 ára og eldri undir yfirskriftinni „Til undirbún- ings efri ára“. Námskeiðið var haldið í aðalmiðstöð félags- starfsins að Norðurbrún 1. Nám- skeiðiö sóttu um 60 manns og stór hluti þeirra er enn ekki kominn á eftirlaunaaldur og leit- aði sér þarna upplýsinga um væntanleg réttindi sín. Sumir höfðu aldrei fengið upplýsingar um þessi mál áður, aðrir voru nokkuð kunnugir þeim, en eitt áttu allir sameiginlegt, að hafa aldrei fengið slíkar upplýsingar á þennan hátt fyrr. Blaðamaður Morgunblaösins sat þessi þrjú kvöld á námskeið- inu. Víst er að ungt fólk hugar lítið að þessum málum nema því aðeins að það vilji sinna er- indum aldraðra ættingja eða vina. Þeir, sem ekki eru orðnir „löggilt gamalmenni" eins og það var svo biturlega orðað af þátt- takendum á námskeiðinu, hafa aö öllum líkindum gott af því að huga að málefnum aldraðra. Þó eru oft ákaflega naprar stað- reyndir sem eru upplýstar. Nokk- uð af þeim komu fram í upphafi þessarar greinar og annað kem- ur fram í viðtölum við þátttakend- urog fyrirlesara. í hnotskurn er staðreyndin sú, að öldruöum fer sífellt fjölgandi. Meðalævi Islendinga lengist stöðugt. Fjölmargir hafa ekki hugsað til framtíðarinnar og tryggt sig með greiðslum í lífeyr- issjóði. Þó má ætla að þelm fari fækkandi vegna „skylduáskrift- ar“ launþega að slíkum sjóðum. Innan tiltölulega skamms tíma má ætla, að um 40°/o þjóðarinnar verði á eftirlaunaaldri, fólki sem gert er með lögum að hætta störfum. Hvernig má það vera að þjóðfélagið geti alið önn fyrir þessum fjölda, þegar óverulega gengur á biðlista eftir ýmis konar öldrunarþjónustu á árinu 1986? Ekki má taka þessi orð þannig, að ekki sé vel gert fyrir aldraða. Staðreyndir tala sínu máli. Stór- kostlegar breytingar hafa orðið á aðstæðum aldraðra á síöustu árum, en betur má ef duga skal. Lesendur þessarar greinar verða þó að átta sig á, að aldraðir eru engir þurfalingar. Þeir hafa lokið sínu dagsverki, i ýmsum tilfellum fyrr en ástæða er til, en eitt skal yfir alla ganga segja lögin. Aldr- aðir eiga rétt á aðstoð, slíkt höfum við sett í lög, rótt eins og að sjúkir eiga rétt á ókeypis aðhlynningu og lækningu. Sama skal gilda með aldraða. Þá má nefna þann stóra fjölda sem lokast hefur inni í sjálfskaparvít- um þess skipulags er við höfum búið okkur, viljandi eða óviljandi. Hverjir þekkja ekki tilviljunar- kenndan leigumarkað íbúðar- húsnæðis, þar sem leigan getur verið um 12.000 krónur, en tekju- trygging almannatrygginga er rúmlega 17.000 kr? Hver getur lifað á mismuninum? Þá má nefna þann hóp aldraðra sem býr í eigin húsnæði, sem er allt of stórt eftir að börnin fóru að heiman. Andvirði eignarinnar er þó allt of lágt til að eigendurnir telji sér fært aö selja og kaupa sig inn í þjónustuvist fyrir aldr- aða. Hér verður nú getið þeirrar aðstöðu sem Reykjavíkurborg lætur öldruðum í té, en þess má geta að Reykjavíkurborg ver 152 milljónum króna til öldrunarmála á þessu ári. Þeirri spurningu mætti að nán- ar athuguðu máli beina til lesand- ans, hvort ástæða sé til þess að firra hvern einstakling ábyrgð á elliárunum. Ber hverjum og ein- um ekki siðferðileg skylda til að búa í haginn fyrir komandi ár? Er „skylduáskrift" að