Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 22

Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986 Kína; Deng Xiaoping í fullu fjöri Peking, 24. mars. AP. DENG Xiaoping, leiðtogi Kin- verja, hitti forsætisráðherra Danmerkur, Paul SchlUter, að máli í dag og var það í fyrsta skipti í 14 vikur sem hann kemur fram opinberlega. Hinn 81 árs gamli leiðtogi virtist vera við góða heilsu, en fregnir hafa verið uppi um það að hann væri alvarlega veikur eða jafnvel lát- inn. Deng sagði við þetta tækifæri að hann hefði viljandi minnkað opinber umsvif sín til þess að gefa minna reyndum leiðtogum tækifæri til þess að reyna sig og sýna fram á að stefnu hans um að opna Kína- veldi yrði haldið áfram þó hans nyti ekki við. Sagðist hann hyggjast draga sig enn frekar út úr opinberu lífi. „Síðastliðin ár hef ég viljandi reynt að draga mig út úr daglegum stjómunarstörfum, þannig að aðrir félagar fái tækifæri til þess að axla meiri ábyrgð. Þetta hef ég meðal annars gert til þess að sýna fram á að núverandi stjómarstefna í Kína byggist ekki á mér eingöngu. Því hef ég ekki komið fram opinberlega nú í talsverðan tíma,“ sagði Deng. Schliiter er í opinberri heimsókn í Kína. í gær ræddi hann við forsæt- isráðherra landsins, Zhao Ziyang. Ziyang sagði við það tækifæri að Kínveijar krefðust þess að Banda- rikin og Sovétríkin kæmust að samkomulagi í afvopnunarmálum sem fæli í sér mikla fækkun í kjam- orkuvopnabúrum stórveldanna. Hann sagði ennfremur að sameinuð og sterk Evrópa myndi auka á stöðugleika í heimsmálunum og gæti orðið sterkur þáttur í þróun til friðar í heiminum. Schluter tók undir þessi orð Ziyang og sagði að sífellt yxi skilningur á hlutverki Evrópu í friðarmálum. GENGI GJALDMIÐLA London, 25. mars. AP. Bandaríkjadollari snarhækk- aði gagnvart öllum helstu gjald- miðlum í dag. Ástæðumar era sagðar bæði lækkun vísitölu neysluvara um 0,4 prósent í Bandaríkjunum og átök Banda- ríkjamanna og Libýumanna. I Tókýó kostaði dollarinn síð- degis í dag 179,60 japönsk jen (177,30). í London kostaði sterlingspund- ið þegar gjaldeyrismörkuðum var lokað 1,45725 dollara (1,4850). Gengi annarra helstu gjald- miðla var á þann veg að dollarinn kostaði: 2,3290 vestur-þýsk mörk (2,2870), 1,9520 svissneska franka (1,91825), 7,1425 franska franka (7,0200), 2,6300 hollensk gyllini (2,5830), 1.583,50 ítalskar lírur (1.556,00) og 1,40325 kana- díska¥k)Ilara.(l,4005). Sakharov-myndin: Bonner gagnrýnir sovésk stjórnvöld Massachusetts, Bandaríkjunum, 25. mars. AP. YELENA Bonner gagnrýndi í gær sovésk stjórnvöld fyrir að láta frá sér fara kvikmynd, sem tekin var með leynd af manni hennar, andófsmanninum Andrei Sakharov. „I dag vík ég frá því loforði mínu að tala ekki við fjölmiðla og tala við ykkur, af því að mér virðist sem birting mynd- arinnar sé vottur þess, að heilsu Sakharovs hafi hrakað," sagði frú Bonner. Umrædd mynd, sem er um 15 mínútna löng og tekin með földum upptökuvélum, sýndi Sakharov m.a. tala við eigin- konu sína í síma. „Hérna sjáum við það svart á hvítu, hvemig stjómvöld víla jafnvel ekki fyrir sér að troðast inn í viðræður hjóna," sagði Bonner. „I venjulegu þjóðfélagi hefðum við hjónin átt að geta lögsótt yfirvöld fyrir slíkan verknað. AP/Símamynd Corazon Aquino, núverandi forseti Filippseyja, undirritar „frelsis- stj ómarskrána". Aquino gefur út „frelsis- s<jórnarskrá“ á Filippseyjum Innistæður Marcosar frystar í svissneskum bönkum Manila og Bern, 25. mars. AP. CORAZON Aquino, forseti Filippseyja, undirritaði „frelsisstjórnar- skrá“ í dag og nam þar með úr gildi fyrri stjóraarskrá landsins, sem sett var í tíð Marcosar fyrrum forseta. Samkvæmt stjóraarskránni er þing rofið og getur forsetinn gefið út lög þar dl ný stjóraárskrá hefur verið samþykkt með þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá hafa svissnesk yfirvöld fryst til bráðabirgða innstæður Marcosar í svissneskum bönkum. Aquino tilkynnti