Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 3
.r.r.r t?„r.. n■ .n.iTw..,, ‘jiiirfjTffinrrf. rvtmrjrxTtr ^a.. MORGUNBLAÐIÐ, VIÐalKlHl/AIVINNULfF FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 B 3 EFTA íslendingar lýstu áhyggjum sínum yfir ríkisstyrkjum Á fundi ráðgjafamefndar Frí- verslunarsamtaka Evrópu, EFTA, þar sem Albert Guð- mundsson iðnaðarráðherra var í forsæti að þessu sinni, var sem oftar rætt um það hvernig megi ryðja margvíslegum hindrunum úr vegi i viðskiptum milli EFTA- landanna og eins við Evr- ópubandalagslöndin. Fulitrúar íslands í nefndinni hafa um ára- bil vakið athygli á vaxandi ríkis- styrkjum til ýmissa atvinnu- greina í mörgum Evrópulöndum og hvernig þeir grafa undan öllu fríverslunarsamstarfi. Ólafur Davíðsson, fulltrúi Félags ísl. iðnrekenda í nefndinni, gerði þessi mál enn að umtalsefni á fundinum í Genf og benti sér- staklega á hvemig undirboð í skjóli ríkisstyrkja í nágranna- löndunum væra að leika íslensk- an skipasmiðaiðnað. í ræðu sinni benti Ólafur á að á íslandi væri orðið æ erfiðara að veija grundvallarregluna um fijáls viðskipti milli landa vegna þess að sú tilfínning væri orðin almenn að ríkisstyrkir til ýmiss konar iðnaðar í nágrannalöndunum færu vaxandi og áhrif slíks á almenningsálitið væru langt umfram raunverulegan fjölda tilfella af þessu tagi. Ólafur benti einnig á að á Islandi stæðu menn ekki einungis frammi fyrir slfkum tilfellum í hefðbundn- um greinum. íslenskt efnahagslíf byggðist á fískveiðum og físk- vinnslu, sem væri grein er væri rík- isstyrkt í ríkum mæli í helstu samkeppnisjöndum okkar. Þar að auki staeðu íslendingar frammi fyrir magntakmörkunum varðandi fisk- útflutning til ýmissa EB-landa og þar væru síðstu dæmin tvö nýjustu EB-ríkin, sem hefðu verið fastir fískkaupendur á íslenskum sjávar- afurðum frá fomu fari. Allt þetta kvað Ólafur hafa átt þátt í að gera aðstoð stjómvalda við iðngreinar að mikilvægu en viðkvæmu um- ræðuefni á Islandi. Ólafur sagði að sér væri ljóst að þessi málefni ríkisstyrkja væru nú til athugunar hjá efnahagsnefnd samtakanna. Hann kvaðst vonast til að þessari athugun yrði lokið hið bráðasta og að hún myndi varpa ljósi á þetta mikilvæga en hvimleiða mál, sem hefði því miður ekki tekist með fyrri athugun. Hann minnti einnig á að þótt athuganir af þessu tagi væru oft gagnlegar, þá væri prófraunin fólgin í framkvæmdinni. Hann kvaðst þess fullviss að ekki myndi standa á íslendingum að grípa til allra nauðsynlegra ráðstaf- ana í þessu skyni en þær ráðstafanir yrðu áreiðanlega í fyllsta samræmi við þær alþjóðlegu sámþykktir sem þjóðin hefði gengist undir að hlíta. Iðnþróunar- sjóður lækkar vexti ÚTLÁNAVEXTIR Iðnþróunar- sjóðs lækkuðu frá og með 1. apríl sl. úr 11% í 9,5%. Útlána- vextir höfðu fram að þeim tíma verið óbreyttir frá 1. maí 1985. í frétt frá Iðnþróunarsjóði segir að útlán sjóðsins hafi samkvæmt lögum verið gengistryggð miðað við bandaríkjadollar. Lögum sjóðsins hefur nú verið breytt og eftir mitt þetta ár býður sjóðurinn upp á lán f fleiri gjaldmiðlum. Sjálfvirkt stýrikerfi milli áfyllingar- vélar og vogar NÁKVÆM áfylling er mjög þýð- ingarmikil í matvæla- og efnaiðn- aði. Áfyllingin á ekki aðeins að vera nákvæm heldur einnig hröð og helst sjálfvirk. Svissneska fyrirtækið Mettler er eitt þeirra fyrirtækja sem framleiðir stýri- tæki, sem em tengiliðir milli áfyllingarvélar og vogar. í frétt frá Kristjánsson hf., sem er umboðsaðili Mettlers á Islandi, að stýritækið, Digitalkomparator KDIO sé nýjung, einkum fyrir meðalstóra framleiðendur. KDIO er hægt að tengja við allar Mettler-vogir (Mettler framleiðir iðnaðarvogir), og er tækið varið fyrir vatni og ryki og hefur úttak fyrir tenginu við tölvu. Mettler- vogir mæla þunga frá míkrógrammi upp í 6 tonn. Hún hefur það aHt - OG MEIRA TTL Olympia Mastertype sameinar meistaralega háþróaða rafeindatækni og ítrustu kröfur um vinnuþægindi. Ritvél fyrir mikið vinnuálag á lágu verði. Olympia Startype með 40 stafa skjá, 18 minniseiningar, feitletri, gleiðletri, undirstrikun, miðjusetningu, spássíujöfnun og mörgum letur- og litabandagerðum o.m.fl. Sannkölluð stjörnuvél á skínandi góðu verði. Tölvutengi fáanleg við báðar gerðir ÁRMÚLA 22, SÍMI83022,108 REYKJAVlK Vióskipti í erlendum gjaldeyri GENGISÁHÆTTA OG SKULDASTYRING Stjórnunarfélag íslands heldur námskeiö sem ætlaö er stjórnendum fyrirtækja og stofnana og öörum þeim er taka ákvarðanir um viðskipti í erlendum gjaldeyri. Markmið þess er að auka þekkingu og hæfni við ákvarðanatöku f fjármálastjórn. Efni: — Grundvallaratriði í skuldastýringu og markmið varðandi gengisáhættu. —Áhætta vegna gengisbreytinga á erlendum markaði og tiltækar leiðir til að verjast þeim. — Greining á áhættuþáttum (fjárhags- og rekstrarstöðu fyrirtækja. — Kostnaöarsamanburður á lánasamningum. — Áhætta vegna gengisbreytingar krónunnar og leiðir til aö verjast gengistapi. — Samanburður á vöxtum á innlendum og erlendum markaði, skammtíma- og langtfmalán. — Dæmi um gjaldeyrisstýringu íslenskra fyrirtækja. Leiðbeinendur: Dr. Siguröur B. Stefánsson hagfræðingur hjá Kaupþingi hf. Tryggvi Pálsson fram- kvasmdastjóri fjármálasviös Landsbanka (slands Dr. Sigurður B. Tryggvi Pálsson Stefánsson Timl: 5.-6. ma(, kl. 9.00-13.00. Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.