Morgunblaðið - 18.07.1986, Blaðsíða 48
heim
Sbókhauwð
tfttgiuttMfiftifr
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986
VERÐ I LAUSASOLU 40 KR.
6% hækkun í
innanlands-
flugi í dag
011 flugfargjöld i innanlands- gjöldum s.s. fjölskyldufargjöldum
flugi hækka um 6% frá og með
deginum i dag. Þessi hækkun var
samþykkt á fundi Verðlagsráðs
í fyrradag.
„Ástæðan fyrir þessari hækkun
er einfaldlega verðbólga," sagði
Sveinn Sæmundsson sölustjóri inn-
anlandsflugs Flugleiða i samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „Þó að
verðbólgan sé minni en hún var þá
er hún enn til staðar. Síðasta hækk-
unin á fargjöldum í innanlandsflugi
var 5% hækkun 6. desember sl. Við
höfðum vonast til þess að geta hald-
ið verði óbreyttu iengur, jafnvel út
árið, en það reyndist því miður
ómögulegt. Þetta er að okkar mati
lágmarkshækkun," sagði Sveinn.
Sem dæmi um hækkun á far-
gjöldum má nefna að fullt fargjald
til Akureyrar hækkar úr 2183 krón-
um í 2314. Ódýrasta fargjaldið sk.
„hoppfargjald" er nú 1157 krónur
en það er ásamt öðrum afsláttarfar-
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Kjarval 1025 frá Sauðár-
króki, knapi Einar Oder
Magnússon.
Stóðhestur
ekki falur
fyrir rúmar
2 milljónir
TILBOÐI í stóðhestinn Kjar-
val 1025 frá Sauðárkróki upp
á rúmar tvær milljónir króna
hefur verið hafnað af eiganda
hestsins. Hrossaræktarsam-
band Suðurlands gerði tilboð
í hestinn eftir sýningu Stóð-
hestastöðvarinnar í maí sl. og
tók eigandinn sér umhugsun-
arfrest fram að Landsmóti.
Áður hafði Norðmaður boðið
tvær milljónir í hestinn en
fengið afsvar.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins eru innlendir aðilar
tilbúnir að gera tilboð í hestinn
verði hann boðinn falur og munu
þeir að sögn fylgja hveiju því
tilboðið sem kynni að koma í
hestinn. Má af þessu ráða að
Kjarval verði dýrasti hestur
landsins komi til sölu á honum.
Einnig hefur verið mikill áhugi
fyrir Otri 1050 hálfbróður
Kjarvals en ekki er vitað til að
formlegt tilboð hafí komið í
hann.
Sjá nánar á bls. 28.
visst hlutfall af fullu fargjaldi og
hækka þau hlutfallslega eins og
það. Fullt fargjald til Vestmanna-
eyja hækkar úr 1417 krónum í
1502 krónur og til ísafjarðar úr
2083 krónum í 2160 krónur.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði þessa hækkun tilkomna vegna
11% hækkun á kostnaðarliðum frá
því síðustu hækkun. Einungis hefði
þó verið sótt um 6% hækkun þar
sem markaðsstaðan hefði verið
metin af Flugleiðum sem slík að
hún þyldi ekki meiri hækkun en
þetta.
Á þessum sama fundi var tekin
fyrir umsókn um 7% hækkun á
taxta leigubifreiða en henni var
vísað frá þar sem ekki var talið til-
efni til að hækka þá að sinni.
Yerkföll á
2 dvalar-
heimilum
GERT er ráð fyrir að verkfall
hefjist hjá ræstingafólki á dval-
arheimilinu Ási í Hveragerði og
dvalarheimilinu Lundi á Hellu á
mánudagsmorgun.
Á sáttafundi í gær í deilu Al-
þýðusambands Suðurlands og fímm
sjúkrastofnana og elliheimila á Suð-
urlandi gerðist það að launamála-
nefnd sveitafélaganna tók að sér
að semja fyrir hönd atvinnurek-
enda. Viðsemjendur ræstingafólks
á þremur hjúkrunarstofnunum á
Selfossi og í Hveragerði féllust á
að fresta verkfalli um tvo daga,
fram á miðvikudag í næstu viku.
Enginn fulltrúi mætti á fundinn
fyrir ræstingafólkið í Lundi og á
Kirkjuhvoli.
Verkalýðsfélögin gera kröfu um
að laun ræstingafólksins hækki al-
mennt um liðlega 6% frá taxtanum
1. febrúar sl., að sögn Sigurðar
Óskarssonar, framkvæmdastjóra
ASS.
Það er tilkomumikil sjón að sjá hnúfubak, 40 til 50 lestir að þyngd,
stökkva.
Á hnúfubaksslóð útafJökli
HNÚFUBAKUR er ein þeirra hvaltegunda, sem hafa verið friðað-
ar undanfarin ár og eru í nokkrum mæli hér við land. Hnúfubakur-
inn hefur þann sið að veifa sporðinum, þegar hann stingur sér,
en enginn hnúfubakur hefur eins litasamsetningu á sporðinum.
