Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Flugeldasyning
Samband tveggja Hrúta
(20. mars— 19. apríl).
Hér á eftir verður fjallað um
tvo dæmigerða Hrúta. Eins og
við vitum flest öll eru allir
samansettir úr nokkrum
stjömumerkjum. Því hafa aðrir
þættir einnig áhrif.
SjálfstœÖur
í sambandi tveggja Hrúta
mætast tveir hressir og óþolin-
móðir persónuleikar. Dæmi-
gerður Hrútur er maður sem
þarf líf og hreyfingu. Hann
bíður ekki eftir því að málin
gangi sjálfkrafa fyrir sig. Ef
hann fær hugmynd, vill hann
ijúka af stað og láta verkin
tala. Hrúturinn er einlægur,
frjálslyndur og óheftur. Hann
er kraftmikill og sjálfstæður.
Lifandi
í sambandi Hrúta má búast við
töluverðum eldglæringum.
Byijun sambandsins ætti að
vera skemmtileg. Það getur
verið hressandi að hitta einlæg-
an og jákvæðan mann sem
ekki gerir veður útaf minnstu
smámunum og er til í að hella
sér út í spennandi athafnir.
Því verður örugglega mikið um
að vera, smámunasemi, var-
kámi og hræðsla við að prófa
nýja hluti ekki til staðar, en
ákafi og kraftur ráðandi.
Hver stjórnar?
í kraftinum og sjálfstæðinu er
fólgið hið varasama við þetta
líflega samband. f fyrsta lagi
kemur sú spuming fyrr eða
síðar upp: Hver á að stjóma?
Þegar tveir sjálfstæðir ein-
staklingar deila kjörum hljóta
fyrr eða síðar að koma upp
árekstrar um stefnu og mark-
mið. Hrúturinn er ekki varkár
einstaklingur. Því er einnig sú
hætta fyrir hendi að rokið sé
út í athafhir sem hvíla ekki á
nægilega traustum grunni.
Skapmikill
Hrúturinn er ör í skapi og á
það til að ijúka upp með eld-
glæringum og hella sér yfir
umhverflð. Hætt er við að
samband tveggja Hrúta geti
orðið full litríkt, að deilur og
barátta einkenni sambandið í
sívaxandi mæli, eða þangað til
báðir aðilar fá nóg. Hrúturinn
er þannig skapi farinn, að hann
rýkur upp en rennur reiðin
fljótt, og er fljótur að fyrirgefa.
Hann er hins vegar kappsfullur
og hvass í deilum og hætt er
við, þegar tveir eiga í hlut, að
orðin verði það stór að ekki
verði aftur snúið.
Hugsunarleysi
Hrúturinn er orkumikill at-
hafnamaður. Hann er snöggur
upp á lagið og drífandi. Hann
er einnig hugmyndaríkur ég-
maður, fær sjálftir hugmyndir
sem hann vill nota sem leiðar-
ljós til fi-amkvæmda. Hrútar
em þvf oft brautryðjendur og
í forystu. Það kemur sér vel á
flestum sviðum lífsins, en eins
og öllu ljósi fylgja því skuggar.
í fyrsta lagi er það sem við
getum kallað hina einlægu
eigingimi. í öðm lagi hið hugs-
unarlausa tillitsleysi. í ákafa
sínum við það að framkvæma
verk og drífa mál áfram, veður
Hrútur oft yfir umhverfíð.
Hann á það til að sjá ekki
þarfír náungans, er í stuttu
máli oft eigingjam og tillits-
laus. Ekki af illu innræti, held-
ur vegna ákafa og óþolinmæði.
Krafturinn og hugsjónaeldur-
inn ber hann iðulega ofviða.
Þegar tveir slíkir em í sam-
bandi er hætt við að útkoman
verði undarleg og fræðandi
fyrir báða aðila. Hvort þeir
geta umborið sjálfan sig í hin-
um er aftur annað mál. Þar
reynir á þroska þeírra.
X-9
fÁNHsr Þúóuemx/v Xo-z&'?
fZWt/toXU&f/XA/P/ i
Af/rr//*/?*‘
báæ/J gfcvx y/r/aœ
/£//&///// 06
'/c/rt/je //////ff/sr/
py/t/rr/f -///*/#
ye>//£/Mf///rrxr./r'
DYRAGLENS
:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
LJÓSKA
!!!!!'.l!!!i!!!!iHH!!!!H!f!!!!!!!!f!!!i!!!!!i!!!!!!!i!H!!!!!!!!!!!!!!!H!!?!!!!!?!!H
FERDINAND
SMAFOLK
I CAN'T BELIEVE IT...
