Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 13

Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1986 13 •• •• Om og Orlygur: Þriggja binda rit- verk um Reykjavík Nýlega birtist hér í blaðinu grein eftir Svein Einarsson fyrrum Þjóðleikhússtjóra þar sem hann hvetur tíl þess, að í tilefni 200 ára afmælis Reykja- vikurborgar verði gefin út „eins konar leiðsögubók um gömlu Reykjavík, með myndum af þeim húsum, sem frá sögu- legu sjónarmiði eða sem bygg- ingarlist bera af — og sögð deili á þessum húsum og þvi sem þau hafa orðið vitni að í þessar tvær aldir.“ Og Sveinn heldur áfram: „í annan stað mætti efna til öðru vísi bókar, sem bæri heitið Götur Reykja- víkur. Þar yrði þula af götum Reykjavíkursvæðisins, sögð saga þeirra, sem sögu eiga, en jafnframt lýst öllum þeim ör- nefnum hér á nesinu, sem sum hver varðveitast nú eingöngu í götuheitum, sem fáir kannski skilja." Skömmu eftir að áðurnefnd grein Sveins Einarssonar birt- ist fregnaði blaðið,að hjá Bóka- útgáfunni Orn og Orlygur hefði allt frá 1979 verið unnið að útgáfu mikils ritverks um Reykjavíkurborg, sem e.t.v. svaraði að einhvetju leyti til þeirrar óskar sem Sveinn bar fram. Morgunblaðið sneri sér því til Orlygs Hálfdánarsonar bókaútgefanda og leitaði nán- ari fregna af málinu. „Jú, þið eigið kollgátuna, við erum einmitt að vinna að ritverki sem sameinar þetta þrennt — að vera einskonar leiðsögubók um götur Reykjavíkur og greina frá markverðum húsum og ömefnum í borginni," sagði Örlygur. „Hugmyndin varð til þegar við vorum að vinna að aukinni og endurbættri útgáfu á bókunum Landið þitt ísland, sem nú eru komnar út í heild, en Páll Líndal skrifaði þar kafla um Reykjavík. Jafnframt var ákveðið að efna síðar til sérstaks ritverks um Reykjavík með fyllri texta og Á þriðja þúsund uppflettiorða upplýsingum en komust fyrir í Reykjavíkurkaflanum í Landið þittlsland.“ Aætlað er að ritverkið verði í þrem bindum. í fyrstu tveim verð- ur fjallað um staði í borginni eftir stafrófsröð og er höfundur texta Páll Líndal. í þriðja bindinu verða yfírlitsgreinar um þróun borgar- innar og sérkenni. Undirbúningur og vinnsla ritverksins hefur eins og áður segir staðið í mörg ár og er áætlað að fyrsta bindið komi út’ með haustinu. Umsjón með verk- inu hefur Einar Amalds. andinn fær því á einum stað umQöllun t.d. um sjálfa götuna Aðalstræti, Aðalstræti 2, Aðal- stræti 4, Aðalstræti 6, Aðalstræti 7 o.s.frv., þau hús sem staðið hafa á þessum lóðum, markverða íbúa, sögulega atburði tengda götunni og húsunum og þannig mætti lengi telja. Þá verða einnig öll ömefni, sem markverð mega teljast, tekin fyrir en þau em fjölmörg. Þá má ekki gleyma hverfunum — Kvosin, Þingholtin, Breiðholt — allt verða þetta sér- stök uppflettiorð. Bókin verður því hentug til leiðsagnar fyrir þann sem vill kynna sér ákveðin hverfi eða götur, auk þess að vera lykill að vitneskju um staðina í nútíð og fortíð. Reykjavík 1874, koparstunga. í fyrstu tveim bindunum verða á þriðja þúsund uppflettiorð. Götur gegna sérstöku lykilhlut- verki í þessum tveimur bindum. Eftir umfjöllun um hveija götu verður fjallað um þau hús, gömul og ný, sem markverð teljast við götuna eftir lóðanúmemm. Les- í þriðja bindi bókarinnar verða yfírlitsgreinar um einstaka þætti í sögu borgarinnar, þróun byggð- ar, samgangna og ýmiss konar þjónustu auk kafía um jarðfræði, veðurfar, gróðurfar, dýralíf svo eitthvað sé nefnt. Verða ýmsir sérfróðir menn fengnir til þess að Páll Llndal (t.v.) höfundur