Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 5

Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1986 5 Sjúkraliðafélag íslands: Margrét S. Einarsdóttir felur varaformanni að gegna formannsstarfi Get ekki verið á tveimur stöðum í einu, segir Margrét isstöðin hf. í Garði. MorgunblaM/Amór Landsbankinn auglýs- ir frystihús til sölu Keypti hús Isstöðvarinnar hf. í Garði á nauðungaruppboði Á FUNDI í Sjúkraliðafélagi ís- lands í gaer skýrði Margrét S. Einarsdóttir formaður félagsins, nýráðinn forstöðumaður þjón- ustuíbúða aldraðra á Dalbraut 21—27, frá þeirri ákvörðun sinni að fara þess á leit, að varafor- Hvolsvöllur: Tryggvi Ingólfs- son sigraði í prófkjöri Hvolsvelli. maður sjúkraliðafélagsins gegndi starfi formanns fram að aðalfundi félagsins, sem verður í lokapríl. „Mér finnst það ekki geta gengið til lengdar, að formaður þessa fé- lags, sem er mjög stórt, með um 1.900 félaga, geti ekki verið við á skrifstofu félagsins sem er opin á morgnana," sagði Margrét S. Ein- arsdóttir í samtali við Morgunblað- ið. „Ég er búin að taka að mér fullt starf á öðrum vettvangi og get náttúrulega ekki verið á tveimur stöðum í einu og ekki beitt mér af fullum krafti í félagsstarfínu. Mér fínnst því eðlilegt að á næsta aðal- fundi sjúkraliðafélagsins verði fé- lagsmönnum gefínn kostur á að kjósa sér nýjan formann, sem geti tekið við starfínu af fullri ábyrgð. Meðan ég var aðeins sett í starf sem forstöðumaður þjónustuíbúð- anna og vissi ekki hvort það starf yrði til frambúðar, fannst mér ekki ástæða til að fela varaformanni sjúkraliðafélagsins formannsstarf- ið, þar sem stjómin hafði öll sam- þykkt að ég gerði þetta svona og var öll af vilja gerð til að hjálpa mér í gegnum þetta tímabil," sagði Margrét, „en ég á eitt ár eftir af kjörtímabili mínu og til frambúðar gengur ekki að formaður félagsins geti ekki sinnt starfí sínu nema í hjáverkum á kvöidin. Þess vegna fannst mér heiðarlegast að fara svona að.“ LANDSBANKINN hefur óskað eftir tilboðum í frystihús í eigu ísstöðvarinnar hf. í Garðinum. Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá Reinhold Kristjánssyni, lög- fræðingi Landsbankans, um hvemig stæði á því, að Lands- bankinn seldi frystihúsið. „Landsbankinn þurfti að kaupa húsið á nauðungaruppboði í síðasta mánuði," sagði Reinhold. „Fyrir- tækið hafði ekki staðið í skilum og því var farið fram á þetta uppboð." Að sögn Reinholds er frystihúsið byggt á ýmsum tímum en er þó tiltölulega heillegt. í þvi eru þrír salir, samtals um 2.000 fermetrar, og frystiklefí. Boð bankans var um 12,5 milljónir króna. Ekki vildi Reinhold gefa upp hve mikið ísstöð- in hefði skuldað Landsbankanum, en sagði, að ekki hefðu allar kröf- umar í málinu verið frá bankanum. Ekki hefur enn borist tilboð í húsið. UM HELGINA fór fram próf- kjör meðal stuðningsmanna framboðs sjálfstæðismanna og annarra frjálslyndra um skipan framboðslista í komandi sveit- arstjórnarkosningum í Hvol- hreppi, (Hvolsvelli og dreif- býli). Kjörsókn var góð. Alls kusu 163. í fyrsta sæti varð Tryggvi Ingólfsson verktaki, í öðru sæti Ingibjörg Þorgilsdóttir húsmóðir, í þriðja Aðalbjöm Kjartansson framkvæmdastjóri, i fjórða Guð- finnur Guðmannsson byggingar- meistari og í fímmta Helgi Her- mannsson tónlistarkennari. Kosn- ing í fímm efstu sætin er bindandi. Framboð sjálfstæðismanna og annarra fijálslyndra er með tvo menn af fímm í hreppsnefnd Hvolhrepps, þau Aðalbjöm Kjart- ansson og Ingibjörgu Þorgilsdótt- ur. Tryggvi Ingólfsson var í þriðja sæti síðast, en flyst nú upp í 1. sæti listans samkvæmt úrslitum prófkjörsins. — Gils. Siglufjörður: Þvermóðska í Vegagerðinni Siglufirði. TÖLUVERÐUR snjór er nú hér á Siglufirði, meira að segja á okkar mælikvarða. Götur hér innanbæjar hafa verið ruddar jafnóðum og ná ruðningamir orðið uppá miðja glugga. Ofært er út úr bænum. Siglfírðingar em frekar óhress- ir með þvermóðskuna í Vegagerð- inni að ryðja ekki í dag, mánudag, strax og mögulegt var vegna veðurs, því margt fólk er í bænum vegna fermingar um helgina sem þurfti að komast heim til sín. Samkvæmt reglugerðinni á að moka í fyrramálið. Ófærðin er ekki teljandi nema á tveimur stöð- um á leiðinni í Fljótin og hefði það ekki tekið þá langan tíma að renna þar í gegn til að leysa vandræði fólksins. Þetta er ekkert nema þvermóðska í þeim að þurfa að bíða eftir einhverri sérstakri klukkustund. Þegar síðan á að fara að moka samkvæmt reglu- gerðinni getur veðrið orðið þannig að ómokandi sé. Auðvitað á að koma þá daga sem þörf er á og veður leyfir, innan þess fjölda sem heimilaður er í viku hverri. Páskaliliur - Páskaliliuskreytingar páskadúkar • Páskakerti • o.m.fl. L. j .'**« . . - ti.& heima fyrir. í* f^skaliljurípottum pær eru tilvaldar til framhaldsræktunar V ’ ** mskatilboö Allir stofupálmar, smáir sem stónr, seldir með 20% afslætti. Athugið umpáskanaver6urop.deg.r; .. 9-21 Skírdagur .. * l k & Föstudagurmn langi • • • g2<| Laugardagur .......loRað páskadagur......... 21 2. ípáskum ........ Blómum JþT™ viöaverold Xr'sinTfsi^^inrarSeT/O-e^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.