Morgunblaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR l.JÚNÍ 1986
C 7
Hestadagur
í Hólmínum
Stykkishólmi.
HESTEIGENDAFÉLAG Stykkis-
hólms efndi til hestadags í Stykk-
ishólmi, 24. mai á gamla flugvell-
inum fyrir ofan bæinn, en félagið
hefir fengið hann til afnota og
er búið að gera þarna gott svæði
tU allskonar keppni varðandi
hestamennsku. Þarna fór fram
hindrunarhlaup, góðhestakeppni
og firmakeppni og auðvitað fékk
yngri kynslóðin að koma á bak.
Fréttaritari brá sér upp á völl og
fylgdist stundarkom með. Það var
gaman að sjá hversu margir ungl-
ingar af báðum kynjum hafa mikinn
áhuga á hestum og þá ekki síst
hversu þeim er umhugað um að
fara sem best með hestana og fínna
að þama em bestu vinir þeirra.
Misbjóða þeim ekki en fá allt hið
besta fram og um leið stæla þá til
afreka. Það var gaman að sjá
hversu vel þessir ungu upprennandi
menn sátu hestana og gleðina fara
saman við kapp og forsjá. Ég hitti
þama ungan mann sem ekki var í
vafa um að þama hefði hann fundið
þrám sínum útrás. Hér em öll vímu-
efni óþörf sagði hann til áherslu.
Þrátt fyrir austan kalda var furðu
margt saman komið til að horfa á
ogfylgjast með.
í hesteigendafélaginu em nú um
40 manns og hestaeign mun vera
yfír 100. Vegleg, rúmgóð og þægi-
leg hesthús em í útjaðri Hólmsins
og þangað liggja mörg sporin til
að huga að og gefa hestunum.
Hestaíþróttin er vaxandi hér í
Stykkishólmi, sagði einn félaginn
mér. við höfum alltaf haft næg hey
handa hestunum, annað hvort höf-
um við keypt þau eða ræktað grasið
sjálfír, því það em þó nokkrir sem
eiga bletti og láta hestana njóta
þess kjamfóðurs er þar vex.
Frakkland:
Duvalier og
fjöiskylda
til Cannes
Grasse, Frakklandl. AP.
JEAN Claude Duvalier, fyrrum
forseti á Haiti, og fjölskylda
hans, sem búið hafa í bænum
Grasse, flytjast í dag til Cannes
á Frönsku Rivierunni.
Duvalier var neyddur til að fara
frá Haiti, og kom hann ásamt fjöl-
skyldu sinni og aðstoðarmönnum í
bandariskri herþotu til Frakklands
7. febrúar sl. Frönsk stjórnvöld
veittu honum viku umþóttunartíma
til að verða sér úti um annað dvalar-
land, en forsetinn fyrrverandi fékk
hvarvetna synjun. Hann hefur nú
sótt um hæli í Frakklandi sem pólit-
ískur flóttamaður.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins sagði, að enn væri
haidið áfram að leita að framtíð-
ardvalarstað handa Duvalier.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa semlága!
Þessi dagur í dag er ekki beint
keppnisdagur þó hann sé það í og
með sagði einn mér. Við þjálfum
nú af kappi fyrir landsmótið sem
verður í ár á Suðurlandi. Við eigum
marga uppvaxandi og góða hesta
og fallega. Hver veit nema við
verðum sigursælir þar. Við sjáum
bara til.
Arni
Morgunblaðið/Ámi
A fullri ferð í hindrunarhlaup-
inu.
lOOÁTfA
SI&KMOT
í tilefni 100 ára afmælisins efnir Landsbanki íslands til
sögulegs skákmóts I afgreiðslusal Aðalbankans í Austurstræti 11
sunnudaginn 1. júní.
Þar mætast í 12 manna hraðmóti og keppa um 100 þúsund króna
heildarverðlaun fjórir af fremstu skákmönnum íslands á árunum 1955-1960,
þeir Friðrik Olafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmason
og Ingvar Ásmundsson; fjórir af efnilegustu skákmönnum íslands í dag, þeir
Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Árnason,
Héðinn Steingrímsson og Sigurður Daði Sigfússon;
og fjórir af fremstu skákmönnum Landsbankans, þeir Hilmar Viggósson,
Jóhann Örn Sigurjónsson, Sólmundur Kristjánsson
og Vilhjálmur Þór Pálsson.
Keppendur tefla allir við alla og tímatakmörk
eru 10 mínútur á hvorn keppanda í skák. Skákstjóri er
Ólafur S. Ásgrímsson. Áhorfendur eru
velkomnir í afgreiðslusalinn meðan
húsrúm leyfir,skákin hefst
kiukkan 14.00. ^ Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna í 100 ár