Því má þekkja þá í sundur, koma í veg fyrir tvítalningu og fylgj-
ast með ferðum þeirra með þvi að gaumgæfa litasamsetninguna.
Úlfur Ámason, doktor í erfðafræði, brá sér í leiðangur vestur af Jökli
fyrir skömmu á rannsóknarskipinu Dröfn ásamt sænskum kollega og
Þórði Eyþórssyni, deildarstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu og hvala-
skyttu, auk fleiri manna. Erindið var að taka sýni úr hnúfubak og
steypireyði. Úlfur sagði leiðangurinn hafa heppnast vel og að mikið af
hval hefði verið þama.
Myndarlegur sporðurinn hverfur í hafið.
Veiðarnar mega
hefjast á sunnudag:
Tilboði
um fijálst
loðnuverð
var hafnað
ÁKVÖRÐUN um loðnuverð
var í gær vísað til yfimefnd-
ar Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins eftir að tilboð
útgerðarmanna og sjó-
manna um frjálsa verð-
myndun hafði verið hafnað.
Loðnuveiðar mega hefjast á
sunnudag. Kristján Ragn-
arsson, framkvæmdasíjóri
LÍÚ, segir eigendur verk-
smiðjanna svo hrædda hvora
við aðra, að þeir þori ekki
að samþykkja fijálst verð.
Kristján Ragnarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið, að sér
væri það hulin ráðgáta, að ekki
skyldi vera hægt að samþykkja
fijálst verð, sem miðaðist við
framboð og eftirspum. Kaupend-
ur hefðu venjulega þann háttinn
á, þegar verð væri ákveðið með
atkvæðum seljenda og odda-
manns, að mótmæla verðinu
hástöfum, en yfirborga svo hver
í kapp við annan. Þetta væri í
raun ekkert nema illskiljanlegur
skrípaleikur. Seljendur myndu
því í yfimefndinni halda uppi
kröfum um sambærilegt verð við
það, sem greitt væri erlendis fyr-
ir loðnuna.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins mun fyrsta skipið,
Gísli Ámi RE, halda á miðin í
kvöld, en reiknað er með að fleiri
láti úr höfn næstu daga. Má þar
nefna Eskifjarðarskipin Jón
Kjartansson og Guðrúnu Þorkels-
dóttur og Súluna frá Akureyri.
Einhveijir munu bíða fram yfír
verzlunarmannahelgi. Norðmenn
og Færeyingar em komnir á mið-
in og mun loðna hafa fundizt
suðvestur af Jan-Mayen. Færey-
ingar munu nú hafa náð sam-
komulagi við Grænlendinga um
að greiða um 15 aura íslenzka
fyrir hvert kíló af loðnu, sem
þeir veiða þar, um 65.000 lestir.
Búist við undirritun samnings ríkis og lögreglu í dag:
Lögreglumenn afsala
sér verkfallsréttinum
Fá umtalsverðar kjarabætur. Samningarnir kynntir í dag
ALLAR LlKUR eru taldar á þvi að samninganefndir ríkisins og
Landsambands lögreglumanna muni í dag undirrita kjarasamning,
sem m.a. felur það í sér að lögreglumenn afsala sér verkfallsrétti
sinum, ogfá í staðinn umtalsverðar kjarabætur, eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst.
Þessir samningar þykja tíma-
mótasamningar, fyrir það, að
Landsamband lögreglumanna fellst
á að verkfallsréttur lögreglumanna
verði afnuminn. Lögreglumenn fá
verulegar kjarabætur í þessum
samningum, en samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, þá verður hér
ekki um mikinn kostnaðarauka fyr-
ir ríkissjóð að ræða, þar sem ýmsar
skipulagsbreytingar, sem fela í sér
aukið hagræði fyrir ríkið, eru
ákveðnar jafnhliða þessum samn-
ingum, og draga verulega úr
kostnaði ríkissjóðs við löggæsluna. ,
Einar Bjamason formaður Land-
sambands lögreglumanna sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær: „Það er ekkert hægt
að segja um þessi samningsdrög
annað en það, að á morgun verður
haldinn félagsfundur hjá Landsam-
bandi lögreglumanna, þar sem þessi
samningsdrög verða kynnt. Það
verður svo trúlega atkvæðagreiðsla
félagsmanna um samninginn í
næstu viku."
Hátt á fjórða hundrað lögreglu-
manna sagði upp störfum sínum í
vor, vegna óánægju með kaup og
kjör. Uppsagnir þeirra áttu að taka
gildi 1. júlí sl. en uppsagnarfrestur-
inn var framlengdur til 1. október.
Herma heimildir Morgunblaðsins,
að þeir samningar sem væntanlega
verða undirritaðir á milli samninga-
nefnda ríkis og lögreglumanna
kunni að fá fjölda þeirra sem sagt
hafa upp störfum, til þess að endur-
skoða þá afstöðu sína.