Morgunblaðið - 27.03.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
Samið í álverinu ^
í anda ASÍ og VSÍ
SAMNINGAR tókust í fyrrinótt milli íslenska álfélagsins hf. og
samninganefndar verkalýðsfélaganna tíu, sem starfsmenn í álverinu
í Straumsvík eru félagar í. Samningurinn gildir frá 26. febrúar til
áramóta.
Að sögn Jakobs Möller, formanns
samninganefndar álversins, eru
samningamir samhljóða nýgerðum
kjarasamningum ASÍ og vinnuveit-
enda. Auk þess var samið um lag-
færingar á einstökum atriðum gild-
andi kjarasamninga starfsmanna
og lokið var við endurskoðun á
launakerfisbreytingu, serti hafist
var handa við á síðasta ári. „Ekkert
af þessu breytir heildamiðurstöð-
unni,“ sagði Jakob.
Ekki tókst að jafna ágreining
álversins og verkalýðsfélaganna um
fjölda starfsmanna á næturvöktum
í steypuskála en um það stóð deilan
alllengi, eins og fram kom í blaðinu
í fyrri viku.
Verkalýðsfélögin munu bera
samningana undir starfsmenn í ál-
verinu næstkomandi þriðjudag, 1.
apríl.
Saltfiskfram-
leiðslan aukin
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
FRAMLEIÐSLA á saltfiski það
sem af er árinu hefur gengið vel
og er meiri en á sama tíma í
fyrra, meðal annars vegna verk-
falls sjómanna á síðasta ári.
Ennfremur hefur gengið vel að
selja á aðra markaði en á Spáni,
þar sem Evrópubandalagið hefur
úthlutað Spánverjum fremur litl-
um innflutningskvóta. Vonir
standa til að úr því rætist innan
tíðar og eru söluhorfur fyrir
saltfisk taldar góðar út árið.
í upphafi árs var samið um sölu
á 25.000 lestum af saltfiski til
Portúgals, en auk þess hefur verið
samið um sölu á 5.000 þangað.
Ennfremur hafa um 2.000 lestir
verið seldar til Ítalíu og nokkurt
magn hefur farið til Spánar. Magn-
ús Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sölusambands íslenzkra fiskfram-
leiðenda, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að Evrópubandalagið
hefði úthlutað Spánveijum litlum
innflutningskvóta og ylli það tíma-
bundnum erfiðleikum við útflutning
þangað. Tekizt hefði að selja þá
farma, sem komnir hefðu verið til
Spánar, og lítilsháttar farið að auki.
Unnið væri að lausn þessa máls og
vonir stæðu til að hún fyndist í
Slysið á Álf hólsvegi:
Stúlkan lést
á slysadeild
Stúlkan, sem varð fyrir bifreið á
Álfhólsvegi í Kópavogi í fyrra-
kvöld lést eftir að komið var með
hana á slysadeild. Hún var 19
ára gömul. Ekki er unnt að birta
nafn hennar að svo stöddu.
næsta mánuði. Innflutningskvóti
Portúgala væri mun stærri og fram-
leiðendum því óhætt að framleiða
á aðra markaði en Spán um þessar
mundir.
Biðu rólegarmeð beltin spennt
Lada-bill valt eftir árekstur við Mazda-bíl á horni Suðurgötu og Fálkagötu. Nærstaddir réttu bílinn
við, rúmri mínútu eftir óhappið, og eldri konur, sem í bílnum voru, sátu hinar rólegustu með
beltin spennt. Þær sluppu ómeiddar.
Óskiljanlegt samræmi er á milli
verðbólguspár og vaxtalækkunar
- segir Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur VSÍ
og VSI og
samvinnufé-
ÓSKILJANLEGT ósamræmi er á milli boðaðrar vaxtalækkunar
Seðlabanka íslands og verðbólguspár bankans, að sögn Vilhjálms
Egilssonar, hagfræðings Vinnuveitendasambands íslands. „Ef þeir
Seðlabankamenn trúa á verðbólguspá sina er ekki heil brú i ákvörð-
un þeirra um vaxtalækkun," sagði Vilhjálmur í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær. „Standist þeirra spá jafngildir það því, að
þeir hafi ákveðið að raunvextir af sparisjóðsreikningum skuli vera
mínus 5-6%, raunvextir af óverðtryggðum lánum skuli vera um núll
og vextir af verðtryggðum lánum 4-5%,“ sagði hann.
