Morgunblaðið - 26.03.1986, Side 15
»>qo r- V’fT A T'O <TTTr> * rT'T'»TTTTrrT'»f firj * Trrr4’TTr>'rf/oil.<r
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1986
i r
15
Frá aðalfundi Bandalags kvenna. í ræðustóli er María Pétursdóttir,
formaður Kvenfélagasambandsins og við borðið stjórnarkonur og
fundarstjórar. Frá vinstri: Ingibjörg Magnúsdóttir, Kristin Guð-
mundsdóttir formaður, Ragnheiður S. Jónsdóttir og Svanlaug Árna-
dóttir.
Bandalag kvenna í Reykjavík:
••
Ollum ráðum verði
beitt til að uppræta
vímuefnaney slu
A AÐALFUNDI Bandalags
kvenna í Reykjavík, sem sam-
anstendur af vel flestum kven-
félögum í borginni, var eftirfar-
andi samþykkt:
„Aðalfundur Bandalags kvenna
í Reykjavík, haldinn 9. mars 1986,
fer þess á leit við fjármála-, mennta-
mála-, heilbrigðis- og trygginga-
mála- og dómsmálaráðuneytin, að
þau beiti öllum tiltækum ráðum til
að koma í veg fyrir og uppræta
vímuefnaneyslu í landinu."
„Aðalfundur BKR, haidinn
sunnudaginn 9. mars 1986, endur-
tekur þá eindregnu áskorun sína
frá síðasta aðalfundi, að skora á
hæstvirt Alþingi og heilbrigðis- og
tiyggingamálaráðuneytið, að veita
á fjárlögum 1987 fé til stofnunar
meðferðarheimilis fyrir unga vímu-
efnaneytendur. Skjótra aðgerða er
þörf í þessu mikla og vaxandi
vandamáli.“
„Aðalfundurinn skorar á ríkis-
stjórn og borgastjórn að sjá til þess
að nægilegt fé fáist hið fyrsta til
þess að ljúka neðstu hæð B-álmu
Borgarspítalans, sem ætluð er fyrir
sjúkra- og iðjuþjálfun aldraðra.
Ennfremur leggur fundurinn
áherslu á mikilvægi þess, að þær
þtjár hæðir, sem enn eru ófrá-
gengnar, verði fullgerðar eins fljótt
og unnt er og að framkvæmdir við
þær stöðvist ekki vegna fjárskorts."
„Aðalfundur Bandalags kvenna
í Reykjavík, haldinn 9. mars 1986,
beinir þeim tilmælum til Sjúkraliða-
félags íslands, Hjúkrunarfélags ís-
lands og Félags háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga, að allra ráða
verði leitað til þess að ráða bót á
þeirri fólkseklu, sem undanfarið
hefur háð eðlilegri og æskilegri
umönnun sjúkra og aldraðra, m.a.
á B-álmu Borgarspítalans.“
„Aðalfundurinn fagnar því að nú
er fastráðinn prestur við Borgaspít-
alann.
Einnig eru það tilmæli fundarins,
að ráðnir verði prestar við ríkisspít-
alana. Það hefur sýnt sig, að full
þörf er fyrir siíka þjónustu."
„Aðalfundurinn skorar á borgar-
yfirvöld að gera sitt ýtrasta til þess
að fleira hæft fólk fáist til þeirra
bráðnauðsynlegu starfa, sem heim-
ilisþjónusta borgarinnar lætur í té,
t.d. með enn auknu námskeiðahaldi,
er leiddi til umtalsverðra launa-
hækkana. Ennfremur, hvort ekki
mætti auka fríðindi fólksins með
því að sjá því fyrir vinnufatnaði,
merktum Heimilisþjónustu Reykja-
víkurborgar, að sjálfsögðu."
Leiðrétting vegna Hellugreinar
í grein í Morgunblaðinu sl. laug-
ardag um Kaupfélagið Þór á Hellu
og atvinnuástand á Hellu féll niður
ein lína úr handriti þar sem fjallað
var um fyrirtæki staðarins. Þar átti
að standa: „Mörg fyrirtæki á Hellu
ganga vel, reksturinn á saumastofu
Mosfells og átak þeirra í ferða-
mannaþjónustu og gistingu, rekstur
saumastofunnar hjá Einari Ama-
syni, Alifuglasláturhúsið Dimon og
rekstur Vignis Sigurbjamarsonar
með Grillskálann, svo eitthvað sé
nefnt." Beðið er velvirðingar á
mistökunum.
BALLETTSKOLI
EDDU
SCHEVING
Skúlatúni
5 vikna vornámskeið hefst í byrjun apríl. Byrjenda- og
framhaldsflokkar frá 5 ára. Innritun í síma 38360 kl.
16.00—19.00 daglega.
Afhending og endurnýjun skírteina í skólanum þriðju-
daginn 1. apríl kl. 17.00—19.00. ^
ILMANDI GÓÐGÆTI
ALLA DAGA
Brauó (stór, smá, fín og gróf), kökur
og tertur.
50% afslátturaf öllum smábrauðum
(rúnstykki, hleyfar, heilhveitihorn,
langlokurog kringlur), virkadaga
kl. 8 - 10 og um helgar kl. 9 - 12.
50% afsláttur af öllum brauðum
kl. 17-18
Veislutertur, glæsilega skreyttar.
Fyrir barnaafmælið bjóðum við upp
á svolltið sérstakt sem kætir litla
munna.
OPIÐ MÁNUD. - FÖSTUD.
KL. 8-18
OG LAUGARD. - SUNNUD.
KL. 9-16
BAKARÍIÐ
KRINGLAN
DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI
SÍMI53744
Opið um páskana:
Skírdag kl. 9 -16. Laugardag kl. 9 -16
2. páskadag kl. 9-13.
I BÓKAMARKADURINN I
OPINN í DAG 9—22
©
Vörumarkaðurinn hl.
Sími 611310 ^