Morgunblaðið - 14.06.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ1986
RLR vildi dóm-
þing í Síðu-
múlafangelsi
— segir Hallvarður Einvarðsson,
MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá
Hallvarði Einvarðssyni, rannsóknarlögreglustjóra ríkisins.
„Vegna ummæla, sem birst hafa
á vettvangi fjölmiðla um meðferð
gæzluvarðhaldskrafna af hálfu
rannsóknarlögreglu ríkisins í svo-
nefndu Hafskipsmáli og fyrirtektir
þeirra fyrir sakadómi Reykjavíkur
skal eftirfarandi tekið fram:
Þyki þörf á aðgerðum, sem að
lögum þarf til atbeina dómara,
vegna rannsóknar máls, svo sem
gæzluvarðhalds, snýr rannsóknar-
lögreglustjóri sér til dómara með
beiðni um slíkar aðgerðir. Dómari
metur síðan hvort lagaskilyrði séu
fyrir hendi til slíks á grundvelli
þeirra gagna, sem iögð eru fram
af hálfu rannsóknarlögreglu. Með-
ferð slíkra mála fer fram fyrir
sakadómi á þeim stað og tíma, sem
dómari ákveður hveiju sinni. Er
gæzluvarðhaldskröfur RLR í þessu
máli höfðu verið lagðar fram var
þeim eindregnu tilmælum beint til
dómsins, að dómþing í málunum
yrðu háð í Síðumúlafangelsi, m.a.
til að komast hjá óþarfa athygli
Qölmiðla. Hliðstæðum tilmælum
hefir reyndar oft áður verið beint
til dómsins, en dómurinn telur ekki
skilyrði vera fyrir hendi til að heyja
dómþing í Síðumúlafangelsi, þar
sem ekki sé starfsaðstaða þar fyrir
dómara.
Alþjóðleg náttúruvemdarsamtök:
íslendingar varaðir við
notkun loðins orðalags
Malmö. Frá ómari Valdimarssym, blaðamanni Mnrgiinhlaóninn,
ALÞJÓÐLEG náttúruverndarsamtök á 38. ársfundi Alþjóða hvalveiði-
ráðsins, sem lauk í Malmö í gær, vara íslendinga við þvi að nota loðið
orðalag, í ályktun ráðsins um hvalveiðar i vísindaskyni, til að halda
veiðunum áfram og selja megnið af afurðum tilraunahvalanna úr
landi. Þegar fundinum lauk stóðu hvalaverndunarmenn gegnt ráðhús-
dyrunum með mótmælaskilti. Á þvi stærsta stóð: „Japan, ísland,
Suður-Kórea og Noregur: Ykkar er skömmin." Norðmenn og Japanir
stunda enn hvalveiðar þrátt fyrir ákvörðun Alþjóða hvalveiðiráðsins
um veiðistöðvun. ísland og Suður-Kórea ætla að veiða nokkur hundruð
hvali á næstu fjórum árum í rannsóknarskyni.
í yfirlýsingu sem birtist í Eco,
daglegu dreifiriti samtakanna, er
lögð sú túlkun í orðalagið „primarily
for local consumption" þegar rætt
er um nýtingu hvalaafurðanna í
ályktuninni að gert sé ráð fyrir að
megnið af lriötinu fari til neyslu
innanlands. Islenska sendinefndin
hér leggur annan skilning f þetta
orðalag: Það er að Hvalveiðiráðið
leggist ekki gegn alþjóðlegri verslun
með þær afurðir sem ekki fara til
neyslu innanlands.
Meðal ársneysla hvalkjöts á fs-
Iandi er innan við 200 tonn, að sögn
Kristjáns Loftssonar framkvæmda-
stjóra Hvals hf., en hann reiknar
með að hvalvertíðin í ár skili allt að
tíföldu því magni. Hagnaður af sölu
hvalaafurða til Japans á að renna
alfarið til hvalarannsókna á íslandi.
í dreifiriti náttúruvemdarsamtak-
anna segir ennfremur að íslendingar
eigi á hættu að sett verði innflutn-
ingsbann á íslenskan fisk til Banda-
ríkjanna haldi þeir áfram hvalveiðum
og verslun með afurðir þeirra hvala
sem veiddir eru í vísindaskyni.
Talsmenn stærstu samtakanna,
t.d. Grænfriðungar, segja að þeir
geti með mjög skömmum fyrirvara
hafið herferð fyrir þvf vestra að fólk
hætti að kaupa fslenskar fiskafurðir.
Enn hefur ekkert verið endanlega
ákveðið um kaup Japana á íslenskum
hvalaafurðum, en eins og kom fram
í blaðinu í gær telur talsmaður jap-
önsku sendinefndarinnar hér líklegt
að þeir muni nú kaupa hvalkjöt og
fleiri afurðir sem til falla. Um annan
markað en Japan er varla að ræða
í þessu sambandi.