þessa ákvörðun nú nær sömu völd og Marcos tók sína f dag í útvarpi og hefur hún sér er hann lýsti yfír hemaðar- ástandi á Filippseyjum árið 1972. Aquino sagði að „frelisstjómarskrá sín væri til bráðabirgða og ný stjómarskrá yrði samin af 30-50 manna nefnd, sem hún myndi skipa innan 60 daga. Stjómarskráin yrði síðan borin undir þjóðaratkvæði“. Svissneska ríkisstjómin hefur fiyst inni til bráðabirgða allar inn- Ein þeirra bifreiða sem notaðar voru til þess að skjóta eldflaugunum frá. stæður í svissneskum bönkum sem með einhveiju móti tengjast Marcos fyrrum forseta. Em þess ekki dæmi áður að svissnesk ríkisstjóm geri slíkt. í tilkynningu ríkisstjómarinn- ar um þessar aðgerðir segir að ýmislegt hafí bent til þess að til- raunir væm gerðar til þess að ná út innstæðum Marcosar. Nefnd, sem Aquino hefur skipað á Filipps- eyjum til þess að rannsaka fjárreið- ur og viðskilnað Marcosar, segir að hann kunni að hafa komið úr landi verðmætum að upphæð 10 milljarð- ar Bandaríkjadala og hluta þessarar upphæðar sé að fínna í bönkum í Sviss. Samtök banka í Sviss hafa lýst yfir undmn sinni á þessum aðgerðum ríkisstjómarinnar. Marcos, sem er á Hawaii, hefur flutt sig frá Hickam-herstöðinni, þar sem hann hefur dvalist frá því hann kom til eyjanna 26. febrúar, í úthverfí Honolulu. Þar hefur hann tekið hús á leigu við ströndina. Vaxandi ofbeldi í Punjab AP/Simamynd Lögregla skoðar leifar eldflaug- ar, þar sem þær liggja í anddyri bandaríska scndiráðsins. Japan; Eldf laugaárás á keis- arahöllina og banda- ríska sendiráðið Tókýó, 25. main^ AP. HEIMATILBÚNUM eldflaugum var skotið að bandaríska sendiráðinu og keisarahöllinni í Tókýó i dag. Ekki er kunnugt um hverjir voru þaraa að verki, en lögregla segir að að flaugunum hafi sennilega verið skotið til þess að hafa áhrif á áætlanir um fund sjö iðnvelda I Japan í maí og hátíðahöldin vegna 60 ára valdaferils Hirohitos sem keisara. Vinstrimenn í Japan tengja Hirohito gjaraan við japanska heraaðarstefnu fyrir síðari heimsstyrjöldina og varúðarráðstafanir vegna væntanlegs fundar iðnveldanna eru geysilegar. Ekki var kunnugt um neinar skemmdir eða slys á mönnum í eldflaugaárásunum. Þetta er fyrsta árásin þessarar tegundar á banda- ríska sendiráðið í Japan. Þrjár flaugar lentu á þaki sendiráðsins og að minnsta kosti tvær til viðbótar lentu í hallargarðinum. Flaugunum var ekki ætlað að springa, heldur einungis sýna fram á að hægt væri að hitta-skotrriörkin. Þeim var skot-, ið frá stolnum bifreiðum sem lagt hafði verið í um 100 metra flarlægð frá skotmörkunum og fann lögregl- an skotbúnað í þeim. Sendiráði Bandaríkjanna var lokað eftir árásina og ekki opnað aftur í dag. Engir hafa lýst á hendur sér ábyrgð á árásunum og lögreglan hefur enn sem komið er ekki hand- tekið neinn vegna málsins. Amritsar, 25. mars. AP. EKKERT lát er á óeirðum og ofbeldisverkum í Punjabfylki á Indlandi, þar sem öfgasinnaðir sikhar beijast fyrir yfirráðum, en hófsamir sikhar hafa haldið um stjóraartaumana síðasta hálfa árið. Aldrei hefur ofbeldið verið meira en í gær, mánudag, síðustu sex mánuðina. Níu menn voru drepnir og hafa því samtals um 40 manns fallið siðustu tíu dagana. Valda þessar óeirðir Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, og fylkisstjóra hóf- samra sikha sífellt meiri vand- ræðum, en öfgasinnarair krefj- ast þess að Punjab fái sjálfstæði. Fyrir utan bæinn Batala, þar sem ríkt hefur umsátursástand undan- fama daga, voru tvær manneskjur myrtar og um helgina sátu öfga- sinnaðir sikhar fyrir þremur hindú- um og drápu þá. Lögregla segir að sér hafí tekist að ijúfa umsátur öfgasinnanna um Batala, en það hefur staðið síðustu fímm daga. 71 sikhi var handtekinn. íbúar í þorp- um sikha-trúflokksins halda áfram að neita að selja afurðir sínar til borganna og hefur fylkisstjómin gripið til þess ráðs að flytja vömr að annars staðar úr landinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.