í verðbólguspá Seðlabankans
fyrir mars og apríl er gert ráð fyrir
að vísitala framfærslukostnaðar
fari hinn 1. maí um hálft prósent
yfir þau mörk, sem miðað var við
í nýgerðum samningum Alþýðu-
sambands íslands og vinnuveitenda
með þátttöku ríkisvaldsins. Vil-
hjálmur Egilsson sagði að Þjóð-
hagsstofnun gerði ráð fyrir, í sínum
útreikningum, að verðbólga yrði við
þessi mörk. „Mér sýnist því augljóst
að það sé mikið ósamræmi milli
vaxtaákvörðunar Seðlabankans
(um að lækka vexti almennt um
4,5 prósentustig) og verðbólguspár
þeirra. Það vaknar því sú spuming
hvort vaxtaákvörðun þeirra hafi
verið tekin á faglegum grundvelli
eða hvort þeir hafi áttað sig á þessu
misræmi," sagði hann.
„Ef spá þeirra er rétt þá verður
verðbólguhraðinn í mars og apríl
14-15%. Það þýðir að sparisjóðs-
vextir verða stórlega neikvæðir á
þessum tíma og önnur inn- og útlán
bera raunvexti, sem eru innan við
eitt prósent. Vaxtastefna bankans
virðist því ekki vera í neinu sam-
ræmi við það, sem þeir tala um á
öðrum sviðum," sagði hagfræðing-
ur Vinnuveitendasambandsins.
Hann benti á, að spár Þjóðhags-
stofnunar og ASÍ og VSÍ gerðu ráð
fyrir að verðbólguhraðinn þessa tvo
mánuði, mars og apríl, yrði um 10%
og samkvæmt henni gæti vaxta-
lækkunin staðist. „Hvemig á þessu
stendur veit ég ekki,“ sagði hann,
„en ef þeir hafa rétt fyrir sér og
við ekki, þá þarf launanefnd okkar
og verkalýðshreyfingarinnar að
koma saman strax eftir 1. maí og
þá er allt komið í óvissu."
í samningum ASÍ og vinnuveit-
enda er gert ráð fyrir launanefnd,
skipuð jafnt af ASÍ
Vinnumálasambandi
laganna, skuli fylgjast með breyt-
ingum verðlags og kaupmáttar.
Hún skal meta ástæður til launa-
hækkana fari verðlagshækkanir
fram úr viðmiðunarmörkum (sem
gera ráð fyrir að hækkun fram-
færsluvísitölu frá áramótum til 1.
maí verði innan við 2,5%) og telji
hún ástæðu til kauphækkana skal
niðurstaða hennar liggja fyrir eigi
síðar en 25. dag útreikningsmánað-
arins, þ.e. 25. maí, verði hækkun
vísitölunnar 1. maí orðin meiri en
2,5%.
Fjórar óskarsverðlauna-
myndir þegar verið sýndar
FJÓRAR þeirra kvikmynda sem
unnu til verðlauna á 58. Óskars-
verðlaunahátíðinni hafa verið
eða eru sýndar í kvikmyndahús-
um í Reykjavik.
Besta kvikmyndin, „Jörð í Afr-
íku“, er sýnd í Laugarásbíói um
Myndbandstæki rennaút
eins og heitar lummur
Margf öld meðalsala og leigurnar anna ekki eftirspurn
Myndbandaæði virðist hafa runnið á Reykvíkinga í kjölfar
truflana á sjónvarpsdagskránni vegna uppsagna tæknimanna.
Morgunblaðið fékk þær upplýsingar hjá nokkrum verslunum, sem
selja myndbönd, að salan væri óvenju mikil um þessar mundir,
Jafnvel áttfalt eða tífalt meiri en venjulega". Þá er einnig mikið
að gera á myndbandaleigum.