Hér er almennt talið að endanlegt
orðalag ályktunarinnar um vísinda-
veiðamar hafi verið sigur fyrir fs-
lendinga ekki síst þegar tekið er
tillit til þess að í upphafi fundarins
virtist málstaður íslendinga engan
hljómgrunn eiga. Það voru þeir
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, og Guðmundur Eiríksson,
þjóðréttarfræðingur utanríkisráðu-
neytisins, sem báru hitann og þung-
ann af samningaviðræðunum um
orðalag ályktunarinnar. Aðrir í ís-
lensku sendinefndinni eru Jakob
Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknar-
stofnunarinnar, Jóhann Siguijóns-
son, sjávarlíffræðingur helsti hvala-
sérfræðingur íslendinga, Kristján
Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals
hf., Eyþór Einarsson, formaður
Náttúruvemdarráðs, Ámi Kolbeins,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, og Kjartan S. Júlíusson,
deildarstjóri f ráðuneytinu, en hann
er varaformaður neftidarinnar.
Fjölmiðlar voru því í aðstöðu til
að vakta húsakynni RLR og saka-
dóms unz málin vom tekin fyrir
þannig að ekki var við ráðið. Allt
tal um „samspil lögreglu og §öl-
miðla" og annað í þeim dúr í þessum
efnum er algjörlega úr lausu lofti
gripið, þvert á móti var af hálfu
RLR leitast við að koma í veg fyrir
óþarfa Qölmiðlaumfjöllun á frum-
stigi rannsóknar. Tekið skal undir
ýmsar þær athugasemdir, sem fram
hafa komið um umfjöllun fjölmiðla
á þessum stigum málsins, svo sem
fréttaflutning sjónvarpsins. Sann-
arlega höfum við hjá RLR reynt
að gæta þess í störfum okkar um
árin að mönnum yrði ekki gert tjón,
óhagræði eða miski framar en óhjá-
kvæmilegt er eftir því sem á stend-
ur, þ. á m. við aðstæður sem þessar.
Vissulega hefir það oft verið sárt
að verða að fylgja umkomulausum
mönnum, þ. á m. ungmennum,
þessa leið. Gjaman hefði athygli
og umhyggja þeirra, sem nú Iáta
hæst í hneykslan sinni á vettvangi
fjölmiðla, mátt vakna fyrr. Úrbóta
er vissulega þörf.“
Tvær opnur úr bandarfska tímaritinu Town & Country með myndum af Wathne-systrum.
Wathne-systur vekja athygli í Bandaríkjunum:
Hönnunin er okkar sérsvið
— segir Þórunn Wathne
„ÞEGAR Town & Country bað okkur að taka þátt f þessari ferð
fannst okkur við ekki geta neitað þeim. þetta var svo sérstaklega
skemmtilegt tilboð, að fá einn þekktasta tískuljósmyndara heims,
Norman Parkinson, til íslands til að taka myndir af okkur,“ sagði
Þórunn Wathne en f maí hefti bandarfska tímaritsins Town &
Country er stutt grein um Wathne systur með myndum af þeim
á íslandi.
Systumar, þær Þórunn, Berge
og Soffía eiga og reka fyrirtæki
í Bandaríkjunum, sem hefur sér-
hæft sig í að framleiða, svokallað-
ar kynningarvömr fyrir bandarísk
stórfyrirtæki. „Það sem við höfum
fram yfír önnur fyrirtæki á þessu
sviði er hönnunin, sem er okkar
sérsvið," sagði Þómnn. „Við emm
uppfullar af hugmyndum og höf-
um kunnáttu til að koma þeim
frá okkur. Fyrst á blað, þá í fram-
leiðslu og siðan til viðskiptavin-
anna á mjög skömmum tíma, en
það er aðal atriðið og kostar bæði
peninga, mikla vinnu og áhættu."
— Hvað er það sem þið hannið
og seljið?
„Það er svo margt. Það er
eiginlega ekkert, sem við ekki
hönnum og framleiðum. Hvort
sem það em speglar, keramik,
postulín, tágavömr eða fatnaður.
Það fer allt eftir því hveiju við-
skiptavinurinn sækist eftir. Fyrir-
tækin okkar Wathne Ltd., Wathne
Inport, sem er heildsölufyrirtæki
og Wathne Intemational, sem er
rekið í Hong Kong og á Ítalíu,
auk annarra smá fyrirtækja sem
við eigum og sjá ýmist um hönnun
eða framleiðslu, gera það að verk-
um að við getum boðið viðskipta-
vinunum upp á nánast hvað sem
er.
— Hvenær byijuðu þið að
vinna saman?
„Fyrir rúmum sjö ámm og síð-
an okkur fór að ganga vel hafa
fjölmiðlar veitt okkur sífellt meiri
athygli og beðið um viðtöl. Við
emm sjálfar lítið fyrir að vera í
sviðsljósinu en við ekki getað
neitað Town & Country. Bæði
vegna ljósmyndarans og eins
fannst okkur þetta geta orðið góð
landkynning fyrir ísland."