Morgunblaðið - 26.03.1986, Side 31

Morgunblaðið - 26.03.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1986 31 Hvað segja þeir um ákvörðun Kvennaframboðsins á Akureyri? KVENNAFRAMBOÐIÐ á Akur- eyri hefur ákveðið að bjóða ekki fram til bæjarstjómarkosning- anna í vor, eins og komið hefur Sigurður Jóhannesson Framsóknarflokki: Eigum betri von um að ná4. fulltrúanum Akureyri. „ÞETTA breytir stöðu mála og Ijóst er að sæti koma til með að færast til. Ég tel að við Fram- sóknarmenn höfum nú ennþá betri von um að ná 4. bæjarfull- trúanum en áður og þannig að bæta við einni konu í bæjar- stjórn — þvi ég vænti þess að verulegur hluti af fylgi kvenna- framboðsins frá þvi siðast skili sér til Framsóknarflokksins," sagði Sigurður Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar og bæjar- fuUtrúi Framsóknarflokksins, í samtali við Morgunblaðið. Sigurður sagðist ekki telja að kvennaframboðið hefði náð að gera eins miklar breytingar á pólitikinni og þær gerðu ráð fyrir fyrir síðustu kosningar. „Almennt séð hefur þátttaka kvenna aukist í pólitík en ég vil ekki þakka kvennafram- boðinu það alfarið. Þessi breyting hefur orðið almennt — ég verð að segja að hjá okkur Framsóknar- mönnum hefur engin breyting orðið á listanum í þessu tilliti, þá og nú er kona í 2. og 4. sæti list- ans,“ sagði Sigurður. Sigurður J. Sigurðsson Sjálf stæðisflokki: Skynsam- legra fyrir konur að vinna innan flokkanna Akureyrí. „FYRIR MÉR sannar þetta það sem við héldum fram f kosninga- baráttunni síðast, að það sé skynsamlegast fyrir konur að hasla sér völl innan flokkanna og vinna að sínum málum þar. Það er skynsamlegar þegar til lengdar lætur,“ sagði Sigurður fram í Morgunblaðinu. Vegna þessarar ákvörðunar ræddi Morg- unblaðið við talsmenn Alþýðu- J. Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið f framhaldi af þeirri ákvörðun kvennafram- boðsins að bjóða ekki fram f vor. „Síðast hefðu tvær konur komið inn í bæjarstjóm í gegnum flokk- ana hefði kvennaframboðið ekki komið fram þannig að ekki breytti það neinu varðandi fjölda kvenna í bæjarstjóm," sagði Sigurður og sagði ákvörðunina nú jafnframt sýna að „svona framboð", hvort sem það héti kvennaframboð eða eitthvað annað væri ekki leiðin til að ná fram breytingum í stjóm- málum. „Eftir síðustu kosningar gerðu kvennaframboðskonur f raun ekkert annað en að endur- vekja þann meirihluta sem kjós- endur felldu í kosningunum." Sigurður sagði þessa ákvörðun móta ný viðhorf til kosninganna í vor og „er augljóst að slegist verð- ur um það fýlgi sem þær fengu síðast. Það er mikilvægt að sá hópur kjósenda, sem breytir af- stöðu sinni frá einum kosningum til annarra, átti sig á því með hvaða hætti hann getur haft áhrif á breytta stjómun í málefnum Akur- eyrar því það er augljóst að kosn- ingabaráttan í vor mun snúast um það fyrst og fyrst og fremst að breyta þeirri mynd,“ sagði Sigurð- ur. Sigríður Stefánsdóttir Alþýðubandalagi: Farin að líta til þriðja mannsins Akureyri. „VIÐ VORUM nokkuð örugg um að fá tvo menn kjörna f vor en nú erum við farin að líta til þriðja mannsins,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins, f fram- haldi af ákvörðun kvennafram- boðsins. Sigríður hefur verið eini fulltrúi Alþýðubandalagsins f bæjarstjórn á kjörtímabilinu. Sigríður sagðist vilja taka fram að hún hefði átt mjög gott sam- starf við fulltrúa kvennaframboðs á kjörtímabilinu. „En löngu áður en kvennaframboðið kom til var konum treyst í Alþýðubandalag- inu. Soffía Guðmundsdóttir var til dæmis bæjarfulltrúi okkar í tólf ár og venjulega hefur hlutfall milli kvenna og karla verið jafnt á lista okkar. Það breytti því engu að þær flokks, Alþýðubandalags, Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og fara ummæli þeirra hér á eftir. skildu hafa boðið fram,“ sagði Sigríður. „Ég tel ekkert meira hafa áunnist á þessu kjörtímabili en oft áður, til dæmis í félagsmál- um. Það hefur auðvitað þokast í rétta átt en ég tel að enn sé langt í land að þau mál sem kvennafram- boðið setti á oddinn nái fram að ganga." Freyr Ófeigsson Alþýðuflokki: Vona að fylgið komi til baka tilokkar AkureyrL „ STAÐREYNDIN er sú að tfl- koma kvennaframboðsins á sín- um tima klauf