Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986 ■---------------------— ---- --------- ■ ■■ ■. —...................... . ■ ........... ■ ■ ------ Sanngjarnt jafntefli á Skaganum ÍA — Fram 0:0 c Texti: Sigþór Eiríksson Mynd: Bjarni Eiríksson AKRANESVÖLLUR 1. deild: í A—Fram 0:0 (0:0) Áhorfendur:1354 Dómaii:Gísli Guðmundsson Gul spjöld:Steinn Guöjónsson, Fram, Valgeir Barðason, ÍA, Sveinbjörn Hákonarson, ÍA. Einkunnagjöfin: ÍA: Birkir Kristinsson 3, Hafliöi Guöjónsson 3, Heimir Guömundsson 2, Guöjón Þóröarson 4, Siguröur B. Jónsson 4, Sveínbjörn Hókonar- son 2, Guöbjörn Tryggvason, 3, Ölafur Þóröar- son 2, Árni Sveinsson 2, Valgeir Baröason 3. Höröur Jóhannesson 2. Stefón Viöarsson (vm. lék of stutt). 30 stig samtals. Fram: Friörik Friöriksson 3, Þorsteinn Þor- steinsson 2, Ormarr örtygsson 2, Viðar Þor- kelsson 4, Jón Sveinsson 3, Kristinn R. Jóns- son 2, Pétur Ormslev 4, Steinn GuÖjónsson 2, öm Valdimarsson 2, Guömundur Torfason 3, GuÖmundur Steinsson 2. Þórður Marelsson (vm. 2) Amljótur Davíösson (vm. lók of stutt.) 29 stig samtals. Bæði ÍA og Fram sýndu ágætan • Besta marktækifærið f leiknum á Akranesi. Kristinn Jónsson fókk knöttinn frfr inni í vítateig Skagamanna og markið blasti við. En skotið geigaði — boltinn fór framhjá marki hægra megin. Morgunbiaðið/Bjarni leik í blíðunni á Akranesi á laugar- daginn þó uppskeran hafi verið rýr í mörkum talin. Bæöi liðin náðu að skapa sér nokkur ágæt mark- tækifæri, en örugg markvarsla beggja markvarða, og reyndar yfir- leitt ágætur varnarleikur, kom í veg fyrir mörkin. Framarar byrjuðu betur, voru ákveðnari í sóknarleik sínum, og höfðu undirtökin á miðjunni. ( síð- ari hálfleik fóru Skagamenn að koma meira inn í leikinn og síðustu 15 mínútur leiksins sóttu þeir hokkuð stíft án þess að geta skor- að. Jafntefli voru því sanngjörn úrslit þegar upp var staðið. Fram fékk nokkur ágæt færi í fyrri hálfleik, en aðeins eitt sem kalla má dauðafæri. Þá gaf Pétur Ormslev góða sendingu á Kristin Jónsson sem stóð óvaldaöur á vítapunkti, en hann skaut yfir. Það sama á reyndar við um Skaga- menn — af nokkrum þokkalegum færum telst eitt hafa verið dauða- færi. Það kom þremur mínútum fyrir leikslok þegar Ólafur Þórðar- son lék á Viðar Þorkelsson og komst inn í vítateiginn óvaldaður. En hann var aðeins of seinn að skjóta og Viðar bjargaði deginum fyrir sjálfum sér og Fram með því að komast á siðustu stundu fyrir skotið og bjarga i horn. Pétur Ormslev og Viðar Þorkels- son lékur mjög vel fyrir Fram í lejknum, en heimamenn á Akra- nesi kættust yfir frammistöðu tveggja nýliöa í liði ÍA, miðvaröar- ins Sigurðar B. Jónssonar og bak- varðarins Hafliða Guðjónssonar, sem báðir áttu framúrskarandi góðan leik. Þá var Guðjón Þórðar- son mjög traustur í miðvarðarstöð- unni. FH-ingar sterkari í Garðinum í STUTTU MÁLI: Garðsvöllur 1. deild. Víöir—FH 3:1 (1:1). Mark Víðis: Helgi Bentsson á 7. mín. Mörk FH: Ingi Björn Albertsson á 5. mfnútu, Ólafur Danivalsson á 70. mín. og Kristján Gíslason á 89. mín. Áhorfendur: 450. Dómari: Guömundur Haraldsson og dæmdi hann mjög vel. Gult spjald: Daníel Einarsson, Víöi. Einkunnagjöfin: Víöir: Gísli Hreiöarsson 3, Klemenz Sæ- mundsson 2, Vilhjálmur Einarsson 2, Mark Duffield 2, Daníel Einarsson 3, Guöjón Guö- mundsson 3, Helgi Bentsson 3, Björn Vil- helmsson 2, Ólafur Róbertsson 2, Vilberg Þorvaldsson 2, Guömundur Knútsson 3, Svan- ur Þorsteinsson (vm. 2) og Þóröur Þorsteins- son (vm. 3). Samtals: 27. FH: Gunnar Straumland 4, ViÖar Halldórsson 3, Kristján Gíslason 3, Henning Henningsson Vfðir-FH 1:3 3, Pálmi Jónsson 3, Ólafur Danivalsson 2, Ingi Björn Albertsson 4, Ólafur Hafsteinsson 2, Ólafur Jóhannesson 3, GuÖmundur Hilmars- son 2, Magnús Pálsson 3 og Kristján Hilmars- son (vm. lék of stutt). Ingi Björn Albertsson haföi skoraö eftir