Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 1
I íþrðtllr I
Islandsmótið 1. deild:
Pétur með
hæstu einkunn
B
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
BLAÐ
• Takst hinum unga De Napoli frá ítalfu að halda aftur af Michel
Platini, knattspymumanni Evrópu, þegar landslið Frakklands og ítalfu
leika f dag?
Ótrúlega auðvelt
er Brasilíumenn slógu síðustu Austantjalds-
þjóðina út úr heimsmeistarakeppninni í gær
Brasilíumenn unnu ótrúlega léttan sigur á Pólverjum f 16-liða úrslrtum
heimsmeistarakeppninnar f knattspyrnu í gœrkvöldi á Jalisco-leik-
vanginum f Mexfkó, leikvanginum þar sem Brasilfumenn hafa ekki
tapað leik á til þessa. Þeir láku þar árið 1970 og unnu alla leiki sfna
þá og sama virðist ætla að verða upp á teningnum í þessari keppni.
Úrslit leiksins f gær urðu 4:0 eftir að Brasilíumenn höfðu haft 1:0
yfir í leikhlái. Austantjaldsþjóðirnar fjórar, sem komust f úrslitakeppn-
ina f Mexfkó, eru þá allar úr leik. Sovátmenn slegnir út á sunnudag-
inn og Pólverjar f gær.
Fyrsta markið skoraði Sokrates
úr vítaspyrnu sem margir telja að
slakur dómari leiksins hafi gefið
Brasilíumönnum. Strax í upphafi
síðari hálfleiks jók bakvörðurinn
Josimar muninn með skemmtilegu
marki úr mjög þröngri stöðu. Að
þriðja markinu var fallega staðið.
Careca fékk boltann eftir aö varn-
armanni Pólverja hafði mistekist
að hreinsa fró marki. Hann beið
eftir aðstoð frá félaga sínum, Edin-
ho, sem lók á einn varnarmann og
markvörðinn með einni hreyfingu
og þrumaði í markið. Fjórða markið
gerði síðan Careca sjálfur úr víta-
De Napoli mun
gæta Platini
TEKST De Napoli í ítalska liðinu
að halda Michel Platini níðri f
leiknum f dag? Þetta er spurning
sem menn velta mikið fyrir sár
eftir að sá fyrrnefndi bað Enzo
Bearzot þjálfara um að fá að
gæta Platini f leiknum. Bearzot
var ekki seinn að samþykkja
þessa tillögu Napoli og það verð-
ur fróðlegt að fylgjast með þeim
köppumídag.
Það eru sjálfsagt ekki margir
sem eru ólmir í að takast á við það
erfiða hlutverk að gæta Platini í
leik. Hann er einn besti knatt-
spyrnumaöur heims, hugmynda-
fræðingurinn í flestum sóknarað-
gerðum Frakka, og getur gert
nærri því hvað sem er við knöttinn.
De Napoli er þó hvergi smeykur.
„Strákarnir voru eitthvað hik-
andi við þetta þannig að ég bauð
mig fram. Ég veit að Platini er
einstakur leikmaður og hann hefur
mikla reynslu, miklu meiri en ég,
en ég held að ég hafi nógu mikinn
hraða til að gæta hans vel og ég
ætla að gera það,“ sagði De
Napoli ígær.
„Ég hef mikla trú á stráknum.
Hann hefur sýnt það að hann er
framtíðarleikmaður og því er alveg
tilvalið fyrir hann að fá að spreyta
sig gegn Platini á morgun. Hann
er frábær persónuleiki sem lætur
nefbrot ekkert há sér í leik og
hlustar ekki á þegar félagar hans
segja honum að nefbrotið lagi
aðeins á honum andlitið. Ég hef
trú á því að Platini verði að taka á
öllu sínu ef hann ætlar að gera
eitthvað í leiknum," sagði Bearzot
í gær.