töluvert skarð í fylgi Alþýðuflokksins. Ég vona því að þetta fylgi komi til baka til okkar nú,“ sagði Freyr Ófeigsson, bæjarfulltrúi Al- þýðuflokks. „Það er ekki útséð hve mörg framboð koma fram — en verði þau fjögur er þetta mín von. Ég hef auðvitað ekki annað að byggja á að en að við töpuðum mestu til kvennafamboðsins við síðustu kosningar. Hinir flokkamir héldu sínu miklu betur miðað við kosn- ingamar 1978. Fylgi okkar var að vísu ef til vill óeðlilega mikið þá — við fengum tvo menn og ekki munaði nema örfáum atkvæðum að við fengjum þann þriðja." Freyr sagðist hafa haft nokkum skiining á kvennaframboðinu á sín- um tíma, „á þeim gmndvelli að konur væm að telja í sjálfa sig kjark til að taka þátt í stjóm- málum. Hins vegar hef ég aldrei skilið rökin fyrir kvennaframboð- inu sem pólitísku afli — ég er á móti kynskiptingu í stjómmálum." Freyr sagðist því telja það skyn- samlega ákvörðun að bjóða ekki fram aftur. Hann sagðist álíta að konur hefðu haslað sér völl innan flokk- anna í þeim mæli sem orðið er hvort sem kvennaframboðið hefði komið fram á sínum tíma. „Og kannski enn meira ef kvennafram- boðskonur hefðu beitt kröftum sín- um innan flokkanna — en þó hafa þær náð því að hleypa kjarki í konur til að taka þátt í pólitík í auknum mæli.“ Seljasókn: Föstuvaka í Öldu- selsskóla á skírdag Kl. 20.00 verður æskulýðsfélag sóknarinnar „SELA“ með dagskrá og kynningu á félaginu. Kl. 21.00 kemur hr. Sigurbjöm Einarsson biskup og flytur erindi um Passíu- sálma Hallgríms Péturssonar. Kl. 22.00 fer fram kynning á Maríusystrareglunni og kl. 23.00 koma þeir félagamir Jónas Ingi- mundarson og Kristinn Sigmunds- son og flytja föstutónlist. A miðnætti verður gengið til helgrar máltíðar svo sem gerðist hiðfyrsta skírdagskvöld. Á milli dagskráratriða verður kaffí á boðstólum og að sjálfsögðu getur fólk komið og farið þegar þvíhentar. Á föstudaginn langa verður guðsþjónusta í Olduselsskóla kl. 11.00 f.h. Verður þar flutt Lítanía sr. Bjama Þorsteinssonar. í hjarta Seljahverfis er nú að rísa kirkjumiðstöð hverfisins. Allir veggir hússins hafa þegar verið steyptir upp og nú er svo komið að á þessu ári verður flutt inn í fyrsta áfanga kirkjumið- stöðvarinnar. Þar verða sam- komusalir og skrifstofa. Mun þessi aðstaða leysa brýnustu þörf safnaðarins, þó svo að almennar guðsþjónustur fari enn fram i Olduselsskóla. Sem dæmi um aðstöðuleysi má nefna að ferm- ingarmessur safnaðarins fara fram í sex kirkjum borgarinnar. Skírdagur verður mikill athafna- dagur í Seljasókn. Tvær fermingar- guðsþjónustur verða á vegum safíi- aðarins. Kl. 10:30 og 14 og báðar í Fríkirkjunni. Kl. 18.00 hefst í Ölduselsskóla föstuvaka með fjölbreyttu efni. Stendur vakan fram til miðnættis og lýkur með altarisgöngu. Fýrsta atriði vökunnar verður fjölskyldusamkoma með almennum söng og atriðum fyrir böm. Kl. 19 verður opinn AA-fundur á vegum deildanna í Seljahverfi. Kl. 8.00 f.h. á páskadagsmorgun verður morgunmessa safnaðarins, guðsþjónusta með gleðibrag, þar sem einsöngvari og trompetleikari munu ásamt kór og organista leiða lofgjörð safíiaðarins. (Fréttatilkynning.) ggllllff^fite IktofSmwI | Góóan daginn! SKÍÐADEILD FRAM Skíðafjör hjá Fram — með súkkulaðibragði f rá Nóa-Síríus. Skíðanámskeið Skiðadeild Fram lieldur skíðanámskcið fyrir byrjendur og lengra komna í Eldborgargili i Bláfjóllum. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 27.3. kl. 12 og stcndur i tvo tíma. Á fostudag- inn heldur námskeiöið áfranr á sama tíma og lokasprctturinn veröur tekinn a laugardaginn kl. 12 með léttu moti fyrir þátttakcndur. Upplýsingar og skrásetning: Guðmundur (36813) og Omar (32198). Páskamót Föstudaginn 28. 3. heldur skíðadeild Fram páskamót fyrir börn 12 ára og yngri í Eldborgargili í Bláfjöllum. Mótið er öllum opið og hefst kl. 14.30. Skrásetning í skíðaskála Fram kl. 13. Verðlaun: Glæsileg páskaegg frá Nóa-Síríus. Fiölskyldumót Skíðadcild Fram hcldur fjölskyldumót í Eldliorgargili i Blá- fjollum sunnudaginn 30. 3 kl. 14. Mótið cr opið öllum almcnningi, engin timataka og braut mjög lctt. Skrásctning við skiðaskála Fram kl 12. Vcrlaun: Glæsileg páskaegg frá Nóa-Sirius.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.