Morgunblaðið - 08.05.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, VlÐSlflWl/AIWHNOIÍF-WMMTUDAGUR 8. MAÍ 1986
« 3
Kaupskipaútgerð
Erlent kaupskip
ífyrstasinn
skráð á Islandi
Nesskip þurrleigir 6.000 tonna
norskt stórflutningaskip
NESSKIP hefur tekið á þurrleigu 6000 tonna norskt stór-
flutningaskip. Skipið hefur hlotið nafnið Saltnes og er kall-
merki skipsins undir íslenskum fána TFMP. Saltnes er
fyrsta skipið sem skráð er á íslandi samkvæmt nýjum lögum
er heimilar samgönguráðherra að leyfa, þégar sérstakar
ástæður mæla með því, að erlent kaupskip, sem íslensk út-
gerð hefur á þurrleigu, sé skráð á Islandi enda sé áhöfn
þess íslensk.
Saltnes var smíðað árið 1978
hjá Kleven Mekaniske Verksted
í Noregi samkvæmt kröfum og
undir eftirliti Det Norske Veritas.
Farrými eru þijár boxlaga lestar
sem eru samtals 262 þúsund
rúmfet. Skipið er búið tveimur
krönum ásamt kröbbum til að
losa lausfarma. Aðalvél er 4 þús-
und hestafla Stork Werkspoor og
ganghraði 13,5 sjómílur á klst.
Aðalvél skipsins brennir svartol-
íu. Skipið er búið tveimur yfir-
byggðum björgunarbátum sem
hvor um sig tekur alla áhöfnina
auk hefðbundinna björgunar-
tækja svo sem gúmbjörgunar-
báta.
skip ms. Urriðafoss, áður Vestur-
land, sem er í þurrleigu hjá
Eimskipafélagi íslands. Á síðasta
ári fluttu skip félagsins alls 706
þúsund tonn, þar af voru flutt
405 þús. tonn milli hafna erlendis
eða rúm 57% af heildarflutning-
um félagsins. Frá íslandi eru
helstu vörufiokkar í flutningum
félagsins saltfiskur, saltsíld,
fiskimjöl, járnblendi, vikur og
hraun og brotajárn en til landsins
voru flutt kol, koks, kvarts, járn-
grýti og tréflísar til Jámblendifé-
lagsins en auk þess má nefna
timbur, pappír, stál og lítilsháttar
af tilfallandi stykkjavöru.
SALTNES — þannig lítur
það út norska stórflutningaskipið
sem Nesskip hefur tekið á þurr-
leigu og verður fyrsta erlenda
skipið sem fæst skráð á íslandi.
Á hinni myndinni er Guðmundur
Ásgeirsson í Nesskip (í miðið) að
ganga frá skráningu skipsins hér
á landi í Siglingamálastofnun en
með honum á myndinni eru Gísli
Auðunsson, sem annast skráning-
una hjá stofnuninni, og til hægri
er Magnús Jóhannsson siglinga-
málastjóri.
Að sögn Guðmundar Asgeirs-
sonar, framkvæmdastjóra og
aðaleiganda Nesskips, er að-
búnaður skipveija allur mjög góð-
ur og búa þeir allir í rúmgóðum
eins manns íbúðum með eigin
baði og salemi. Þá er skipið búið
mjög fullkomnum loftskeytabún-
aði og má þar helst nefna síma
og telextæki sem vinna um gervi-
hnattasamband. „Það gerir kleift
að bæði er hægt að hringja og
senda telex um borð eða frá borði
hvenær sólarhringsins sem er án
tillits til þess hvar á jarðkringl-
unni skipið er statt. Auk þess er
að finna í brú skipsins Navtex-
tæki, sem skráir og prentar á
blað hvers konar tilkynningar og
upplýsingar til sjófarenda. Þetta
tæki skráir tilkynningar sjálfvirkt
allan sólarhringinn. Vegna þessa
búnaðar hefur fengist heimild til
að sigla skipinu til reynslu á
ákveðnum siglingaleiðum án loft-
skeytamanns,“ segir Guðmund-
ur.
Áhöfn skipsins verður 12
manns. Skipstjóri er Gunnar
Magnússon, yfirvélstjóri Hjalti
Ragnarsson og yfirstýrimaður
Þórarinn Ólafsson. Nesskip gerir
nú út fimm stórflutningaskip,
þ.e. Akranes, Sandnes, Saltnes
og Suðurland. Auk þess á Nes-
Landbúnaður
Miólkursamsalan
veltinær tveim
milljörðum ’85
Flytur í nýju mjólkurstöðina um hvítasunnuna
Heildarvelta Mjólkursamsölunnar og undirfyrirtækja hennar á
siðasta ári varð 1,8 milljarðar króna, að því er fram kom á aðalfundi
Mjólkursamsölunnar nú nýlega. I frétt um aðalfundinn er ekki getið
um rekstrarafkomu fyrirtækisins á árinu.