De Napoli er kominn af verka-
fólki á Ítalíu. Hann er 1,78 metrar
á hæð og 75 kíló. „Fyrir nokkrum
árum sagði ég við pabba að ég
væri hættur í skóla og ætlaði að
verða knattspyrnumaður. Hann
sagði að ég yrði þá að verða góður
því annars yrði ég rekinn í vinnuna
aftur þannig að ég haföi engan
annan kost en að spjara mig,“
segir Napoli um tildrög þess að
hann byrjaði í knattspyrnunni.
spyrnu og var þetta fjórða mark
hans íkeppninni.
Eins og hér að framan er sagt
hafa Brasilíumenn aldrei tapað leik
ó Jalisco-leikvanginum í Mexíkó.
Þegar heimsmeistarakeppnin var
haldin þar fyrir 16 árum unnu þeir
aila leiki sína þar og núna hafa
þeir leikið fjóra leiki þar og unnið
alla, skorað níu mörk og ekki feng-
ið eitt einasta ó sig. Árið 1970 léku
þeir til úrslita við ítali og unnu
þann ieik 4:1 og eflaust hafa
margir óskaö sér að sjá þessi lið
í úrslitum en af því getur ekki orðið
því ef ftalía vinnur Frakka í kvöld
þá leika þeir við Brasilíu í átta liða
úrsiitunum. Leikur Brasilíu og ftal-
íu, eða Frakklands, verður að sjálf-
sögðu á Jalisco-leikvanginum.
Argentína áfram
ARGENTÍNUMENN eru komnir f
átta liða úrslit heimsmeistara-
keppninnar. Þeir unnu Uruguay-
menn í gærkvöldi með einu marki
gegn engu f hröðum og skemmti-
legum leik þar sem mikið gekk á.
Sjö áminningar voru veittar f
leiknum og hefur gula spjaldið
nú sást 95 sinnum f keppninni.
Þetta var í fyrsta sinn frá því
árið 1930 sem þessar þjóðir leika
saman i heimsmeistarakeppni. Þá
léku þær til úrslita og unnu Ur-
uguaymenn þá 4:2 en núna höfðu
Argentínumenn betur.
Argentínumenn voru sterkari
þegar á heildina er litið en Uruguay
hefði hæglega getað jafnað leikinn
en þeir voru óheppnir upp við
Staðaní
1. deild
KR
lA
Fr.m
Valur
K.flavfk
Vlðir
Brelðabllk
Þór Ak.
FH
IBV
markið og náðu því ekki að jafna
þóoft munaði fitlu.
Eina markið geröi Pascuili eftir
að varnarmaöur Uruguay hafði
sent knöttinn til hans þar sem
hann var óvaidaður inní vítateig
og átti hann ekki í erfiðleikum með
að skora. Argentínumenn leika í
átta liða úrslitum viö Englendinga
eða Paraguaymenn.
Frakkland
og Ítalía
leika í dag
TVEIR leikir verða f 16-liða úrslit-
um heimsmeistarakeppninnar í
dag. Fyrri leikurinn er viðureign
heimsmeistara ítala og Evrópu-
meistara Frakka og hefst hann
klukkan 18 að íslenskum tíma.
Marokkó og Vestur-Þýskaland
leika síðan klukkan 22.
Á morgun verða einnig tveir
leikir. Englendingar mæta
Paraguaymönnum klukkan 18 og
klukkan 22 er síðan leikurinn, sem
allir biða eftir, leikur Dana og Spán-
verja.
Ray Floyd
ÁRIÐ 1986 virðist ætla að verða
ár „gömlu“ mannanna f golfinu.
Hinn 43 ára gamli Ray Floyd
sigraði um helgina f US Open,
sem er eitt af stóru golfmótun-
um, og ekki alls fyrir löngu vann
Jack Nicklaus US Masters
þannig að þeir gömlu hafa stað-
ið sig vel f þeim stórmótum sem
lokið er á þessu ári.
