Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
B 5
Morgunblaöið/RAX
• Fallegasta mark fyrstu umferðar var án efa þrumufleygur Snæbjörns Guðmundssonar í leiknum gegn Vestmannaeyjum. Á myndinni
er hann nýbúinn að hleypa af og boltinn er kominn langleiðina í netið.
Góð
byrjun
— sagði Gordon Lee
„ÞETTA var góð byrjun og lofar
góðu fyrir sumari. Við skoruðum
einnig fjögur mörk í fyrsta leik á
íslandsmótinu í fyrra en vonandi
eigum við eftir að fylgja þessu
vel eftir," sagði Gordon Lee,
þjálfari KR, eftir leikinn við Vest-
manneyjinga á laugardaginn.
Gordon Lee var að vonum án-
ægður með sína menn á laugar-
daginn. Hann hefur lagt mikið upp
úr því að leika sóknarknattspyrnu
og léttan bolta og það tókst honum
í þessum leik.
„Við réðum gangi leiksins allan
tímann og áttum jafnvel að skora
fleiri mörk. Mark eins og Sæbjörn
gerði yljar manni alltaf. Eyjamenn
áttu í vök að verjast og eru þeir
ekki öfundsverðir að þurfa að leika
á útivelli í fyrsta leik sínum í 1.
deildinni að þessu sinni. Eftir að
lið hefur náð tveggja marka forystu
í upphafi er alltaf erfitt að nú upp
baráttu. Ef ÍBV hefði skorað í
upphafi hefði þetta ekki verið
svona auðveldur leikur fyrir okkur,
" sagði Gordon Lee,
Guðni Bergsson:
Eyjamenn töpuðu stórt
í fyrsta leik sínum
— KR skoraði tvö mörk á fyrsta stundarfjórðungnum
ÞÓRSARAR hóldu áfram sigur-
göngu sinni á heimavelli á laugar-
daginn. Þeir hafa nú ekki tapað
leik þar si'ðan í júlí 1984 er Þrótt-
arar sigruðu þá 1:0. Samtals hafa
Þórsarar því leikið f 1170 mínútur
á heimavelli án taps í deildar-
keppninni.
Það var Bjarni Sveinbjörnsson
sem kom Þór á sporið með fyrsta
marki íslandsmótsins í ár - hann
skoraði eftir aðeins 2,32 mínútur
og hlýtur því Markabikar Morgun-
blaðsins.
Júlíus Tryggvason tók langt
innkast á móts við vítateigshorn
vinstra megin, alveg inn á mark-
teig, þar sem þvaga myndaðist.
Bjarni Sveinbjörnsson var fyrstur
að boltanum og potaði í markið
af stuttu færi. Sannkölluð óska-
byrjun hjá Þórsurum.
Lítið var um marktækifæri í fyrri
hálfleik, en það var svo á 40. mín.
að Hlynur Birgisson skoraði seinna
mark Þórs - stórglæsilegt mark,
og fyrsta mark Hlyns í deildinni.
Eftir aukaspyrnu Jónasar Róberts-
sonar hreinsaði varnarmaður frá
marki - beint til Hlyns sem var 20
metra frá marki og hann þrumaði
þegar í stað í netið.
KR - ÍBV
4:0
( síðari hálfleik drógu Þórsarar
sig mikið aftur og Valsmenn voru
mun atkvæðameiri. Þeir fengu
vítaspyrnu á 56. mín. er leikmaður
handlék knöttinn innan teigs. Hilm-
ar Sighvatsson skoraði örugglega
úrvítinu.
Eftir markið greip mikil tauga-
veiklun um sig í liði Þórs og Vals-
menn sóttu stíft þó marktækifæri
þeirra yrðu ekki mörg.
í heild var þetta jafn leikur og
sigurinn hefði getað lent hvorum
megin sem var. Leikið var á möl,
norðanvindur var meðan leikurinn
fór fram og bæði lið áttu erfitt með
að byggja upp góðan samleik við
þessar aðstæður. Hjá Þór var aft-
asta vörnin sterkasti hluti liðsins.