„Við höfum orðið áþreifanlega
varir við söluaukningu," sagði
einn viðmælandi blaðsins. „Það
er hægt að tala um ný jól í grein-
inni. Við áttum von á aukningu
bæði vegna tæknimannadeilunnar
og páskanna, en engu í líkingu
við þetta. Það minnir mann einna
helst á söluna í verkfalli BSRB
1984. Jafnvel fólk, sem aldrei
hefur látið sér detta í hug að
j kaupámyndband,slær fil.1
Það er eflaust margt sem veld-
ur þessum sölukipp — það er löng
helgi framundan og fólk treystir
ekki á sjónvarpið meðan tækni-
menn fást ekki til starfa," sagði
þessi viðmælandi.
Aðrir myndbandasalar, sem
Morgunblaðið hafði samband við,
tóku í sama streng. „Æt!i salan
hafi ekki átt- eða tífaldast hjá
okkur síðastliðna daga,“ sagði
einn.
„Við fengum þijátíu tækja
sendingu í gær og hún er að verða
uppseld," sagði annar. Þeir voru
sammála um, að óstöðugleiki sjón-
varpsdagskrárinnar hefði sitt að
segja og einnig hin langa páska-
helgi — þeir hefðu heyrt það á
fólki sem komið hefði og keypt
tæki.
„Tækin koma varla inn og fjöldi
manns er á biðlista," sagði tals-
maður myndbandaleigu, sem
einnig leigir út tæki. „Það er
bijálað að gera, margfalt meira
en á venjulegum fimmtudegi.
Eftirspum eftir nýju efni er að
sjálfsögðu mest, en ef fólk fær
það ekki, tekur það bara það sém'
hendi er næst," sagði hann.
Sama er upp á teningnum hjá
öðrum myndbandaleigum sem
leigja tæki. „Nei, því miður, engin
tæki,“ var svarið sem blaðamaður
fékk I óspurðum fréttum er hann
hringdi á eina leiguna.
„Það er hátíð hjá okkur. Það
liggur við, að borgi sig að greiða
tæknimönnum sjónvarpsins pró-
sentur svo þeir sitji heima," sagði
einn.
Af deilu tæknimanna er það
að frétta, að í gær var ákveðið
að fulltrúar þeirra og fjármála-
ráðuneytisins hittust á fundi í
næstu viku. Talsmaður tækni-
mannanna sagði í gær að nú
væri mun meiri líkur á því en áður
að samkomulag tækist og tækni-
menn snérd aftUrtíl vftírim >‘ r* *
♦ j .V.a
þessar mundir, kvikmyndin „Coc-
oon“ hefur þegar verið sýnd í Bíó-
höllinni en leikarinn Don Ameche
hlaut Óskar fyrir bestan leik í
aukahlutverki í þeirri mynd. Þá
hefur kvikmyndin „Heiður Prizzis",
sem leikkonan Anjelica Huston
hlaut Óskar fyrir besta leik í auka-
hlutverki fyrir, verið sýnd í Bíóhöll-
inni og kvikmyndin „Gríman", sem
verðlaunuð var fyrir bestu förðun,
hefur þegar verið sýnd í Laugarás-
bíói. Kvikmyndin „Vitnið", sem
sýnd var í Háskólabíói fékk verð-
laun fyrir besta frumsamda kvik-
myndahandritið.
Bíóhöllin mun innan skamms
taka til sýningar „Koss kóngulóar-
konunnar" en William Hurt sem
leikur aðalhlutverkið hlaut Óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í þeirri
mynd.
Nýja Hagkaup
opnar 13.
ágúst 1987
OPNUNARDAGUR hins nýja
verzlunarhúss Hagkaups í
Kringlumýri hefur verið ákveð-
inn. Verzlunarhúsið verður opn-
að fimmtudaginn 13. ágúst 1987.
Nú stendur yfir samkeppni um
nafn á verzlunarhúsið. Eigi færri
en rúmlega 5000 tillögur hafa
borizt svo það verður ærið verkefni
fyrir dómntefhdmá að ■fara-yfir til-
t ■■ lögunjfy*:• y(5 í|; |Jt [:■;l\ T