Í fréttinni kemur hins vegar fram
að innvegið mjólkurmagn á árinu á
svæðinu var 61,2 milljón lítrar, sem
var um 9,6% aukning frá árinu
áður. Innvegið mjólkurmagn hefur
aðeins einu sinni áður verið meira
en það var árið 1978. Heildarsala
á ferskum mjólurafurðum var svip-
uð og árið á undan með nokkurri
minnkun í sölu á nýmjólk en aftur
á móti aukningu í sölu á léttmjólk
og undanrennu. Ákveðið var á
fundinum á greiða framleiðendum
á svæðinu grundvallarverð fyrir
innlagða mjólk, þrátt fýrir að út-
borgunargeta samlaganna væri um
5 aurar á lítra undir grundvallar-
verði. Meðalgrundvallarverð ársins
var 20,94 kr. á hvern lítra.
í máli Guðlaugs Björgvinssonar,
forstjóra Mjólkursamsölunnar, kom
fram að stefnt er að flutningi mjólk-
urstöðvar og skrifstofu í nýbygg-
inguna við Bitruháls um hvíta-
sunnuhelgina 18.—19. mai nk. Að
þessu sinni gekk úr stjóminni Ágúst
Þorvaldsson á Brúnastöðum, sem
setið hefur í stjórn MS í 20 ár og
þar af formaður í 17 ár en hann
gaf nú ekki kost á sér til endur-
kjörs. I hans stað var Magnús
Sigurðsson í Birtingarholti kosinn
í stjórnina.
Rekstrarráðgj öf
Helgi G. Þórðarson
formaður FIR
AÐALFUNDUR Félags ísl.
rekstrarráðgjafa var haldinn 4.
apríl sl. á Hótel Loftleiðum. í
skýrslu stjórnar kom fram að
fjölgun hefur orðið á aðildarfyr-
irtækjum félagsins. Hafin er út-
gáfa fréttabréfs og er 2. tölublað
nú að koma út. Töluverðar um-
ræður urðu innan félagsins um
breytingar á viðfangsefnum
rekstrarráðgjafa á tímum örrar
þróunar og breytinga á flestum
sviðum.
Ný stjórn var kjörin á aðalfundin-
um og skipa hana Helgi G. Þórðar-
son, formaður, Gísli Erlendsson,
varaformaður, Sigurður Ingólfsson,
ritari, Kristján Kristjánsson, gjald-
keri og Gunnar Maack, meðstjórn-
andi.
Aðildarfyrirtæki Félags ísl.
rekstrarráðgjafa eru nú: Björn
Viggósson, Hagvangur hf., Hann-
arr hf., Helgi G. Þórðarson, Hug-
virki, Ráðgarður hf., Ráðgjafaþjón-
usta Benedikts Gunnarssonar,
Rekstrarstofan og Rekstrartækni
hf. Félagið ei aðili að FEACO,
Evrópusamtökum rekstrarráðgjafa.
HEFUR ÞÚ HUGMYND?
VANTAR ÞIG FÉ?
ERT ÞÚ ÁBYGGILEG(UR)?
Markaðs- og söluráðgjöf getur ef til vill
aðstoðað við að láta hjólin snúast.
HEILDARLAUSN
Ert þú að hugsa um að auka söluna, vinna nýja
markaði, tölvukaup, vélakaup, stofna nýtt fyrirtæki
eða að auka og bæta núverandi rekstur?
Við veitum ráðgjöf og aðstoðum þig við fjármögn-
un svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.
Varðandi hugbúnað fyrir einkatölvur viljum við
benda á nokkra spennandi möguleika frá Kerfis-
þróun:
STÓLPI - ALHLIÐA TÖLVUKERFI
Hentar flestum fyrirtækjum, öflugur, einfaldur í
notkun og ódýr.
Nú hafa 16 af þeim 18 fyrirtækjum sem þátt tóku
í útboði Landssambands iðnaðarmanna fest kaup
á STÓLPA.
SÖLUSTJÓRINN
Þrælmögnuð lausn til að styrkja sölu- og markaðs-
starfsemi stórra sem smárra fyrirtækja.
SÖLUSTJÓRINN verður á næstunni einnig fáan-
legur með upplýsingum um 20.000 starfandi fyrir-
tæki og valda einstaklinga.
K—GRUNNUR
íslenskt gagnasafnskerfi sem gefur ótrúlega
möguleika við gagnavinnslu t.d. í tengslum við
SÖLUSTJÓRANN.
K—GRUNNUR er m.a. með öfluga listavinnslu og
reikniverk.
FJÁRMÖGNUN
Þú velur þau tæki og búnað sem þú þarft og við
munum reyna að leysa dæmið til enda með þér.
Vinsamlegast sendið inn upplýsingar um nafn,
heimilisfang og símanúmer. Við sendum um hæl
allar nauðsynlegar upplýsingar þannig að þú
getir kynnt þér þessa nýju möguleika í ró og
næði.
-c
BJORN VIGGOSSON
MARKAÐS- OG SÖLURÁPGJOF
Armúli 38 108 Reykjavík
Sími687466