Hjá Val voru Guðni Bergsson og
Ársæll bestir - geysisterkir varnar-
menn og Ingvar lék einnig vel.
ÞÓRSVÖLLUR 1. deild.
Þór-Valur 2:1 (2:0)
Mörk Þórs: Bjarni Sveinbjörnsson eftir 2,32
mín. og Hlynur Birgisson ó 40. mín.
Mark Vals: Hilmar Sighvatsson úr víti á 56.
mín.
Gul spjöld: Guöni Bergsson Val og Bjarni
Sveinbjörnsson Þór.
Dómari: Baldur Scheving og stóð sig þokka-
lega. Yfirferö Baldurs á vellinum var lítil og
hann heföi mátt beita hagnaöarregiunni mun
meira.
Áhorfendur: 1.150.
EINKUNNAGJÖFIN
ÞórBaldvin Guömundsson 3, Baldur Guöna-
son 3, Siguróli Kristjónsson 2, Nói Björnsson
2, Árni Stefánsson 3, Kristjón Kristjánsson
2, Halldór Áskelsson 2, Júlíus Tryggvason 3,
Bjarni Sveinbjömsson 2, Jónas Róbertsson
3, Hlynur Birgisson 2.
Samtals 27 stig. Einar Arason (vm. lók of
stutt), Siguröur Pálsson (vm. lók of stutt).
Valur: Stefán Arnarson 2, Bergþór Magnús-
son 2, Magnús Magnússon 2, Sigurjón Kristj-
ánsson 3, Ársæll Kristjánsson 3, Bergsveinn
Sampsted 2, Guöni Bergsson 3, Hilmar Sig-
hvatsson 3, Valur Valsson 2, Ingvar Guö-
mundsson 3 og Ámundi Sigmundsson 2.
Morgunblaðsliðið — 1. umferð
MORGUNBLAÐIÐ mun velja lið hverrar umferðar í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í sumar
eins og áður. 12 mörk voru gerð í 1. umferð mótsins að þessu sinni. í liði 1. umferðar hjá okkur
nú eru fjórir leikmenn frá KR, sem unnu stórsigur á ÍBV, tveir frá Fram, ÍA og FH og einn úr Þór.
Við stillum upp hálfgerðu varnarliði enda ekki skoruð mörg mörk í umferðinni.
Gunnar Straumland
(FH)
Jónas Róbertsson
(Þór)
Ágúst Már Jónsson
(KR)
Sigurður B. Jónsson
(ÍA)
Pétur Ormslev
(Fram)
Björn Rafnsson
(KR)
Guðjón Þórðarson
(ÍA)
Sæbjörn Guðmundsson
(KR)
Viðar Þorkelsson
(Fram)
Hálfdán Örlygsson
(KR)
Ingi Björn Albertsson
(FH)
Samtals 27. Magni B. Pótursson (vm. á 73.
mín.) 1 og Jón Grétar Jónsson (vm. á 71. mín.)
1.
Grátlegt
„ÞAÐ VAR grátlegt að fá á sig
fyrra markið, sem ég tel að hafi
verið ólöglegt. Mér fannst vera
brotið á Stefáni markverði þegar
innkastið kom,“ sagði Guðni
Bergsson, fyrirliði Valsmanna, í
samtali við Morgunblaðið eftir
leikinn.
„Við áttum meira í leiknum, sér-
staklega í síðari hálfleiknum þegar
þeir drógu sig aftar og hefðum
alveg eins getað unnið," sagði
Guðni.
Þórtaplaus heima
síðan í júlí 1984
Yfirburðir KR-inga voru miklir
gegn þungum Eyjamönnum í
fyrsta leik þessara liða á þessu
keppnistfmabili á laugardaginn.