Reykjavíkurbókarinnar og Einar Arnalds umsj ónarmaður verksins með opnu úr bókinni. undmnarefni. Við Ásgeir Bjöms- son útgáfustjóri Amar og Örlygs emm t.d. nýkomnir frá Kaup- mannahöfn úr myndaleit og höfð- um ýmislegt upp úr krafsinu." Örlygur vildi jafnframt koma því á framfæri, að ef fólk ætti í fómm sínum áhugaverðar Reykjavíkur- myndir, gamlar og nýjar, þá væm þær vel þegnar. í þriðja bindinu verða lykla- skrár með mannanöfnum, götu- heitum, húsaheitum, hverfaheit- um og öðmm ömefnum, sem eiga að auðvelda fólki enn frekar að hagnýta sér ritverkið. „Þessum Reykjavíkurbókum er ætlað að verða upphafíð að nýjum bókaflokki um kaupstaði og kaup- tún á íslandi," upplýsti Örlygur Hálfdanarson að lokum. „Það er reyndar búið að leggja gmnn að Akureyrarbók. Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum er höfundur texta. Eins og áður sagði er Reykjavík fyrst á dagskrá og kemur fyrsta bindið út með haust- inu og síðan er áætlað að út komi eitt á ári. Við eram sannfærðir um, að það er mikil þörf fyrir svona bækur. Við emm með út- gáfíi þeirra að fylla upp í eyðu og ég efa ekki að bókunum verður vel tekið. ritaum einstök svið. „í bókunum verður ógiynni af kortum og myndum, gömlum og nýjum, og ekkert hefur verið til sparað við leit að athyglisverðum myndum víða um heim,“ sagði Örlygur Hálfdánarson. „Munu margar þeirra verða lesandanum „Harður atgangur og marg- hlóðu sumir diska sína“ Borgarnesi. LIONSKLÚBBUR Borgarness hélt sitt árlega herrakvöld fyrir skömmu. Að þessu sinni var þorramatur á borðum og hittist svo á að þann dag voru ná- kvæmlega 25 ár liðin frá því Lionsklúbburinn hélt sitt fyrsta þorrablót. Þorrablótin voru haldin í nær tvo áratugi og voru víðfrægar skemmtanir. Lionsmenn í Borgar- nesi endurvekja þorra- biót sitt í lok þorra Ljónin skemmtu sér og gestum sínum sjálf, eins og venja er. En fyrst var þorramatnum gerð skil fomum sið. Þá rakti Sveinn G. Hálfdánar sögu fyrstu þorra- blóta ljónanna í Borgamesi. Þar vitnaði Sveinn í fundargerð fé- lagsins um fyrsta blótið þann 21. febrúar 1961. í fundargerðinni sagði m.a. að S fundarsalnum hefði staðið borð „hlaðið trétrogum, skálum og diskum, sem í var ís- lenskur gæðamatur að fyrri tíðar sið. Þar gat að lita hangikjöt, tiir JUS.'ig’g^Tve;' n-iii1 ;v»Tvri Sungið af innlifun. Morgunblaðið/Theodór Þórðar. .. Frá bögglauppboðinu. Fram kom hjá Sveini að margir kórar hefðu verið stofnaðir innan ljónahópsins í gegnum árin, hefðu þeir verið misjafnlega langlífír en frægastur hefði ömgglega verið „Vindrengjakórinn". Að lokum sagði Sveinn „þorrablót Lions- klúbbs Borgamess hafa verið góð- ar skemmtanir og fastur liður í lífí margra karla hér. Og hvað sem hver segir held ég að kerlingar hér í Borgamesi geti ekki annað sagt, en að: „Allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó“, og svo verður áreiðanlega framvegis." - TKÞ. Þúsund krónur, fyrsta annað og . hákarl, lundabagga, slátur o.fl., svo eitthvað sé nefnt af öllum þeim tegundafjölda, sem þar var.“, Fram kom hjá Sveini að frá fyrstu tíð hefði verið skipaður blótsstjóri til að stýra atgangnum við matborðið. Og eggja menn til atlögu við trogin, væri þess þörf. í fundargerð fyrsta blótsins, segir frekar um borðhaldið, „varð nú harður atgangur gerður að hinum góðu matföngum og marghlóðu sumir diska sína. Flestir höfðu klæðst úr jökkum sínum og brett upp skyrtuermar til þess að verða léttari á sér í þessari viðureign."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.