Morgunblaðið - 14.06.1986, Page 27
MORGUNBLAPIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1986
27
Akureyri
Morgunblaðið/Magnús Gottfreðsson
Tvær grænlensku kvennanna skrýddust þjóðbúningi sinum við þetta
tækifæri og víst er hann litskrúðugur.
Grænlenzkar kvenfé-
lagskonur heimsækja bæinn
GRÆNLENSKAR kvenfélagskonur, 11 að tölu komu í heimsókn til
Akureyrar á mánudag. Af því tilefni bauð bæjarstjórn Akureyrar
þeim til kvöldverðar á Hotel KEA. Tvær kvennanna skrýddust
grænlenska þjóðbúningnum við það tækifæri.
Konurnar komu til landsins 2. júní og hafa ferðast allvíða um
landið, m.a. til Mývatns. Þær halda heim á leið 16. júni.
Heimskautaflug Arnarflugs:
Frá Hamborg
til Akureyrar
Akureyri.
ARNARFLUG verður með beint þotuflug frá Hamborg í Vestur-
Þýskalandi til Akureyrar sunnudaginn 22. þessa mánaðar. Ekki er
ákveðið hvort ferðirnar verða fleiri en þessi en að sögn Sighvats
Blöndal, blaðafulltrúa Amarflugs, er verið að vinna að þvi í Þýska-
landi að selja fleiri slíkar „heimskautaferðir" í sumar.
Nú þegar er öruggt að um 100
manns koma í þessa ferð. Lagt
verður upp frá Hamborg kl. 16 að
þýskum tíma og lent á Akureyri
kl. 17 að staðartíma. Þaðan verður
ekið á Mývatn þar sem Þjóðveijam-
ir skoða sig um og snæða kvöld-
verð. Eftir það verður ekið á ný til
Akureyrar og stigið upp í þotuna
kl. 23. Síðan verður flogið norður
fyrir heimskautsbaug og áður en
haldið verður til Þýskalands á ný
millilendir þotan í Keflavík til að
taka eldsneyti. Sem sagt stuttur
og laggóður túr.
Strax daginn eftir, mánudag 23.
júní, verður Amarflug með annað
beint þotuflug til Akureyrar frá
Þýskalandi. Þá verður flogið frá
Hannover með 130 manna hóp sem
dvelja mun hér norðanlands í hálfan
mánuð.
Laxdalshús opnað
OPNUÐ hefur verið veitingasala og gallerí í
Laxdalsliúsi, en það er elsta hús á Akureyri,
byggtárið 1795.
Húsið byggði danskur kaupmaður, Kyhn, en
húsið dregur nafn sitt af Eggert Laxdal sem bjó
í því á seinni hluta 19. aldar. I Laxdalshúsi bjuggu
oft 3-4 fjölskyldur, alit að 30 manns. Síðustu íbúar
hússins fluttu út árið 1978 og hófst þá endur-
bygging þess. Nú hefur það verið endurreist í sinni
upprunalegu mynd.
A efri hæð hússins er aðstaða fyrir matar- og
kaffigesti, en á þeirri neðri er gallerí og setustofa.
I garðinum hefur verið komið fyrir leiksviði og þar
er einnig aðstaða fyrir matargesti, þannig að unnt
er að snæða undir bemm himni ef svo ber undir.
Laxdalshús verður opið í allt sumar, og um helgar
í vetur. Þá stendur til að halda tónlistar- og ljóða-
kvöld á laugardagskvöldum eftir því sem tækifæri
gefast. Einnig gefst fólki kostur á að leigja húsið
við ýmis tækifæri. Öm Ingi myndlistarmaður leigir
húsið af Akureyrarbæ og annast rekstur þess.
Laxdalshús.
Morgunblaðið/MagnÚ8 Gottfreðsson
Úr veitingasal á efrí hæð Laxdalshúss.
Bæj arfulltrúar heim-
sækja heilsugæslustöðina
Akureyri.
BÆJARFULLTRUAR á Akureyri heimsóttu heilsugæslustöðina hér
í bæ miðvikudaginn 11. júni, S boði stjómar stöðvarinnar. Gengið
var um húsakynnin við Hafnarstræti og starfsemin kynnt S stuttu
máli.
Sögu heilsugæslustöðvarinnar
má í raun réttri rekja allt aftur til
ársins 1938, en þá var komið upp
berklavamarstöð í því húsnæði þar
sem nú er dagheimilið Stekkur.