YOU'RE HELPING ME
UIITH MY H0MEWOKK!
IT'5 BETTEK THAN
HAVING YOUK
ATTORNEY 5UE ME..
I IU0N T NEEP YOU
AFTEK ALL, ATTOKNEY..
WE'VE PECIPEP TO
SETTLE OUT 0F COURT...
HOW UJILL I EVER PAY
FORMYNEUJ BRIEFCA5E ?
© 1985 United Feature Syndicate.lnc.
Ég ætla varla að trúa því, Það er betra en að láta Ég þarf ekki á þér að Hvemig í ósköpunum á ég
að þú sért að hjálpa mér lögí'ræðinginn þinn lög- halda, lögfræðingur, þeg- að borga fyrir nýju skjala-
við heimavinnuna! sækja mig... ar til á að taka... Við töskuna mína?
höfum leyst þetta með
sætt...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þungaviktarmennimir í
bandarískum brids, Bobbamir
Hamman og Wolff, margfaldir
heimsmeistarar með meiru,
lenda yfírleitt í réttum samning-
um, en stundum kemur fyrir að
þeir spenna bogann heldur hátt,
að því er virðist. Það gerðu þeir
í þessu spili, sem kom upp í leik
Bandaríkjamanna og Austurrík-
ismanna á HM í Brasilíu I haust,
en hagstæð lega, hagstætt útspil
og vönduð spilamennska skiluðu
þeim þó 11 punkta gróða úr
spilinu.
Norður gefur.
'Norður
♦ ÁD984
VÁ1065
♦ ÁD
Vestur AÁ7 Austur
♦ G1065 + K732
VG9 llllll + 8743
♦ G75 Suður ♦ 1083
+ KD106 4_ ♦ 42
VKD2
♦ K9642
♦ G9853
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf Pass 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2tíglar
Pass 2 hjörtu Pass 3 lauf
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass 6 tíglar Pass Pass
Pass
Þeir spila sína eigin útgáfu
af Precision, þar sem tígulsvarið
við laufopnun lofar hálf-jákvæð-
um spilum, en hjartasvar er
afmelding. Aðrar sagnir em svo
að mestu leyti eðlilegar.
Vestur hefði betur spilað út
laufkóng, en hann bjóst við
stuttu laufí í blindum og tromp-
aði út. Spilið var sýnt á sýning-
artjaldi, og skýrendumir þar
fundu enga leið til að koma
samningnum heim, þótt þeir
sæju öll spilin 52. En Wolff var
fljótur að fínna leiðina til vinn-
ings. Hann trompaði spaða heim
í öðmm slag, fór inn á blindan
á tígul og trompaði aftur spaða.
Tók svo tígulkónginn og létti við
að sjá litinn falla. Síðan vom
fjórir hjartaslagir teknir, þá
spaðaás í þeirri von að kóngur-
inn félli. Það gerðist ekki og þá
var ekki um annað að ræða en
spila spaða og treysta á 4-4-
legu. Það gekk upp, austur fékk
á kónginn en varð að spila blind-
um inn á laufás þar sem 12.
slagurinn beið á spaða.
SKflK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi skák var tefld á IBM-
mótinu í Vín í janúar: Hvítt:
Mednis (Bandaríkjunum), Svart:'
Korchnoi (Sviss), ítalski leikurinn.
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bc4
— g6, 4. c3 — d6, 5. d4 — De7,
6. dxe5 — Rxe5, 7. Rxe5 — dxe5,
8. 0-0 - Rf6, 9. Df3 - Be6, 10.
Bg5! - Bg7, 11. Rd2 - h6, 12.
Bxf6 - Bxf6, 13. Bxe6 - Dxe6,
14. Rc4 - Bg5, 15. b3 - 0-0-0,
16. Hadl - c6, 17. Hxd8+ -
Hxd8, 18. Hdl - h5, 19. Hxd8+
— Bxd8??
Af byijanataflmennsku Mednis
er greinilegt að hann hefur verið
að tefla til jafnteflis, en nú lætur
hann ekki happ úr hendi sleppa:
20. Dxf7! - Dxf7, 21. Rd6+ -
Kc7 (Eða 21. - Kd7, 22. Rxf7 -
Bf6, 23. h4) 22. Rxf7 - Bf6, 23.
Kf 1 og Korchnoi gaf því endatafl-
ið er vonlaust. Það er ekki oft sem
hann er svo léttvægur fundinn,
hvíturgerði ekki neitt nema skipta
upp og vinna síðan peð með
tveggja leikja fléttu.