Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 52
 © lönaöartankinn MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986 VERÐILAUSASÖLU 40 KR. Sjónvarpsút- sending í kvöld Ekkert sjónvarp á laugardaginn né annan í páskum ÚTSENDINGAR sjónvarpsins falla niður á laugardaginn og annan páskadag vegna útgöngu rafeindavirkja, sem deila við fjármálaráðuneytið um samn- ingslega stððu sína og Sveinafé- lags rafeindavirkja. Dagskrá laugardagskvöldsins hefur verið flutt að mestu leyti yfír á kvöldið í kvöld, miðvikudagskvöld. Sjón- varp féll niður i gærkvöld af þessum sökum. Skortur á rafeindavirkjum hjá Hafernir í borgarferð TVEIR ef ekki þrír hafemir halda til í Reykjavík og nágrenni þessa dagana, eins og gjaman gerist á vetrum. Þessi ungi og myndarlegi haföra, sem ljós- myndari blaðsins, RAX, sá á Seltjarnarnesi í gær, hefur verið þar að dóla undanfarið og valdið umferðarteppu á Eiðisgranda. sjónvarpinu — einkum í mynd- bandadeild — hefur einnig valdið því, að fréttatímar hafa styst, enda er mikið af fréttaefninu á mynd- böndum. „Þegar myndbandadeildin nýtist okkur ekki nema að hluta er ekki nema eðlilegt að fréttatím- arnir verði heldur fátæklegir," sagði Pétur Guðfínnsson, framkvæmda- stjóri sjónvarpsins, í samtali við blm. Morgunblaðsins. Tveir rafeindavirkjar sneru aftur til vinnu hjá sjónvarpinu eftir helg- ina. Á móti lét einn, sem var fyrir, af störfum, þannig að endurkoma þeirra tveggja breytir ekki stöðunni í tæknideiid stofíiunarinnar, að sögn Eyjólfs Valdimarssonar, yfír- verkfraeðings sjónvarpsins. Slmamynd/Bjami Guðlaugur Unnarsson, einn vélsleðamannanna fjögurra, kominn heim til Stöðvarfjarðar i gærkvöldi. Með honum á myndinni eru móðir hans, Þorgerður Guðmundsdóttir, og Hólmar bróðir hans. Vélsleðamennimir fjórir heilir á húfi: Misstu einn sleðann Annar hefur sést í Kópavogi sunnanverðum, á Vatnsendahæð og jafnvel f grennd við fjölbýlishús í Breiðholti, og grunur leikur á að þriðji fuglinn sé í Grafarvogi og flögri á stundum niður í Elliðaárvog og Sólheimahverfí. „Það gæti að vísu verið sá sami og frést hefur af í Kópavogi og Breiðholti að undanfömu," sagði Ævar Petersen náttúrufræðingur í gær, „því mönn- um ber saman um að það sé eldri fugi en sá á Nesinu." Glöggt má þekkja unga fugla frá þeim eldri á því að ungir emir eru með dökkt stél og gogg en hinir eldri lýsast á stél og haus þegar aldurinn færist yfír þá og jafnframt gulnar goggurinn, að sögn Ævars. í gil á heimleiðinni „ Athugunarleysi“ að hafa ekki haft talstöð með Stödvarfirði. Prá Helga Bjamasyni, blaðamanni Morgunbladsins. „LÍKAMLEGA leið okkur alveg prýðilega, við vorum vel klæddir, með nógan mat og ágætan hita í kofanum. Hins vegar leið okkur illa að geta ekki látið fólkið heima vita af okkur því við gerðum okkur grein fyrir því að leit væri hafin,“ sagði Magnús Aðils Stefáns- son, einn vélsleðamannanna fjögurra sem leitað var að á hálendinu norðaustan við Vatnajökul. Hann sagði að það hefði verið af „at- hugunarleysi" að þeir hefðu ekki haft með sér talstöð í ferðina. Mennimir, sem eru frá Stöðvar- fírði og nágrenni, fóm á laugar- daginn í skemmtiferð á vélsleðum upp frá Breiðdalsheiði og var ferð- inni heitið að Snæfelli. Auk Magn- úsar, sem er vélstjóri á Kambaröst- inni, vom þeir Guðlaugur Unnars- son, tækjamaður, Svavar Ingólfs- son, vélvirki, og Guðbjöm Sigur- pálsson, bóndi, í ferðinni. Farið var að óttast um þá þegar þeir komu ekki heim á sunnudag eins og þeir höfðu áætlað og leit var hafín. Leitin beindist einkum að þvi að kanna þá skála sem búist var við að þeir félagar hefðu látið fyrirberast í, en gekk seint vegna veðurs. Þeir komu síðan fram á bænum Höskuldsstaðaseli efst í Breiðdal um klukkan 17 í gær. Guðlaugur Unnarsson lýsti ferð þoirra á eftirfarandi hátt i samtali við blaðamann Morgunblaðsins: „Við héldum á fjórum vélsleðum frá bflunum á Breiðdalsheiði klukk- an 11 á laugardagsmorgun, komum við í sæluhúsinu á Breiðdalsheiði, fómm