Morgunblaðið - 26.03.1986, Blaðsíða 52
© lönaöartankinn
MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986
VERÐILAUSASÖLU 40 KR.
Sjónvarpsút-
sending í kvöld
Ekkert sjónvarp á laugardaginn
né annan í páskum
ÚTSENDINGAR sjónvarpsins
falla niður á laugardaginn og
annan páskadag vegna útgöngu
rafeindavirkja, sem deila við
fjármálaráðuneytið um samn-
ingslega stððu sína og Sveinafé-
lags rafeindavirkja. Dagskrá
laugardagskvöldsins hefur verið
flutt að mestu leyti yfír á kvöldið
í kvöld, miðvikudagskvöld. Sjón-
varp féll niður i gærkvöld af
þessum sökum.
Skortur á rafeindavirkjum hjá
Hafernir í
borgarferð
TVEIR ef ekki þrír hafemir
halda til í Reykjavík og nágrenni
þessa dagana, eins og gjaman
gerist á vetrum. Þessi ungi og
myndarlegi haföra, sem ljós-
myndari blaðsins, RAX, sá á
Seltjarnarnesi í gær, hefur verið
þar að dóla undanfarið og valdið
umferðarteppu á Eiðisgranda.
sjónvarpinu — einkum í mynd-
bandadeild — hefur einnig valdið
því, að fréttatímar hafa styst, enda
er mikið af fréttaefninu á mynd-
böndum. „Þegar myndbandadeildin
nýtist okkur ekki nema að hluta
er ekki nema eðlilegt að fréttatím-
arnir verði heldur fátæklegir," sagði
Pétur Guðfínnsson, framkvæmda-
stjóri sjónvarpsins, í samtali við
blm. Morgunblaðsins.
Tveir rafeindavirkjar sneru aftur
til vinnu hjá sjónvarpinu eftir helg-
ina. Á móti lét einn, sem var fyrir,
af störfum, þannig að endurkoma
þeirra tveggja breytir ekki stöðunni
í tæknideiid stofíiunarinnar, að
sögn Eyjólfs Valdimarssonar, yfír-
verkfraeðings sjónvarpsins.
Slmamynd/Bjami
Guðlaugur Unnarsson, einn vélsleðamannanna fjögurra, kominn heim til Stöðvarfjarðar i gærkvöldi.
Með honum á myndinni eru móðir hans, Þorgerður Guðmundsdóttir, og Hólmar bróðir hans.
Vélsleðamennimir fjórir heilir á húfi:
Misstu einn sleðann
Annar hefur sést í Kópavogi
sunnanverðum, á Vatnsendahæð og
jafnvel f grennd við fjölbýlishús í
Breiðholti, og grunur leikur á að
þriðji fuglinn sé í Grafarvogi og
flögri á stundum niður í Elliðaárvog
og Sólheimahverfí. „Það gæti að
vísu verið sá sami og frést hefur
af í Kópavogi og Breiðholti að
undanfömu," sagði Ævar Petersen
náttúrufræðingur í gær, „því mönn-
um ber saman um að það sé eldri
fugi en sá á Nesinu."
Glöggt má þekkja unga fugla
frá þeim eldri á því að ungir emir
eru með dökkt stél og gogg en hinir
eldri lýsast á stél og haus þegar
aldurinn færist yfír þá og jafnframt
gulnar goggurinn, að sögn Ævars.
í gil á heimleiðinni
„ Athugunarleysi“ að hafa ekki haft talstöð með
Stödvarfirði. Prá Helga Bjamasyni, blaðamanni Morgunbladsins.
„LÍKAMLEGA leið okkur alveg prýðilega, við vorum vel klæddir,
með nógan mat og ágætan hita í kofanum. Hins vegar leið okkur
illa að geta ekki látið fólkið heima vita af okkur því við gerðum
okkur grein fyrir því að leit væri hafin,“ sagði Magnús Aðils Stefáns-
son, einn vélsleðamannanna fjögurra sem leitað var að á hálendinu
norðaustan við Vatnajökul. Hann sagði að það hefði verið af „at-
hugunarleysi" að þeir hefðu ekki haft með sér talstöð í ferðina.
Mennimir, sem eru frá Stöðvar-
fírði og nágrenni, fóm á laugar-
daginn í skemmtiferð á vélsleðum
upp frá Breiðdalsheiði og var ferð-
inni heitið að Snæfelli. Auk Magn-
úsar, sem er vélstjóri á Kambaröst-
inni, vom þeir Guðlaugur Unnars-
son, tækjamaður, Svavar Ingólfs-
son, vélvirki, og Guðbjöm Sigur-
pálsson, bóndi, í ferðinni.
Farið var að óttast um þá þegar
þeir komu ekki heim á sunnudag
eins og þeir höfðu áætlað og leit
var hafín. Leitin beindist einkum
að þvi að kanna þá skála sem búist
var við að þeir félagar hefðu látið
fyrirberast í, en gekk seint vegna
veðurs. Þeir komu síðan fram á
bænum Höskuldsstaðaseli efst í
Breiðdal um klukkan 17 í gær.
