Morgunblaðið - 01.06.1986, Qupperneq 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR l.JÚNÍ 1986
I
Hér er sagt frá manninum og verkum hans
Philippe Starck hefur verið kallaður „enfant terrible“
í hópi franskra arkitekta.
Arkitektinn Philippe Starck nýtur mikilla vinsælda
um þessar mundir. Meðal afreka hans er hönnun hí-
býla Mitterrands forseta í Elysée-höll. Hann hefur
einnig teiknað hótel og næturklúbba í Bandaríkjunum,
sem bera nafn hans, og hann er höfundur hins þekkta
kaffihúss í París, Café Costes.
Þótt Starck sé ungur að árum hefur hann þegar
skráð ævisögu sína. Þar kemur meðal annars fram
að hann er fæddur 18. jánúar árið 1949. Giftist Brig-
itte Laurent í Las Vegas fyrir 15 árum og þau eiga
stúlku, 6 ára gamla. Hann býr í flugvéi og drekkur
aðeins kampavín, of mikið af kampavíni . . . er sagt.
Á Café Costes er að finna bæði
borðið og stólinn.
Starck er hár og
gildur og lítur
fremur subbu-
lega út. Sagt er
að hann sé
ókurteis, en blíð-
ur á manninn.
Ef fortíð hans er skoðuð þá lýsir
hún athafnasemi. 18 ára gamall
stofnaði hann fyrirtæki, sem versl-
aði með uppblásin hús. Tvítugur
verður hann listráðnautur tískuhúss
Cardins. Tuttugu og fimm ára fer
hann í heimsreisu og sest að í
Bandaríkjunum. Tuttugu og sjö ára
snýr hann aftur til Parísar og teikn-
ar sinn fyrsta næturklúbb, La main
bleu, og síðar klúbbinn Le bains
douches og veitingahúsið Le centre
Ville. Hann teiknaði einnig tískuhús
Pierre Balmain og verslanir Doro-
thée Bis. Hann innréttaði aðsetur
forréttindafólks á flugvellinum í
Singapore og, eins og áður segir,
hótel og næturklúbba í Bandaríkj-
unum undir nafninu Starck.
Fyrir tveim árum lauk hann svo
við að innrétta vistarverur FVakk-
landsforseta og nokkru síðar var
opnað hið fræga kaffihús Le Café
Costes í París, sem Philippe Starck
á allan heiður af. Þar safnast saman
hin skrafhreyfna „intelligensía"
borgarinnar.
Hann hefur að undanfömu verið
að vinna að innréttingu Boeing-
flugvélar, sem á að líta út eins og
fljúgandi teppi! Þá hefur hann verið
með annan fótinn í Zúrich þar sem
hann er að innrétta lyfjabúð, en
hugmynd að henni er sótt til
stjömuathugunarstöðvar, sem reist
var á Indlandi árið 1920!
Starck hefur einnig séð um breyt-
ingar á húsnæði Vísindasafnsins i
París og unnið að nýrri skrifstofu-
bygginu fyrir fjármálaráðuneytié
franska. Þá hefur hann hannaé
tískuhús fyrir Jean Charles Castel-
bajac.
Starck hefur hlotið viðurkenning-
una „hönnuður ársins“, sem veitt
er árlega í Frakklandi. Og allir þeir
hlutir sem Starck hefur hannað,
meðal annars húsbúnaður, hafa
verið keyptir eða sýndir í Nútíma-
listasafninu í París og í Pompidou-
safninu.
Til að gefa vísbendingu um hve
fjölbreytileg hönnun Starcks er má
geta þess að hann hefur hannað
stiga fyrir fyrirtækið Terraillon,
hreinlætistæki fyrir Washmobile,
sem er ítalskt fyrirtæki, sjónvörp
fyrir Thomson og armbandsúr fyrir
japanska fyrirtækið Nichinian og
sígarettukveikjara fyrir Dupont.
Nýjar flöskur fyrir Orangina og
nýja lögun á kökum fyrir Panzani.
Hann hefur férðast um heiminn og
sett upp vínbari fyrir Eric de
Rothschild.
Philippe Starck vinnur aðeins
með eiginkonu sinni og sagt er að
hann sofi lítið. Hann er ekki áhang-
andi neinna fræðikerfa en segist
miða hönnun hluta fremur við nýti-
leik þeirra en fagurt útlit. Hann
segir það þreytandi að beijast gegn
nýtistefnununni (fúnksjónalisman-
um), fremur eyði hann kröftunum
í að hanna hluti sem em vandaðir
og nákvæmlega útfærðir og að
sama skapi hentugir.
Starck hefur sagt að þættir eins
og gleði, merkingarfræði (sem-
antics, sem er heimspekigrein sem
fjallar um samband tákna og merk-
ingar þeirra), ljóðlist, kímni og
galdrar eigi eftir að hjálpa til í leit-
inni að nýrri og betri nýtistefnu.
Samantekt: Hildur Einarsdóttir.