Morgunblaðið - 03.05.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAI1986
23
Rökræður gegn ríkis-
forsjá skila árangri
- segir breski kaupsýslumaðurinn Antony Fisher
BRESKI kaupsýslumaðurinn Antony Fisher, sem hér var á dögunum
í boði Verzlunarráðsins og Stofnunar Jóns Þorlákssonar, er maður
einnar hugmyndar, sem hann hefur helgað líf sitt. Sú hugmynd er,
(1) að aukin ríkisumsvif í lýðræðisríkjum Vesturlanda stofni frelsi
okkar í voða og séu að auki efnahagslega óhagkvæm, og (2) að
gegn þessari þróun sé unnt að sporna með rökræðum og miðlun
upplýsinga til þeirra, sem mest áhrif hafa í hugmyndaheiminum.
I erindi um „einkaframtak og
almenningsálit" á fundi Verzlunar-
ráðsins sl. miðvikudag sagði Fisher
þá sögu af sjálfum sér, að í lok síð-
ari heimsstyijaldar er hann var að
svipast um eftir atvinnu (en hann
hafði verið orrustuflugmaður í
stríðinu) hafi hann veitt því athygli
að félagar sínir leituðu til ríkisins
og töldu að þar væri lausn allra
Morgunbladið/RAX
Á meðfylgjandi mynd eru nem-
endur Myndlistaskólans að und-
irbúa sýninguna.
V orsýning
Myndlista-
skólans
VORSÝNING Myndlistaskólans í
Reykjavík 1986 verður haldin nk.
laugardag og sunnudag 3. og 4.
maí. Sýningin er í húsakynnum
skólans að Tryggvagötu 15.
Myndlistaskólinn i Reykjavík
er rekinn.í námskeiðsformi og
veitir almenna myndlistar-
fræðslu með kennslu og fyrir-
lestrum listsögulegs efnis. Nem-
endur skólans eru nú um 350
talsins þar af 100 í barna- og
unglingadeildum.
A vorsýningunni eru sýnd verk
úr öllum deildum skólans. Sýningin
er opin 3. og 4. maí frá kl. 14—22
báða dagana.
Höfðaströnd;
Hvíttí
fjöllum
Bæ, Höfðaströnd.
NORÐANSÚLD og hálf kalt
er nú og hvitt niður í fjöll.
Annars má segja, að sumarið
hefi byijað með ágætum og
veturinn má telja með þeim
betri sem menn muna. Lóan
er komin og fleiri farfuglar
sem lofa góðviðri og sumri.
Gróður í túnum er vel á vegi
staddur á þessum tíma og undir-
búningur í fullum gangi með
garðlönd. Sums staðar fer að
líða að sauðburði og veit ég
ekki annað en heilbrigði á búfé
sé gott. Fiskiganga var hér tölu-
verð um tíma og muna menn
ekki eftir slíku um árabil og
hefur því verið næg atvinna í
fiski. Nokkuð hefur þó dregið úr
þessu núna þar sem bátar hafa
komið víða að. Grásleppuveiði
er talin frekar treg.
Inflúensa hefur stungið sér
niður en er þó ekki talin alvar-
leg- - Bjöm í Bæ.
vandamála að fínna. Honum geðj-
aðist þetta illa og hugði jafnvel á
þátttöku í stjómmálum til að beijast
gegn ríkisforsjárhyggjunni. Þá
rakst hann fyrir tilviljun á útdrátt
úr bók Friedrichs von Hayek Leið-
inni til ánauðarí tímaritinu Readers
Digest og sannfærðist af rökum
hans. Fisher kvaðst hafa leitað
Hayek uppi í Hagfræðiskólanum í
Lundúnum (LSE) og muna nú það
eitt úr samtali þeirra, að Hayek
ráðlagði honum að skipta sér ekki
af stjómmálum. Aðrar vænlegri
leiðir væru fyrir hendi til að beijast
gegn stjómlyndi og ríkishyggju. í
því efni hefði hann lagt áherslu á,
að sannfæra námsmenn, kennara
og fjölmiðlafólk um yfirburði mark-
aðsskipulags, enda væru það þessir
hópar sem mest áhrif hefðu á við-
gang hugmynda.
Fisher hóf kaupsýslu og efnaðist
brátt á henni. Árið 1957 setti hann
á stofn í Lundúnum Efnahagsstofn-
unina (Institute of Economic Affa-
irs — IEA), sem enn starfar og
einbeitir sér að pólitískum og efna-
hagslegum rannsóknum og útgáfu
bóka og ritlinga. Forstöðumaður
hennar hefur alla tíð verið Ralph
Harris (nú lávarður), sem komið
hefur hingað til lands og flutti erindi
á vegum Verzlunarráðsins. Fisher
hefur hins vegar verið stjórnarfor-
Morgunblaðið/Bjami
Antony Fisher talar á fundi
Verzlunarráðs íslands.
maður og hann lagði til féð til að
koma stofnuninni á fót.
Markmiðið með Efnahagsstofn-
uninni og svipuðum stofnunum, sem
Fisher hefur sett á stofn eða liðsinnt
fjárhagslega víða um heim, er
gagnsókn í heimi hugmyndanna.
Þessar stofnanir, sem reknar eru
fyrir fijáls framlög einstaklinga oj
fyrirtækja og hafa auk þess dágóð
ar tekjur af útgáfuverkum sínum
safna og skýra rök fijálslyndr,
manna fyrir atvinnufrelsi og einka-
framtaki. Fullyrt hefur verið ac
Efnahagsstofnunin í Lundúnuit'
hafi átt verulegan þátt í stefnu-
breytingu breska Ihaldsflokksins
1979. Raunar segir Antony Fisher,
að Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hafi skömmu eftii
fyrri kosningasigur sinn ritað Ralpl
Harris bréf og þakkað það starf)
Efnahagsstofnunarinnar að hug-
myndir fijálshyggjunnar urðu ofar.
á í íhaldsflokknum.
Fisher sagði á fundinum hér sl.
miðvikudag, að á það væri lögc
þung áhersla að hinar fijálslyndu
rannsóknarstofnanir væru ekki í
tengslum við pólitísk samtök eð&
sérhagsmunahópa. Markmið þeirra
væri fyrst og fremst að miðla
hugmyndum og rökum, en það
væri annarra verk að annast fram-
kvæmdir og stjórnmálabaráttu.
Efnahagsstofnunin í Lundúnum
hefði t.a.m. haft áhrif á fleiri flokka
en íhaldsflokkinn og fleiri ríkis-
stjómir en núverandi stjóm Thatc-
hers, þ.á m. ríkisstjóm Verka-
mannaflokksins.
Ný sending loksins komin
Verð ^ra
4*83.500
jpus
£eð rvðvörn
Opið laugardag og sunnudag
frákl. 10—16
VERÐSKRA:
Lada 1200 ........................................... Kr. 159.400,00
Lada 1300 skutbíll 4ra gíra ......................
Lad^ 1500 skutbíll 4ra gíra ......................
Lada 1500 skutbíll 5 gíra ........................
Lada Safir .......................................
Lada Lux Canada ..................................
Landa Sport 5 gíra ...............................
Ofangreind verð með fyrirvara
183.500,00
196.200,00
209.200,00
177.300,00
197.900,00
329.200,00
Mikið úrval
af notuðum bílum
til sýnis
og sölu
Ryðvörn inifalin íverði
Afhendingartími 2—4vikur
< BIFREEÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
M tiJj SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236