Guðlaugur Unnarsson lýsti ferð
þoirra á eftirfarandi hátt i samtali
við blaðamann Morgunblaðsins:
„Við héldum á fjórum vélsleðum
frá bflunum á Breiðdalsheiði klukk-
an 11 á laugardagsmorgun, komum
við í sæluhúsinu á Breiðdalsheiði,
fómm þaðan í skálann í Bjamarhíði
við Hombrynju og síðan í skálann
við Geldingafell norðaustan í
Vatnajökli. Þaðan ætluðum við í
skálann við Snæfell og gista þar
um nóttina en urðum fjótlega að
snúa við vegna veðurs. Gott ferða-
veður hafði verið um daginn."
Þeir félagar þurftu síðan að dúsa
í skálanum við Geldingafell í þijá
sólarhringa, eða þar til í gærmorg-
un að rofaði til og héldu þeir þá
af stað klukkan 5 um morguninn.
Ferðin heim sóttist hins vegar seint
vegna skafrennings og kulda. Áttu
þeir í erfíðleikum með að halda
vélsleðunum gangandi vegna kuld-
Fjárliag-serfiðleikar Félags-
málastofnunar leystir í dag
Úttektarmiðar hafa verið notaðir í neyð
„FJARHAGSERFIÐLEIKAR Félagsmálastofnunar hafa verið
leystir þannig að þessu ástandi linnir,“ sagði Ingibjörg Rafnar,
formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar, er Morgunblaðið
spurði hana í gær um þá afgreiðslu á vegum félagsmálastofnun-
ar, að láta fólk, sem aðstoðar þarf við, fá sérstaka úttektarmiða,
en ekki peninga.
Ingibjörg sagði, að oft hefði
verið gripið til svona úttektarmiða
áður, meðal annars þegar vinstri
meirihlutinn réð í Reykjavík. Og
ástandið nú væri betra en til
dæmis vorið 1982 þegar vinstri
meirihlutinn í borgarstjóm hefði
takmarkað þjónustu Félagsmála-
stofnunar. Til þess hefði ekki
komið nú og myndi ekki koma.
Ingibjörg sagði, að áður fyrr
hefðu úttektarmiðar verið notaðir
í ríkum mæli, en síðustu átta til
tíu árin aðeins í undante'kningatil-
fellum. Annars vegar væru þeir
notaðir þegar ekki er um aðra
aðferð að ræða og hins vegar
þegar erfíð greiðslustaða kemur
upp hjá hverfaskrifstofunum, eins
og nú. Þessir greiðsluerfiðleikar
eru nú úr sögunni, þar sem Fé-
lagsmálastofnun fær greiddar á
sjötta hundrað þúsund krónur í
dag, miðvikudag, og sagði Ingi-
björg að þar með yrðu úttektar-
miðar sem neyðarráðstöfun úr
sogunni.
Ingibjörg Rafnar sagði, að
notkun úttektarmiðanna að þessu
sinni hefði verið ýkt mjög í frétt-
um. Til dæmis sagði hún, að í
sjónvarpsfréttum hefði verið sagt,
að þeir hefðu verið allt að 25%
af heildarafgreiðslum. Það rétta
væri hins vegar, að þar sem notk-
un úttektarmiða hefði orðið mest,
í Breiðholti, hefðu þeir verið 19,5%
af afgreiðslum skrifstofunnar og
þegar starfsemi allra skrifstof-
anna í Reykjavík væri tekin
saman hefðu úttektarmiðamir
aðeins verið 7—8% af heildinni.
Sjá bls. 2: Þjóðhagsstofnun
kannar upplýsingar um fá-
tækt, og frásögn á þingsíðu
af umræðum á Alþingi.
ans og miðaði hægt áleiðis vegna
veðursins. Urðu þeir m.a. fyrir því
óhappi að missa einn sleðann ofan
í djúpt gil, en ökumaðurinn náði
að kasta sér af sleðanum á síðustu
stundu. Þeim tókst þó að ná vélsleð-
anum upp úr gilinu, en skömmu
síðan bilaði annar sleði og varð að
skilja hann eftir skammt frá fjallinu
Hombrynju. Þeir félagar voru 12
tíma að komast að bflunum á Breið-
dalsheiði, en í góðu veðri tekur tvo
tíma að komast þessa leið.
Þetta var fyrsta meiriháttar vél-
sleðaferð Guðlaugs, sem er aðeins
17 ára gamall. Hann sagði að
dvölin í skálanum hefði verið góð.
„Það er ekkert grín að þurfa að láta
leita að sér. Við ákváðum þama
að fara ekki aftur í svona ferð án
þess að hafa talstöð meðferðis,"
sagði Guðlaugur. Magnúsi og Guð-
laugi bar saman um að þeir hefðu
verið vel búnir að flestu leyti, en
fæm ekki aftur í svona ferð án
þess að hafa talstöð, útvarp og
ísvara meðferðis.
Magnús vildi koma innilegu
þakklæti á framfaeri við alla þá sem
lagt höfðu hönd á plóginn við leit-
ina.
Sjá ennfremur á bls. 2:
„Leitarmenn bíða af sér
aftakaveður í Bjarnarhíði."
Kópavognr:
Alvarlegt
umferðarslys
ALVARLEGT umferðarslys varð u
Álfhólsvegi í Kópavogi um kl. 11 i
gærkvöld. 19 ára stúlka, sem þar
var á gangi, varð fyrir bfl og slasað-
ist mikið. Hún var flutt á slysadeild
og var talin í lífshættu. Lögreglan
í Kópavogi hefur beðið Morgun-
blaðið að biðja hugsanlega sjónar-
votta að slysinu að gefa sig fram.