„Þegar líða tók á síðasta hring-
inn hjá mér hugsaði ég með mér
að ef ég hefði það ekki af núna
þá yrði trúlega langt þar til ég
næði að vinna þetta mót. Mér
var ekkert um þá hugsun þannig
að ég ákvað að vinna bara núna
þannig að ég þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af þessu í ellinni," sagði
Ray Floyd eftir að hann hafði
tryggt sér sigur í US Open á
sunnudaginn og vinna sér þar
með inn 4,5 milljónir íslenskra
króna en það voru verðlaunin
fyrir fyrsta sætið í þessu mikla
móti.
„Ég margsagði við sjálfan mig
að líta ekki á stöðuna en samt
gerði maður það alltaf öðru
hvoru. Það er eins og þessi fjör-
tíu ár í þessu hafi ekkert kennt
manni þegar á hólminn er komið.
Ég náði þó að leika minn leik án
þess að láta spennandi keppni
hafa áhrif á mig og ég er í sjö-
unda himni með sigurinn," sagði
Floyd um leið og hann þerraði
gleðitár úr augum sínum.
Keppnin var óhemju spenn-
andi aö þessu sinni. Síöasta
daginn skiptust níu kylfingar á
um að hafa forystuna en þegar
vann
allir voru komnir inn stóð Floyd
uppi sem sigurvegari. Hann lék
á 75-68-70-66 eða alls á 279
höggum. Lanny Wadkins og Chip
Beck urðu jafnir í næsta sæti
með 281 högg en Wadkins telst
annar þar sem hann lék síðustu
þrjá dagana á betra skori en
Beck.
Það gekk á ýmsu í þessu móti.
Snarvitlaust veður var fyrsta
daginn og léku menn þá illa og
þá gerðist það í fyrsta sinn í
langri sögu keppninnar að sá
sem hafði forystuna, Greg Nor-
man lék á pari vallarins. Veðrið
lagaðist þó og næsta dag léku
allir mun betur og sömu sögu
er að segja næstu tvo daga nema
hvað Norman lék mjög iila eftir
fyrsta daginn.
US Open
Þegar keppninni lauk var vaði og ónæði,“ sagði hann eftir
sigurvegarinn, Ray Floyd, eini keppnina og var allt annað en
keppandinn sem leikið haföi
keppnina undir pari vallarins.
Allir voru yfir pari en Floyd lék á
einu höggi undir pari að þessu
sinni.
Það er ekki á hverjum degi
sem kylfingar lenda í útistöðum
við áhorfendur á mótum sem
þessu en það gerðist að þessu
sinni. Greg Norman varð að biðja
áhorfendur um að hafa hljótt sjð-
asta daginn þegar hann einbeitti
sér að því að slá á einni braut-
inni. Deilan gekk það langt að
hann labbaði sér upp að kaðlin-
um og reifst við einn áhorfand-
ann og þá ioksins fékk hann ró
til að slá. „Þetta er eins og að
vera á hokkíleik, alltof mikill há-
hress.
Ray Floyd var ekki eins æstur
og Norman þegar nokkrir Ijós-
myndarar gerðust heldur nær-
göngulir. Hann hætti skyndilega
við að slá. Sneri sér að Ijósmynd-
urunum og baö þá vinsamlegast
um að bíða með að smella af þar
til hann hefði slegið kúluna. Þeir
urðu við þessu fyrir hann og
enginn missti stjórn á sér.
Röð efstu manna varA annars þesai:
Ray Floyd
Lanny Wadkins
Chip Beck
Hal Sutton
Lee Trevino
Ben Crenshaw
Payne Stewart
Jack Nicklaus
Bernhard Langer
Mark McCumber
75-68-70-66=279
74- 70-72-65=281
75- 73-68-65=281
75- 70-66-71=282
74-68-69-71=282
76- 69-69-69=283
76- 68-69-70=283
77- 72-67-68=284
74-70-70-70=284
74-71-68-71=284