Morgunblaðið - 01.06.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986
C 21
Kuldi og
rigning en
„ekki eins
slæmt og
á íslandi“
-
ZUrich, 30. mai. Frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
KULDI, þrumur og eldingar og
grenjandi rigning hefur hrjáð
Svisslendinga undanfarna daga.
Allir eru gáttaðir á veðrinu. Það
er svo kalt að það má búast við
snjókomu niður í miðjar hlíðar
fjallanna og í dag var íbúum
Ziirich bent á að það snjóaði síð-
ast i borginni á þessum árstíma
fyrir 25 árum.
Veðurfræðingur sjónvarpsins
baðst afsökunar á veðrinu í gær-
kvöldi og sagði að það væri ekki
sér að kenna. Yfirfréttastjórinn
sjálfur, Erich Gysling, talaði við
hann og huggaði sjónvarpsáhorf-
endur í lokin með þessum orðum:
„En þetta er nú ekki svo slæmt. Eg
var einu sinni á Islandi í fjóra daga
og þar rigndi endalaust lóðrétt í
andlitið á mér allan tímann.“
Ófétín djassa
ÓFÉTIN halda djasstónleika í Djúp-
inu á sunnudagskvöldið 1. júní.
Hljómsveitin flytur að mestu frum-
samda tónlist, en spilar einnig valin
djassverk annarra höfunda. Með-
limir Ófétanna eru Eyþór Gunnars-
son, Friðrik Karlsson, Tómas R.
Einarsson og Gunnlaugur Briem.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Eigum margar stærðir og gerðir setlauga,
úr áli eða galvaniseruðu stáli með poka úr
plastdúk. Þriggja til sjö manna setlaugar með loft og vatnsnuddi.
AÐ SJÁLFSÖGÐU EIGUM VIÐ FYRIRLIGGJANDI
PUMPUR OG SÍUR EFTIR ÞÖRFUM.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200
Sigurborg Eyjólfsdótt-
ir — Afmæliskveðja
Kæra tengdamóðir!
Þegar mér verður hugsað til allra
bréfanna þinna, sem þú hefur skrif-
að til dóttur þinnar og fjölskyldu
hennar á liðnum árum, finnst mér
ekki annað sæma en að þú fáir frá
okkur opið bréf á þessum merkis-
degi ævi þinnar. Á þann hátt viljum
við heiðra þig, draga fánann að húni
til að hylla þig.
En opið bréf er fleirum ætlað og
hlýt ég því að haga orðum mínum
samkvæmt því, tala bæði til þín og
um þig. Það mun koma mörgum á
óvart, að þú skulir verða áttræð
sunnudaginn 1. júní, ekki vegna
þess að þá er sunnudagur, annað
hefði tæpast verið sæmandi, heldur
vegna þess, að þú ert enn svo ung
í anda. En þetta stendur í kirkjubók
Breiðabólstaðarsóknar á Skógar-
strönd, og orðum hennar verðum
við að trúa.
Oft hefur þú minnst á bemzku-
heimilið á Dröngum, þar sem fyrstu
æviárin liðu í fjölmennum systkina-
hópi hjá gáfuðum og góðum foreldr-
um, Eyjólfi Stefánssyni oddvita og
síðari konu hans, Jensínu Kristínu
Jónsdóttur. Ljóðin þín um Drang-
ana og Skógarströndina túlka ljúfar
minningar og djúpa tryggð við
staðinn. Reyndar geta allir fengið
mynd af heimilinu á Dröngum í þá
daga við að lesa endurminningar
föður þíns í bókinni „Kaldur á
köflum".
Skógstrendingur hefur þú viljað
teljast alla ævi enda varstu á ferm-
ingaraldri, þegar foreldrar þínir
brugðu búi og fluttust suður árið
1920. Margir munu þó telja, að
Hafnarfjörður eigi eitthvað í þér
líka. Þar mættir þú fyrstu gleði
unglingsáranna og fyrstu alvöru
lífsins. Þar stóðstu ung við gröf
móður þinnar, og þar mættir þú
Guðleifi Bjamasyni, manninum,
sem vann hjarta þitt og varð lífs-
förunautur þinn á langri ævibraut.
Nú eru tvö ár síðan hann lézt, en
ríkt var það líf, sem ykkur auðnað-
ist saman. Þið reistuð bú í Hafnar-
firði alþingishátíðarárið 1930. I
firðinum fæddust fyrstu dæturnar
tvær, en svo fluttust þið til Reykja-
víkur og bættuð þremur við bama-
hópinn. Heimilið á Bjarkargötunni
og í Skjólunum varð ekki aðeins
skjólið í hugum bama ykkar, heldur
einnig ótal vina. Margir þeirra hafa
nú kvatt þennan heim, en nýir hafa
bæzt í hópinn, og ég efast ekki um,
að þú verðir þess vör á afmælis-
daginn, að þú átt enn marga vini.
Guð hefur verið þér góður. Hann
bjó þig vel undir lífið og sendi þig
úr föðurgarði með gott veganesti.
Frá Eyjólfi föður þínum munt þú
hafa erft bjartsýnina og starfsvilj-
ann, vakandi huga og skarpar gáf-
ur, svo að ekki sé minnst á skáld-
gáfuna, sem verið hefur leikfang
þitt á kyrrlátum stundum. En þér
er margt til lista lagt, og líklega
hefur þú snilligáfuna, fegurðar-
skynið og handbragðið frá henni
móður þinni. Hannyrðir og sauma-
skap hefur þú alla tíð stundað af
list og ávallt haft auga fyrir því,
sem fegrar og göfgar lífið. Og í
foreldrahúsum lærðir þú fyrstu
bænirnar. Þar var sæðinu sáð í hug
og hjarta og þar vaknaði í kyrrþey
sú trú, sem síðar varð að óbifandi
vissu og auðlegð, se_m hefur nægt
þér til þessa dags. Ógleymanlegar
em mér margar samræður okkar á
liðnum ámm, en þær snemst oft
um kirkju og trú. Og enn tekur þú
þátt í safnaðarlífi kirkju þinnar af
lífi og sál. Þar er þitt annað heimili.
Vonandi eigum við eftir að skiptast
á mörgum bréfum, og vinimir að
njóta þín lengi enn. Því miður get
ég ekki ort til þín. Sú gáfa var mér
ekki gefin, en mig langar að senda
þér stöku eftir Stefan G. Stefans-
Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað,
vinuraftansólarsértu,
sonur morgunroðans vertu.
Guð gefi þér bjart ævikvöld, en
kvöldsólin er einnig fyrirboði nýs
dags. Margt misjafnt hafa menn
skrifað og skrafað um tengdamæð-
ur, en um þig verður gott eitt sagt.
Það segir sá, sem þess hefur notið
lengst.
Felix Olafsson
Sigurborg tekur á móti gestum
í félagsheimilinu við Frostaskjól
(KR-heimilinu) l.júníkl. 15 til 18.
SUNDLAUGAR- SETLAUGAR
ALLAR STÆRÐIR
ALLIR FYLGIHLUTIR