þaðan í skálann í Bjamarhíði við Hombrynju og síðan í skálann við Geldingafell norðaustan í Vatnajökli. Þaðan ætluðum við í skálann við Snæfell og gista þar um nóttina en urðum fjótlega að snúa við vegna veðurs. Gott ferða- veður hafði verið um daginn." Þeir félagar þurftu síðan að dúsa í skálanum við Geldingafell í þijá sólarhringa, eða þar til í gærmorg- un að rofaði til og héldu þeir þá af stað klukkan 5 um morguninn. Ferðin heim sóttist hins vegar seint vegna skafrennings og kulda. Áttu þeir í erfíðleikum með að halda vélsleðunum gangandi vegna kuld- Fjárliag-serfiðleikar Félags- málastofnunar leystir í dag Úttektarmiðar hafa verið notaðir í neyð „FJARHAGSERFIÐLEIKAR Félagsmálastofnunar hafa verið leystir þannig að þessu ástandi linnir,“ sagði Ingibjörg Rafnar, formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar, er Morgunblaðið spurði hana í gær um þá afgreiðslu á vegum félagsmálastofnun- ar, að láta fólk, sem aðstoðar þarf við, fá sérstaka úttektarmiða, en ekki peninga. Ingibjörg sagði, að oft hefði verið gripið til svona úttektarmiða áður, meðal annars þegar vinstri meirihlutinn réð í Reykjavík. Og ástandið nú væri betra en til dæmis vorið 1982 þegar vinstri meirihlutinn í borgarstjóm hefði takmarkað þjónustu Félagsmála- stofnunar. Til þess hefði ekki komið nú og myndi ekki koma. Ingibjörg sagði, að áður fyrr hefðu úttektarmiðar verið notaðir í ríkum mæli, en síðustu átta til tíu árin aðeins í undante'kningatil- fellum. Annars vegar væru þeir notaðir þegar ekki er um aðra aðferð að ræða og hins vegar þegar erfíð greiðslustaða kemur upp hjá hverfaskrifstofunum, eins og nú. Þessir greiðsluerfiðleikar eru nú úr sögunni, þar sem Fé- lagsmálastofnun fær greiddar á sjötta hundrað þúsund krónur í dag, miðvikudag, og sagði Ingi- björg að þar með yrðu úttektar- miðar sem neyðarráðstöfun úr sogunni. Ingibjörg Rafnar sagði, að notkun úttektarmiðanna að þessu sinni hefði verið ýkt mjög í frétt- um. Til dæmis sagði hún, að í sjónvarpsfréttum hefði verið sagt, að þeir hefðu verið allt að 25% af heildarafgreiðslum. Það rétta væri hins vegar, að þar sem notk- un úttektarmiða hefði orðið mest, í Breiðholti, hefðu þeir verið 19,5% af afgreiðslum skrifstofunnar og þegar starfsemi allra skrifstof- anna í Reykjavík væri tekin saman hefðu úttektarmiðamir aðeins verið 7—8% af heildinni. Sjá bls. 2: Þjóðhagsstofnun kannar upplýsingar um fá- tækt, og frásögn á þingsíðu af umræðum á Alþingi. ans og miðaði hægt áleiðis vegna veðursins. Urðu þeir m.a. fyrir því óhappi að missa einn sleðann ofan í djúpt gil, en ökumaðurinn náði að kasta sér af sleðanum á síðustu stundu. Þeim tókst þó að ná vélsleð- anum upp úr gilinu, en skömmu síðan bilaði annar sleði og varð að skilja hann eftir skammt frá fjallinu Hombrynju. Þeir félagar voru 12 tíma að komast að bflunum á Breið- dalsheiði, en í góðu veðri tekur tvo tíma að komast þessa leið. Þetta var fyrsta meiriháttar vél- sleðaferð Guðlaugs, sem er aðeins 17 ára gamall. Hann sagði að dvölin í skálanum hefði verið góð. „Það er ekkert grín að þurfa að láta leita að sér. Við ákváðum þama að fara ekki aftur í svona ferð án þess að hafa talstöð meðferðis," sagði Guðlaugur. Magnúsi og Guð- laugi bar saman um að þeir hefðu verið vel búnir að flestu leyti, en fæm ekki aftur í svona ferð án þess að hafa talstöð, útvarp og ísvara meðferðis. Magnús vildi koma innilegu þakklæti á framfaeri við alla þá sem lagt höfðu hönd á plóginn við leit- ina. Sjá ennfremur á bls. 2: „Leitarmenn bíða af sér aftakaveður í Bjarnarhíði." Kópavognr: Alvarlegt umferðarslys ALVARLEGT umferðarslys varð u Álfhólsvegi í Kópavogi um kl. 11 i gærkvöld. 19 ára stúlka, sem þar var á gangi, varð fyrir bfl og slasað- ist mikið. Hún var flutt á slysadeild og var talin í lífshættu. Lögreglan í Kópavogi hefur beðið Morgun- blaðið að biðja hugsanlega sjónar- votta að slysinu að gefa sig fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.