Heilsugæslustöðin sjálf var þó
stofnuð miklu síðar, eða 1. janúar
á síðasta ári. Við stofnun hennar
sameinaðist starfsemi Læknamið-
stöðvarinnar, Heilsuvemdarstöðv-
arinnar og heilsugæslu í skólum.
Hinn 1. júlí sl. var tekið í notkun
um 350 fermetra húsnæði til við-
bótar við það sem áður var í notkun.
Að heilsugæslustöðinni á Akur-
eyri standa eftirtalin sveitarfélög:
Akureyrarbær, Amameshreppur,
Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur,
Glæsibæjarhreppur, Hrafnagils-
hreppur, Saurbæjarhreppur, Öngul-
staðahreppur, Grímseyjarhreppur,
Svalbarðsstrandarhreppur, Háls-
hreppur og Grýtubakkahreppur
sem er með útibú á Grenivík. Stöðin
þjónar um 17.000 íbúum og er þar
með langstærsta heilsugæslustöiðin
á landinu.
Við stöðina vinna heilsugæslu-
læknar sem hafa heimilislækningar
sem aðalstarf. Þar er leyfi fyrir 11
lækna. Fyrir utan læknana starfa
heilsugæsluhjúkrunafræðingar og
ljósmæður í 15 stöðugildum, sjúkra-
liðar í 6 stöðugildum, meinatæknar
í 1,6 stöðugildum, læknaritarar í
3,5 stöðugildum og annað starfsfólk
í 4,5 stöðugildum við stöðina.
A heilsugæslustöðinni er veitt
almenn læknisþjónusta, en vakt-
þjónusta og vitjanir em einnig fyrir
hendi þegar aðstæður kreQast.
Meinatæknar þeir er við stöðina
starfa annast almenna sýnatöku og
rannsóknir á staðnum. Að auki er
haft samstarf við aðrar rannsóknar-
stofur. Hjartalínurit er tekið á
staðnum. í húsakynnum stöðvar-
innar er aðstaða til að framkvæma
smáaðgerðir, gera að minniháttar
meiðslum, skipta á sárum o.fl.
Hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar
annast heimahjúkrun í samráði við
heimilislækna. Þá annast læknar
og hjúkrunarfræðingar stöðvarinn-
ar heilsugæslu í skólum. Mæðra-
og ungbamavemd annast og heim-
ilisiæknar, sérfræðingar, ljósmæður
og hjúkrunarfræðingar. Einnig fer
fram krabbameinsleit, berklaeftirlit
og ónæmisaðgerðir fullorðinna á
vegum stöðvarinnar.
Samstarf er haft við Heymar-
og talmeinastöð íslands þannig að
Heilsugæslustöðin tekur við tíma-
pöntunum frá einstaklingum er
slíkrar þjónustu þurfa við, og lánar
húsnæði þegar Heymar- og tal-
meinastöðin veitir þjónustu á svæð-
inu.
Moigunblaðið/Magnúi Gottfreðsson
Bamaskoðun I heilsugæslustöð-
inni
Nonni kynntur
í Nonnahúsinu
Akureyri.
STARFSEMI Nonnahússins á
Akureyrí hefst í dag kl. 14 en
það er aðeins opið á sumrin. Á
morgun verður síðan kynning á
Nonna og sögustund fyrir börn
í húsinu.
Á morgun, sunnudag, hefst kaff-
isala Zontasystra í Hafnarstræti 54,
húsinu fyrir framan Nonnahús, kl.
14. Kl. 16 hefst síðan kynning á
Jóni Sveinssyni í Nonnahúsi. Sögu-
stund fyrir bömin verður þar á
eftir, kl. 17.
Zontasystur eiga og reka Nonna-
hús sem var endurreist á sínum
tfma í minningu sr. Jóns. í Nonna-
húsi er margt fróðlegra muna sem
tengjast minningu Nonna og húsið
sýnir vel hvemig búið var á upp-
vaxtarárum hans á miðri sfðustu
öld.
Bæjarfulltrúar ræða við starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar: Sigurður J. Sigurðsson, Bjðrn
viðarson, Ólafur Hergill Oddsson, héraðslæknir, Konny Kristjánsdóttir, hjúkrunarforstjóri,
Einarsdóttir, bæjarfulltrúi.
Jósef Am-
og Áslaug