Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1986
7
íbúðakaup á Spáni:
Ibúðir á Benal
Beach uppseldar
„íslendingar brugðust of seint við,“ segir
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Utsýnar
„ÍSLENDINGAR bregðast of
seint við þegar einstök tækifæri
bjóðast eins og var í þessu til-
felli,“ sagði Ingólfur Guðbrands-
son, forstjóri Útsýnar, vegna
fréttar í Morgunblaðinu um leyfi
til kaupa á orlofshúsum á Spáni.
í fréttinni er haft eftir Sigurði
Jóhannssyni hjá gjaldeyriseftir-
liti Seðlabankans að svo virtist
Spánar nú um páskana til að kanna
hvort nokkur kaup muni ganga til
baka hjá öðrum, sem íslendingar
gætu þá ef til vill gengið inn í.
„Það ætti að vera kostur fyrir
væntanlega kaupendur að Útsýn
er með starfsmann á Cosjta Del Sol
og ódýrar ferðir á milli íslands og
Spánar allt árið um kring," sagði
Ingólfur Guðbrandsson.
Morgunblaðið/Eggert
Snemmborið íFljótshlíð
^ Kirkjulæk, Fljótshlíð.
Á TORFASTÖÐUM í Fljótshlíð hjá Rúnari bónda Ólafssyni var
borin á miðvikudagsmorguninn síðasta tvílembd ær, með tveim-
ur fallegum hrútlömbum. Bæði lömbin voru hraust og faUeg,
þó kuldalegt væri úti og mikill snjór, mesti sqjór sem komið
hefur í vetur.
Pétur Einars-
son leikhús-
sljóri LA?
STJÓRN Leikfélags Akureyrar
ákvað á fundi sínum í gær að
ganga til samstarfs við Pétur
Einarsson leikara og fyrrverandi
skólastjóra Leiklistarskóla ís-
lands um að hann taki að sér
leikhússtjórn við Leikfélag Ak-
ureyrar frá 1. maí næstkomandi
að telja til næstu 2ja ára.
Verði af ráðningu Péturs í starf
leikhússstjóra LA, tekur hann við
af Signýju Pálsdóttur, sem verið
hefur leikhússtjóri að undanfömu,
en hún hefur sagt starfi sínu lausu.
sem dregið hefði úr áhuga fyrir
húsakaupunum, eftir að leyfi
fékkst fyrir gjaldeyrisyfir-
færslu.
Ingólfur sagði að Útsýn hefði um
síðustu áramót auglýst íbúðir í
íbúða- og þjónustumiðstöðinni á
Benal Beach á Costa Del Sol. Þá
hefði Útsýn, sem umboðsaðili, tekið
frá nokkrar íbúðir, en frestur var
fjórar vikur. „Fjöldi fyrirspuma
barst, en allir frestuðu ákvörðun
með þeim afleiðingum að nú em
allar íbúðimar seldar öðmm,“ sagði
Ingólfur. „Aðeins sjö var óráðstafað
síðastliðinn föstudag, af 1041 íbúð.
Seinustu dagana hefur fjöldi beiðna
borist Útsýn, frá félagasamtökum
og stofnunum hér á landi um fyrir-
greiðslu við kaup á íbúðum á Benal
Beach, en því miður of seint."
Ingólfur kvaðst vera á fömm til
Landsvirkjun
greiðir 44
millj. í arð
STJÓRN Landsvirkjunar ákvað
á fundi sinum 16. mars síðastlið-
inn að greiða eigendum fyrirtæk-
isins arð með hliðsjón af góðri
rekstrarafkomu árið 1985. Arð-
greiðslumar nema samtals rúm-
um 44 milljónum króna.
Arðgreiðslumar miðast við 6%
af eigin fjárframlögum eigenda til
Landsvirkjunar framreiknuð til árs-
loka 1985. Þannig reiknaðar em
arðgreiðslumar að fjárhæð alls
44.987.211 krónur sem sundurlið-
ast þannig milli eigenda: Ríkissjóð-
ur 22.493.000, Reykjavíkurborg
20.030.000 krónur og Akureyrar-
bær 2.463.000 krónur. Þetta mun
vera í annað skipti sem Landsvirkj-
un greiðir arð vegna góðrar rekstr-
arafkomu.
Rannsóknir á
Rockall-svæðinu:
Danir koma
til viðræðna
HINN 10. aprfl nk. er væntanleg
til Reykjavíkur sendinefnd frá
Danmörku til viðræðna við ís-
lendinga um visindarannsóknir á
Rockall-svæðinu.
Að sögn Ingva S. Ingvarssonar
ráðuneytisstjóra í utannkisráðu-
neytinu lögðu íslendingar fram á
fundi í Kaupmannahöfn í september
sl. tillögu um sameiginlegar rann-
sóknir Dana og íslendinga á jarð-
lögum á Rockall-svæðinu og verður
fundurinn í Reykjavík í apríl í fram-
haldi af Kaupmannahafnarfundin-
um. Verður farið yfir rannsókna-
áætlunina á fundinum hér, sagði
Ingvi S. Ingvarsson.
I íslensku viðræðunefndinni eiga
sæti Hans G. Andersen sendiherra
íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
og Eyjólfur Konráð Jónsson for-
maður utanríkismálanefndar Al-
þingis. Ekki hefur verið tilkynnt
hveijir kortia M Danmörku til
þessara viðræðna.
Þú finnur allt á þessum sólríku skemmtistöðum; frábærar baðstrendur
• fjölbreytta og vandaða hótel- og íbúðargistingu • stóra og litla veitingastaði • aragrúa verslana
• fjölda diskóteka • stórkostlega möguleika á lengri og styttri skoðunarferðum • þrautreynda fararstjóm
• sérstaka bamafararstjóm og bamaklúbb • endalausa möguleika á leikjumog fjöri •vatnsrennibraut og
tennisvelli • bowling- og kappakstursbrautir • hijómleika og leiksýningar • sirkus og sædýrasafn
• innfædda borgarbúa • ítalskaferðamenn • erlendaferðamenn •—allt.
Adriatic Riviern of
Emilia - Romagnn (Italy )
Rimini
Riccionc
Cattolica
Cesenatico
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adriatico
Udi di CÓmacchio
Savignano a Mare
Bellaria • Igea Marina
Cervia - Mllano Marittima
Ravenna e le Sue Marine
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727