Eftir aðeins 14 mínútur var stað-
an orðin 2:0 fyrir KR. Eyjamenn
áttu aldrei svar við þessari stór-
góðu byrjun og var 4:0-sigur
Vesturbæinganna ekki of stór ef
miðað er við gang leiksins.
Ásbjörn skoraði fyrsta mark
leiksins strax á 10. mín. Loftur
Ólafsson, sem nú lék sinn fyrsta
leik með KR í fslandsmóti, gaf þá
laglega sendingu inn á Gunnar
Gíslason sem skallaði út til Ás-
björns sem skoraði af öryggi í autt
markið frá vítateigslínu, Þorsteinn,
markvörður, hafði farið út úr mark-
inu og því ekki í jafnvægi.
Annað mark leiksins var sann-
kallað draUmamark. Knötturinn
hafði borist fyrir ÍBV-markið, Þor-
steinn sló knöttinn frá, þar var
Sæbjörn á auðum sjó og skoraði
með viðstöðulausu skoti af 25
metra færi efsti í bláhornið. Björn
Rafnsson bætti síðan þriðja mark-
inu við skömmu síðar er hann
komst einn inn fyrir vörn ÍBV og
skoraði framhjá úthlaupandi mark-
verðinum. Björn komst svo
skömmu síðar einn inn fyrir eftir
laglegan undirbúning Sæbjörns,
en skaut í hliðarnetið.
Björn bætti svo fjórða markinu
við í upphafi seinni hálfleiks. Hann
fékk fallega sendingu inn í vítateig-
inn frá Gunnari Gíslasyni, sem leik-
ið hafði upp að endamörkum.
Björn lagði knöttinn laglega fyrir
sig og skoraði úr frekar þröngri
stöðu. Eftir markið var eins og
KR-ingar gæfu aðeins eftir enda
sigurinn ekki í hættu. Eyjamenn
náðu sér hreinlega aldrei á strik í
þessum leik og mega bæta sig
verulega ætli þeir að hala inn stig
í sumar.
KR spilaði 3-5-2 og ÍBV 4-4-2.
Leikaðferð KR-inga kom mjög vel
út enda virtust leikmenn KR-inga
í mun betra úthaldi. Halfdán og
Ágúst komu sérstaklega vel út úr
þessum leik. KR-ingar eru líklegir
til afreka í sumar. Eyjamenn virk-
uðu þungir og breyttu ekki leik-
skipulagi sínu í samræmi við gang
leiksins og var enginn sem bar af
í liði þeirra.
KR-VÖLLUR, 1. deild:
KR-ÍBV 4:0 (3:0)
Mörk KR: Ásbjörn Björnsson á 10. mín.,
Sæbjörn Guðmundsson á 14. mín. og Björn
Rafnsson á 31. mín. og 61. mín.
Áhorfendur: 811.
Dómari: Eysteinn Guðmundsson og stóð hann
sig nokkuð vei þegar á heildina er litið.
Gul spjöld: Jósteinn Einarsson, KR og Viðar
Eiíasson, ÍBV.
Einkunnagjöfin:
KR: Stefán Jóhannsson 3, Halfdán Örlygsson
4, Loftur Ólafsson 3, Jósteinn Einarsson 3,
Gunnar Gíslason 3, Ágúst Már Jónsson 4,
Willum Þór Þórsson 2, Bjöm Rafnsson 3,
Sæbjörn Guðmundsson 3, Júlíus Þorfinnsson
3, Ásbjörn Björnsson 3.
Samtals: 34.
ÍBV: Þorsteinn Gunnarsson 2, Jón Bragi Arn-
arsson 2, Þorsteinn Viktorsson 2, Elías Friö-
riksson 1, Viðar Elíasson 2, Bergur Ágústsson
2, Jóhann B. Georgsson 2, Lúðvík Bergvinsson
1, Ómar Jóhannsson 2, Páll Hallgrímsson 1,
Kári Þorleifsson 2, Þórður Hallgrímsson (vm
lók of stutt).
Samtals: 19.