lífeyrissjóð- unum nauösynleg? Er hægt að koma því til skila, að hver ein- staklingur beri ábyrgð á framtíð sinni og verði að haga sér í samræmi við það, þó svo að hann geti gengið að því sem vísu, að þjóðfélagið sjái um þá, sem ekki geta framfleytt sér um ævi- kvöldið? Til þess var til námskeiösins boðað, hver svo sem niðurstað- an varð. Þessari grein er ætlað Þátttakendur f námskeiði um undirbúning efri ára. að vekja unga sem gamla til íhug- unarumelliárin. Húsnæðismál aldraðra Á vegum Reykjavíkurborgar er boðið upp á, eins og áður sagði, 372 íbúðir fyrir aldraða, þar af 52 fyrir hjón. Aðstaðan skiptist í þrennt, þjónustuíbúðir, vistheimili eða verndaðar þjón- ustuíbúðir og hjúkrunarheimili. í Austurbrún 6 eru 40 leigu- íbúðir sem eingöngu eru ætlaðar fyrir aldraða. Stærð íbúðanna er tæplega 50 fermetrar og húsa- leiga með hita er kr. 4.099. Þjón- usta er lítil heimilishjálp eftir þörfum og hádegisverður fæst heimsendur um helgar. Þetta húsnæði er fyrir vel sjálfbjarga fólk. í Norðurbrún 1 eru þjónustu- íbúðir; 52 einstaklingsíbúðir og 8 hjónaíbúðir, þær fyrrnefndu eru um 30 fermetrar og hinar 42 ferm. Húsaleiga með hita er kr. 3.135 fyrir einstaklinga og kr. 4.232 fyrir hjónaíbúðir. Þjónustan er fólgin í húsvörslu og afnotum af sameiginlegu rými, heimilisþjónusta er veitt eftir þörfum og hádegisverður fæst keyptur alla daga nema helgar. Margvísleg önnur þjón- usta er veitt, s.s. böðun, fótsnyrt- ing, hárgreiðsla og félagsstarf jafnt fyrir íbúa hússins sem og aðra eldri borgara. í Lönguhlíð 3 eru 32 þjónustu- íbúðir; einstaklingsíbúðir, sem eru allar 27 ferm. Húsaleigan er kr. 6.058 með hita og rafmagni. Þjónustan er fólgin í húsvörslu og afnotum af sameiginlegu rými. Neyðarhnappur er í öllum íbúðum og tengdur við íbúð hú- svaröar. Heimilishjálp fæst eftir þörfum. Þarna er verslun, þar sem fá má helstu nauðsynjar. Hádegismatur fæst keyptur alla virka daga nema helgar. Þjón- usta, s.s. böðun, fótsnyrting, hárgreiðsla og félagsstarf, er veitt jafnt fyrir íbúa hússins sem og aðra eldri borgara. í Furugerði 1 eru þjónustu- íbúðir; 60 einstaklingsíbúðir og 14 hjónaíbúðir. Stærðin er 32 ferm. fyrir einstaklinga og 57 ferm. fyrir hjón. Húsaleigan er kr. 4.895 fyrir einstaklingsíbúðir en kr. 7.747 fyrir hjónaíbúðir. Þjónustan er fólgin í húsvörslu og notum af sameiginlegu rými. Forstöðumaður er við á daginn. Sérstök vakt er frá kl. 18 til 22 alla daga. Neyðarhnappur er í hverri íbúð, tengdur við vakther- bergi og íbúð forstöðumanns. Heimilishjálp fæst eftir þörfum. Þarna er verslun, þar sem fá má helstu nauðsynjar, hádegisverð- ur fæst keyptur alla daga nema helgar. Margvísleg þjónusta er veitt í Furugerðinu og er hún svipuð og á fyrrnefndu stöðun- um. Á Dalbraut 27 eru verndaðar þjónustuíbúðir; 46 einstaklings- íbúðir og 18 hjónaíbúðir. Leigan með rafmagni og hita er fyrir þær fyrrnefndu kr. 7.196 og þær síð- arnefndu kr. 12.089. Þarna er vakt allan sólarhring- inn. Neyðarhnappur er í öllum íbúðum tengdur vaktherbergi. Hádegisverður er seldur alla virka daga og skyldumáltíðir eru fyrir einstaklinga. Heimilishjálp og heimahjúkrun er eftir þörfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.