aðeins 4 mínútur og fimmtíu sekúndur í Garðinum og margir bjuggust viö því að hann hlyti Markabikar Morgunblaðsins fyrir að skora svo snemma. En sú varð ekki raunin því Bjarni Svein- björnsson, Þór, gerði enn betur gegn Val því hann skoraöi eftir tæpar þrjár mínútur. Ingi Björn skoraði meö skalla eftir góða sendingu frá Pálma Jónssyni. Það liðu aðeins tvær mínútur þar til Víðismenn höfðu jafnað leik- inn. Helgi Bentsson skoraði þá meö föstu skoti út við stöng frá vítateigslínu og þannig var staðan f hálfleik. FH-ingar voru mun aðgangs- harðari í seinni hálfleik og komust aftur yfir á 70. mínútu. Ingi Björn óð upp hægri kantinn og upp að markinu og í stað þess að skjóta eins og flestir bjuggust við gaf hann laglega út á Ólaf Danivals- son, sem stóð einn og óvaldaður við markteigshorniö og átti auðvelt með að skora. Eftir markið sóttu Víðismenn meira en Gunnar Straumland, markvörður, var betri en enginn og varði oft meistara- lega. Kristján Gíslason innsiglaði síö- an sigur FH er hann skoraði gott mark einni mínútu fyrir leikslok. Sigur Hafnfirðinga var sanngjarn og sáust oft skemmtileg tilþrif hjá þeim. • Ingi Bjöm og Mark Duffleld, nýi maðurinn hjá Vfðl, kljóst um knöttinn. Góð byrjun hjá Blikum UBH ■ C- 1:0 ÍBK i Texti: Guðjón Arngrímsson KÓPAVOGSVÖLLUR1. deild: UBK-ÍBK 1:0 (1:0) Mark UBK: Jón Þórir Jónsson (Á 18. mín.) Áhorfendur: 7 Dómari: Magnús Jónatansson. Gult spjald: Skúli Rósantsson ÍBK Einkunnagjöfin: UBK: örn Bjarnason 3, Ingvaldur Gústafsson 2, Ólafur Björnsson 2, Magnús Magnússon 2, Benedikt Guömundsson 2, Jón Þórir Jóns- son 3, Hákon Gunnarsson 2, Jóhann Grétars- son 2, Guömundur GuÖmundsson 3, GuÖ- mundur Valur SigurÖsson 2, Helgi Ingason 2. Vignir Baldursson vm., lék of stutt. Samtals 25. ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 2, Siguröur Guðna- son 2, Valþór Sigþórsson 2, Freyr Sverrisson 3, Skúli Rósantsson 2, Gunnar Oddsson 2, Jón Sveinsson 1, Kjartan Einarsson 2, (var Guö- mundsson 2, Sigurjón Sveinsson 1. Sigurður Björgvinssonvm. og Ingvar GuÖmundsson vm., lékuof stutt. Samtals 19. Örlítiö meiri hugmyndaugði Blika í sóknarleiknum var þaö sem skildi þessi tvö annars áþekku lið að á laugardaginn. Sigurinn færði nýliðunum 3 kærkomin stig, en skildi Keflvíkinga eftir með ótal vandamál að leysa. Frá því í fyrra hefur liðið misst Ragnar Margeirsson, Sigurjón Kristjánsson og Helga Bentsson - eitt stykki góða framlínu - og það sást í leiknum. Þar fyrir utan gat Hólmbert Friöjónsson ekki stýrt liðinu á laugardaginn vegna veik- inda. Keflvíkingar voru ekki minna með knöttinn, líklega öllu meira, en þegar þeir komust að teignum hjá Blikum gerðist lítið sem ekkert. Miðverðirnir Valþór og Freyr eru kjölfestan í liðinu og eru mikið með knöttinn, en Keflvíkinga vantar öfluga framliggjandi tengiliði eða framlínumenn. Blikarnir voru jafnari, f vörninni kraftmiklir og stórir jaxlar, en fram- arlega á vellinum voru þeir Guð- mundur Guðmundsson, ungur og snarpur miðvallarleikmaður, Jón Þórir Jónsson, sem gerði mjög mikið af mörkum í annarri deild í fyrra, og Hákon Gunnarsson á köflum útsjónarsamir og náðu aö skapa sérfæri. Eina markið í leiknum kom eftir misheppnað útkast Þorsteins keflavíkurmarkvarðar í fyrri hálf- leik. Keflavíkurvörnin var í róleg- heitum á leið fram völlinn þegar hann henti boltanum beint til Há- kons á hægri kantinum. Hann lék upp að vítateig og renndi til Jóns Þóris hægra megin í teignum sem skoraði úr fremur auðveldu færi. Besta færi Keflíkinga var víta- spyrna sem Kjartan Einarsson fiskaði rétt fyrir leikhlé og misnot- aði síðan. Örn blikamarkvörður varði glæsilega. Leikurinn í heild var tilþrifalítill, og lítill raunverulegur mælikvarði á getu liðanna. • Magnús Magnússon skallar frá Blikamarkinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.