Morgunblaðið - 11.06.1986, Blaðsíða 27
ftxöi ÍHtn. f 1 flUDAflUSIVfllM .(tftfAja^iínMOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. JÚNÍ 1986
27
New York Times:
Nýjasta plata Arna
Egilssonar valin
jassplata vikunnar
NÝLEGA kom út í Bandaríkjun-
um hljómplata með bassaleikar-
anum Arna Egilssyni, „Fantastic
Voyage“. Óhætt er að segja að
viðtökurnar vestra hafi verið
góðar, m.a. valdi stórblaðið New
York Times hana jassplötu vik-
unnar 23. maí sl.
Ámi gat sér fyrst frægðar sem
klassískur bassaleikari og hefur
komið fram í Englandi, Sviss,
Þýskalandi, írlandi og Bandaríkjun-
um. Það var í lok sjöunda áratugar-
ins sem Ámi kom til Bandaríkjanna
fyrir tilstuðlan sir Johns Barbiorolli
og kom þar m.a. fram með André
Previn og gat sér þá þegar mjög
gott orð sem bassaleikari. Fyrsta
plata hans, „Bassus Erectus", fékk
ágæta dóma og var meðal annars
á lista Billboard yfir jassplötur sem
mælt var með.
Upp á síðkastið hefur Ámi verið
búsettur í Los Angeles en þar er
hann mjög eftirsóttur sem hljóð-
færaleikari, m.a. við upptökur á
kvikmyndatónlist. Nýja plata Áma
Árni Egilsson
er gefin út af útgáfufýrirtæki í Los
Angeles, Amaeus Music. Á plötunni
leikur bassaleikarinn Ray Brown
með Áma og rætist þar ævilangur
draumur Áma, en Brown hefur
ávallt verið í miklum metum hjá
honum.
Stýrimannafélag íslands:
Gagnrýnir setningu
bráðabirgðalaga
Á aðalfundi Stýrimannafélags
Islands var samþykkt gagnrýni
á setningu bráðabirgðalaga til
að binda enda á verkfall Skip-
stjórafélags íslands og Sjó-
mannafélags Reykjavíkur. Fund-
urinn samþykkti einnig að hvetja
til þess að skip, sem stunda reglu-
bundnar siglingar til og frá
landinu, verði í eigu íslendinga
og mönnuð íslendingum.
í frétt frá félaginu kemur fram
að fundarmenn hafí litið á lagasetn-
inguna sem sönnun þess að laun-
þegar búi við skertan samningsrétt
vegna þess að atvinnurekendur geti
treyst á íhlutun stjómvalda í vinnu-
deilum. Enn fremur mótmælti fund-
urinn því sjónarmiði sem fram hefur
komið, að það samrýmist ekki lög-
um um landhelgisgæslu að starfs-
menn Landhelgisgæslunnar taki
þátt í starfí stéttarfélaga. Á fundin-
um kom fram að á árinu 1985 hafí
6 farskip verið seld úr landi en 2
keypt til landsins og að þeir flutn-
ingar, sem þessi skip hafi annast,
séu nú að mestu í höndum erlendra
leiguskipa með erlendum áhöfnum.
Göngubrúin á Krossá. Settir voru upp brúarbitar um helgina og einungis eftir að ljúka við brúar-
gólfíð.
Unnið að uppsetningu útigrills. Grillið er mjög stórt og geta
margir grillað I einu.
Nýtt salemishús rís af granni í stað þess sem brann 30. mai sl.
Ferðafélagið
býður upp á
bætta aðstöðu
í Þórsmörk
RÚMLEGA 40 manns unnu í
sjálfboðavinnu á vegum Ferða-
félags íslands í Þórsmörk um
síðustu helgi. Meginverkefni
hópsins voru þrjú: Göngubrú
yfir Krossá, göngustígagerð og
smíði saleraishúss í stað þess
er brann 30. maí sl.
Einnig tóku nokkrir sérfræð-
ingar sig til og hlóðu útigrill
skammt frá sæluhúsinu. Lengi
hefur verið þörf á slíkri aðstöðu
þar sem oft hefur reynst erfítt
að halda uppi eftirliti með því
fólki sem grillar átjaldstæðunum.
Gert er ráð fyrir því að þessum
framkvæmdum í Langadal ljúki
um næstu helgi og geta þá sumar-
leyfísgestir nýtt sér þessa bættu
aðstöðu sem Ferðafélagið býður
upp á í Þórsmörk.
GOÐAR
FRETTIR:
<
I
Óvænt aukasending
af Volvo 1986.
SUÐURLANDSBRAUT 16 — SÍMI 35200
Enn áttu kost á nýjum Volvo 1986.
Okkur hjá Velti tókst að útvega
nokkra Volvobíla af öllum gerðum.
Þú átt sem sagt enn kost á nýjum
Volvo á ótrúlegu verði.
Hafðu strax samband við okkur í
Volvosalnum.
VOL VOSUMAR ER GOTT SUMAR.